Þjóðviljinn - 26.03.1981, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 26. mars 198IÞJÓDVILJINN — SÍÐA 7
Samtök herstöðvaandstœðinga:
Fundir um
þróunarlönd
/m « ** ‘V.c 4- . \ •— iMSr A " " T* n ep m \t m ■ • ^ 7 mpX 'n
Sýning i húsi Bjarna riddara
Nýtt hverl qí
Hafnarfirði
Samtök herstöðva-
andstæðinga gangast
um þessar mundir fyrir
fundaröð um þróunar-
löndin. Fyrsti fundurinn
var haldinn á fimmtu-
daginn var, og fiölluðu
þeir Björn Þorsteinsson
og Ólafur R. Einarsson
þá um aðstoð við þró-
unarlöndin. Næsti fund-
ur er í kvöld, fimmtu-
daginn 26. mars,kl. 20.30
i húsakynnum SHA að
Skólavörðustig 1A, og
mun þá Bernharður
Guðmundsson ræða um
misskiptingu lifsgæða i
þróunarlöndum.
Fundaröð þessi mun standa yfir
fram i mai, og hafa þegar verið
ákveðnir fundir út april sem hér
segir: 2. april segir Baldur
Öskarsson frá Tansaniu, 9. april
segia Ingibiörg Haraldsdóttir og
Ölafur Gislas. frá Kúbu, 23. april
fjallar Guðrún Hallgrimsdóttir
um alþjóðastofnanir og þróunar-
hjálp og 30. april ræðir Árni
Björnsson um baráttu nýlendu-
stúdenta.
1 fréttatilkynningu frá SHA
segir svo um markmið þessara
funda:
Herstöðvaandstæðingar lita á
baráttu si'na, meðal annars, sem
baráttu fyrir jöfnuði milli þjóða.
Ein helsta undirrót grimmilega
misjafnra lifskjara i heiminum er
ofurvald rikra stórvelda og auð-
hringa þeirra. Jafnframt eiga
stórveldin mesta sök á þeim
hernaðaranda, sem veldur þvi að
verulegur hluti af efnum snauð-
ustu þjóða eyðist i vigbúnað. Við
Islendingar getum ekki lagt mik-
ið fram til þess að berjast gegn
mætti stórveldanna. En eitt get-
um við gert, við getum losað okk-
ar land úr tökum mesta stórveldis
heims. bannig drögum við örlitið
úr heimsvöldum og valdahroka
Bandarikjamanna og auðveldum
öðrum að vinna hliðstætt verk
annars staðar, þar sem þörfin er
enn brýnni.Barátta herstöðvaand
stæðinga er þannig að einu leyti
stéttabarátta á heimsmæli-
kvarða. Þvi telja Samtök her-
stöðvaandstæðinga ástæðu til að
kynna vanda þróunarlandanna og
koma af stað umræðum um leiðir
til að bæta úr honum.
Hafnarfjarðarbær hefur sett
upp sýningu á teikningum og
skipulagi væntanlegs fjölbýlis-
reits í Hvömmum, en reiturinn
markast af Heyk janesbraut.
Hvammabraut og byggðinni við
Háhvamm. Sýningin er i húsi
Bjarna riddara, Vesturgötu 6 i
llafnarfirði og verður hún opin til
29. mars.
Arið 1979 efndi bæjarstjórn
Hafnarfjarðar til lokaörar sam-
keppni meðal arkitekta um skipu-
lag og hönnun ibúðabyggðar á
tveimur reitum i Hvömmunum.
Dómnefnd mat tillögurnar út frá
þvi hvernig skipulagi reitanna,
umferð, umhverfi, og raunhæfni
væri háttað. i framhaldi af niður-
stööum dómnefndar ákvað
bæjarstjóm að leita samninga við
arkitektana Ingimund Sveinsson
og Gylfa Guöjónsson um frekari
útfærslu og skipulag á öðrum
samkeppnisreitnum. Það eru til-
lögur þeirra sem nú eru til sýnis.
Tillagan gerir ráð fyrir 100—105
ibúöum, þar af eru 42 ibúðir i
þriggja hæða sambýlishúsum,
40—50 i raðhúsum i fjórum þyrp-
ingum ofan hlaðgötu, sem er
hvort tveggja i senn akbraut og
gangstigur, sem liggja mun eftir
svæðinu miðju og tengjast Háa-
hvammi. Neðan við Hlaðgötuna
verða svo 18 raðhús. Fótgangandi
fólk á að hafa forgang á hlað-
brautinni umfram akandi. Ibúða-
gerðirnar eru fjölbreytilegar og
gert er ráð fyrir leiksvæðum og
gönguleiðum.
Höfundar skipulagsins þeir
Gylfi Guðjónsson og Ingimundur
Sveinsson verða á sýningunni i
húsi B jarna riddara i dag milli kl.
17og 19ogá sama tima á laugar-
dag, en sýningin er opin frá kl.
16—19 fram á föstudag, en frá kl.
14—19 á laugardag.
— ká
Ráðstefna fræðslumálanefndar AB:
Lengd skólaskyldu
Námskipan og valkostir í 9. bekk
Laugardag 4. aprfl nk.
gengst fræðslumála-
nefnd Alþýðubanda-
lagsins fyrir ráðstefnu
um lengd skólaskyldu —
námskipan og valkosti i
í). bekk.
Helstu ástæður fyrir þvi, að
fræðslumálanefndin gengst fyrir
þvi að þingað verði um þetta mál
nú, eru þær að ákvörðun um lengd
skólaskyldu kemur til kasta
Alþingis i vetur og nefndin telur
að hér sé um að ræða eitt
þýingarmesta ákvörðunaratriði.
Flokknum er vandi á höndum i
sambandi viö afstöðumótun
vegna þess að i hinni sósialisku
hreyfingu hefur rikt sú skoðun, að
stefna eigi að lengri skólaskyldu,
en nd liggur fyrir að veruleg and-
staða er meðal kennara við að
ákvæði grunnskólalaga um leng-
ingu skólaskyldu komi til fram-
kvæmda og ekki verður i opin-
berri umræðu vart áhuga á að svo
verði.
Eins og fram kemur i þvi heiti,
sem ráðstefnunni er gefið, er
ætlunin að tengja saman
umræður um lengd skólaskyldu
og námskipan og valkosti i 9.
bekk. Er það gert til þess að
málið verði skoðað i sem við-
tækustu samhengi. Til þess að
stuðla frekar að þvi hefur
fræðslumálanefndin tekið saman
yfirlit um nokkur mikilvæg
umhugsunarefni sem fjalla þarf
um. Mynda þau eins konar
umræðugrundvöll:
1. Hvaða áhrif hefur það á lif og
framtið einstaklinga að yfirgefa
skóla án réttinda til framhalds-
náms?
2. Hvernig er hægt að halda
sem bestum möguleikum til
framhaldsnáms opnum?
3. Hefur skólaganga jafnmikið
gildi og oft er haldið fram?
Höfum viö nógu góða skóla til að
forsvaranlegt sé að skylda 15 ára
unglinga til að vera i þeim?
4. Hverju þarf að breyta i efstu
bekkjum grunnskóla til að fleiri
nemendum gagnist námið?
5. Mun þróun nýrrar nám-
skipunar (fleiri tilboða) i efstu
bekkjum grunnskóla tefjast ef
skólinn losnar við þá sem eru
leiðastir á námi eftir 8. bekk?
6. Vita nemendur hvað þeim er
fyrir bestu þegar þeir þurfa að
ákveða um framhald skóla-
göngu? Hvað ræður ákvörð-
uninni?
7. Er líklegt að þeir sem hætta
eftir8. bekk komi til náms siðar?
8. Hvaða ályktanir má draga af
mismiklu hvarfi frá námi eftir
landshlutum?
9. Eru til gild þjóðfélagsleg rök
fyrir lengri skólaskyldu? Sé svo
— hver? (Ath. i þessu sambandi
stöðu dreifbýlis og þjóðfélags-
hópa sem búa við skarðan hlut).
10. Eru til gild persónubundin
rök fyrir lengri skólaskyldu? Sé
svo — hver? (Ath. I þessu
sambandi sjálfsmynd einstak-
linga, þroska- og athafnamögu-
leika).
Framsögumenn á ráðstefnunni
verða þrir: Einar Már Siguröar-
son, skólastjóri á Fáskrúðsfiröi,
Gunnar Árnason, lektor og Gylfi
Guðmundsson, yfirkennari i
Keflavik.
Stefnt er að þvi, að ráðstefnan
skili ályktun til miðstjórnar og
þingflokks Alþýðubandalagsins.
Hún er opin öllum flokksmönnum
Þátttaka tilkynnist skrifstofu
flokksins fyrir föstudag 3. april.
Nánari upplýsingar gefa Gunnar
Arnason s. 11293 og Hörður Berg*
mann s. 16034. Ráðstefnan hefst
kl. 13.30 á laugardag og lýkur
fyrir kvöldmat.
/V1UNID BARATTUSAMKOMU
HERSTÖDVkNNDSTÆDINGK
i Háskólabiói
sunnud. 29.mars. kl.2.
DAGSKRÁ:
RÆÐUMAÐUR: Heimir Pálsson.
KYNNIR: Sólveig Hauksdóttir.
UPPLESTUR ÚR EIGIN VERKUM:
Birgir Svan Símonarson
Pétur Gunnarsson
Ingibjörg Haraldsdóttir
Þorsteinn frá Hamri
VÍSNASÖNGUR:
Aöalsteinn Ásberg Sigurðsson
Bergþóra Árnadóttir
Hjalti Jón Sveinsson
Bergþóra Ingólfsdóttir
Böövar Guðmundsson
Siguröur Rúnar Jónsson kynnir væntanlega hljómplötu SHA.
Útifundur á Austurvelli kl. 6.00, 30. mars.