Þjóðviljinn - 08.09.1981, Page 11

Þjóðviljinn - 08.09.1981, Page 11
Þriðjudagur 8. september 1981 þjöDVILJINN — SIÐA ll? iþróttir(3 Enska knatt- spyrnan Úrslitin á laugardag urðu þessi: 1. deild: Birmingham-Nott. For.......4-3 Brighton-Middlesboro.......2-0 Leeds-Wolves ..............3-0 Liverpool-Arsenal..........2-0 Man. Utd.-Ipswich..........1-2 Notts. co.-Coventry........2-1 Southampton-Evert..........1-0 Stoke-Man.City.............1-3 Sunderland-West H..........0-2 Tottenham-A.Villa..........1-3 WBA-Swansea................4-1 2. deiid: Bolton-Luton...............1-2 Cambridge-Rotherh..........3-0 Cardiff-Chelsea............1-2 Charlton-Blackburn ........2-0 Leicester-Wrexham .........1-0 Norwich-Barnsley...........1-1 Orient-Grimsby ............1-2 QPR-Newcastle..............3-0 Sheff.W'ed.-C.Palace.......1-0 Shrewsb.-Derby.............4-1 Watford-Oldham ............1-1 Athygli vekur feikna byrjun West Ham og Man. City i 1. deildinni. Má i þvi sambandi nefna, að West Ham fékk 6 stig i siðustu viku (3 stig eru gefin fyrir unnin leik) með þvi að vinna Tottenham 4-0 og Sunderland 2-0, og i bæði skiptin á útivelli. Man. Utd. hefur byrjað mjög illa. Aðeins fengið eitt stig úr 3 leikjum, og er á botninum ásamt Middlesboro með aðeins eitt stig. Ekki er vist að allir gráti það, en þó er varla mikil hætta (von?) á að þeir verði enn á botninum eftir 42 umferðir. Vörn Tottenham þarf greini- lega að fara i endurhæfingu, en Bikarmeistararnir fengu 7 mörk á sig I siðustu viku. Luton er efst i 2. deild. Hefur unnið alla 3 leikina til þessa, en það gera 9 stig. Willum en ekki Helgi Þau slæmu mistök, eða öllu heldur sú slæma missýn, hentu undirritaðan, aö hann tók feil á mönnum i leik KR og 1A á dögun- um. Þaö var nefnilega Willum Þórsson en ekki Helgi Þorbjörns- son, sem skoraöi hið glæsilega mark KR, sem færði þeim foryst- una i leiknum. Þessi missýn undirritaðs hafði viötæk áhrif, þvi hann þóttist viss i sinni sök er aðrir blaðamenn leituðu upplýs- inga hjá honum, en hann á vist að heita KR-ingur, og ætti þvi að vera sæmilega vel treystandi i „local” málefnum, en svo bregð- ast krosstré, sem aðrir raftar. Er Willum beöinn velvirðingar á þessum mistökum, sem þrátt fyrir allt veröa aö teljast mann- leg. B Willum Þórsson (til vinstri) og Helgi Þorbjörnsson. Vlkingurinn Lárus Guðmundsson, sem hér sést I leik gegn Fram, skoraöi sigurmark Vfkings gegn ÍBV. Er það örugglega eitt mikilvæg- asta mark, sem Vikingur hefur skoraöí yfir 50ár. Einum færri sigruðu Víkingar ÍBV í Eyjum Þaökann aöviröast mótsagna- kennt, en þó átti ómar Jóhanns- son, hinn snjalli leikmaöur ÍBV liðsins, eigi all litinn þátt I sigri Vikings gegn Eyjamönnum i fyrradag meö þvl, aöstuöla veru- lega aö þvi aö Vikingar léku ein- um færri meiri hluta leiksins. Heimi Karlssyni, Vikingi var vikiö af leikvelliá 25. min. eftir aö hafa brotiö mjög gróflega á Ómari. En allt hefur sinar or- sakir.Eins og landslýöur gat séö I sjónvarpinu á sunnudagskvöld, haföi Ómar rétt áöur hindraö Heimi vægast sagt mjög frunta- lega, og heföi meö réttu átt aö fá am k. gult spjald. H cimi tókst ekki aö hem ja skap sitt, og þvi fór sem fór. Þar meö er ekki öll sagan sögö, þvi eftir þetta atvik og sér- staklega I seinni hálfleik voru Vikingar Ijonöskrandi um allan völl, og hver hinna 10 leikmanna, sem inn á voru, var á viö tvo. Þegar upp var staöiö, höföu þeir borið sigur úr býtum 2-1, og verður þaö aö teljast meiri háttar afrek hjá þeim gegn liöi, sem virtist vera búiö aö gleyma þvi, hvemig er að tapa leik. /AV staðan Staða efstu og neðstu liða í 1. deildinni er nú þessi: Víkingur 17 10 3 4 28:23 23 Fram 17 69 2 22:17 21 KR 17 3 6 8 13:23 12 Þór 17 3 6 8 17:33 12 FH 17 2 3 12 19:39 7 Siðasta umferðin fer fram um næstu helgi. Eyjamenn voru betri obbann af fyrri hálfleik, og þeir náðu lika forystunni eftir 13 min. Var þar að verki áðurnefndur Ómar Jó- hannsson meö þrumuskoti við vitateigslínuna, óverjandi fyrir Diðrik markvörð, sem nú lék að nýju með Vikingum eftir langt hlé vegna meiðsla. Óhætt er að segja, að Vlkingum hafi tekist að samstilla hugi sina I leikhléinu, og ekki óliklegt aö um hreina og klára múgsefjun hafi verið að ræða hjá þeim. Annar eins eldmóöur eins liðs hefur vart gefiö að lita fyrr eða siðar i Eyj- um, og hafa þarlendir þó séð ýmislegt. Og eftir 9 minútur eru Vlkingar búnir aö jafna. Var þar að verki ómar Torfason beint úr aukaspyrnu meö lausu en hnit- miöuöu skoti I bláhornið. En Vikingum dugði ekki minna en sigur, og Lárus Guömundsson sá um að koma honum I höfn. Hann lék á varnarmann IBV inn i vitateignum, og afgreiddi boltann þvi næst framhjá Páli markverði og I netið. Vikingssigur i höfn aðeins 10 minútum fyrir leiklok. Vikingum hafði tekist það, sem fæstir hefðu talið mögulegt. Aö vinna Vestmannaeyinga i Eyjum einum færri mest allan timann, eftir að hafa veriö 1-0 undir. Eftir þennan leik er ljóst, að aðeins tvö lið eiga möguleika á sigri i 1. deildinni þe. Vikingur og Fram. Ein umferö er eftir i 1. deildinni, og þá leikurFram gegn KA i Reykjavik og Vikingur gegn KR. Vikingar hafa nú 23 stig en Fram 21. Bæöi liðin hafa 5 mörk i plús. Það, sem menn helst velta fyrir sér, eru þessir möguleikar: Fram verður að vinna KA til aö eiga möguleika. Meiri likur eru á þvi að KR vinni Viking, ef Þór vinnur Val, þvi þá verða KR- ingar að vinna til aö falla ekki, og undirslikum kringumstæðum eru þeir ekki auðveldir viðfangs. Vinni Valur Þór, má búast við, aö KR-ingar hugsi fyrst og fremst um vömina, þvi þá mættu þeir tapa með amk. 7 marka mun, og Vikingar myndu örugglega ekki hafa á móti þó ekki værinema 1-0 sigri. Er þvi greinilegt aö spennan verður mikil um næstu helgi, en óneitanlega standa Vikingar vel að vigi. Heimir Karlsson (lengst til vinstri á myndinni) var rekinn af leikvelli gegn iBV á sunnudaginn. Fyrir bragðið tviefldust Vikingar, og eru nú feti frá islandsmeistaratitlinum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.