Þjóðviljinn - 24.07.1981, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.07.1981, Blaðsíða 3
Föstudagur 24. júll 1981 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3 r Aðalfundur Skáksam- bands Norð- urlanda Jafnhliða Skákþingi Norðurlanda verður aðal- fundur Skáksambands Norðurlanda haldinn hér i Reykjavik og hefst á Hdtel Esju kl. 10.00 i dag. Skák- samband tslands skipulegg- ur þingið og sér um fram- kvæmd þess. A fundinum verða rædd fjölmörg mál sem snerta norræna skáksamvinnu og skýrsla um starfsemi sam- bandsins milli aðalfunda 1979—81. Þá munu Danir til- nefna forsetaefni til að taka við af Einari S. Einarssyni sem verið hefur forseti s.l. kjörtimabil. —j. Ingiberg sýnir á Akranesi Ingiberg Magnússon hefur opnað sýningu á 33 grafik- myndum á Akranesi. Sýn- ingin er á bókasafninu og er opin virka daga á opnunar- tima safnsins, en um helgar kl. 2—8 e.h. Sýningin stendur til mánaðarmóta. Ný Lánskjara- vísitala t frétt frá Seðlabanka tslands segir að ný láns- kjaravisitala fyrir ágúst- mánuð hafi verið reiknuð. HUn er 259. Hönnun og hugbúnaður unninn af ísiendingum „Það hefur gengið mjög vei að koma þessu kerfi upp og starfsmenn hér f flugumferðarstjórninni hafa verið fljótir að til- einka sér notkun þess, enda öll hönnunarvinnan unnin í nánu samstarfi við þá sjálfa," sagði dr. Þor- geir Pálsson verk- fræðingur, sem stjórnaði hönnun og uppsetningu fullkomins tölvukerf is sem nýlega var tekið í notkun við dreifingu skeytasend- inga í flugstjórnarmiðstöð- inni á Reykjavíkurflug- velli. Aður fyrr voru öll skeyti frá Gufunesi til flugumferðar- stjórnarinnar send eftir fjarrita- linum, þar sem þeim var siðan handdreift til vakthafandi flug- umferðarstjóra i prentuðu formi. Með tilkomu tölvukerfisins, sem er það fyrsta sinnar tegundar hérlendis, eru skeytin sem berast frá flugvélum til flugumferðar- stjórnar í gegnum Gufunes, send á sjálfvirkan hátt á tölvuskerm flugum ferðarstjórans, sem stjórnar viðkomandi flugi. Helsti kostur tölvudreifingarinnar er, að skeytið berst þegar i stað til not- andans i aðgengilegu formi i tölv- unni, og einnig má kalla fram á tölvuskjáinn flugskeyti eftir þvi sem þörf krefur. Tölvukerfi Flugmálastjórnar er framleitt af Digital Equipment Corp. og er af PDP-11/34 gerð með 256 þús. stafa minni. Alls eru sjö diskar tengdir við kerfið. Ýmsar ráðstafanir hafa verið gerðar til að láta tölvuna fylgjast með frávikum frá eðlilegu ástandi, t.d. með þvi að ekki falli úr skeyti, en rekstraröryggi tölvu sem þessarar er mjög mikilvægt fyrir alla loftumferð. Yfir sumartimann berast dag- lega um 1500 skeyti frá flugvélum til flugumferðarstjórnar og á miklum álagstimum, allt að 2500 skeyti á dag. Kostnaður við kerfið mun nema um 1,3 miljón kr. en sá kostnaður verður að fullu greiddur af Alþjóðaflugmálastofnuninni, enda þjónar þetta kerfi eingöngu millilandaflugi. Kerfissetning, hönnun og gerð hugbúnaðar hefur að öllu leyti verið unnin hér heima, en undir- búningur og stjórnun verkefnisins var i höndum dr. Þorgeirs Páls- sonar verkfræðings. Ýmsir aðrir aðilar hafa unnið að undirbúningi og framkvæmd verksins, bæöi flugumferðarstjórar og tækni- menn. Enn sem komið er, tekur tölvu- kerfið einungis við skeytasend- ingum, en unnið er að þvi aö koma á sendingum flugheimilda frá flugstjórn til fjarskiptastöðv- arinnar i Gufunesi gegnum kerfið, en flugheimildir um leyfi- legar flugleiðir á umráðasvæði islensku flugumferðarstjórnar- innar eru nú sendar simleiðis til Gufuness, sem sér siðan um að koma þeim áfram til viðkomandi flugvéla. I framtiðinni gæti jafn- vel tölvukeífið unnið sem sjálfvirkur aðili við eftirlit með flugumferð i kringum landið. —lg Leiguskip í stað Berglindar Skipshöfnin af Berglindi er væntanleg til landsins i dag og gert er ráð fyrir þvi að sjópróf hefjist n.k. þriðjudag. Eins og frá hefur verið skýrt hér i blaðinu sökk m/s Berglind sl. mánudag, um 5 sjómilur frá Sydney, Nova Scotia á Nýfundna- landi, eftir árekstur við danskt flutningaskip. Berglind var i eigu Islenskra kaupskipa hf., sem er dótturfyrirtæki Eimskipafélags- ins. Um 200 vörugámar voru um borð i Berglindu og voru vörurnar i eigu 50 aðila. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að fá leiguskip i stað Berglind- ar og að þvi stefnt, að þaö geti hafið siglingar á vegum félagsins snemmainæsta mánuði. —mhg Þorskveiði- bannið hefst um helgina Sjávarutvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um bann við þorskveiðum timabilið frá og meö 26. júlf til og með 4. ágúst n.k. Bann þetta tekur til allra veiða annarra en togveiða skipa.er falla undir „skrapdagakerfiö” og handfæraveiða báta, sem eru 30 rúmlestir og minni. Það að þorskveiðar eru bann- aðar þýðir, að hlutfall þorsks i afla hverrar veiðiferðar má ekki nema mari en 15%. Hluti þessarar nýbyggingar Grundaskóla á Akranesi verður tekinn i notkun I haust. Nýr grunnskólí á Akranesi í haust verður tekinn i notkun hluti af nýjum grunnskóla á Akranesi, sem fengið hefur heitið Grundaskóli. Bygging hins nýja skóla hefur tekið mun lengri tima en áætlað var, og samningar við menntamálaráðuneytið kváðu á um. Hefur þar komið til niður- skurður á fjárlögum rikisins. Hinum nýja skóla er ætlað að taka við nemendum úr hinum nýrri hverfum Akraness, einkum Garðagrundum og Jörundarholti. Mjög mikil þrengsl eru nú i skólum á Akranesi, og eru liðlega 900 nemendur i gamla barnaskól- anum, sem er u.þ.b. tvöfaldur eðlilegur nemendafjöldi. Stafa þrengslin bæði af mikilli ibúafjölgun I kaupstaðnum svo og af miklum vexti fjölbrautaskól- ans, sem yfirtók húsnæði gagn- fræðaskólans. Aætlað er að ljúka að fullu við þann áfanga Grundaskóla sem nú eri'bygginguá næsta ári, en þessi áfangi er hinn stærsti af fjórum áætluðum áföngum i byggingu hússins. Eirmig er nú hafin bygging verknámshúss fyrir fjölbrauta- skólann, en sá skóli býr við jafn mikil húsnæðisþrengsl og grunn- skólinn á Akranesi. Nýráðinn skólastjóri við hinn nýja Grundaskóla er Guðbjartur Hannesson. kindahakki Kjötbollur með karrýhrísgrjónum 600 g kindahakk 2 laukar 1-2 hvítlauksrif, salt, svartur pipar 1/2 tsk mulið kúmen 1 dl brauðmylsna 1/2 dl mjólk 1/2 dl vatn steinselja Karrýhrísgrjón 2 msk smjör 1- 2 tsk salt 2- 3 tsk karrý 2 bollar hrísgrjón 1. Hrærið vel saman hakki, rifnum lauk, mörðum hvítlauk, brauðmylsnu, vatni, mjólk og kryddi, bætið vatni eða mjólkíeftirþörfum. 2. Mótið fremur litlar bollur úr kjötdeiginu og steikið þær Ijósbrúnar í matarolíu. Minnkið strauminn þannig að bollurnar steikist í gegn án þess að þær brenni að utan. 3. Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Blandið kryddinu saman við um leið og hrísgrjónin eru sett í vatnið. 4. Setjið hrísgrjónin á fat. Leggið kjötbollurnar ofaná. Borið fram með tómatsósu eða annarri sósu eftir smekk ásamt hrásalati. Verð aðeins 29,90 kr/kg FRAMLEIÐENDUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.