Þjóðviljinn - 15.05.1981, Qupperneq 3
Föstudagur 15. mai 1981 WÓÐVILJINN — SÍÐA 3
1, 1 Éwm m 111 \f l '-Æí/ \ JfU
■ ',;í XX ' |§S
fe j ’Í.'WÍ f •, ' í'T-i
jn ■
Skáksveit Biina&arbankans, standandi f.v. Jóhann Hjartarson, Kristinn Bjarnason, Stefán Þormar, og
Guöjón Jóhannsson. Sitjandi f.v. Bragi Kristjánsson, Guðmundur Hrafn Thoroddsen og Björn Sigurðs-
son. Á myndina vantar Leif Jósteinsson. (Ljósm. —eik—)
Skáksveit Búnaðarbankans hélt utan í gær:
Til keppni við þrjá
banka í Englandi
og ef til vill unglingalandslið Englands
— Það má segja að þetta sé
einskonar verölaunaferð fyrir að
hafa sigrað 7 ár i röð i A-flokki Is-
lensku stofnanakeppninnar, sagði
Stefán Þormar, fyrirliði skák-
sveitar Biinaðarbankans, sem
hélt utan til London I gær, til
keppni við þrjá enska banka og að
öllumm likindum lika enska
ungiingalandsliðiö.
Stefán sagði að ákveðið væri að
sveitin keppti við Lloyds bank-
ann, Midlandbankann og
Westminsterbankann. Þessir
bankar ættu þokkalega sterkar
skdksveitir, einkanlega Lloyds
bankinn, en starfsmaður hans er
enski stórmeistarinn Spilman, en
hvort hann keppir gegn islensku
sveitinni er ekki vitað.
Þá sagði Stefán ennfremur að 6
af þeim 8, sem eru i BUnaðar-
bankasveitínni hafi teflt I lands-
liðsflokki á Skákþingi tslands og
vantar þó einn enn sem þar hefur
keppt, Jón Kristinsson, en hann
átti ekki heimangengt.
A 1. borði iBUnaðarbankasveit-
inni teflir Jóhann Hjartarson,
fyrrverandi tsalndsmeistari, á 2.
borði Bragi Kristjánsson, á 3.
borði Leifur Jósteinsson, 4. borði
Stefán Þormar, 5. borði Guðjón
Jóhannsson, 6. borði Kristinn
Bjarnason, 7. borði Björn
Sigurösson og 8. borði Guðmund-
ur Hrafn Thoroddsen.
— S.dór
Styrkþegar Menningarsjóös ásamt form. Menntamálaráðs. F.v.: Erlendur Jónsson, Sigrún Jónsdóttir,
Jenna Jensdóttir, Einar Laxness, Þorgerður Ingólfsdóttir, Gunnar Reynir Sveinsson, Agnes Löve,
Bryndís Pétursdóttir og Baldur óskarsson. Ljósm: gel
Níu listamenn hlutu styrki úr Menningarsjóði
Ekkert dekurbam
ríkisvaldsins
Sagði Einar Laxness form.
Menntamálaráðs i ræðu sinni
Menntamálaráð úthlutaði I gær
dvalarstyrkjum til átta lista-
manna, tveimur styrkjum til út-
gáfu tónverka og tólf styrkjum til
fræðimanna. t ræðu við afhend-
ingu styrkjanna sagði Einar
Laxness formaður Menntamála-
ráðs að ráðið væri ekki neitt
dekurbarn stjórnvalda, fjárveit-
ingar hefðu dregist saman á und-
anförnum árum, en það dygði
ekki annað en að sinna þvi hlut-
verki sem Menntamálaráði er
ætiað. Menntamálaráð veitir ekki
lengur styrki til kvikmyndagerö-
ar, þar sem Kvikmyndasjóöur
hefur tekiö viö þvi hlutverki.
Dvalarstyrkir nema 7000 kr.
hver og eru ætlaðir til kynnis-
feröa eða til aö vinna að ákveðnu
verkefni. Að þessu sinni hlutu þá:
Agnes Löve pianóleikari til dvai-
ar i Kaupmannahöfn og/eða
Miinchen til að kynna sér undir-
búnings- og kennslustarf fyrir
óperuflutning, Baldur óskarsson
til dvalar á Spáni til að vinna að
ljóöaþýöingum, ’Bryndis Péturs-
dóttir leikari til að kynna sér leik-
list á Norðurlöndum, Einar Bragi
rithöfundur til dvalar I Grænlandi
og löndum Sama vegna ritstarfa
og útgáfu verka sem tengjast
þessum þjóðum, Erlendur Jóns-
son rithöfundur til dvalar I Eng-
landi og S-Evrópu vegna
samningar ljóðabókar og leikrits,
Jenna Jensdóttir rithöfundur til
dvalar i Baltimore 1 Bandarfkjun-
um til að ljúka undirbúningi aö
ritverki um tvær vesturíslenskar
konur, Sigrún Jónsdóttir myndlit-
armaður til dvalar i Sviþjóð til að
vinna að myndvefnaði um ævi
Snorra Sturlusonar, Þorgerður
Ingólfsdóttir kórstjóri til dvalar i
Þýskalandi og Noregi til að kynna
sér kórstarf og til að vinna að tón-
listarsögulegum rannsóknum.
Þá hlaut Gunnar Reynir
Sveinsson tónskáld 5000 kr. styrk
til nótnaútgáfu tveggja laga-
flokka og Islenska tónverkamiö-
stööin fékk einnig 5000 kr. i sinn
hlut til útgáfu á hljómplötu með
verkum eftir.Jón Nordal.
Fræðimennirnir sem hlutu
styrki að upphæð 1000 kr. hver
eru: Einar H. Einarsson
Skammadalshóli, Eyjólfur Jóns-
son Isafirði, Flosi Björnsson Kvi-
skerjum, Guöbrandur Magnússon
Siglufiröi, Guðmundur A. Finn-
bogason Hvoli, Haraldur
Jóhannsson Reykjavik, Indriði
Indriðason Reykjavlk, Jón Gisla-
son Reykjavik, Jón Guðmundsson
Fjalli, Skúli Helgason Reykjavik,
Þórður Jónsson Hveragerði og
Þórður Tómasson Skógum.
— ká
M Sundnámskeið fyrir
6 ára böm (F. 74)
X'*verður haldið i Sundlaug Kópavogs.
Fyrsta námskeið hefst mánudaginn 25.
mai.
Innritað verður þriðjudaginn 19. mai kl.
13—15,
Sundlaug Kópavogs
Simi 41299.
Rennismiður — Bifvélavirki
Óskum að ráða hið fyrsta rennismið og
bifvélavirkja til starfa i véladeild.
Upplýsingar um störfin eru veittar i sima
21000.
Vegagerð rikisins,
Borgartúni 5,
Reykjavík.
Dagheimili —
F orst öðumaður
Staða forstöðumanns við Dagheimilið i
Neskaupstað er laus til umsóknar nú
þegar.
Fóstrumenntun áskilin.
Allar nánari upplýsingar gefur Svavar
Stefánsson i sima 33726 i Reykjavik,
laugardag 16. mai og sunnudag 17. mai.
Félagsmálaráð Neskaupstaðar.
Vonarland Egilsstöðum
Vistheimilið fyrir þroskahefta að Vonar-
landi Egilsstöðum tekur til starfa i byrj-
un júni. Þeim foréldrum er hyggja á vist-
un, langa eða stutta, fyrir barn sitt er bent
á að umsóknareyðublöð liggja frammi á
sveitarstjórnarskrifstofum, Fræðsluskrif-
stofu Austurlands simi 4211 og á Vonar-
landi i sima 1177 eða 1577.
Vinsamlegast sendið siðan umsóknir svo
fljótt sem auðið er til Vonarlands,Pósthólf
121 Egilsstöðum.
Svæðisstjórn.
•5-
iii '
w
C
Z
Vömskemma
Skipaútgerðar rikisins
Tilboð óskast i byggingu vörugeymsluhúss á
Grófarbryggju i Reykjavik.
Skemman, sem er um 48,5 x 50,9 ferm. að
stærð, er byggð úr forsteyptum útveggjaein-
ingum og forsteyptum burðarvikjum i þaki.
Auk byggingar hússins, skal verktaki annast
vatns-, skolp- og hitalagnir utanhúss, ásamt
snjóbræðslukerfii gólfi hússins og kringum
það, svo og malbikun utanhúss.
Hluti skemmunnar skal vera tilbúinn til af-
nota 1. okt. 1981, en verkinu skal að fullu lok-
ið 15. nóv. 1981.
útboðsgögn verða afhent i skrifstofu vorri
gegn 1.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn
5. júni 1981, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006