Þjóðviljinn - 08.09.1981, Page 15

Þjóðviljinn - 08.09.1981, Page 15
 Þriöjudagur 8. september 1981 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 15 IV /\ 1X1 tíringio i sima 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eöa skrifið Þjóðviljanum fra lesendum Dagskrá útvarps og sjónvarps Tómt garg og hávaði Páll Sigurösson verkamaður hringdi og kvartaði undan óbæri- legum hávaða sýnkt og heilagt i rikisf jölmiðlunum. „Ég vinn i hávaða allan daginn og þegar ég kem heim að loknum vinnudegi þá vildi ég gjarnan fá friö. t það minnsta geta rikisfjöl- miölarnir haft öllu hljóölátari dagskrá en þá sem nú stendur yf- ir. Mér likar alls ekki allur þessi gifurlegi hávaði. Vissulega má i lækka i tækjunum, en það er ungt i fólk á heimilinu sem vill fá að hlusta og ekkert við þvi að segja. En þegar ég ætla að hlýða á ilt- varpið i staöinn og hvila aöeins heyrnina við hljóðlátari dagskrá þá er nákvæmlega sama gargiö þar. Mér sýnist á öllu aö þessi nýi tóniistarstjóri stefni i sama far- veg og forverinn. Þetta er allt of mikill hávaði,allt of mikið dæma- laust garg, sem við fuilorðna fólk- ið vildum gjarnan hafa frið fyrir. t það minnsta mætti haga dag- skránni á þann veg, að ekki sé • verið aö garga bæði I útvarp og sjónvarp á sama tíma, eins og allt of oft kemur fyrir. Smásaga eftir Dísu Strákuriim í strætó Kæra Barnahorn. Ég sendi ykkur litla sögu sem ég bjó til í vetur sem leið. Ég sat í strætó á heim- leið, dauðþreytt, eftir erfiðan vinnudag. Stræt- isvagninn hossaðist um götuna og staðnæmdist á einni stoppistöð. Inn kom lítijl drengur, sem settist á móti mér. Hann lagði höfuðið að rúðunni og mér fannst sem úr andliti hans skini einmanaleiki, vesæld og þreyta. Vagninn hélt af stað og ég fór að hugsa um hvaða erfiðleikar þjökuðu þenn- an dreng. Foreldra- vandamál, félagavanda- mál, systkinavandamál eða námserfiðleikar, og ég braut heilann. Sifellt varð mér litið á andlit drengsins fast upp við rúðuna. Loks safnaði ég kjarki og spurði hann hvort eitthvað gengi að honum, og nú fáið þið að heyra svarið. „Ha, hvað meinarðu? Nei, nei, það er bara svo skemmtilegt að þegar vagninn stoppar hristist hann allur og það er svo gott að láta haus- inn uppað rúðunni og láta tennurnar glamra uppí sér." Dísa VcPrtx btd&M Sc m vohtK L ^(Cr ^ lo BJoVW óer*> P />f, Vvi v'cu- (( b+S =//ÁÍ h‘ nfyélö*-. htKÓe-r- (í.J 'da V (a Barnahornid Danskir eiga sjálfsagt einna auðveldast allra með að skemmta sjálfum sér og öðrum. Ekki eru það stúdentarn- ir á meðfylgjandi mynd sem koma við sögu i gamanieik kvöldsins, heldur forverar þeirra á Gamla Garði. Danskt efni á Hljóðbergi Gamanleikur frá 19. öld Það er full ástæða til að benda útvarpshlustendum á þáttinn á hljóðbergi i kvöld kl. 23.00. Þá geta húmoristar og skólakrakkar sem vilja æfa sig I dönsku fengið að heyra nokkra af bestu ieikurum Dana lifs og liðna leika listir sinar. Fluttur verður siðari hluti leikritsins Andbýlinga eftir Christian Horup, en það var ritað á siðustu öld. Upptakan var gerð á 75 ára afmæli Pauls Reumert sem leikur aðalhlutverkið, gortar- ann sem ætlar sér aö ná i dótt- ur rika smiösins. Stúdentar á Gamla Garöi setja strik i reikninginn, með þvi að leggja snörur sinar fyrir dömurnar á heimili smiösins. Þarna er á ferðinni dæmigeröur gaman- leikur meö viöeigandi mis- skilningi, grini og gamni, sem léttir mönnum lundina þessa kvöldstund undir miönættiö. Það er aö venju Björn Th. Björnsson sem velur og kynn- ir. — ká Útvarp kl. 23.00 Melina syngur Griski þingmaðurinn, leik- konan og söngkonan Melina Mercori lætur frá sér heyra i morgun tónleikum i dag. A fóninn fer plata þar sem hún syngur létt grisk lög. Mellnu þarf vart að kynna, hún var nýlega isjónvarpinu að kynna borg sfna Aþenu á sinn „sjarmerandi” hátt og senni- lega stendur hún i kosninga- baráttu i hafna rborginni Pýreus þessa dagana. Melína varö viric i and- spyrnunni gegn herforingja- stjórninni þegar sú illa klika tók völdin i Grikklandi og eftir aö ánauðinni lauk, fór hún heim til að taka þátt i barátt- unni. Fyrir aðdáendur Melinu er hollt að vita að hún hefur skrifaö ævisögu slna, sem nær yfir tímabiliö frá þvf að hún var stelpa i' Aþenu og þar til þær fréttir bárust að Grikk- land væri i klóm pótintáta hersins. Sú ágæta bók hennar opnar mönnum sýn inn i griskt lif og fær okkur til að skilja þá blöndu af trega oglifsgleði sem hljómar úr börkum syngjandi Grikkja. Klukkan 11.30 hljómar hin djúpa rödd Melinu _ á öldum ljósvakans. —ká Útvarp kl. 11.30 Riddari Branners Ný útvarpssaga hefur göngu sina i kvöld. Hún nefnist Ridd- arinn og er eftir danska skáld- ið H.C. Branner. Úlfur Hjörv- ar þýðir og les, en á undan flytur Vésteinn Olason dósent formálsorð. Við slógum á þráðinn til Vésteins tii að leita upplýsinga um skáldið og sög- una. Vésteinn sagði að Branner heföi fæðst á fyrsta áratug þessarar aldar, en fyrsta bók hans kom út 1936. Fyrir strið skrifaði hann sögur i sálfræði- legum raunsæisstil, en stríöið vakti með honum hugsanir um lifið og dauðann, syndina og ýmsa kristilega þanka. Fyrst og fremst var Branner þó húmanisti. Sagan um riddar- ann segir frá manni sem er dáinn þegar sagan hefst. Persónur sögunnar fara að gera upp samband sitt við hann eftir fráfallið. Vésteinn sagði að sagan væri mögnuö og væri hún talin meö merk- ustu verkum Branners. Skáld- H.C. Branner. ið skrifaöi bæöi skáldsögur, leikrit og smásögur, en þær siöasttöldu þykja hið besta i framlagi hans til listarinnar. Riddarinn kom út 1949, og ger- ist á einum sólarhring. -ká Útvarp kl. 21.30

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.