Þjóðviljinn - 21.01.1982, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 21.01.1982, Qupperneq 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. janúar 1982 Fimmtudagur 21. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Getur 0 nugsjón lifað Salka Valka frumsýnd í nœstu viku Ljósm. — gel //Stofnun kauplýösfé- lagsins/ er þaö blað eöa bók — eða kannski bara stíla- bók?" Það er Þorleifur Karlsson, leik- munavörður sem leggur siðustu hönd á leikmunalistann i „Sölku Völku”, sem frumsýnd verður hjá Leikfélagi Reykjavikur i næstu viku. Þaö er i mörg horn að lita i upp- hafi æfingar. Sviðsmennirnir hafa i nótt skipt frá „Ofvita” yfir i „Sölku Völku” og þegar mætt er að morgni hanga fiskhausar þvers og kruss, tjöru — og salt bornar hæöir mynda leiksvæðið þar sem skáldsagan um stúlkuna Sölku verður að leiksýningu. Hugmyndin aö gera Sölku Völku að leiksýningu er oröin gömul. Meira aö segja hafa Finn- ar gert leikgerð af verkinu og sýnt hana i norður Finnlandi Hér er Salka Valka sýnd i tilefni af 80 ára afmæli Halldórs Lax- ness. Leikgeröina gerðu Þor- steinn Gunnarsson og Stefán Baldursson, sem jafnframt er leikstjóri. Leikmynd gerir Þór- unn Sigriður Þorgrimsdóttir, lýs- ingu Daniel Williamsson og Tón- list Askell Másson. Fjöldamargir leikarar koma fram i sýningunni, en i helstu hlutverkum eru Guö- rún Gisladóttir (Salka Valka), Jóhann Sigurðarson (Arnaldur), Margrét Helga Jóhannesdóttir (Sigurlina) Þorsteinn Gunnars- son (Steinþór) og Jón Sigur- björnsson (Bogesen). Aðrir leik- arar eru: Sigurður Karlsson, Jón Hjartarson, Sigriöur Hagalin, Valgerður Dan, Soffia Jakobs- dóttir, Hanna Maria Karlsdóttir, Karl Agúst Olfson, Gisli Rúnar. Jónsson, Steindór Hjörleifsson, Karl Guðmundsson og Jón Július- son. Við náðum að króa Guðrúnu Gisladóttur af á milli atriöa og spjalla dálitið við hana um stúlk- una Sölku Völku. Við spurðum hana fyrst hvernig Salka væri i kynningu: „Mér finnst hún ekki eins ótrú- leg lengur — ekki eins ótrúlega sterk og mér fannst þegar ég las bókina.” „Hvað er erfiðast við að leika hana?” „Það er erfiðast aö reyna aö umbreyta henni i sig, þvi ég þekki hana fyrir. Það er önnur tilfinn- ing að leika persónu sem maður þekkir úr bók en persónu sem birtist manni fyrst i leikriti”. „Truflar það þig að áhorfendur þekkja Sölku lika fyrir?” „Þaö hefur ekki truflað mig i þessari vinnu; ég verð að viður- kenna að ég kviði þvi svolítiö þeg- ar að þvi kemur að standa frammi fyrir áhorfendum.Eitt af þvi fyrsta sem ég gerði mér grein fyrir þegar ég tók þetta hlutverk að mér, var einmitt sú staðreynd, að allir eiga sina eigin Sölku i hugskotinu. Ég get ekki annað en reynt eftir bestu getu að gera hana mér skiljanlega — um- breyta mér I hana og henni i mig.” „Hvað er mest spennandi að glima við i fari hennar?” Mér finnst veikleikar Sölku mest spennandi, andstæðurnar sem búa i henni. Hún er ekki allt- af sterk og hún er stundum veik fyrir þvi sem hún vill vera sterk gagnvart. Það er lika mjög erfitt aö koma til skila þeim miklu sviptingum sem verða á tilfinn- ingum hennar á mjög stuttum tima i gegnum nokkrar setningar. Þaö sem ég sakna kannski mest úr bókinni er að geta ekki verið alein. Mér finnst maður skilja Sölku svo vel i bókinni á þeim stundum sem hún er ein. Og jafn- vel þótt maður sé einn á leiksvið- inu, þá er maður aldrei aleinn i leikhúsi og þess vegna kemur maöur ekki yfir þeirri fullkomnu einsemd Sölku, eins og hún birtist i sumum köflum bókarinnar.” Við spurðum Guörúnu að lokum hvort ekki þætti mikill munur á sviðinu i Iönó og Þjóðleikhússvið- inu; en þetta er fyrsta hlutverk Guðrúnar i Iðnó: „Ja, mér finnst mikill munur á þvi. Mér finnst þetta svið mun erfiðara. Hér er maður svo miklu nær áhorfendum,” sagði Guðrún aö lokum. Leikritið nær yfir báða hluta sögunnar. „Þú vínviður hreini” og „Fuglinn i fjörunni”. Frum- sýningin verður eins og fyrr segir 28. þ.m. þs „Ég tala nú bara fyrir mig: ekkert er nú að horfa uppá börnin sin deyja hjá þvi að horfa upp á þau lifa — ég meina fyrir fátækt fóik. Hverskonar guð er það sem stjórnar þessu annars”? Valgerður Dan sem Sveinbjörg, Guðrún Gisladóttir sem Salka og Sigurður Karisson sem prestur. „Þeim sem ekki geta haldið sér saman verður fleygt út”. Karl Guðmundsson, Karl Agúst . Úlfsson og Jón Hjartarson á fundinum. „Ég er saltfiskurinn og plássið”. Þorsteinn Gunnarsson sem Steinþór Steinsson. „Þaö sem við verðum aögera cr aðstofna annan heim.” Arnaldur (Jóhann Sigurðarson) talar viö fund- armenn um stofnun verkaiýðsféíags. (Hanna Maria Karlsdóttir, Jón Júliusson, Karl Agúst úlfsson o.fl.) „A, þarna kom það. Mér datt ihugað þú mundir ekki láta sitja viö sjómannafélagið eitt, buxurnar einar og drengjakollinn einan. Mér datt sosum í hug að þess væri ekki lángt að biða að bolsévikahugmyndirn- ar sigldu i kjölfarið.” Jón Sigurbjörnsson sem Bogesen, Steindór Hjörleifsson sem Guðmundur Kadett og Salka. „Nú er ég orðin frillan þin, eins og talað er um I neðanmálssögunum.” „Arnaldur, hvernig ertu búinn að gera mig?” „Ég þekki mig ekki lengur sjálfa.” „Hvað verður um mig ef þú skyldir fara frá mér?”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.