Þjóðviljinn - 23.06.1981, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.06.1981, Blaðsíða 1
MOWIUINN Þriðjudagur 23. júni 1981 138. tbl. 46. árg. MNGKOSNINGARNAR í FRAKKLANDI: Sósíalistar fengu hreinan memhliita Mikill sigur sósialista i þingkosningunum i gær er ein- hver mestu umskipti i nýrri franskri sögu — er þeim helst likt við tvo atburði eftirstíðsáranna: þegar de Gaulle hljópst á brott af valdastóli 1946 og þegar hann kom aftur 1958. Skopmynd í Le Monde lýsir hugarástandinu skemmti- lega: þar krýpur Mauroy forsætisráðherra fyrir Mitter- rand i hásæti og segir: Páfinn er veikur enn og getur ekki krýnt þig fyrr en eftir mánuð!.. Einar Már símar frá París Líklegir til að bjóða kommúnistum aðild að stjórn Yfirburðir vinstri manna eru miklir. Sjálfur fær Sósialistaflokkurinn 269 þingsæti af 491, vinstri- radikalir og aðrir vinstrimenn fá 12 (alls 289) og kommúnistar, sem tapa verulega, fá 44 þingsæti. Það er mikið mannlall á hægrikanti. Gaullistar, Giscardsmiðjusamsteypan og aðrir fá samtals 155 þingsæti. St j órnarmyndun Mauroy forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar sósialista, hefur þegar sagt af sér, en um leið tekið til við að mynda nýja stjórn, sem kemst liklega á fæturna á morgun, þriðjudag. Mjög llklegt er talið að hann reyni að hafa kommúnistn með i stjórninni. Mönnum ber saman um að það væri mjög sterkur leikur hjá sósialistum aö gera kommúnista að ráð- herrum — einmitt vegna þess að þeir hafa hreinan meirihluta og þurfa ekkiá slikri samvinnu að halda. Sósialistar hafa nú mjög hátt um það, að Barre for- sætisráðherra Giscards, hafi beinlinis logið til um fjárhagsstöðu Frakklands, sem sé mun verri en tal- ið var. Þvi skipti það máli, að hafa kommúnista með i stjórn til að komast hjá vinstriandófi næstu mánuði, sem verða að likindum erfiðari en menn bjuggust við. Gremja Beiskja mikil ræður rikjum á hægra væng. Chirac, foringi Gaullisla, hefur i ár unnið óbeint að sigri Mitterrands til aö geta sjálfur orðið hinn eini leiðtogi hægrimanna, en einnig hann hefur mis- reiknað sin dæmi og ekki búist við slikri stórsveiflu i fylgi til sósialista. Það er reyndar talið óliklegt, að Giscardsmenn i UDF, sem er bandalag miðjuhópa ýmiskonar, muni nokkru sinni geta sætt sig við slik- an oddvita sem Chirac. Vinstrimenn fagna mjög, sagði Einar Már Jóns- son að lokum, en menn vita einnig, að geigvænleg ábyrgð hvilir á þeim sem nú taka við stjórn Frakk- lands. áb. Neiekki meiri rigningu. Úr Friöargöngunni 1981. Ljósm. eik Friðargangan 1981 tókst með ágætum. Að morgni laugardags var lagt af stað frá hiiðinu við Keflavikurflugvöll og komiö til Reykjavikur um klukkan 10 að kvöldi. Að sögn herstöövaandstæðinga sem skipulögðu gönguna voru þátt- takendur um 6000 og fjölgaöi stöðugt alla leiðina. Veður var heldur leiðinlegt framan af, en andinn góður þrátt fyrir það. Þegar á dag- inn leiö skánaði veður enda var hrópaö hástöfum: tsland úr NATO—herinn burt, og kröfur um kjarnorkuvopna- laus Noröurlönd. I gær hófst svo friðargangan úti i Evrópu og var lagt af staö frá Kaup- mannahöfn áleiðis til Parisar, þar sem aðgerðirnar enda með friðarhátiö 6,—-9. ágúst. Sjá myndir og frásögn af friöargöngunni á bls. 6 og 7. — ká Sjá 6. siöu Viðtal ! Þjóðviljans j við Walesa j A opnu blaðsins i dag er | birt viðtal sem fréttaritari , Þjóðviljans i Genf, Valþór i Hlöðversson, átti viö Lech I Walesa, forystumann pólsku verkalýðssamtak- , anna Samstaöa. ■ Þar segir Waiesa frá áliti I sinu á aðstoð vestrænna j verkalýðssamtaka við Sam- , stöðu, metur hlutverk Sam- | taka sinna og itrekar það I viðhorf sitt, aö pólskir j verkamenn muni sigur hafa, , þótt sá sigur kunni að verða | dýrkeyptur. Sjá opnu Langtímaskuldir borgarsjóðs: Aðeins þriðjungur þess er íhaldið skildi eftir Greiðslustaðan 7,4 miljörðum g.kr. betri nú en fyrir þremur árum í árslok 1977 voru lang- tima skuldir borgarsjóðs Reykjavíkur 3.047 miljónir gamalla króna á núvirði. Þetta voru siðustu áramót- in áður en borgarstjórnar- meirihluti íhaldsins féll. Um síðustu áramót voru þessar sömu skuldir hins vegar aðeins 1235 miljónir gamalla króna, eða rúmur þriðjungur þess sem var í tið ihaldsins. Hér eru skuldir Byggingasjóðs i báðum tilvikum taldar með skuldum borgarsjóðs. A þessum þremur árum hafa skammtimaskuldir borgarsjóðs einnig lækkaö nokkuð að raun- gildi. Um mitt ár 1978, þegar borgar- stjórnarmeirihluti ihaldsins hrökklaðist frá völdum, þá var greiðslustaða borgarsjóðs þannig aö skuldir á hlaupareikningi og i ógreiddum reikningum námu alls 3489 miljónum gamalla króna á núvirði. Þremur árum siðar nú um siðustu mánaðarmót hafði greiöslustaðan hins vegar snúist þannig við, að i stað skulda upp á nær 3,5 miljaröa gamalla króna var komin innistæða á hlaupa- reikningi og i sparisjóðsbók, sem nam að frádregnum ógreiddum reikningum 3943 miljónum gam- alla króna, eða nær 4 miljörðum. Þannig er greiðslustaða borg- arsjóðs nú um 7,4 miljörðum króna hagstæðari, en hún var fyr- ir þremur árum þegar borgar- stjórnarihaldið tapaði meirihlut- anum. Allar þessar upplýsingar komu fram s.l. fimmtudag hjá Sigurjóni Péturssyni, forseta borgarstjórn- ar, við umræður i borgarstjórn um reikninga borgarinnar. Sjá 5. síðu Viðbrögö Friðriks við ofanígjöf Sovéska skáksambandsins: Bókstafstrúarmenn! i gærkvöldi bárust fýrstu viö- brögð sovéskra skákyfirvalda við þcirri yfirlýsingu Friöriks ólafssonar aö heimsmeistara- einvigið sem halda á i ttaliu i haust kynni að vera i hættu ef fjölskyldu áskorandans, Viktors Kortsnojs yröi ekki hleypt úr landi. t tilkynningu sovéskra skákyfirvalda var sagt aö Friö- rik heföi brotið reglur FIDE og einnig var þess óskað að stjórn FIDE yrði kölluð saman til að fjalla um mál þetta. Þjóðviljinn bar mál þetta undir Friðrik Ólafsson i gær- kvöldi. Sagði hann að hann heföi ekki enn fengið i hendur skeyti það, sem stjórn sovéska skák- §ambandsins hefði sent FIDE, en hefði þó haft ávæning af efni þess. „Ég vil taka það fram að aukafundur FIDE getur engan veginn breytt ákvöröunum min- um varðandi þetta einvigi, það er einhliða á mina ábyrgð. Ég hef óskað eftir þvi að Sovét- menn leystu þetta mál skák- heiminum til góðs. Það eru ýmsir sem halda vilja þvi fram aö Karpov gæti hjálpað þar til, ef vilji væri fyrir hendi. E.t.v. kýs hann óbreytta stöðu mála. Varöandi reglur sem ég hef brotið þá eiga þeir sennilega viö einhverja klásúlu i reglunum um að ekki megi fresta einvig- inu. Bókstafstrúarmenn Sovét- menn”, sagöi Friðrik að lokum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.