Þjóðviljinn - 08.07.1981, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVÍLJINN Miövikudagur 8. júli 1981
Frá Kennaraháskóla
/
Islands
Kennarar með kennarapróf frá Kennara-
skóla íslands þ.e. fyrir 1974, sem lokið
hafa háskólaprófi eða sambærilegu prófi i
kennslugrein eða kennslugreinum sem
veita þeim réttindi til kennslu á fram-
haldsskólastigi samkvæmt lögum um em-
bættisgengi kennara og skólastjóra en
vantar tilskilið nám i uppeldis- og
kennslufræði til að öðlast skipun i starf sitt
eiga kost á að ljúka þvi námi við Kennara-
háskóla íslands.
Gert er ráð fyrir að námið skiptist i
heimavinnu að vetri og sumarnámskeið
sumarið 1982. Umsækjendur skulu vera
undir það búnir að þurfa að mæta i skól-
anum i nálægt vikutima eftir næstu ára-
mót.
Þeir sem áhuga hafa á umræddu námi eru
beðnir að senda afrit af prófum sinum og
gera grein fyrir starfsferli að loknu
kennaraprófi ásamt öðrum þeim
upplýsingum sem þeir telja að gildi hafi
fyrir 1. sept. og verður haft samband við
þá siðar i sumar eða haust.
Vogar — lóðaúthlutun
Úthlutað verður nokkrum einbýlishúsa-
lóðum i Vogum, Vatnsleysustrandar-
hreppi.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrif-
stofu Vatnsleysustrandarhrepps. Upplýs-
ingar á skrifstofunni i sima 92-6541.
Sveitarstjóri
A
Laus staða
Staða deildartæknifræðings á fram-
kvæmda- og rekstrardeild hjá bæjarverk-
fræðingi Kópavogskaupstaðar er laus til
umsóknar.
Upplýsingar gefur bæjarverkfræðingur.
Umsóknarfrestur er til 15. júli nk.
Bæjarverkfræðingur
Allur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
yUMFERÐAR
RÁO
Auglýsinga- og áskriftarsimi
81333 uomiuiNN
Þátttakendur á islenskunámskeiði. F.v. Hannes NergSrd sérkennari, Britt Aune nemi frá Noregi,
Pirkko Sartoneva kennari frá Finnlandi og Harald Solbu tónlistarmaður frá Narvik i Noregi. Litla
daman heitir Anna Westin. Ljósm: gel.
Norræn samvinna í reynd:
Norðurbúar
á íslensku
maður frá Rovaniemi einnig i
Finnlandi, létu vel yfir sér og
sögðust hafa haft bæði gagn og
gaman af ferðinni. Þó töldu þær
árangur islenskunámsins ekki
eins góðan og æskilegt hefði verið
og þótti undirritaðri ekki erfitt að
skilja það, enda ekki heiglum
hent að læra ástkæra ylhýra
málið.
Berit Dahlblom félagsráðgjafi
frá Sviþjóð sagðist vera himinlif-
andi, hún hefði auk kynna af Is-
landi og islensku notað tækifærið
til að heimsækja stofnanir i þeim
tiigangi að kynna sér aðstoð við
að koma fólki aftur út á vinnu-
markaðinn eftir sjúkrahúsvist.
Ekki varð heimsókn okkar
Gunnars ljósmyndara svo löng að
námskeiði
I glæsilegum húsakynn-
um Húsmæöraskólans í
Reykjavík heyrist klingja í
bollum/ það er skrafað
saman á sænsku og Finn-
lands-sænsku. Hádegis-
verði er nýlokið# hinum
síðasta sem þátttakendur á
islenskunámskeiði taka
þátt í. Þarna eru staddir 15
manns frá norðurhéruðum
Sviþjóðar, Noregs og Finn-
iands hinum svokallaða
Nordkalotten-svæði.
Um nokkurra ára bil hafa ts-
lendingar farið á námskeið til
skólans að Framnesi i öjebyn i
Norrbottenhéraði i Sviþjóð.
Þannig var mál með vexti að
landshöfðingi þess héraðs Ragnar
Lassinantti var hér á ferð og datt
i hug að tslendingar ættu erindi á
námskeið sem haldin voru fyrir
Finna þar á skólanum. Þetta var
árið 1973, en 1978 var samþykkt á
aukaþingi Nordkallotten sem
haldið var hér á Islandi að koma á
fót sams konar námskeiðum hér
fyrir aðra Norðurbúa.
Fjórða námskeiðinu lauk nú
fyrir helgina og það var einmitt á
lokadegi þess sem blaðamaður
leit inn i Húsmæðraskólann til að
spjalla við nemendur og aðstand-
endur námskeiðsins.
Anna Einarsdóttir hefur um
árabil sinnt málefnum Nordkall-
otten af miklum áhuga og á sæti i
nefnd sem starfar á vegum
Norræna félagsins og mennta-
málaráðuneytisins að samstarf-
inu, en norræna félagið i Nord-
botten er þriðji aðili samstarfs-
ins. Anna sagði að þessi námskeið
hefðu tekist hið besta og væru
þátttakendur hinir hressustu yfir
móttökunum.
Þegar farið er héðan til Svi-
þjóöar er reynt að velja þátttak-
endur með það fyrir augum að
þekking sú sem þeir afla sér komi
þeim að notum i starfi, en það er
meira tilviljanakennt hverjir
koma hingað. Þó voru nokkrir
blaðamenn með i hópnum nú sem
munu eflaust skrifa um reynslu
sina og kynni af landanum þegar
heim kemur.
A námskeiðinu var auk kennslu
i islensku boðið upp á fjölbreytta
fyrirlestra um islenska list,
stjórnmálaflokkana og bók-
menntir auk heimsókna út á land,
i söfn, skóla og fyrirtæki.
Þær Helcna Juncssem er ritari
frá bænum Tornio i Finnlandi og
Anna Maria Takolander blaða-
Berit Dahlblom frá Sviþjóð hafði
margháttuð not af heimsókninni
til tsiands. Ljósm: gel.
tækifæri gæfist til að ræða við
fleiri, enda voru þátttakendur
námskeiðsins á hlaupum út i bæ
til að nota siðustu dagana i skoð-
anaferðir og innkaup. —ká
Helena Junes og Anna Maria Takolander frá Finnlandi voru hér á is-
ienskunámskeiði. Þessi glæsilegi stigi er i Húsmæðraskólanum i
Reykjavik og grunur leikur á að á veggjunum geti að líta handverk
Astu málara. Ljósm: gei