Þjóðviljinn - 11.03.1981, Side 15

Þjóðviljinn - 11.03.1981, Side 15
Miðvikudagur 11. mars 1981 'ÞJÓÐVÍLJlNN — SÍÐÁ 15 Hringið i sima 81333 kL9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum lesendum Meira frá 12 á báti Einsog lesendur muna birtist i þessum dálkum i gær upphaf að hugvekju tólfmenninga sem kalla sig „Tólf á báti”. Hér fer á eftir seinni hluti hugvekjunnar. ekki hyggilegra — frá bláköldu hagsmunasjónarmiöi skoöað, að bægja þeirri þróun frá þjóðinni? Kreppa Borgin bessi rikisstjórn á við miklu erfiðari verkefni að glima en ella, vegna þess kreppuástands, sem er bæði vestan hafs og austan. Bölvun atvinnuleysisins fer vaxandi i helstu viðskipta- löndum okkar. Og eölilega hefur það áhrif á afuröasölu okkar. Okkur, 12 á báti, finnst þvi óhyggilega að staðið, er launa- stéttir, sem hafa nóg að bita og brenna, hefja verkföll til að heimta stærrihlut, t.d. i hækkun fiskverðs, sem torveldað getur sölu afurðanna. — Og hvað þá? Eykur það ekki likurnar fyrir þvi, að kreppuástand og at- vinnuleysi færist hingað? Er Það er i fyrsta skipti i áratugi, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki meirihluta i borgarstjórn. Og þaö út af fyrir sig, hefur áreiðanlega skapað þeim er viö tóku erfiðleika, að byrja með. Við — 12 á báti — erum að athuguðu máli, allir sammála um, að þeir þrir flokkar, sem Sjálfstæðismenn sögöu, að gætu ekki unnið saman og myndu fara með allt norður og niður, hafi sannað, að þeir geta unnið saman, þótt skoðanir séu skipt- ar. En flest bendir til, að þeir hafi unnið saman af fullri einlægni. Og það leikur enginn efi á, að þeir hafa bætt ýmislegt, sem bæta mátti. Og það er erfitt Styttið dagskrána Reykvikingur hringdi: — Nú er mikið rætt um sparn- aðarráðstafanir útvarpsins, og sýnist sitt hverjum um hvernig skuli spara. Mér dettur i hug að það mætti stytta útvarpsdagskrána og hafa hana frá kl. 8 til 23, nema á laugardögum, þá mætti spila danslög til kl. 1. A sunnudögum mætti gjarna vera meira um harmónikkutónlist og annað sem fólk kann að meta, i staðinn fyrir allar sinfóníurnar. Hvað sjónvarpið snertir finnst mér að annaðhvort eigi að fækka útsendingardögum i fimm á viku, eða bæta einum mánuði við sumarfriið — á sumrin eru hvort eð er flestir á þeytingi út um allt, eða úti i góða veðrinu. Ég leggst eindregið gegn þvi að afnotagjaldið verði hækkað, — almúginn hefur nóg að borga. En ég tel nauðsynlegt að reynt verði að koma sem fyrst upp sameiginlegu húsnæði fyrir hljóðvarp og sjónvarp; i þvi hlýturað vera fólgin hagræöing, og betri nýting á starfsfólki, ef rétt er að staðið. Að lokum vil ég lýsa yfir samúð minni með Andrési Björnssyni útvarpsstjóra vegna þeirra ómaklegu árása sem hann varð fyrir siðast þegar ráðið var fólk á fréttastofuna. Mér finnst konan sem fékk eitt atkvæði i útvarpsráði sist verri en sú sem fékk 6, og um Einar örn Stefánsson er það að segja að hann er ágætur fréttamaöur og enginn hnökri á hans máli. að koma auga á, að borginni hefði verið betur stjórnað af fyrri meirihluta. Vinni þessir flokkar áfram saman af eindrægni, er full ástæða til að styðja þá áfram, minnsta kosti tvö kjörtimabil i viöbót. Þá veröur komið i ljós hvort þeir eru verðir frekari stuðnings eöa ekki. Að vísu virðistþað þegar sannað. Næsta kjörtfmabil skilar þvi enn meiri árangri. Enda liklegt, að samvinna styrkist. Dalvík Ráðherra veitti stöðu apótek- ara á Dalvik, sem ekki er i frá- sögur færandi. Kona skipaði efsta sæti á meðmælalista, en ráðherra veitti karlmanni stöðuna, þar eð hann hafði lengri starfsreynslu i apóteki. Val milli þeirra var þvi mats- atriði, og mat ráðherra var, að lengri starfsreynsla i apóteki ætti að ráða. Og þá er hann sak- aður um, að mismunun milli kynja hafi ráðið valinu, og aí> hann hafi brotið jafnréttislögin. Þótt mikilvægt sé að koma höggi á mikilhæfan pólitiskan. andstæðing, er ekki til fyrir- myndar, og óhyggilegt að fara með visvitandi ósannindi Svavar Gestsson hefur stutt a? þvi, sem er konum þúsund sinn um mikilvægara en ein stöðu veiting. Og þeir, sem nokkuð fylgjast með þessum málum, vita, að Svavar hefur eindregið stutt jafnrétti milli karla og kvenna, en ekki sérréttindi. Og þeirra æskja konur ekki. Það bendir ekkert til, að urn hlutdrægni hafi verið að ræða. En þegar tveir eða fleiri sækja, verður að velja og hafna. Ein- hver hreppir hnossið. Og ein- hver eða einhverjir verða fyrir vonbrigðum. 12 á bátiu Spaug — Er Súpermann ofsa klár? — Jahá! — En af hverju er hann þá í nærbuxum utan yfir sokkabuxunum? Siggi litli var að skrifa ömmu sinni bréf og vand- aði sig auðvitað mjög mikið. Mamma kom og kikti á það sem hann var búinn að skrifa, og spurði: — Af hverju hefurðu stafina svona stóra? Þú ert ekki vanur því. — Já, en amma heyrir svo illa, svo ég verð að skrifa hátt. Mamma: Jæja, Stína, nú átt þú að fara i pianó- tíma. Þvoðu þér um hendurnar áður en þú ferð. Stína: Æ, mamma, þarf ég endilega að þvo mér um hendurnar? Ég lofa að spila bara á svörtu nóturnar. Amma: Af hverju star- irðu svona á afaklukk- una, Dísa mín? Dísa: Ég hef séð gauk koma út úr gauksklukku, og nú er ég að bíða eftir að afi komi út úr afa- klukkunni. Barnahornid r~i •"v-u • -f sff * Ar 8 ‘w> * 38 23 28 ,34 29- 30. f S ^X.33 \ 32 Hver er að mála? Hér er einhver sem heldur á pensli og litaspjaldi og er að mála — en hver er það? Það geturðu séð ef þú teng- ir punktana frá l—61. Óbreyttum borgurum stillt upp við vegg I San Salvador. Nýtt Víetnam? t kvöld verður sýnd ný fréttamynd frá El Salvador. Þar hefur borgarastrlð geisað um langa hrið og ágerist stöðugt. Bandarlkjamenn hafa nú aukið aðstoð sina við morðingjakllkuna sem situr við völd i þessu fátæka landi og sent þangað bæði vopn og hernaðarráðgjafa i siauknum mæli. Til þess að réttlæta þessar gerðir sinar þykjast kúrekarnir i Washington hafa fundið skjöl sem „sanni” að vondir kommúnistar i Sovét- rikjunum, á Kúbu, í Vietnam ogNicaragua standi á bak við uppreisn þjóðarinnar i El Salvador. Heldur hefur þeim gengið treglega að sannfæra heimsbyggðina um réttmæti ihlutunarinnar i El Salvador, ö Sjónvarp TF kl. 22.25 og margir mætir menn hafa varað Reagan við og bent hon- um á að svona hafi þetta lika byrjað i Vietnam á sinum tima. En hann virðist ekki kippa sér upp við slikar að- varanir, sá gamli. Það horfir þvi uggvænlega i Mið- Ameriku um þessar mundir og er fyllsta ástæöa til að fylgjast vel með framvindu mála i El Salvador. Þróunin þar verður prófsteinn á alla þróun i þess- um heimshluta, þar sem baráttan stendur milli fjöld- ans snauða og kúgunarstjórna sem njóta stuðnings Banda- rikjanna. —ih Nýlistavaka Sjónvarp kl. 21.55 Vaka byrjar seinna I kvöld cn verið hefur hingað til, vegna þess að grátmynda- flokkurinn sivinsæli, „Húsið á sléttunni”, hefur verið færður af sunnudögum á miðviku- daga af sparnaðarástæðum. Það er semsé ekki Húsið á sléttunni, sem vikur, heldur framhaldsmyndaflokkarnir sem sýndir hafa verið á mið- vikudögum. Vaka er að þessu sinni helg- uð nýlist. Að sögn Kristinar Pálsdóttur, upptökustjóra þáttarins, verður sýnt ýmis- legt af þvi sem fram fór á ný- afstaðinni „gjörningaviku” Nýlistasafnsins, og rætt viö listamennina um viðhorf þeirra til þess sem þeir voru aö gera þar. Þá veröur heimsótt nýlista- deild Myndlista- og handiða- skólans og fylgst með þvi sem menn eru þar að bauka. Rætt veröur við nemendur deildar- innar. Magnús Pálsson mynd- listarmaöur er umsjónarmað- ur Vöku I kvöld, og Atli Heimir Nýlistamaður að störfum. Sveinsson tónskáld er honum til aðstoðar I vðtölunum viö nýlistamenn. _ih Skólanám í fangelsi Ælþ, Útvarp ifp kl. 20.00 Þátturinn „Úr skólallfinu” er á dagskrá I kvöld, I umsjá Kristjáns E. Guðmundssonar menntaskólakennara. i þetta sinn fjallar hann um nám og fræðslu I fangelsum. — Ég ræði fyrst við afbrota- fræðinginn Erlend Sigurð Baldursson um mikilvægi skólanáms fyrir aðlögun fanga að þjóðfélaginu. Siðan fer ég i heimsókn á Litla- Hraun, en þar er rekinn skóli fyrir fanga. Skólinn er rekinn i samvinnu við iðnskólann á Selfossi, og veitir föngunum tækifæri til iðnmenntunar. Þessi skóli er sá eini sinnar Kristján E. Guðmundsson tegundar hér á landi, og það var Helgi Gunnarsson fangelsisstjóri sem byrjaði meö hann 1974. Fyrir 2—3 ár- um fékkst samþykkt að ráða kennara i fullt starf við skól- ann. Ég ræði við Helga og kennarann, Þorgils Axelsson. Einnig ræði ég við tvo fanga, og er annar i framhaldsnámi, stefnir að stúdentsprófi, en hinn i almennu iðnnámi. —ih

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.