Þjóðviljinn - 23.05.1981, Side 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 23. — 24. mai 1981
ÍSLÁNDI
Fánar voru dregnir aö húnum i tilefni komu loftfarsins og allir voru i hátföarskapi þrátt fyrir aö virkur dagur væri.
Árið 1930 markaði á
ýmsan há+t tímamót í sögu
íslands. Alþingishátíðin
beíndi sjónum heimsins að
þessari afskekktu og fá-
tæku eyju í norðurhöfum.
Um svipað leyti var þýska
loftskipið Graf Zeppelin
sent til landsins og má
nærri geta að uppi varð
fótur og fit í höfuðborginni
þegar þetta fljúgandi
tækniundur sveif yfir
höfðum eyjarskeggja og
vélardynur þess truf laði ró
smábæjarlífsins. Mönn-
um rann kalt vatn á milli
skinns og hörunds við
þessa stórfenglegu sjón.
Verður sá atburður rifjað-
ur IFtillega upp hér og einn-
ig póstflug þessa sama
loftfars ári seinna.
Morguninn 17. jiilí 1930 flaug
eins og eldur i sinti um Reykjavik
að sést h'efði til ioftfars á siglingu
frá Hornafirði og um kl. 10 kom
fregn frá VikiMýrdal sama eðlis.
Þetta kom á óvart þó að flogið
hefði fyrir að e.t.v. kæmi Graf
Zeppelin einmitt þetta sumar. Til
þessað enginn Reykvikingur færi
nú á mis við siglingu Ioftfarsins
yfirbæinn lét Ólafur Kvaran sim-
stöðvarstjóri stúlkurnar á bæjar-
simanum breiöa fregnina út.
Rétt fyrir kl. 11 sást blika á
silfurgljáandi loftfariö suður af
Vifilfelli og virtist það stefna i
áttina að bingvallavatnL en
skyndilega snerist það og brunaði
i áttina til Reykjavikur. Menn
tóku að hópast saman á gatna-
mótum og strætum og spurði hver
annan: „Hvað er á ferðinni?”
,,Hvað er þarna i loftinu?” Menn
klifruðu hópum saman upp á hús-
þök og var mildi að menn hröpuðu
ekki til bana, og allar svalir fyllt-
ust af góðborgurum.
Vélardrunur frá loftfarinu
byrjuðu að berast inn i bæinn er
það var yfir Rauöhólum, og brátt
sveif það yfir bæinn. Þó aö Graf
Zeppelin væri háttá lofti sást far-
þegarýmið undir loftbelgnum að
framanverðu greinilega og fólk -
þar innan við opna glugga. Veðrið
var mjög gott þennan sumardag,
glampandi sól og hægviðri. Loft-
farið fór einn hring yfir bæinn og
var hent fánalinu niður úr þvi
með þyska þjóðfánanum. Siðan
tók það stefnu i NV i átt til Akra-
ness, en sneri við og flaug tvo
hringi enn yfir Reykjavik. Fánar
voru nú dregnir á hún á opin-
berum byggingum og bústöðum
ræðismanna og á hinni nýreistu
Hótel Borg blöktu íslenski og
þýski fáninn hlið við hlið.
Tryggvi Þórhallsson sendi
skeyti til Lehmanns loftfarsfor-
ingja og hljóðaði það svo:
„1 nafni hinnar islensku þjóðar
býð ég yður, herra kommandant,
velkominn til tslands. Ég bið yður
að flytja stjórn Þýskalands
alúðarþökk fyrir þá miklu sæmd
sem hún sýnir Islandi með þvi að
senda Graf Zeppelin til Islands til
að bera enn nýja kveðju frá
Þýskalandi á þúsund ára afmæli
islenska rikisins. Hin fámennasta
af hinum germönsku þjóðum tek-
ur fúslega slikri kveðju frá hinni
fjölmennustu. Heill fylgi för yðar,
herra kommandant, hingað til ís-
lands og heim aftur til Þýska-
lands. Berið bróðurkveðju frá ts-
landi til Þýskalands.”
Lehmann loftfarsforingi
svaraði um hæl:
,,t nafni farþega og skipshafnar
á loftskipinu þakka ég yður, herra
forsætisráðherra, hinar vinsam-
legu og hlýju kveðjur yöar, og
sendum yður hinar bestu ham-
ingjuóskir i' tilefni af alþingis-
hátiðinni og óskir um farsæla
framþróun og framtið tslands.
Hinar hlýju kveöjur yðar munum
vér samvi skusamlega flytja
þýsku þjóðinni.”
Loftskipið fór nú lágt yfir
Arnarhól og laust mannfjöldinn
þar upp fagnaðarópi, en siðan
hvarf það I suðurátt áleiðis til
Bergen. Til heimahafnar i Frið-
rikshöfn á Þýskalandi kom það
siðan eftir 61 klukkustundar flug.
En þetta var ekki i siðasta
skipti sem tslendingar fengu
augum barið hin stórfenglegu
loftskip sem áttu sér glæstan en
stuttan feril i sögu loftferða. Hinn
30. júni' 1931 barst skeyti frá
Friedrichshaven, flugstöð Zeppe-
lin greifa, svohljóðandi:
„Zeppelin greifi lagði af stað
frá Friedrichshaven kl. 5.34 i
morgun um Holland og England,
áleiðis til Islands með 12 far-
þega. Heimleiðis fer loftskipið
meðfram ströndum Skotlands og
Englands.”
Ætlunin var að Graf Zeppelin
kæmi með póst hingað og tæki
aftur flugpósttil baka, hinn fyrsta
i sögunni frá Islandi. Varð nú að
finna hentugan stað þar sem hægt
væri að taka á móti og skila pósti
um borð. Fyrst var rætt um
vatnsmýrina og Melana, en á
fyrrnefnda staðnum voru of
þéttar girðingar til þess að það
þætti áhættulaust og á siðar-
nefnda staðnum voru óheppilegar
loftskeytastangir. Varð þvi
öskjuhliöin aðlokum fyrir valinu.
Loftskipið kom svo yfir bæinn
eldsnemma að morgni 1. júli,
mun fýrr en búist hafði verið við.
Flaug það yfir kl. 6.30 og vöknuðu
bæjarbúar flestir við drunurnar.
Þusti fólk úr rúmum sinum og
allir sem vettlingi gátu valdið
fóru gangandi og hjólandi og ak-
andi suður á öskjuhlið. Þar á
miðju svæði haföi verið komið
fyrir stórum hvitum krossi,
gerðum úr segldúk. Meðan þessu
fór fram fór Graf Zeppelin upp i
Borgarf jörð og sveif þar allt upp i
Stafholtstungur. Varð algjört
uppnám um allan Borgarfjörð,
hundar geltu og kýrnar misstu
nyt.
Skömmu eftir að loftfarið
sveimaöi yfir I fyrsta sinn, brun-
aði póstbillinn upp á öskjuhlið
með tvo stóra póstpoka innan-
borðs. Um kl. 7.30 kom Graf
Zeppelin að nýju og stefndi nú á
öskjuhliðina. ' Rennt var niður
linu með krók á endanum en ekki
var gefið nógu mikið út af henni
til þess aö tækist að koma póst-
pokunum á hana i fyrstu atrennu.
Loftfarið lá ekki heldur nógu vel
við vindi I byrjun. Gerði það nú
aðra atrennu og renndi beint upp I
vindinn og staðnæmdist I um
40—50 metra hæð yfir höfðum
fólks og gekk nú allt aö óskum.
Mörgum fannst loftfarið svo
nærri að það hlyti að leggjast
niður og kremja þá undir sér.
Þetta var þó missýning vegna
stærðar loftfarsins. T.d. var ekki
hægt að greina andlit þeirra sem
voru um borð. Aöeins sást hvltum
klútum og húfum veifað.
Pósturinn sem fór héðan
samanstóð af 11890 bréfum svo að
eitthvaö hefur fólk verið áhuga-
samtað koma bréfi eða korti með
þessu fyrsta póstflugi.
Um kl. 8.20 þennan morgun
hvarf svo Graf Zeppelin yfir fjöll-
in i átt til Grindavikur. Loftfara-
saga Islands var tæmd.
—GFr
Helgin 23. —24. mal 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Hvarvetna var fóik úti á strætum til að fylgjast meðferðum loftfarsins.
Graf Zeppeiin yfir miðborginni. Stóra húsið er Eimskipafélagshúsið.
Yfir Safnahúsinu.
Odýrar
pappírsbleyjur
Henta fyrir börn
allt að 15 mánaða
Sparið tíma og fyrirhöfn
SKEMMUVEGUR 8 SIMI 78140