Þjóðviljinn - 21.03.1981, Page 2
ÞJÓÐVILJINN — Helgin 14.-15. mars 1981.
Helgin 14.-15. mars 1981. — ÞJÓÐVILJINN
1
um helgina
syningar
Kjarvalsstaðir
Guörún Svava: Svavarsdóttir og
Þorbjörg Höskuldsdóttir sýna málverk i
vestursal. Úr fórum Grete og Ragnars
Asgeirssonar, sýning i Kjarvalssal. Op-
ið kl. 14—22.
Nýlistasafnið
Ólafur Lárusson og Þór Vigfússon sýna
myndverk. Opið kl. 16—20 virka daga,
kl. 12—20 um helgar.
Ásmundarsalur
Málverka sýning Rónalds Simonar-
sonar. Siðasta sýningarhelgi. Opið kl.
14—22 alla daga.
Torfan
Teikningar af leikmyndum og búning-
um eftir Messiönu Tómasdóttur.
Djúpið
Frank van Mens frá Hollandi opnar á
laugardag sýningu á teikningum og
málverkum. Opiö kl. 11—23.30 daglega.
Gallerí Langbrók
Sýning Ingibjargar Sigurðardóttur:
Ullarleikur. Opið kl. 12—18 virka daga
og kl. 16—18 um helgar.
Mokka
Gunnlaugur ó. Johnson sýnir .teikn-
ingar.
Nýja galleriið, Laugavegi 28
Magnús Þórarinsson sýnir nýjar og
eldri myndir.
Rauða húsið, Akureyri
Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir mál-
verk, teikningar og bækur.
lerikhús
Alþýðuleikhúsið
Konalaugardag kl. 20.30. Kóngsdóttirin
sunnudag kl. 15.
Stjórnleysinginn sunnudag kl. 20.30.
Nemendaleikhúsið
Peysufatadagurinn sunnudag kl. 20.
Leikfélag Reykjavíkur
Rommi laugardag kl. 20.30.
ótemjan sunnudag kl. 20.30.
Þjóðleikhúsið
Sölumaður deyrsunnudag kl. 20. Oliver
Twist sunnudag kl. 15. Sölumaöur deyr
sunnudag kl. 20.
Litla sviðið
Likaminn, annaö ekki, sunnudag kl.
20.30.
Flensborgarskóli
Jakob eða agaspursmálið, frumsýning
sunnudag kl. 20.
bíó
Háskólabió, Laugarásbíó
Punktur, punktur... Mynd Þorsteins
Jónssonar eftir bók Péturs Gunnarsson-
ar. Kl. 5,7, 9 Laugarásbiói, kl. 3, 5, 7 og 9
Háskólabiói.
Tónabíó
Hárið.Gerð af tékkneska meistaranum
Milos Forman i Bandarikjunum eftir
samnefndum frægum söngleik. Ótrú-
legt, en satt: Það tekst og á enn erindi!
Sýnd á öllum sýningum.
Fjalakötturinn
Húsvörðurinn. Eftir samnefndu leikriti.
Harold Pinter. Leikstjóri: Clive Bonner.
Regnboginn
Filamaðurinn, bresk, gerð 1980. Leik-
stjóri David Linch. Leikendur: John
Hurt, Anthony Hopkins, John Giegud.
Mjög athyglisverð mynd um mann sem
var afskræmdur i útliti vegna sjúkdóms,
en bjó yfir fagurri sál.
Nýja bió
Willie og Phil. Ný mynd eftir Paul
Mazursky, frumsýnd i agust s.l. Fjallar
um vináttu tveggja karlmanna og ást
þeirra til sömu konunnar. Hefur fengiö
frábæra dóma. Sýnd á öllum sýningum.
Og svo sameinast allir i Concerto grosso eftir Corelli.
Tónlistarstefna í
Kópavogskirkju
1 tilefni af 25 ára afmæli
Kópavogskaupstaðar mun Tón-
listarskóli Kópavogs annast
tónleika sem haldnir verða i
Kópavogskirkju sunnudaginn
22. mars n.k. kl. 17.00.
Flutt verða sönglög eftir elsta
núlifandi tónskáld kaupstaöar-
ins, Sigfús Haildórsson, Guð-
mundur Guðjónsson tenór syng-
ur viö undirleik höfundar.
Einnig veröa flutt verk eftir
yngstu tónskáldin, þ.e. nemend-
ur i skólanum, bæði sönglög og
verk fyrir hljóðfæri.
Aö lokum munu fyrrverandi
og núverandi nemendur og
kennarar skólans sameinast um
að flytja Concerto grosso nr. 1 i
D-dúr eftir Corelli.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Frank vanMens: hugarflug.draumurogveruleiki... (ljósm^: eik)
Hollendingur sýnir Is-
landsteikningar sínar
Hollenskur listamaður, Frank
van Mens, er aö opna sýningu á
teikningum i Djúpinu undir
Horninu i Hafnarstræti.
Listamaöurinn segir svo frá þvi
sem þar er aö sjá:
Eftir tveggja ára flakk um
Þýskaland, Holland og Italiu,
þar sem ég teiknaði, spilaði i
ýmsum hljómsveitum, gladdist,
hneykslaðist osfvr. kom ég til
tslands fyrir ári siðan.
Teikningarnar sem ég sýni i
Djúpinu eru að hálfu leyti frá
minum fyrstu tveim mánuðum
hér. Þær komu eins og af sjalfu
sér fram i fingurgómana og eru
einskonar „samklipp” sjónar,
hugarflugs, draums og veru-'
leika. Summa af reynslu minni i
landinu.
Hinar teikningarnar eru úrval
þess sem ég gerði seinna.
Ég hef haldið sex sýningar i
ýmsum borgum Hollands á
teikningum, málverkum og
grafk.
Nýja bíó frumsýnir:
Willie og Phil
eftir Mazursky
Nýja bió hefur um helgina
sýningar á alveg nýrri (ágúst
1980) bandariskri mynd, Willie
og Phil, gerða af Paul
Mazursky, þeim sama sem
stjórnaði kvikmyndinni An Un-
married Woman (Ógift kona),
sem hér var sýnd fyrir 2—3 ár-
um við miklar vinsæidir, enda
frábær.
Þessi nýja mynd Mazurksys
fjallar um vináttu tveggja karl-
manna, sem báðir verða ást-
fangnir af sömu konunni, og um
Flens-
borgarar
sýna
Ionesco
Leiklistaklúbbur Flensborg-
arskóla mun frumsýna leikritið
„Jakob eða agaspursmálið”
„eðlistrúan kátleik” eftir
Euguéne Ionesco i þýðingu
Karls Guðmundssonar, þann 22.
mars eða næstkomandi sunnu-
dag.
Klúbburinn hóf starfsemi sina
1976 og hefur starfað óslitið
siöan. Fyrsta verkefni klúbbs-
ins var uppfærslan á söngleikn-
um „Ö þetta er indælt strið”
undir stjórn Arna Ibsens. Siðan
rak hvert verkið annað og i
fyrra vakti sýning leiklistar-
klúbbsins á „Gulldrengjunum”
eftir Peter Terson verulega at-
hygliog hlaut góöa aðsókn. Inga
Bjarnason leikstýrði og Sigurð-
ur Rúnar Jónsson sá um tónlist-
ina við leikritiö.
Leikritið „Jakob eða aga-
spursmálið” fjallar um fjöl-
skyldu eina. Sonurinn Jakob
er uppreisnarmaður og neitar
að aðlaga sig að erfðavenjum og
li é
Jakob, sem
stjórn....
ekki lætur
gervilifi fjölskyldunnar. Hún
(fjölskyldan) vill steypa hann i
ákveðið mót, sveigja hann að
sinum vilja og kreista úr honum
sálina og persónuna.
Eugéne Ionesco er þekktur
höfundur og er hvað þekktastur
fyrir svokölluð „absúrd-leik-
rita” og hafa mörg leikrita hans
verið sýnd hér á landi, þar á
meöal leikritin „Nashyrning-
arnir”, „Kennslustundin og
Stólarnir” og „Sköllótta söng-
konan”. „Jakob eða agaspurs-
málið” samdi hann 1958.
Alls fara 9 manns með hlut-
verk i leiknum en um allt taka
20 manns þá i uppfærslunni.
Leikstjórn er i höndum Jóns
Júliussonar.
Tónlistarfélagið í dag:
Gunnar Kvaran og
Gísli Magnússon
Gunnar Kvaran sellóleikari og
Gisli Magnússon pianóleikari
halda tónleika á vegum Tón-
listarfélagsins i Reykjavik, i dag
21. mars kl. 2.30 i Austurbæjarbiói
A efnisskrá tónleikanna eru
sónata nr. 5 i e-moll eftir Antonio
Vivaldi, sónata „Arpeggione” op.
Posth. eftir Franz Schubert, Tólf
tilbrigðium stef eftir Handel eftir
L.v. Beethoven og siðast sónata i
e-moll op. 38 eftir Jóhannes
Brahms.
Gunnar Kvaran er fædd-
ur i Reykjavik og hóf tónlistar-
nám hjá dr. Heinz Edelstein. Sið-
an stundaði hann nám hjá Einari
Vigfússyni, Tónlistarskólann i
Reykjavik, Frá 1964—1971 var
Gunnar nemandi Erlings Blön-
dals Bengtssonar við Tónlistar-
háskólann i Kaupmannahöfn
Gunnar var aðstoðarkennari hans
frá 1968—1974. Gunnar Kvaran
hlaut tónlistarverölaun Gades
1969. Framhaldsnám stundaði
hann hjá prófessor Reine Flachot
i Basel og Paris. Gunnar Kvaran
hefur haldið tónleika i Frakk-
landi, Þýskalandi, Hollandi og á
öllum Norðurlöndunum.
Gisli Magnússon stundaði nám i
pianóleik við Tónlistarskólann i
Reykjavik og siðan við Tónlistar
háskólann i Zurich, en kennari
hans þar var Walter Frey. Gisli
Magnússon lauk einleiksprófi ár
ið 1953. Gisli hélt fyrstu opinberu
tónleika sina á vegum Tónlistar
félagsins árið 1951. Gisli Magnús-
son hefur leikið á fjöldamörgum
tónleikum á Islandi, sem einleik-
ari og þátttakandi i kammer
músikflutningi. Haustið 1974 ferð
aðist Gfsli um Norðurlöndin með
Gunnari Kvaran en sú ferð var
styrkt af Nomus
samskipti þeirra þriggja. Sama
tema notaði Francois Truffaut i
mynd sinni Jules og Jim, sem
löngu er komin i tölu klassiskra
kvikmyndaverka. Mazursky
fylgir hiö ytra sömu sögu — i
bandarisku umhverfi og á öör-
um tima auövitað, — en myndin
er þó annað og meira en virö-
ingarvottur við Truffaut.
Ekki sakar að geta þess, að
sænski kvikmyndatökumaður-
inn Sven Nykvist leggur sitt af
mörkum við gerð myndarinnar.
Aöaihiutverkin, Wiliie, Phil og vinkonan Jeanette eru I höndum
Jan Miner, Juiie Bovasso og Kathleen Magurie.
Gisli og Gunnar leika i Hliöarenda.
Síöasta
helgi hjá
Ronald
Sýningu Ronalds á 30 vatns-
litaverkum og oliumyndum lýk-
ur i Ásmundarsal á Skólavörðu-
holti sunnudaginn 22. kl. 22.
Þarna eru eingöngu sýnd nú
verk sem til eru komin á þessu
og siðasta ári, en nú er rétt ár
liðið frá stórri yfirlitssýningu
Ronalds i Reykjavlk.
Fjöldi fólks hefur þegar séð
sýninguna og ekki skemmir að r
fyrir helgina hafði um helming-
ur sýningarverkanna selst.
Vamir gegn
hjarta-
sjúkdómum
I dag verður haldinn
fræðslufundur i Bæjarbiói i
Hafnarfirði um varnir gegn
hjartasjúkdómum og llfgun
úr dauðadái. Verður sýnd
fræðslukvikmynd og einnig
mun Asbjörn Sigfússon,
læknir, halda erindi og svara
fyrirspurnum um þessi efni.
Junior Chamber i Hafnar-
firði stendur fyrir þessum
fundi sem er öllum opinn.
JC-félög um allt land verða
reyndar með kynningu og
námskeið i hjartahnoði i
samvinnu við Rauða kross
tslands, lækna, Slysavarnar-
félög og skáta. Kalla JC-fé-
lögin daginn „lifgunardag,
til aö ieggja áherslu á mikil-
vægi kunnáttu i endurlifgun.
Fjáröflun
A morgun, sunnudag, er
árlegur fjáröflunardagur
Kvenfélags Langholts-
sóknar. Þeim fjármunum
sem þá safnast er variö i
kirk jubyggingarsjóð.
Kirkjuskip safnaðarins
komst undir þak sl. haust.
Að lokinni guðsþjónustu kl.
3 siðdegis verður kaffisala á
vegum kvenféiagsins i Safn-
aðarheimilinu við Sóiheima.
I upphafi mun kór Lang-
holtskirkju syngja þar i and-
dyri og auk þess munu kór-
félagar „láta i té ýmiskonar
hljómiist og söng” meðan
kaffi er drukkið. Merki
Langholtsóknar verða seld
og afhent söiubörnum f Safn-
aöarheimilinu kl. 10 aö
morgni.
Fjölskyldu-
skemmtun
soroptimista
A morgun, sunnudag, 22.
mars, heldur Soroptimista-
klúbbur Reykjavikur barna-
og fjölskylduskemmtun i
Tjarnarbiói til ágóöa fyrir
starfsemi sina, og hefst hún
kl. 2 e.h. Þar verður fjöl-
breytt efni á dagskrá, sýnd
veröur kvikmynd, 2 barna-
pör úr Þjóðdansafélagi
Reykjavikur sýna dans,
Barnakór Seltjarnarness
syngur, börn leika á hljóð-
færi, Jóhann Helgason sýng-
ur, Gerður Hjörleifsdóttir les
sögu og fóstrunemar
skemmta. Jörundur kynnir.
Aðgangseyri er i hóf stillt.
Soroptimistar eru deild i
alþjóölegum kvennasamtök-
um. Þeir efna til fjáröflunar i
ýmsu formi til aðstoðar við
fatlaðra, til tækjakaupa á
sjúkrahús og fleiri skyldra
verkefna.
Guðrún
Helgadóttir
kynnir
Jóna tvo
Barnabókadagar Bókhlöð-
unnar eru i fullum gangi og i
dag laugardag kl. 3 kemur
Guörún Heigadóttir rithöf-
undur og kynnir þá bræður
Jón Odd og Jón Bjarna og les
upp úr bókunum. Strax aö
þvi loknu mun Sigurður
Jóelsson lesa úr bókinni Orð-
skyggnir. I Baöstofu Bók-
hlööunnar eru kaffiveitingar
og gosdrykkir til sölu á vægu
verði.
Bókamarkaöurinn er op-
inn til kl. 17 i dag. 5% af
bókasölunni renna til Félags
heyrnarlausra.
Rætt við Hauk
Haraldsson, sem
nýkominn er
heim úr
heimsókn til
höfuðstöðva
Soiidarnosc
í Póilandi
— Þaðsem mér fannst
kannski mest einkenn-
andi fyrir stöðuna í
Póllandi, var hversu
Lech Walesa og aðrir
fulltrúar úr samstarfs-
nefnd Solidarnosc voru
^bb nnHgm a
Úr anddyri höfuðstöðvanna, þar sem daglega eru hengdar upp ýmiss konar tilkynningar til félags-
manna samtakanna. Eins og sjá má fylgjast Pólverjar vel með öllu sem fram fer. — Mynd: — Haukur
Már.
Verkfallsvopnið það
eina sem við höfum
bjartsýnir á framtíðina
og vissir um að barátta
þeirra muni skila sér í
bættu ástandi innan þess
þjóðskipulags sem þeir
búa við, sagði Haukur
Már Haraldsson, blaða-
fulltrúi ASI og ritstjóri
Vinnunnar, í samtali við
Þjóðviljann í gær, þá
nýkominn til landsins úr
stuttri kynnisför til höf-
uðstöðva Solidarnosc í
Gdansk í Póllandi.
— Tilgangur feröar minnar
til Póllandsvar annarsvegar að
afla efnis fyrir Vinnuna, og hins
vegar að flytja leiðtogum Soli-
darnosc boð um samstarf og
samskipti við ASÍ og að upp-
hafið að sliku samstarfi yröi boö
þriggja leiðtoga samtakanna til
tslands á þessu ári. Þessu boöi
kom ég á framfæri á stuttum
fundi sem ég átti meö Lech
Walesa, og tók hann mjög vel i
erindið, en við ákváðum að biða
með að dagsetja heimsóknina
þar til i vor, þar sem mikið starf
stendur fyrir dyrum hjá sam-
tökunum nú á næstu vikum við
undirbúning fyrstu kosninga til
stjórna hinna ýmsu deilda
hreyfingarinnar um ailt landið.
- Hvernig er skipuiag
Solidarnosc háttað?
— I raun má segja að með
þeim kosningum sem eru fram-
undan sé verið aö reyna að
koma einhverju formlegu
skipulagi á starfsemi óháðu
verkalýöshreyfingarinnar.
Hingað til hefur starfsemin
verið frekar óskipulögð, þe.
byggst upp á svæðasamböndum
sem hafa starfað alveg sjálf-
stætt, og i svokallaðri samstarfs-
nefnd hefur veriö reynt aö
mynda einhverskonar yfirstjórn
hreyfingarinnar, en þar eiga
sæti fulltrúar allra svæðasam-
bandanna. Formlega hefur
ennþá ekkert verið til sem heitir
heildarsamtök, heldur hafa öll
svæðasambönd og félög starfaö
sjálfstætt. I Gdansk hafa þróast
upp nokkurs konar stjórn-
stöðvar, i sjálfu sér eingöngu
vegna þess að þar i skipasmiöa-
stöðvunum varð fyrsti visir að
Solidarnosc til, og þar búa
flestir þeirra manna sem hafa
orðiö mestu áhrifamenn i starfi
hreyfingarinnar.
150 starfsmenn
í höfuðstöðvunum
I höfuðstöðvum Solidarnosc i
Gdansk, sem eru til húsa i stórri
segir Lech
Walesa um
baráttu
Solidarnosc
5 hæða byggingu.starfa nú um
150 manns i fullri vinnu. Ég var
þarna i höfuðstöðvunum meira
og minna i tvo daga og aflaði
mér upplýsinga um starfsemi
samtakanna og ræddi við ýmsa
forsvarsmenn hreyfingarinnar.
Flest starfsfólkið er mjög ungt
að árum, þvi hreyfingin óttast
skrifstofuveldiö og vildi þvi ekki
ráða vant skrifstofufólk til
starfa. Hins vegar var þetta
hörkuduglegt fólk og virtist hafa
meira en nógu að sinna. Mikill
fjöldi sjálfboðaliða var einnig
sifellt til staðar i byggingunni og
jafnvel á stundum fannst manni
bæði of mikiö af fólki og of mik-
ill asi einkenna vinnubrögðin.
Oll starfsemin er fjármögnuð af
frjálsum framlögum verkafólks
og þaö virtist vera minnsti
höfuðverkurinn. Hinsvegar er
aðal starfið sem nú er fram-
undan að koma á betra skipu-
lagi innan hreyfingarinnar.
Þú áttir fund með Walesa.
Hvernig kom hann þér fyrir
sjónir?
— Já, ég hitti Walesa þegar
hann var rétt nýkominn frá þvi
að sinna deilumálunum i Radon,
og var þá strax farinn að funda
með félögum sinum i höfuö-
stöövunum. Hann virtist gifur-
lega þreyttur, en bar sig vel. Ég
spurði hann ma. að þvi hvort
þessar eilifu verkfallshótanir
einstakra svæðafélaga Soli-
darnosc gerðu allri heildarstarl
semi hreyfingarinnar ekki erfitt
fyrir. Hann svaraöi að svo
mætti kannski segja, en menn
yrðu að gera sér ljóst aö
verkfallsvopniö væri það eina
sem óháðu verkalýðsfélögin
hefðu i höndunum, þegar sú
staða kæmi upp að rikisvaldið
stæði ekki viö sinn hluta af þvi
samkomulagi, sem gert heföi
verið um þriggja mánaða frest
á öllum verkfallsaðgeröum
Solidarnosc.
Viða um land hefði allveru-
lega skort á efndir rikisvaldsins
og sú væri ástæðan fyrir þvi,
að deildirnar væru að boða verk
föll. t Radon var látið undir höf-
uð leggjast að segja tilteknum
yfirmönnum lögreglunnar upp
störfum, en nú væri búiö aö
tryggja aö þeir yrðu látnir fara
frá.
„Lech Walesa maður ársins”
segir á þessu stóra veggspjaldi,
sem er raunar stækkuð forsiða
franska timaritsins L’Express
frá þvi um áramót, og hangir
uppi á einni skrifstofunni i höf-
uðstöðvum Solidarnosc i
Gdansk. Fyrir neðan vegg-
spjaldið situr einn af túlkum
samtakanna. Mynd: —Haukur
Már.
Ástandið miklu
betra 1985
Haukur sagði einnig að sér
hefði fundist áberandi i máli
Walesa og annarra fulltrúa I
samstarfsnefnd Solidarnosc
bjartsýni á framtiðina. „Ef þú
kemur hingað aftur árið 1985, þá
verður ástandið hér miklu betra
en nú”, sagöi Walesa m.a.
„Okkar barátta mun skila sér i
bættu efnahagslegu ástandi inn-
an okkar sósialiska þjóðskipu-
lags. Það sem hingað til hefur
kannski aðallega staðið umbót-
um fyrir þrifum, er sú ritskoöun
sem verið hefur við lýði. Hér
vita allir um vandamálin og
hvérnig má reyna að leysa þau,
en það má eða mátti bara
enginn tala um það áöur.”
Þessir aðilar tóku það mjög
skýrt fram i viöræðunum aö
þeirra barátta væri alls ekki sú
að stefna að umskiptingu
þjóðskipulagsins. Þeir væru
sósialistar.
Beðið eftir Rússum
Hvað fannst þeim um mat-
reiðslu vestrænna fjöimiðla á
fréttum frá Póllandi?
— Ég varð var viö mjög
mikla óánægju hjá þeim meö
hið vestræna fréttamat á at-
burðunum i Póllandi. Þeir sögðu
þaö ljóst vera að þessir fjöl-
miölar heföu engan áhuga á þvi
sem Solidarnosc væri að gera
heldur eingöngu hvaða áhrif
starfsemi hreyfingarinnar hefði
á sálarástand Kremlverja. Sem
dæmi um þetta var mér sögð sú
saga að fyrr i vetur hafi 3 blaða-
menn frá bandariska timaritinu
Newsweek verið i hálfan mánuð
i höfuðstöðvum Solidarnosc og
beðið eftir þvi að Rússarnir
kæmu. Þeir heföu ekkert annað
haft fyrir stafni en aö vona að
þeir yrðu til staðar og þá fyrstir
meö fréttirnar af þvi þegar
Rússarnir kæmu. Eftir hálfs-
mánaöar biö fóru þeir vonsvikn-
ir heim og birtu grein þar sem
þeir fjölluðu um innrásarhætt-
una frá Rússum og birtu m.a.
með kort þar sem sýndar voru
mögulegar leiðir Rússa inn i
Pólland. Fréttamennska sem
þessi væri dæmigerð fyrir vest-
ræna fjölmiðla; barátta Soli-
darnosc fyrir bættu sósialisku
þjóðfélagi skipti minnstu fyrir
þessa aðila.
Solidarnosc —
samtök fólksins
Hvert fannst þér viöhorf fólks
vera til Solidarnosc og þá
kannski lfka til Lech Walesa?
— Þau viðbrögð sem ég varð
var við þann tima sem ég stóð
við, voru öll á þann veg að
Walesa væri ótvíræöur leiðtogi.
Það væri ekki hægt að leysa
vandamálin, nema hann tæki
þátt I þvi. Það var einnig greini-
legt að fólk leit á Solidarnosc
sem sin samtök. Mæður úr
nágrenninu komu einn daginn i
höfuöstöðvarnar og kvörtuðu
yfir mjólkurleysi i búöunum.
Þær höfðu greinilega trú á þvi
aö ef einhver gæti kippt þeim
málum i lag, þá væru það sam-
tökin.
Ég er mjög ánægður með
þessa ferð þótt hún hafi verið
stutt. Mér var veitt fyllsta fyrir-
greiösla af hálfu Solidarnosc og
náði tali af helstu leiðtogum
hreyfingarinnar. Af þeim sam-
tölum mátti merkja aö stuðn-
ingur og samskipti við Alþýðu-
samband Island voru þakksam-
lega þegin á þeim bæ, sagði
Haukur Már að lokum.
— lg-