Þjóðviljinn - 08.09.1981, Síða 5

Þjóðviljinn - 08.09.1981, Síða 5
Þriðjudagur 8. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Eftir innrásina í Angóla: Bandaríkin gefa stjóm S-Afríku grænt ljós í lok ágúst sendi her Suöur-Afríku um 4000 manna lið yfir landamæri Namibíu og Angóia í þeim yfirlýsta tilgangi að tor- tíma sem mestu af bæki- stöðvum skæruliða þjóð- frelsishreyf ingarinnar SWAPO, sem berst fyrir sjálfstæði Namibiu og nýtur margháttaðrar að- stoðar stjórnar Angóla. Þetta liö hefur orðiö að hörfa eftir að hafa valdið miklum usla i suðurhiuta Angóia — og var auð- heyrt af fréttum að hernaði þess- um var ekki siður beint gegn stjórnvöldum i Angóla en bæki- stöðvum SWAPO. Og afgreiðsla málsins á vettvangi Sameinuðu þjóðanna bendir til þess, að hinni illræmdu stjórn Suður-Afriku hafi orðið verulegur diplómatiskur ávinningur að þessum leiðangri: hún hefur dregið fram stóraukna samúð stjórnar Reagans með hvitu minnihlutast jórninni i Suður-Afriku. Eða eins og eitt af málgögnum Suður-Afriku- stjórnar i Jóhannesarborg til- kynnti með miklum fögnuöi þvert yfir forsiðu nú fyrir helgi: Banda- rikin vernda Suður-Afriku! Neitunarva Id Astæðan fyrir þessum fögnuði var sú, aö Bandarikin beittu neit- unarvaldi sinu i öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn tillögu um að fordæma innrás suður-afrisks herliðs i Angóla — og var þó aðeins um almenna for- dæmingu að ræða en ekki vikið orði að efnahagslegum refsiað- gerðum, sem fyrirfram var vitað að Bandarikjastjórn mundi ekki styðja. Þar meö er fleygur kom- inn i þá samstööu sem hafði náöst m.a. meðal helstu Vesturvelda um áætlun um frjálsar kosningar i Namibiu undir eftirliti Sam- einuðu þjóðanna, en stjórn Suöur-Afriku hefur með ýmsum ráðum komiö sér undan þvi að fara að samþykktum i þessa veru. Þess i stað hefur hún reynt sem mest hún má, að spila á ótta Bandarikjamanna við það, að sjálfstæðishreyfing Namibiu, SWAPO, er róttæk og hefur notið aðstoðar frá Angólastjóm, sem Bandarikjamenn skilgreina, sem marxiskt útibú frá Kúbu og Sovétrikjunum. Þetta er gert i von um aö einskonar stuðningur fáist frá Bandarikjunum við til- raunir Suður-Afrikustjórnar til aó byggja upp sér hliöholla lepp- stjórn i Namibiu, á þvi verndar- svæði sem áður var kallað Suð- vestur-Afrika og Suður-Afriku- menn hafa þverskallast við að afsala sér umboösstjórn yfir. Nýjar áherslur Carterstjórnin haföi, eins og Reaganstjórnin nú, jafnan neitað að taka þátt i efnahagslegum refsiaögerðum gegn Suður- Afriku, bæði vegna stefnu hennar i kynþáttamálum og óhlýðni við vilja S.Þ. i málum Namibiu.En Carterstjórnin hafði þó viöurkennt, að i'öfuðástæöan fýrir spennu og skæruhernaði i Suður-Afriku og Namibiu væri barátta kúgaðs meirihluta gegn stjórn hvitra kynþáttakúgara. En nú er bersýnilega skipt um áherslur. Eins og nýlega kom fram i ræðu, sem Crocker, sá aö- stoðarutanríkisráöherra Reagan- stjórnarinnar, sem fer með mál Afriku, flutti i Honolulu, þá vilja bandariskir ráöamenn nú leggja meiri áherslu á að átök um sunnanverða Afriku verði rakin til kalda striösins, átaka stór- velda. Crocker og fleiri bandariskir ráðamenn hafa látið að þvi liggja, að þaö væri hægt að semja um aö Kúbumenn fari frá Angóla gegn þvi að Suöur-Afrikumenn hætti að ráðast innyfir landamærin einsog þeir hafa gert alllengi. Hann hefur einnig látið að þvi liggja, að stjórn Angóla ætti aö kaupa sér betri sambúð við Bandarlkin en hún nú nýtur með þvi að taka með einhverjum hætti undir þann skilning Bandarikjamanna að UNITA-samtökin, sem heyja enn skæruhernað gegn stjóm Agnóla, séu „þýðingarmikiö afl sem á rétt á sér 1 stjórnmálum Angóla”. UNITA, sem eru undir stjórn Jónasar Sawimbi, biðu ósigur I innanlandsátökunum milli hinna ýmsu fylkinga sjálfstæðishreyf- ingar Angóla um það bil sem landið varð sjálfstætt 1975, og naut þá stuðnings m.a. banda- risku leyniþjónustunnar CIA. Arið siðar var samþykkt i WaShington að banna CIA aö halda áfram þessum stuðningi, en Suöur-Afrikumenn hafa haldib áfram að veita UNITA liö með margvislegum hætti, enda telja þau Sawimbi bandamann gegn kommúnismanum. Framhaldiö Allar þessar nýju áherslur koma sér mjög vel fyrir Suður-Afrikustjórn. Sá velvilji sem nú liggur frá Washington tii Pretoriu gerir henni mögulegt að halda áfram að hunsa sam- þykktir SÞ um kosningar I Namibiu og frjálsari hendur i við- leitni til að sigra skæruliða SWAPO með vopnum. Stjórnin mun og telja sig hafa meira svig- rúm bæbi til að hlaba undir lepp- stjórn Dirks Mudges I Windhoek (Namibiu) og svartra höfðingja sem hann hefur tekiö upp á sinn eyk. Og einnig til að halda áfram tilraunum til að steypa stjórn Angóla með aðstoð viö Sawimbi. Hættulaust er þettá spil ekki, hvorki fyrir Botha, forsætisráö- herra Suður-Afriku, né heldur Reaganstjórnina. Stjórnir Vestur-Evrópu, eru litið hrifnár af þessum æfingum, ekki sist stjórn Mitterrands sem beinir rót- tækri endurskoðun á franskri utanrikisstefnu helst að þriðja heiminum. Auk þess mun stefnu- breyting þessi bæði fækka vinum Bandarikjanna i sjálfstæðum Afrikurikjum og auka á fjand- skap i þeirra garð meðal þeirra Afrikumanna sem eru undir her- veldi Suður-Afriku enn i dag. Eða eins og Tutu biskup, þekktur svartur andófsmaður i Suður-Afriku sjálfri, hefur að orbi komist um Reagan og hans menn: það er engu likara en þeir ætli aö gera okkur alla að marx- istum... — AB. Suður-Afrikumenn vita nú, að þeir komast upp með fleira en áður. r. Ráðamenn í Iran gerast ur heimi hallir Fáir menn eru i meiri lifs- háska um þessar mundir en oddvitar irans. Fyrir röskri viku biðu nýkjörinn forseti, Radjai, og forsætisráðherra hans, Bahonar, bana i sprengitil ræði, Og nú á laugardag var rikissaksóknari, ajatolla AIi Ghodussi, drepinn með sama hætti. Margir áttu harma á honum aö hefna: hann hcfur verið æðsti maður byltingar- dómstóla þeirra sem síðan I júnl hafa dæmt um þúsund manns til dauða fyrir andstöðu við stjórn- völd. Og i lok júni haföi mikil sprengja gert stórfelldan usla i liði hins ráðandi klerkaflokks i íran, Islamska byltingarflokks- ins. Þá létu lifið um 70 þing- menn hans og flokkleiötoginn, Beheshti ajatolla, sem haföi ný- skeö hrakið Bani-Sadr fo' seta frá völdum og var manna lik- legastur til að koma i hans stað. Sú alda sprengjutilræða, sem þá hófst átti sér fyrst og fremst forsendu i þvi, að með brott- rekstri Bani-Sadr frá völdum og Frá útför forsetans og forsætisráðherrans: hver er næstur? áhrifum, var þróun klerka- flokksins til valdaeinokunar það langt komin, að andstæðingar valdhafanna hafa taliö sig eiga ekki neinna annarra kosta völ enaðhefja „neðanjaröarstrið”. Skammgóðir sigrar Nú er hálft þriðja ár, siðan einvaldur keisari var rekinn frá völdum i Iran. Fáum var sökn- uöur að honum. En flestir munu hafa búist við, að framvinda ir- önsku byltingarinnar yröi með nokkuð skaplegri hætti en raun hefur orðið. Með öðrum orðum: nýir stjórnhættir hafa ekki fest I sessi, hörð átök um framtið og þróunarstefnu hafa leitt til upplausnar og ringul- reiöar, ofan á allt saman hefur komið vopnuð ókyrrð meðal minnihlutaþjóða sem heimta sinn rétt svo og styrjöld viö Irak sem hefur reynt að nota sér ástandið, til að veröa öflug- ast rikja við Persaflóa. Allir sigrar i þessum átökum hafa verið skammgóðir. Klerkarnir sem. með völd fara sýnast enn geta höfðað til þeirrar bylt- ingarglóðar sem uppreisnin gegn keisaranum kviknaði af, en sú glóð dugar skammt til að leysa samfélagsvanda i þróunarlandi með 35 miljónir ibúa og um leiö til aö verjast vopnaðri innrás frá næsta grannriki. Ofstæki klerkavalds- ins og fáfræði um gangvirki nú- timaþjóðfélaga hefur og gert efnahag landsins marga skrá- veifu og hrakið frá þeim tækni- menntaða millistétt. Á púðurtunnu Valdhafarnir sitja á púður- tunnu I bókstaflegum skilningi, og hið mikla mannfall i þeirra eigin liði bendir til þess, að þeir sem koma sprengjunum fyrir eigi stuðnings aö vænta i ólik- legustu stöðum. Um þá er ekki of margt vitað. I nýlegu viðtali við Bani-Sadr, fyrrum forseta, sem nú er i útlegð i Paris, segir hann m.a. „Það er nú mein- ingarlaust aö stofna pólitiskan flokk. Khomeini hefur skapað lögregluriki og til andófs gegn lögregluriki þurfum við að beita vopnum. Þaft er þetta sem Mú- jahedín gera”.Þar visar forset- inn til vinstri sinnaðrar is- lamskrar hreyfingar, Múja- hedin-e-Khalq, sem er öflugust og baráttureyndust þeirra hreyfinga sem andæft geta klerkaveldinu. Það hefur áður verið á orði haft, að Bani Sadr hefði gert einskonar bandalag við þessa hreyfingu, en um styrk hans sjálfs er fátt vitaö. Hann hefur sjálfur aldrei getað komiö sér upp pólitiskum flokki en visar á vinsældir sinar i hernum sem sitt höfuðtromp i þvi borgara- striöi sem i raun er hafiö I tran. Aðrir hafa það svo fyrir satt að herinn sé alveg eins sundur- tættur og samfélagið að ööru leyti, og væri erfitt að finna þá hersveit Iranska sem reiðubúin væri aö fórna lífi sinu fyrir einn eða neinn nú um stundir. áb tók saman. „J

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.