Þjóðviljinn - 08.09.1981, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 8. september 1981
] íþróttirgl íþróttir@ iþróttirg
Brædurnir
sáu um
Val
Þeir bræður Sigurlás og Kári
Þorleifssynir sýndu þaft og sönn-l
uftu I leiknum gegn Val á föstu-:
daginn, að þeir mynda besta
„sóknardúett” i islenskri knatt-
spyrnu i dag. Eyjamenn sigruftu
þá Val 2-0 og skoruftu þeir bræftur!
hvor sitt markiö. Ekki nóg meft
þaö. Þeir spiluöu hvorn annan
upp f bæöi skiptin. Hefur þaft sýnt
sig, aö þó Eyjamenn eigi i vök aft
verjast, má aldrei lfta af þeim
bræörum, þvi þá er fjandinn laus.
Það viðraði svo sannarlega '
ekki vel til knattspyrnu á föstu-'
dagskvöldið. Noröan strekkingur
og tilheyrandi kuldi gerði leik-
mönnum jafnt sem áhorfendum j
lifið leitt mest allan timann. Kom
það þvi á óvart hversu vel liðin
léku oft á tiðum, einkum þó Vals-
menn i fyrri hálfleik. Hefði ekki
veriö ósanngjarnt að þeir hefðu i
veriö 1 - 2 mörkum yfir i hálfleik,
þvi amk. þrisvar sinnum komusl
þeir í upplögð marktækifæri, en
Páll markvöröur var Valsmönn-
um „þröskuldur” sem þeir ekki
komust yfir. Framherjar Vals
eru margir hverjir liprir, með j
góða boitameðferð, en virðast
ekki kunna þá kúnst, sem fótbolt- i
inn snýst um þe. að skora mörk.'
Ekkert mark var skorað i fyrri j
hálfleik, en ýmsir hressir Eyja-!
menn voru ekki i nokkrum vafa '
um, að þeirra m enn tækju völdin i1
siðari hálfleik, og skoruðu' mörk.
Kom það reyndar á daginn.
Siðari hálfleikur var ekki nema
9 minútna gamall þegar Eyja-
menn tóku forystuna með marki
Sigurlásar (auðvitað), sem komst
inn fyrir Valsvörnina eftir fallega
sendingu Kára (auðvitað), og
Lási renndi boltanum snyrtilega 1
netið framhjá Sigurði markverði
Vals. 1-0.
Minútu siðar neglir Valur Vals-
son á Eyjamarkiö en beint i Pál
markvörð, sem ekki vissi hvaöan
á sig stóð veðrið.
Heldur var leikurinn tiðindalit-
ill næstu minúturnar, en þó voru
Eyjamenn ivið sterkari.
Náðarhöggið fengu Valsmenn
svo 10 min. fyrir leikslok, en þá
skorar Kári (auðvitað) af harð-
fylgni eftir góða sendingu Lása
bróöur (auðvitað) inn fyrir Vals-
vörnina.
Lauk leiknum þvi með 2-0 sigri
Eyjamanna, sem gátu verið
virkilega glaðir næstu tvo sólar-
hringana.eða þar til Vikingar
komu I heimsókn....
Það var erfitt fyrir gallharöa
Valsmenn, að horfa upp á sina
menn i þessum leik sem og öðrum
i sumar, og verða Valsarar bók-
staflega að vinna sinn siðasta
leik, ef þeir ætla að standa undir
þvi nafni, sem Valsmenn vilja að
Valur sé.
Bikarmeistarar Fram I 2. flokki. Þeir sigruftu KR 3-0 I úrslitaleiknum, og höfftu umtalsverfta yfirburði I leiknum.
Þrenna hjá Fram
F ram-sunnudagur
Knattspyrnumönnum Fram
gekk virkilega alit f haginn á
sunnudaginn var. Þá unnu þeir
hvorki meira né minna en 3 mót
i yngri aldursflokkum.
Um morgunin varð 6. flokkur
B hraðmótsmeistari eftir aft
hafa sigrað KR 9-1 i úrslitaleik.
Hafa Framarar reynst einstak-
lega sterkir I þessum aldurs-
flokki i sumar.
Eftir hádegift léku Framarar
tvo Urslitaleiki. 1 4. flokki léku
þeir til Urslita gegn Þór Vest-
mannaeyjum, og sigrafti Fram i
þeim leik 1-0.
Strax á eftir tóku Framarar
til úrslita i Bikarkeppni 2. f lokks
gegnKR. Erskemmst frá því að
segja aö Framarar höfðu um-
talsverfta yfirburfti i þeim leik,
og sigruftu 3-0 gegn hálf slöku
KR lifti, sem getur miklu meira
en þaft sýndi i þessum leik. Það
er þvi enginn svarti september
hjá Fram þessa dagana þrátt
fyrirtapiftgegn IBV i Bikarnum
á dögunum.
Hér sjáum vift islandsmeistara Fram I 4. flokki. Þeir unnu Þór úr Eyj um 1-01 annarri tilraun, áftur höfftu liftin skilift jöfn, 1-1
IBK sigraði í 2. defld
Crslitin I 2. deildinni um helg-
ina voru samkvæmt „bókinni”.
ÍBK tryggði sér öruggan sigur I
deildinni á föstudag meft 2-0 sigri
á Reyni. Fór leikurinn fram I
Sandgerfti. Meft þessum sigri ÍBK
var endanlega tryggt aft is-
firftingar færu með þeim i 1. deild.
Þrátt fyrir aft vera komnir i 1.
deildina, sýndu ísfirftingar
Haukum enga miskunn á ísafirfti
á laugardaginn. Haukar, sem
nauðsynlega þurftu aft vinna til aft
geta hugsanlega forðast fall I 3.
deild, voru teknir i bakariiö af Is-
firðingunum, sem skoruðu 5
mörk, en Haukar afteins eitt. Þar
meft voru Haukar fallnir i 3. deild,
en eins og menn muna léku þeir i
1. deild fyrir tveimur árum. Er
sannarlega sorglegt aft horfa til
þessa ágæta félags i Firftinum,
þvi meistaraflokksliftift þeirra féll
i 2. deild i handboltanum f vor. Er
sennilega rétta ráftift hjá þeim að"
byrja frá grunni aftur, meft þolin-
Guftni Kjartansson, þjálfari tBK
og landsliðsins. —gel —
mæfti i veganesti. En þetta var nú
útúrdúr.
Isfirftingar sem sagt komnir i
fyrstu deild aftur (voru þar siftast
1962). Flestir reikna meft þvi, aft
þeir muni eiga erfitt uppdráttar I
1. deildinni og telja aft þeir verfti
aft fá til lifts vift sig 3—4 leikmenn
gófta til aft hanga uppi meft góftu
móti. Ekki skal lagftur dómur á
þetta hér, en vift óskum
tsfirftingum til hamingju meft
árangurinn, og óskum þeim gófts
gengis i 1. deildinni.
Selfyssingar féllu 13. deildina á
laugardag er þeir töpuftu gegn
Skallagrimi á Selfossi 0-3.
Selfyssingar hafa átt erfitt
uppdráttar, og yfirleitt ekki séft
til sólar, eins og skákmenn
gjarnan orfta þaft, og eftir tapift á
laugardag var fallift staöreynd.
Þróttur Neskaupstaft forftaði
sér endanlega frá falli meö þvi að
gera 1-1 jafntefli vift nafna sinn
frá Reykjavlk.
Loks er aft geta 2-0 sigurs
Fylkis á Völsungum á Laugar-
dalsvelli, en þar var leikin heldur
stórkarlaleg knattspyrna, og
skipti leikurinn litlu máli.
Staftan i 2. deild er nú þessi:
Keflavik......17 13 2 2 36-8 28
IBI...........17 11 3 3 30-16 25
Þróttur R... ..17 6 7 4 17-12 19
Reynir ...17 7 5 5 20-16 19
Fylkir ...17 7 3 7 18-15 17
Völs ...17 6 5 6 21-21 17
Skallagr. .. ...17 5 5 7 20-20 15
Þróttur N.. ...17 3 6 8 15-23 12
Selfoss .... ...17 3 3 11 9-30 9
Haukar ...17 2 5 10 18-42 9
Ísland-Tyrk-
ir á morgun
A morgun kl. 18.15 leika tslend-
ingar landsleik I knattspyrnu
gegn Tyrkjum. Er leikurinn liftur
I riftlakeppni Heimsmeistara-
keppninnar i knattspyrnu. Mönn-
um er efiaust enn i fersku minni
hinn glæsilegi sigur okkar gegn
Tyrkjum ytra I fyrra, en þá
sigruftum vift þá 3-1.
5. leikmenn amk. sem leika
meft erlendum liftum eru tilbúnir I
slaginn gegn Tyrkjunum, en það
eru þeir Janus Guftlaugsson,
Pétur Pétursson, Atli Eftvalds-
son, Magnús Bergs og Orn
Óskarsson. Er ekki vafi á að
þessir piltar munu styrkja is-
lenska liftift, enda er ekki farið
fram á neitt minna en sigur.
Nánar á morgun.