Þjóðviljinn - 21.10.1981, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 21. október 1981
þingsjá
Frumvarp
þingmanna AB
um fangelsismál
Þeir Helgi Seljan, Guömundur
J. Guömundsson og Baidur ósk-
arsson hafa iagt fram þingsálykt-
unartillögu um fangelsismál fyrir
sameinaö þing. Þar segir aö Al-
þingi feli rikisstjórninni aö skipa
7 manna nefnd til aö gera heildar-
úttekt á fangelsismálum og geri
áætlun um framtiöarskipan þess-
ara mála. Nefnd þessi skili áiiti
fyrir þingbyrjun 1982. t greinar-
Athuga önnur við-
urlög en fangelsi
UmræOan um fangelsismál inn á þing
gerð meö tillögunni er vakin at-
hygli á baráttu Jóns Bjarmans
fangelsisprcsts og einnig getiö
bókarinnar um Sævar Ciesielski.
t greinargeröinni segir m.a.
„Fullyröingar allar er hollt aö
spara, en engum dylst þó,aö i svo
vandmeðförnum málaflokki get-
ur vart hjá þvi fariö, aö ýmislegt
sé ööruvisi en vera ætti.”
Greinargeröin er svo í heild
sinni:
Fangelsismál okkar hafa mjög
veriö i sviösljósi aö undanförnu
og mikiö um þau rætt og ritað.
Hér er um viökvæman og vand-
meöfarinn málaflokk aö ræða,
þar sem oft vill veröa skammt
öfga á milli.
Þaö fer hins vegar naumast
milli mála aö hreinskilin og opin-
ská umræöa hlýtur aö vera af
hinu góöa og Alþingi hlýtur aö
vera sjálfsagöur vettvangur
slikrar umræöu.
Þegar menntunarmál fanga-
varöa komu til umræöu á Alþingi
i fyrra hlutu fangelsismál al-
mennt aö veröa fyrirferöamest I
umræöunni og þar kom margt at-
hyglisvert fram i máli manna.
Fyrirspurn frá Salome Þor --
kelsdóttur um tiltekna þætti fang-
elsismála fékk ekki neina um-
ræöu, en skriflegt svar ráöherra
barst viö fyrirspurninni.
1 umræöum undangenginna
þinga um geöheilbrigöismál hef-
ur málefni geösjúkra afbrota-
manna mjög borið á góma, en þar
er á feröinni eitt stærsta vanda-
mál I fangelsismálum okkar.
En heildarumræöa um alla
þætti fangelsismála, vandamálin
þar og framkvæmd yfirleitt, hef-
ur ekki fariö fram á þingi og hafa
þó oft gefist til þess ástæöur.
Nú I sumar hefur séra Jón
Bjarman fangaprestur vakiö
veröskuldaöa athygli á fjölmörgu
i fangelsismálum okkar, og munu
flutningsmenn þessarar tillögu
leita liösinnis hans er máliö kem-
ur til umfjöllunar Alþingis.
1 kjölfar þess, sem séra Jón
Bjarman hefur látiö frá sér fara,
hafa svo birst viötöl og greinar
um þessi mál sem vekja ekki sið-
ur fjölmargar spurningar sem
ósvaraö er aö miklu eöa öllu leyti.
Skemmst er aö minnast viötals-
bókarinnar viö Sævar Ciesielski:
Stattu þig drengur, sem er þess
eölis, aö löggjafinn, Alþingi, hlýt-
ur aö leggja aö eyru og fá svör viö
ýmsum þeim spurningum sem
vakna viö lestur þeirrar bókar.
En til þess aö Alþingi geti um
málið fjallaö heildstætt og vegiö
og metið allar aöstæöur er óhjá-
kvæmilegt aö fram fari hlutlaus
úttekt á fangelsismálum okkar og
stööu þeirra i dag.
Fullyröingar allar er hollast að
spara, en engum dylst þó.að i svo
vandmeðförnum málaflokki get-
ur vart hjá þvi farið, aö ýmislegt
sé ööruvisi en vera ætti. Þar geta
komiö til mannleg mistök, ein-
strengingsháttur og jafnvel
mannúöarskortur gagnvart þvi
ógæfufólki sem oft á sér fáa for-
mælendur, ef nokkra. Hvergi er i
raun meiri hætta á valdniöslu en
einmitt gagnvart þessu fólki og úr
þvi veröur aö fást skoriö óyggj-
andi, að slikt eigi sér ekki staö, og
ef svo er, að gripiö sé þá til harka-
legra gagnráöstafana.
í greinargerö meö tillögu þess-
ari, sem aö meginefni er fólgin i
skjótri úttekt á ástandi þessara
mála, hæfir ekki aö fjalla um ein-
stök atriöi.
í ljósi þeirrar úttektar, sem
lögö veröur fyrir Alþingi, munu
svo enn færi á þvi aö fjalla um
þessi mál. En þögn um þau inni á
Alþingi i ljósi þess, sem um málin
hefur veriö rætt og ritað, er af
hinu illa, vekur enn frekari tor-
tryggni og grunsemdir og er i
raun ekki réttlætanleg.
Sú spurning leitar mjög á flutn-
ingsmenn, hvort fangelsunum sé
ekki beitt um of meö tilliti til
þeirra áhrifa sem slik frelsis-
svipting hefur i för með sér.
Nefndinni er þvi nauösyn aö
kanna rækilega hvort önnur viö-
urlög en fangelsun eigi ekki i
mörgum tilfellum meiri rétt á
sér.
Fá mál eiga meiri heimtingu á
raunsærri skoöun, hreinskilnum
umræöum, og i framhaldi af þeim
og nauðsynlegu starfi nefndar,
sem gerði úttekt og tillögur til Al-
þingis, yröi þá af mikilli alvöru
snúiö sér aö þvi aö gera þær um-
bætur sem knýjandi teldust.
Þetta ógæfufólk á þar ótviræð-
an rétt og rétti þess má löggjafinn
aldrei gleyma, heldur gæta hans
sem best.
Flutningsmenn munu gera nán-
ari grein fyrir málinu I framsögu
og umræðum og koma þar aö
ýmsu þvi sem ekki þykir aö svo
stöddu rétt aö fara inn á I greinar-
gerö.
Frumvarp um nýtingu bújarða fyrir aldraða
Helmlli fyrir
fólk í sveit
Ilelgi Seljan fylgdi I gær úr
hlaði þingsa'IyktunartQlögu sem
hann flytur ásamt Stefáni Jóns-
syni og Skúla Alexanderssyni um
nytingu bújaröa (ríkisjarða) i
þágu aldraöra.Hérerum aöræöa
hugmynd um heimili fyrir aldraö
fólk »em frekar vill vera I sveit i
stað þess aö fara á elliheimili i
þéttbýli.
Helgi sagöi m.a.: „Þessi tillaga
hefur þrivegis áður verið flutt og
freista ég þess enn aö leita full-
tingis alþingis varðandi mál
þetta. Tillagan er I raun beint inn-
legg I þá umræöu um málefni
aldraöra sem nú er ofarlega á
baugi og mun verða enn meira
áberandi á ári aldraðra — næsta
ári. Hún snertir úrlausn sem ég
veit aö hefur gefist vel hjá Norð-
mönnum þó hún sé þar ekki ýkja
útbreidd.
Tillagan er komin beint frá
fólki, sem þurfti á sinum tima að
þola snögga lífsvenjubreytingu.
Of snögga og of sára að þess
dómi.
Meginhugsunin felst i þvi aö
fólk, sem ekki hefur lengur orku
til áframhaldandi búrekstrar i
þvi formi sem einyrkjabúskapur
er, þurfi ekki aö fara rakleitt á
dvalarheimili i þéttbýli, oft án
möguleika þessað nýta þá krafta
sem enn eru eftir til starfa og iðju
einhvers konar.
SliTct heimili sem þessi tillaga
gerir ráö fyrir hefur tvo aðal-
kosti, lifsvenjubreytingin, um-
hverfisbreytingin verður minni
og starfskraftar nýtast til þeirrar
iðju, sem fólkið helst kýs og hefur
starfað að um dagana. Heimilið
yrði byggt upp sem smá eining 6
til 8 aðila, sem þangaö kæmu með
hluta bústofns sins, sem æöj oft er
sárt aö láta frá sér i einu vet -
fangi.
Þær jarðir sem heppilegar
kynnu að reynast gætu haft hvort-
aldrað
Helgi Seljan
tveggja — húsakost til ibúðar aö
hluta og nægt Utihúsarými. Til-
kostnaður gæti þvi þegar allt
kemur til alls orðiö svipaður og
jafnvel minni en viö venjuleg
Hert viðurlög við brotum á söluskattslögum
Söluskattskrá
opnuð öllum
í gær var lagt fram frumvarp á Alþingi, þarsem
gert er ráð fyrir hertum viðurlögum við brotum á
söluskattslögum. Þá er samkvæmt frumvarpinu
aukin skráningarskylda atvinnurekenda, og i þriðja
lagi verður nú almenningi gefinn kostur á að sjá
söluskattskrá fyrir hvert sveitarfélag.
í lagafrumvarpinu segir að
söluskattskýrslu með upplýsing-
um um heildarveltu og frádrátt
beri aö skila innheimtumanni fyr-
ir hvert uppgjörstimabil þótt ekki
hafi verið um söluskattskylda
veltu að ræöa. Samkvæmt frum-
varpinu eru sektarmörk við brot-
um á bókhaldsákvæðum sölu-
skattslaga og reglugerða hækkuð
úr 100 þúsundum gömlum i fimm
miljónir gamlar þ.e. fimmtiu
þúsund nýkróna. Þá bætist við
söluskattslögin ný lagagrein sem
hljóðar svo: „Skattstjórar skulu
árlega semja og leggja fram sölu-
skattskrá fyrir hvert sveitarfélag
i umdæminu, en i henni skal til-
greina ákvarðaðan söluskatt
hvers söluskattsskylds aðila.
Söluskattskrá skal liggja frammi
til sýnis i tvær vikur á hentugum
stað i hverju sveitarfélagi. Skatt-
stjóri eða umboðsmaður hans
auglýsir i tæka tið hvar söluskatt-
skrá liggur frammi”. Það hljóta
margir að fagna þvi að almenn-
ingi skuli gefast kostur á að fylgj-
ast með þessum digra þætti sem
hingað til hefur verið meir og
minna lokuð bók. Lagafrumvarp-
ið er byggt á áliti nefndar sem
fjármálaráðherra skipaði á sin-
um tima til að yfirfara sölu-
skattslögin.
Fyrirspum um veðbókarvottorð:
Tvlsvar tll fógeta
— enn um sinn
Fimm mál voru tekin til um-
fjöllunar á sameinuðu þingi I gær.
Fyrirspurn Vilmundar Gylfa-
sonar um það hvers vegna maöur
þyrfti aö fara tvisvar — tvo daga I
röö — til aö sækja veöbókarvott-
orö hjá fógeta I Reykjavik var
fyrstá dagskrá. Vilmundur fylgdi
henni úr hlaöi og Friöjón Þóröar-
son dómsmálaráöherra svaraöi.
Þaö kom fram i máli Friöjóns aö
þaö væri ekki nauðsynlegt I öllum
tilfellum. Aukin heldur væri
stefnt á tölvuvæöingu hjá þvi
embætti.auk þess sem embættiö
fengi siöar aögang aö skráningar-
skjölum Bifreiöaeftirlitsins sem
auöveidaöi afhendingu veöbókar-
vottoröa.
Vilmundi fannst þetta léttvægt
svar og „dæmalaust viröingar-
leysi við hinn almenna mann”.
Þetta væri einnig dæmi um vald
hroka. Friöjón itrekaöi aö þetta
stæöi til bóta i náinni framtið. Gat
þess einnig aö aöstaöa þessa um-
rædda embættis heföi veriö bætt
til mikilla muna i ráöherratið
dvalarheimili, sem reisa þarf. Er
hér sérstaklega miöað viö þaö aö
rikiö ætti þegar viðkomandi jarö-
ir.
Héryröi ekki um aö ræða neitt
sem héti hjúkrunarheimili að
sjálfsögðu, en starfsfólk réðist að
nokkru eöa mestu leyti af þvi', hve
mikla aðstoð þyrfti að veita heim-
ilisbúum viö heyöflun, gegningar
o.fl. Hún yröi þo aldrei m jög mikil
miðað við heilsufar og starfs-
möguleika þess fólks sem ég hefi
hér einkum i huga. En heildaryf-
irstjórn og viss heimilisaðstoð
yröi eflaust til að koma. Nándin
viö þéttbýli meö góða heilsu-
gæsluaðstööu er sjálfsagt örygg-
isatriði og það er viða orðið sem
betur fer aö heilsugæsluaðstaöa
sé aö verða býsna fullkomin.
Við flutningsmenn tengjum
þessa heimilishugmynd einnig
viö smáiönaö tengdan landbúnaði
sem sjálfsagt er að hafa inn i
myndinni. Viö erum enn á þeirri
skoöun að i framtiðinni muni
heimili af þessu tagi risa og hafa
þar þá tvo meginkosti sem að var
vikið i upphafi.”
Sihan gat Helgi nauðsynjar
þess aö fólk fengi notið ánægju og
lifsfyllingar á efri árum og aö
meö frumvarpinu væri stefnt aö
þvi aö svo gæti orðið. Þórarinn
Sigurjónsson tók undir þessa til-
lögu og óskaöi málinu brautar-
gengis. Frekari umræðu var
frestaö.
hans. En Vilmundur gegndi
störfum dómsmálaráðherra áður
en Friöjón fékk þann starfa.
Smærri hlutafélög
Þá var tekið til umræöu frum-
varp um smærri hlutafélög sem
Daviö Aöalsteinsson og
Guömundur Bjarnason flytja.
Daviö sagöi að núgildandi hluta-
félagalög væru loðin hvaö varöaði
smærri hlutafélög. Rakti Davið
könnun á vegum viöskipta-
ráöuneytisins um skráö hluta-
félög áriö 1980, en þau voru 85
talsins. Athugunin leiddi i ljós aö i
52 hlutafélögum af þessum 85 var
hlutaféð minna en 10 miljónir
fornar krónur og hluthafar 5 til 7
talsins. Algengt væri að hér væri i
rauninni um aðeins einn til tvo
aðilja aö ræöa sem stofnuðu
hlutafélag, en létu skrá fjöl-
skyldumeðlimi sina til aö upp-
fylla ákvæði hlutafélagalaga.
Þetta þyrfti að koma i veg fyrir
og setja sérlög um smærri hluta-
félög. — Eyjólfur Konráö
mælti I mót þessari tillögu og
kvaö lögin frá 1978 nógu góö.
Annarra mála sem tekin voru
fyrir á fundi sameinaðs þings i
gær er getiö annars staöar i
blaöinu.
SETUR ÞÚ STEFNULJÓSIN TÍMANLEGA A?
Áður L
en þú / 1 —
kemur að
gatna-
mótum? ( í““i i— i iV'
ÞAÐ ER ÆTLAST
TIL ÞESS
iJUMFERÐAR