Þjóðviljinn - 23.06.1981, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 23.06.1981, Blaðsíða 16
DJÚBVIUINN Þriðjudagur 23. júni 1981 Aöalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaðsins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i áfgreiöslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur slma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími aigreiðslu 81663 Forsetinn heimsækir Dali og Strandir: Forsetinn okkar, hún Vigdís Finnbogadóttir, hef ur nú verið á ferðalagi um Dalabyggðir og Strandir, og hvarvetna fagnað af miklum inni- leik og hlýju. Fólk f innur, að það er ekki aðeins að taka á móti forseta sínum heldur og félaga og vini. Siðastliðinn laugardag tók PéturÞorsteinsson, sýslumaður Dalamanna og kona hans, Björg Rikarðsdóttir á móti forsetan- um við sýslumörkin á Bröttu- brekku. Var þaðan ekið að Laugaskóla en þar sat forsetinn / Frá v.: Vigdis Finnbogadóttir, forseti, Björg Rikarðsdóttir, sýslumannsfrú i Búðardal, Hjördis ardóttir, sýslumaður Strandamanna. Hákon- „Eg þakka góðar gjafir, orð og undurfagra gripi” sagði Vigdís Finnbogadóttir, forseti fund sýslunefndarinnar, og skoðaði Byggðasafnið við Ieið- sögu safnvarðar, Magnúsar Gestssonar. Þvinæst var ekið um fornar söguslóðir héraðsins. Eftir kvöldverð hjá sýslu- mannshjónunum var hátiðar- samkoma i Dalabúð. Þar lék Lúðrasveit, Héraðskór Dala- manna söng undir stjórn Kjart- ans Eggertssonar, Þuriður Kristjánsdóttir, kennari, færði forsetanum kveðjur frá Dala- konum og Skjöldur Stefánsson flutti forseta,,drápu”iaðfornum sið. Morguninn eftir gróðursetti Vigdis forseti trjáplöntur, er hún færði Dalamönnum að gjöf og mættu þær vera upphaf Vig- disarlundar. Var siðan ekiö um Skarðsströnd og Fellsströnd i fyigd með Asgeiri Bjarnasyni, fyrrverandi Alþingisforseta og kirkjan á Skarði skoðuð. Loks var boðið til hádegisverðar, sem húsmæður i Saurbænum sáu i dag heidur Vigdis Finnboga- dóttir forseti för sinni áfram um Strandasýslu. Farið verður frá Hólmavik kl. 10.30. Komið við á Stað i Steingrimsfirði og svo haldið til Kaldbaksvikur. Þar er gert ráð fyrir aö boröað verði úti undir berum himni, ,,ef guð lof- ar”. Næsti áfangastaðurinn er svo Djúpavík. Kl. 15 verður móttaka i fé- lagsheimilinu i Arnesi og stend- Til minningar um heimsókn- ina færðu Dalamenn Vigdisi for- Sfita góðar gjafir: sýslumaður, fyrir hönd sýslunefndar, ljósrit- að eintak af Skarðsbók og Krist- inn Jónsson, oddviti Laxárdals- ur til kl. 17. Mun úr þvi gefast nokkurt tóm til að litast um ná- grennið. Að kvöldverði loknum verður svo fluttur i Arnesi hluti af Menningarvöku Stranda- manna að viðstöddum forsetan- um. A morgun mun heimsóknum forsetans ljúka að þessu sinni. Verður þá haldið til Reykjavik- ur en væntanlega stungið við fótum á Borðeyri. hrepps fimm arma kertastjaka, [ gerðan af Búðardalsleir af þeim ■ hjónum Guðmundi Einarssyni I leirkerasmið og Signýju Jör- undsdóttur. Var svo ekið á vit Strandamanna. A sýslumörkum á Laxárdals- heiði tók sýslumaður Stranda- manna, Hjördis Hákonardóttir, á móti Vigdisi forseta og bauð velkomna i riki sitt. Ekið var til Hólmavikur. Þar setti forsetinn Menningarvöku Strandamanna með þvi að opna sýningu á mál- verkum Isleifs heitins Konráðs- sonar. A sunnudagskvöld var svo forsetinn viðstaddur sýn- ingu Þjóðleikhússins á leikriti Jökuls Jakobssonar, ,,1 öruggri borg”, norður á Laugabóli i Bjarnarfirði. I gær var svo m.a. siglt til Grimseyjar á Steingrimsfirði. um. Vigdís um Strandir í dag E^gjaþjófnaðurinn viö Mývatn; Nauösynlegt aö herða eftirlit með útlendingum Hlægilegar sektir //'Það hlær öll þjóðin að þessari fáránlegu sekt" sagði Erling ólafsson náttúrufræðingur þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær, vegna endaloka ,,eggjamálsins". Fjölmiðlar sögöu frá þvi um helgina aö tveir útlendingar hefðu verið handteknir sl. föstudags- morgun á Keflavikurflugvelli. Þeir höföu i fórum sinum 116 andaregg frá Mývatni. Eftir yfir- heyrslu og dómssátt var þeim sleppt en gert að greiða 100 kr. sekt. Að sögn Arnar Guðmundssonar rannsóknarlögreglumanns kom fram við yfirheyrslurnar að mennirnir hefðu ætlað að nýta eggin sjálfir. Sú spurning vaknar hversu verðmætar islenskar end- ur séu erlendis eða hvort það eru eggin sem eru svo eftirsótt, en slikar upplýsingar liggja ekki fyrir. Mergurinn málsins er þó sá að þetta mál sem kom upp um helgina er aðeins angi af mun stærra máli. Að sögn Erlings Ólafssonar er vitað meö vissu aö á hverju ári eru fluttir burt af landinu sjald- gæfir fuglar, egg og önnur náttúruverðmæti. Slikt er bannað samkvæmt lögum, en hvort tveggja er að eftirlit með útlend- ingum sem fara frá landinu er lit- ið og sektirnar fáránlega lágar. Sú upphæð sem nú er i gildi, 100 kr er frá árinu 1966. Erling sagði það sina skoðun að það væri út i hött að lögfesta sektarupphæöir i landi þar sem verðbólgan æöir áfram, en fyrst og fremst þyrfti að herða eftirlit með útlendingum og fólk sem sér eitthvað grunsamlegt er hvatt til að láta viðkomandi yfir- völd vita. Erling bætti þvi við að eftir að fálkamálið kom uppfyrir tveimur árum heföi fólk tekið við sér og látið vita af grunsamlegum ferð- um um varplönd, en þvi miður væri lika til fólk sem visaði á náttúruverðmæti og virtist svo sem miklir peningar væru i boöi. Lög um náttúruvernd og friðun hafa velkst um á alþingi i nokkur ár, en vonandi hafa atburöir eins og sá sem gerðist fyrir helgina við Mývatn þau áhrif að ný lög veröi sett hið snarasta. —ká HERINN BURT Stokksnes ganga Herstöðvaandstæðingar leggja ekki gönguskóna á hilluna þótt Friðargöngunni sé lokið. 1 ágúst verður önnur ganga, að þessu sinni austur á landi. Ilinn 9. ágúst, sama dag og friðargöng- unni úti i Evrópu lýkur i Paris, verður gengið frá herstööinni á Stokksnesi til Hafnar i Horna- firði. Samtök Herstöðvaandstæðinga á Austurlandi skipuleggja göng- una i samráði við miðnefndina i Reykjavik og verða að öllum lik- indum skipulagðar ferðir austur þegar þar að kemur. Vegalengdin frá Stokksnesi til Hafnar er um 20 km. eða þokka- legur vegarspotti fyrir þá sem enn á ný vilja leggja áherslu á brottför hersins. __ Strand við Eyrarbakka I gærmorgun strandaöi bátur i innsiglingunni við Eyrarbakka. Hann heitir Jó- hann Þorkelsson AR 24 og er 56 lestir að stærð. Fimm menn voru um borð og kom- ust þeir allir í gúmmibjörg- unarbát til lands. Strandið bar þannig til að báturinn fékk á sig ólag, rak upp i stórgrýtta fjöruna og er talinn nánast ónýtur. Grœnlenskir sveitarstjórnarmenn í heimsókn: Kynna sér atvinnu- mál Hér á landi er nú staddur hópur grænlenskra sveitarstjórnarmanna. í hópnum eru liölega 3 sveitarstjórnarmenn frá öllum 18 sveitarfélögum Grænlands. Þeir eru hingað komnir til að kynna sér sveitarstjórnarmál og atvinnumál, einkum landbún- aðar- og sjávarútvegsmál. Einnig munu þeir kynna sér starfsemi Samvinnuhreyfingarinnar. Hinir grænlensku sveitar- stjórnarmenn koma viða við i ís- landsheimsókn sinni. 1 gær fóru þeir um Suðurlandsundirlendið, eftir að hafa hlýtt á erindi um is- lensk sveitarstjórnamál, og annað um málefni Reykjavikur- borgar. 1 dag hlýða þeir á fyrirlestra um fiskveiðimál og um Sam- vinnuhreyfinguna og fara siðan flugleiðis til Akureyrar. Munu þeir á morgun og fimmtudag fara vitt um Norðurland. A föstudag verða þeir i Reykja- vik og munu þar m.a. fræðast um starfsemi Norræna hússins, og um byggðastefnu og byggða- þróun. Meðal grænlensku gestanna eru bæjarstjórinn i Nuq og formaður sambands sveitarfélaga þar i landi. Grænlenskir sveitarstjórnar- menn munu einkum hafa hug á að kynnast þvi hvað Island hefur að bjóða sem fyrirmynd i atvinnu- uppbyggingu, en i þeim efnum er hlutur sveitarfélaga meiri á Grænlandi heldur en hérlendis. eng Lœknadeilan: | Ekki I samdist „Það er best aö segja sem I minnst um stöðu mála eins og ■ er”, sagði Þröstur ólafsson, að- I stoðarmaöur fjármálaráðherra, I er Þjóðviljinn spurði hann um I gang samninga i læknadeilunni i • gærkvöldi. I „Við erum þannig staddir i ' þessum samningaviðræðum að J það getur skroppið i eða úr liði”, I sagði Þröstur og bætti við: „Ég I er ekki alveg úrkula vonar um 1 að saman gangi, en ég er heldur J svartsýnn”. Allnokkurrar bjartsýni gætti i I gær um að hinni erfiðu lækna- [ deilu væri um það bil að ljúka, . og var haft eftir sumum samn- I ingamönnum að samkomulagi I tækist væntanlega að ná i gær. A fundum samninganefnd- . anna i gær var m.a. rætt um I yfirvinnugreiðslur til lækna. I En svo sem ummæli Þrastar J bera með sér viröist bjartsýnin i • gær ekki hafa verið á rökum I reist, og mjög litið virðist hafa I miðaö i samkomulagsátt á 1 fundunum i gærdag.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.