Þjóðviljinn - 15.05.1981, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. mai 1981
Nefndarálit um skattafrumvarpið komið fram
Greiðum ekki atkvæði með að
fyrirtæki sleppi við tekjuskatt
Halldór Asgrimsson (F), form.
fjárhags- og viöskiptanefndar
neðri deildar Alþingis mælti i gær
fyrir áliti nefndarinnar um frum-
varp ríkisstjórnarinnar um tekju-
skatt og eignaskatt, en menn hafa
nú beðið nokkuð óþreyjufullir
eftir þessu nef ndaráliti. Nefndin
stendur öll að álitinu, en
Sighvatur Björgvinsson (A)
skiiaði framhaidsáliti einn. Af
þessu tilefni sneri Þjóðviljinn sér
til Hagnars Amalds, fjármála-
ráðherra og spurði hann álits á
nefndarálitinu og hvað i þvf
fælist.
Ragnar Amalds sagði að i
nefndinni heföi tekist samstaða
um að halda 59. gr. laganna um
reiknuð laun atvinnurekenda
inni, en rikisstjórnin hafði lagt til
að greinin yrði felld niöur. Þessi
grein er þó ekki ætluð til aö koma
i veg fyrir skattsvik, eins og
Rætt við Ragnar
Amalds,
fjármálaráðherra
sumir hafa haldið, en samkvæmt
þessari grein var hugsanlegt að
skattur væri lagður á tekjur, sem
aldrei höfðu orðið til. Var þvi
þetta ákvæði mjög gagnrynt.
þingsjá
Hins vegar hefði afnám 59. gr.
haft þaö i för með sér, aö atvinnu-
rekendur hefðu ekki fengið 10%
almennan frádrátt launamanna
og hafa þvi' flest atvinnurekenda-
samtök önnur en samtök bænda
heimtað að 59. gr. yröi tekin aftur
i lög. Verulegar breytingar hafa
verið geröar á framkvæmd þess-
arar greinar og á nú að reyna að
tryggja að skattur verði aldrei
lagður á peningatekjur, sem ekki
hafa orðið til. Hins vegar tak-
markar 59. gr. fyrningar hjá
nokkrum hópi einyrkja. Eins eru
viðmiðunartekjur bænda lækk-
aðar um þriðjung, en viðmiðunin
viö álagningu i fyrra var of há.
Aftur á móti sagðist fjármála-
ráðherra harma þá tillögu
nefndarinnar aö fella niður 17. gr.
frumvarpsins, en hún felur i sér
að Utgjöld vegna fyrninga i at-
vinnurekstri eru lækkuð um allt
að 10%, ef hreinar tekjur i rekstr-
inum eru undir 5% af brúttó-
tekjum. Ragnar sagði að Alþýöu-
bandalagið myndi ekki greiða at-
kvæði með þessari tillögu
Hér er lítið
sýnishorn af
okkar lága
vöruverði:
WC pappir 8 rúl/ur i pakkningu verd kr. 23,30
Eldhúsrúliur 2 stk. i pakkningu verð kr. 9,80
Sö/tuð rúllupylsa kg-verð kr. 26,50
Franskar kartöflur (is/enskar)
2ja kg pokar verð kr. 32,00
Paprikusa/at (Búlgaria)
Dixon þvottaefni 4,5 kg
C 11 þvottaefni 10 kg
Snapp kornf/ögur 500 gr
Kel/ogg 's kornflögur 500 gr
Trix ávaxtakúlur 226 gr
Kapa cocomaft 400 gr
Ananasbitar 1/1 dósir
verð kr. 9,80
verð kr. 86,85
verð kr. 98.00
verð kr. 12,30
verð kr. 15,35
verð kr. 12,60
verð kr. 15,25
verð kr. 10,30
Kaliforniurúsinur Champion 250 gr verð kr. 8,05
Hunang 450 gr
Krakus jarðaber 1/1 dósir
Krakus jarðaber 1/2 dósir
Cocomalt Otker 400 gr
Cacó 480 gr
Grænar baunir 1/2 dósir
Brasi/ist instant kaffi 200 gr
verð kr. 15,50
verð kr. 18,70
verð kr. 11,25
verð kr. 15,55
veró kr. 21.30
verð kr. 6,05
verð kr. 58,30
Matvörudeild: Opið föstudaga kl. 9-22
Opið laugardaga kl. 9-12
VÖRUKYNNINGAR ALLA FÖSTUDAGA KL. 14-20
Allar deildir eru opnar
til kl. 19 á föstudögum
og kl. 9-12 á
laugardögum
Jli
Jón Loftsson hf.
A A A A A A
—! UJ hfj'J
IU< IIJlj ) _
ji jg“i 11;
-rm
i
Hringbraut 121 Sími 10600
nefndarinnar enda eru mörg
hundruð fyrirtæki i landinu sem
sleppa við tekjuskatt. 17. gr. átti
að vera til að tryggja að slikt yröi
ekki liðið lengur.
Hins vegar féllst nefndin á, að
viðbótarfyrningar skv. 44. gr.
lækki Ur 50% i 40% og taldi fjár-
málaráðherra það nokkra bót i
máli. Mikilvægt atriði i nefndar-
álitinu væri loks að námsmenn
sem kost hefðu átt á námsfrá-
drætti og hefðu ekki nytt sér
hann, gætu nU notfært sér hann
fyrstu 5 árin eftir að þeir ljUka
námi.
Fjármálaráðherra taldi að
þessar breytingar nefndarinnar á
frumvarpinu væru ekki veru-
legar, ef undan er skilin tillaga
hennar um að fella niöur 17. gr.
frumvarpsins. 1 þessu skatta-
frumvarpi rikisstjórnarinnar
væru önnur ákvæði miklu mikil-
vægari sem ástæða væri að rifja
upp. 1 fyrsta lagi væri það 1.5%
skattalækkunin hjá framtelj-
endum með almennar launa-
tekjur allt að 10—11 miljónum
gkr. I öðru lagi er gert ráð fyrir
að lágmarks fastur frádráttur hjá
einstæðum foreldrum verði 75%
hærri, en einhleypingum er veitt-
ur. Þá mætti nefna að hagur lág-
tekjufólks er bættur með þvi að
heimila þvi að nýta ónýttan
persónuafslátttil greiðslu eignar-
skatts. Lagt er tU að helmingur
húsaleigu vegna ibúðar til edgin
nota verði frádráttarbær við
álagningu tekjuskatts, sem
kemur vel við leigjendur við
álagningu skatts á næsta ári. Þá
vildi Ragnar að lokum minna á að
lagt er til i skattafrumvarpi rikis-
stjórnarinnar að vangreiðsla á
hluta af sköttum valdi þvi ekki að
allur ógreiddur skattur falli
þegar i gjalddaga ásamt þungum
dráttarvöxtum á alla upphæðina.
—Þig
Langar umræðurumorkufrumvarpið
Framsókn yffr
síg ánægð
Umræður um frumvarp rikis-
stjórnarinnar um orkuver stóðu
yfir i neðri deild Alþingis I um 6
klukkustundir i fyrradag.
Umræðan hófst upp úr kl. 14 og
lauk ekki fyrr en rúmlega kl. 23.00
og var frumvarpið þá afgreitt til
annarrar umræðu.
Við fyrstu umræðu um
virkjanafrumvarp rikisstjórnar-
innar s.l. miðvikudag einkennd-
ust umræðurnar til að byrja með
af gagnrýni stjórnarandstöðu,
einkum frá Sjálfstæöisflokknum,
á það aö gert væri ráð fyrir of
löngum framkvæmdatima og að
ekki væri skýrt ákveðið um stór-
iðjuframkvæmdir i framhaldi af
virkjanaframkvæmdunum. Um
kvöldmatarleytið var gert hlé á
umræöunum. Eftir matarhlé
töluðu þrir þingmenn Fram-
sóknarflokksins um frumvarpiö
og einkenndist málflutningur
þeirra af mikilli ánægju með
frumvarpið.
Guðmundur G. Þórarinsson (F)
*sagði til dæmis að gagnrýni
stjórnarandstöðu á langan fram-
kvæmdatima væri fáránleg þvi
það væri einfaldlega ekki hægt að
virkja hraöar en gert væri ráð
fyrir i frumvarpinu, hér væri um
svo miklar framkvæmdir að
ræða. Guðmundur sagði að frum-
varpiö lýsti stórhuga stefnumót-
un I orku og atvinnumálum lands-
manna. Jafnframt lýsti hann
þeirri skoðun sinni aö best væri að
fara að öllu með gát i sambandi
við nýtingu orkunnar til stóriðju,
svo oft hefðum viö brennt okkur á
flasinu. Tók hann sem dæmi
samninginn um raforkuverðið til
álversins sem hann likti við
myllustein um háls okkar og væri
jafnmikill smánarsamningur og
landhelgissamningurinn sem
Viðreisnarstjórnin gerði við
Breta 1961.
Stefán Valgeirsson (F) sagði að
stefna iönaðarráðherra væri rétt
og skynsamleg og kvaðst ánægð-
ur með heildarstefnuna i þessu
frumvarpi.
Páll Pétursson (F) taldi þetta
gott frumvarp og sagöist styðja
stefnu iönaðarráöherra og flas
væriekki til fagnaöar I virkjunar-
málum og visaöi til Kröflu-
mistakanna I þvi sambandi.
Hjörleifur Guttormsson talaði
slðastur i almennu umræðunum
um orkufrumvarpiö og svaraði
ýmsu i gagnrýni stjórnarandstöö-
unnar. Iðnaöarráðherra sagði að
það eina sem óráðið væri I þessu
frumvarpi væri að ekki væri tekin
afstaða til þess hvora virkjunina
skuli reisa á undan, Blöndu eöa
Fljótsdalsvirkjun, en ákvörðun
um þá röðun hefði enginn þing-
maður treyst sér að taka hingað
til.
— Þig
Stjömu-
útrýmt?
Fjárhags- og viðskipta-
nefnd neðri deildar leggur til
I áliti sinu um skattafrum-
varp rikisstjórnarinnar að
inn i skattalögin verði sett
ákvæði þess efnis að launa-
greiðendur megi aldrei
halda eftir af launum laun-
þega meir en sem svarar
75% af heildarlaunagreiðslu
hverju sinni til greiöslu á
opinberum gjöldum laun-
þegans.
Þetta ákvæði er sett inn til
að koma i veg fyrir að á
seinni hluta ársins fái menn
svonefnda „stjörnutékka”
viö útborgun, þ.e. öll mánað-
arlaunin eru tekin til
greiðslu á opinberum
gjöldum I einu. Hér er um
mikið réttindamál að ræða,
en það mun hafa verið
Guðmundur J. Guðmunds-
son form. Verkamannasam-
bandsins og fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins I fjárhags- og
viöskiptanefnd, og Albert
Guðmundsson sem eiga
heiöurinn af þessari tillögu
nefndarinnar. — Þig