Þjóðviljinn - 13.06.1981, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 13.06.1981, Blaðsíða 11
Helgin 13.-14. júnl 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 VAR SADE? GÉRARD LEMARQUIS: HVER Hver var Sade markgreifi? Óvildarmenn hans hafa sakaö hann um hjtia verstu glæpi. Aö- dáendur „hins himneska mark- greifa” hafa gert úr honum sak- laust fórnarlamb, ofsóttan af þremur valdakerfum. Deilan varö svo magnþrungin aö erfitt er aö greina rétt frá röngu. En hvaö vitum viö um hann? t fyrsta lagi höfum við verk hans, 89 að tölu sem vitað er um, en tæplega 40 hafa verið gefin út. Hluti handrita hans brann meö Bastillufangels- inu, annaö eyöilagöi lögreglan á meöan hann var enn á lifi. Siðan brenndi sonur hans handrit þau sem hann haföi i fórum sinum eft- ir dauða fööur sins. Auk þess hef- ur litið veriö gefiö út af þeim handritum sem fyrir liggja fyrr cn siðustu ár. Fyrir 15 árum var enn bannaö aö hafa skáldsögur Sades til sýnis fyrir almenning i Frakklandi (en þær voru taldar til venjulegra klámbókmennta). //Of mikiö" svalL guðlast og vanhelgun á Kristi Til er málverk sem talið er vera af markgreifanum, en ekk- ert sannar aö svo sé. En sagn- fræðingar hafa undir höndum skjöl um öll þau mál, sem höfðuð hafa verið gegn Sade og í þeim er að finna miklar upplýsingar. Viö það bætast bréf hans, sem fund- ust af tilviljun árið 1948. Sade markgreifi fæddist i Parls árið 1740 inn i gjaldþrota fjöl- skyldu af háaðli. Hann var fimm ár i jesúitaskóla sem nægði til þess að valda honum æfilöngu ógeði á trúmálum. Fimmtán ára fór hann i herskóla og varð liðs- foringi sem var mjög eðlilegur frami fyrir ungan aðalsmann. Hann tók þátt i sjö ára striðinu á meöan hann beiö eftir að geta gifst til fjár til þess aö firra sig öllum fjárhagsáhyggjum. Frá og með brúðkaupsdeginum gat hann loksins lifað þvi gjálifi sem hann óskaði eftir. Fimm mánuöum eftir brúðkaupiö var hann settur i fangelsi i tvær vikur fyrir ,,of mikið” guðlast og vanhelgun á Kristi. Fimm árum siöar var hann fangelsaöur á nýjan leik af sömu ástæðum: konunni, sem hann húðstrýkti og læsti siðan inn i herbergi, tókst að flýja út um gluggann meö þvi að hnýta sam- an lök. En hvers vegna urðu dómsvöld, sem ætið voru um- burðarlynd gagnvart aðalsmönn- um skyndilega svo óvægin? Sade skipulagði þetta svall á sjálfan páskadag og lagöi siöan til viö fórnarlamb sitt að skrifta fyrir sér. Það voru helgispjöll. Þjóðfélagið glataði gjálíf- ismanni, en eignaðist rit- höfund 1 Marseille árið 1772 bauð Sade hóru nokkurri sælgæti með losta- lyfi, en stúlkan varð veik og talið var að henni hafi verið byrlað eit- ur. Sade flúði þá til Italiu með mágkonu sinni sem var nunna og hafði hann tekið hana úr klaustr- inu. Tengdafólk hans, sem var dómarafjölskylda, fyrirgaf hon- um ekki og vann upp frá þvi stöð- ugt að falli hans. Sade var dæmdur til dauða. Mynd af honum var brennd á torgi i Aix að honum fjarstöddum. Sade kom siðan aftur til Frakk- lands og fór huldu höfði. En hann var handtekinn og settur i fang- elsi að fyrirskipan tengdamóður sinnar. Eiginkona hans skipu- lagði djarflega undankomu hans og hjónin földu sig i kastala Sad- es. En hneykslin eru á næsta leiti. Fjórar vændiskonur sem hann hafði látið senda eftir frá Lyon og haföi hjá sér i kastalan- um kvarta undan honum. Sade er settur á bak við lás og slá þar sem hann er látinn dúsa i þrettán ár. Þjóðfélagið glataði gjálifis- manni, en það eignaðist rithöfund þvi Sade tók til við að skrifa. Sade og byltingin Sade beið i 13 ár eftir frelsun, sem hann vonaði alltaf að væri i vændum. Nokkrum dögum fyrir 14. júli 1789 reyndi hann að æsa mannfjöldann til uppreisnar frá glugga Bastilluf angelsisins. „Fangarnir munu verða leiddir til slátrunar” öskraði hann. Eftir það var hann fluttur á geðveikra- hæli. Sama kvöld bað hann konu sina að fara og ná i handrit að nokkrum skáldsögum sem urðu eftir i klefa hans i Bastillufang- elsinu. Kona hans beið i nokkra daga, en 14. júli ákvað hún loksins að fara og ná i handritin. En nú er byltingin hafin og fangelsið brennur. Margar skáldsögur Sad- es eru að fullu glataðar. Þegar allir aðalsmenn af hans tign hafa flúið i útlegð tekur Sade ötullega þátt i byltingunni, þvi nú er hann loksins frjáls. Hann verður félagi og siðan forseti I byltingarráöi. Hann birtir fjölmörg stjórnmála- rit þar á meðal eina grein Marat til heiðurs skrifaöa eftir morö hansog sem varö höfundi „Marat - Sade” að innblæstri. En brátt er Sade grunaður um að vera of um- burðarlyndur gagnvart andbylt- ingarsinnum. Andstaða hans gegn dauðarefsingu gerir hann grunsamlegan. Og markgreifinn, sem sviðsett hefur i skáldsögum sinum hinar verstu misþyrming- ar og hinar hræðilegustu pynd- ingar er settur i fangelsi fyrir linku og umburðarlyndi i stjórn- málum. Fallöxi er sett upp fyrir framan fangelsið og garðinum er breytt i kirkjugarð. Sade og hinir fang- arnir jaröa afhausuð likin. Sjálfur „Ráörikur, reiöigjarn, bráð- lyndur, öf gafullur i öllu, með taumlaust imyndunarafl i kynferðismálum sem á sér enga hliðstæðu, ofstækisfull- ur guðleysingi, I stuttu máli, þannig er ég. Og meira til. Drepið mig eða takiö mig eins og ég er, þvi ég mun ekki breyta neinu.” Sade markgreifi. er hann á listanum yfir hina dauðadæmdu. En Robespierre fellur nokkrum dögum áður en Sade átti sjálfur að leggjast undir fallöxina og þaö varö honum til lifs. Frelsið og fátæktin: Sade, sem var skuldum vafinn, selur kastala sinn i Provence. Hann vinnur sem leikari i leikhúsi i Versölum. Hinir köldu vindar hreintrúarstefnunnar blása um Frakkland sem er nú undir stjórn Bonaparte og verk Sades eru tor- tryggð. Sade er settur inn á Char- enton geðveikrarhælið fyrir bylt- inguá klámritum. Hiákona hans, sem hann lætur alla halda aö sé dóttir sin, fær heimild til þess að búa með honum. Sade skipu- leggur leiksýningar sem hátt- prúðasta fólk Parisar kemur til að sjá. Hann deyr á hælinu 2. desember 1814 eftir að hafa eytt 30 árum æfi sinnar i varðhaldi. Ekkert nafn var skrifað á legstein hans, samkvæmt fyrirskipan fjöl- skyldunnar. Bar ábyrgð á taumleysi sínu Sade var þrisvar sinnum lokað- ur inni. Einu sinni af konungs- valdinu fyrir ofbeldi, einu sinni af byltingaröflunum fyrir að vera andsnúinn ofbeldi og að lokum af stjórn Napoleons fyrir skrif sin. Fangelsið gerði mikinn rithöfund úr Sade og verk hans eru hvort tveggja i senn hefnd gegn þeim sem ofsóttu hann og draumur um taumleysi, sem fangi lokaður inni i klefa sinum getur ekki veitt sér. Sade bar ábyrgð á taumleysi sinu og byggði á löngunum sinum, siðfræði sem honum var eiginleg. Sade var sjálfum sér samkvæmur jafnt i athöfnum og oröum. Hann réttlætti morð og hefnd en var mótfallinn réttinum til að dæma aðra menn. Sjálfsvarnarræða auðvitað, en i huga Sades einnig viðhorf sem er sjálfu sér sam- kvæmt. Aö dæma mann til dauöa eða að fangelsa hann það er að hreinsa þjóðfélagið af sadiskum löngunum. Sade áleit alla slika hreinsun vera hræsni. Hann gat ekki fullnægt löngunum sinum nema annað hvort i fullkomnuð- um athöfnum... eða með bók- menntasköpun. Byltingin á að þróa með fólki kynferðisspennu Var Sade byltingarmaður? Hvers konar samskipti gat þessi sjálfselski og eðalborni einstakl- ingshyggjumaður haft við jafn- réttishugsjón frönsku byltingar- innar? Hér gætir tvöfeldni Sades: hann kom með hátiölegar yfirlýs- ingar gegn eignarréttinum, en reyndi á sama tima að njóta rétt- ar sins til kastala sins i Coste. Hann hafði góðar ástæður til að hata gamla stjórnkerfið sem gerði hann að fórnarlambi sinu. En hann lenti i andstööu við bylt- inguna frá þvi hún hóf slátrunina. Hið sadiska ofbeldi er einstakl- ingsbundið en aldrei nafnlaust. Sade skrifaði athyglisveröa stjórnmálagrein: „Frakkar, ger- iðenn eina tilraun til þess að vera sannir lýðveldissinnar” Þar ver hann eftirfarandi fullyrðingu: Byltingin á að þróa með fólki kyn- ferðisspennu þvi hún hefur þörf fyrir ástriður og æsing. 011 hrein- trúarstefna frystir og svæfir and- ann. Eg veit ekki hvaða álit t.d. Alþýðubandalagsmenn hafa á þessari staðhæfingu i dag. //Það er óhamingja min sem hann vill" Saíic var strax skemmt ylir niðurlægingu kirkjunnar i bylt- ingunni. Heimspekingar 18. aldar voru annað hvort eingyðis- eða al- gyðistrúarmenn. Hinir djörfustu eins og Diderot hvisluðu um guð- leysi sitt. En Sade hrópaði trú- leysi sitt: „Ef trúleysisstefnan þarfnast pislarvotta er ég tilbúinn að gefa blóð mitt.” Þessi viðbrögð guðleysingjans eru i raun kristi: leg segja kaþólskir aðdáendur Sade. Simone de Beauvoir segir: „Það eru svik við Sade að sýna honum of mikla samúö, þvi það er óhamingja min sem hann vill, undirgefni og dauði.” Þaö er lika of einfalt að aðskilja hæfileika rithöfundarins frá hug- myndum þeim sem hann ver. Þvi Sade er heilsteyptur. Og nú tveim öldum siðar heldur hann áfram að valda okkur óþægindum. Hann vekur hinar leyndu þrár manns- ins án þess að leyfa honum að blekkja sig. I nútima klám- og ofbeldis- myndum er áhorfandinn i hlut- verki gægjarans. Hann horfir að vissu leyti i gegnum skráargat og siðavendnin blandast ljúflega hinum ógurlegustu hryllingssen- um. Skáldsaga eftir Sade er allt öðruvisi uppbyggð, sem gerir það aö verkum að nú tveim öldum eft- ir útgáfu hennar er hún illþolandi aflestrar. Söguhetjur i skáldsögu eftir Sade eru yfirleitt aðeins áhorfendur sem notfæra sér þjón- ustu annarra til að pynda fórnar- lömb sin. Söguhetja Sade fær full- nægingu i að horfa á uppfærslu á þjáningu (eða ' nautn) fórnar- lambs sins, en ekki i þjáningunni eða nautninni sjálfri. Þannig veröur lesandinn áhorf- andi að óþolandi leik áhorfenda. Haldi hann áfram lestrinum þá þýðir það i raun aö hann gengur að þeirri uppfærslu sem söguhetj- an hefur beðið um, lesandi og áhorfandi renna saman i eitt. Lestur skáldsögu eftir Sade gerir lesandann meösekan og neitar honum um að taka ekki af- stöðu til þeirrar nautnar að sjá aðra þjást.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.