Þjóðviljinn - 21.01.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 21.01.1982, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 21. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA H íbróttir (3 íþróttir g) íþró^1! Enska knattspyrnan: Morley rekinn útaf og Villa tapaði Maradona á ferðinni Diego Maradona, argentinski knattspyrnusnillingurinn, var i sviðsljósinu i gær. Félag hans, Boca Juniorsj lék þá gegn Japanska iandsíiðinu i Tókio og sigraði 3—2 eftir að Japanarnir höfðu komist i 2—0. Maradona átti stórieik og skoraði tvö markanna. Hann hefur ekki verið valinn i argentinska landsliðshópinn á ný eftir að þjálfari heimsmeistaranna setti hann út úr honum fyrr i vetur fyrir að slá slöku við æfingar. Maradona kvaðst þá vera þreyttur vegna mikils leikja- álags. HM knatt- spyrnu Englendingar og Frakkar hafa hætt við aö leika æfingaleik i Paris i mars nk. þar sem þjóðirnar drógust saman i riðil i lokakeppni HM. • •• Tékkar fara i æfinga- og keppnisferð til S-Ameriku til að undirbúa sig fyrir HM. Þar mæta þeir meðal annarra Brasiliumönnum i Rió þann 3. mars. • •• Charlie Dempsey, formaður nýsjálenska knattspyrnusam- bandsins, er nú staddur i Lon- don i þvi skyni að fá bresk lið til að koma til Nýja-Sjálands og leika þar æfingaleiki. 2. deildar- lið Cr. Palace hefur mikinn áhuga á að þekkjast boðið og halda suður á bóginn i vor. Nýja-Sjáland leikur I riðli með Brasiliu, Sovétrikjunum og Skotlandi á Spáni. • •• Nokkrar þeirra þjóöa sem leika i lokakeppninni á Spáni, hafa farið þess á leit viö FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, að leikmenn þurfi ekki að taka út refsingar i lokakeppninni fyr- ir gul og rauö spjöld sem þeir hafa hlotið i undankeppninni. Benda þær á aö slikt væri órétt- látt vegna þess aö Spánn og Argentina þurftu ekki að leika i undankeppninni og eru þvi örugg um að hafa enga leik- menn i banni þegar keppnin hefst. • •• Bernd Schuster, knattspyrnu- snillingurinn og vandræðabarn- ið vestur-þýska, leikur senni- lega með vestur-þýska landslið- inu á Spáni eftir allt saman. Hann hefur lengi átt i útistöðum við landsliðseinvaldinn Jupp Derwall en nú virðist allt ætla að falla i ljúfa löð. Nú er sá hængur á, hins vegar, að Schuster er þessa dagana i gipsi vegna uppskurðar á hné og óvist að hann verði. búinn aö ná sér fyllilega þegar HM byrjar i júni. Tony Morley nýliðinn i enska landsliðinu var rekinn útaf i ieik Aston Villa og WBA i deildarbik- arnum i gærkvöldi. Hann var reyndar ekki rekinn útaf i orð- anna fyllstu merkingu, þar sem hann fékk ekki að koma inn á leikvöllinn er seinni hálfleikur átti að hefjast. Morley mun hafa rexað eitthvað i dómaranum í leikhléinu með ofangreindum af- leiðingum. Til að bæta gráu ofan á svart, vann WBA 0:1 á Villa Park og tryggði sér þar með sæti i unddnúrslitum deildabikarsins. Það var Derek Statham, sem margir telja besta vinstri bak- vörð i ensku knattspyrnunni, sem skoraði eina mark leiksins eftir hálftima. 1 undanúrslitum mætir WBA liði Tottenham, og Liver- pool leikur gegn Ipswich. tJrslit leikja i ensku knatt- spyrnunni i gærkvöldi: Deildabikarinn 5. umferð Aston Villa — WBA 0:1 Enski bikarinn 3. umferð Hereford —Scunthorpe 4:1 Cardiff - 2. deild -Oldham 3. deild Reading — Fulham 4. deiid Bradford — Mansfield Port Vale — Darlington 0:1 0:3 3:4 2:2 Stoke - 1. deild - Arsenal 0:1 Fjórða umferð ensku bikar- keppninnar verður leikin um næstu helgi. Þar mætast eftirtalin lið: Blackpool — QPR Brighton — Oxford TONY MORLEY — rekinn útaf i gærkvöldi. Bristol City —Aston Viila Carlislee/Huddersf. — Orient Chelsea e/Hull — Wrexham Cr. Palace — Bolton Gillingham — WBA Hereford — Leicester Luton — Ipswich Mansh. City — Coventry Newcastle — Grimsby Norwich — Doncaster Shrewsbury — Burnley Sunderland — Liverpool Tottenham — Leeds Watford — West Ham Stenmark er óstöðvandi! — vann sinn fjórða sigur í röð í fyrradag Það verður ekki ofsögum sagt af sænska skiðakappanum, Inge- mar Stenmark, þessa dagana. t fyrradag vann hann sinn fjórða sigur i röð i heimsbikarkeppninni, að þessu sinni i stórsvigi i Adel- boden i Sviss. Phil Mahre mátti enn sætta sig við annað sætið og kveðst vera orðinn leiður á þvi hlutskipti sinu. Timar efstu manna I st'órsvig- inu á þriðjudag urðu þessir: Ingemar Stenmark Sviþj.. 2:34,25 Phil Mahre, USA 2:36,41 Max Julen, Sviss 2:36,82 Þetta var 66. sigur Stenmarks i heimsbikarkeppni og enginn skiðamaður hefur verið jafn sigursæll. Næstflesta sigra að baki hefur Annemarie Moser frá Austurriki, 62. Staöa efstu manna i heims- bikarkeppninni: stig Phil Mahre, USA 237 Ingemar Stenmark, Sviþ. 159 StevePodborski, Kanada 94 Andreas Wenzel, Licht. 85 Joel Gaspoz, Sviss 69 Peter MÓller, Sviss 60 Franz Klammer, Austurr. 59 A þriöjudag var einnig keppt i bruni kvenna, og fór það mót fram i Badgastein i Austurriki. 16 ára gömul stúlka frá Austurriki, Sylvia Eder, varð þar óvæntur sigurvegari. I efstu sætum urðu: Sylvia Eder, Austurr. 1:58,10 ElisabethChaud.Frakkl. 1:58,27 Holly Flanders, USA 1:58,33 1 gær var siðan keppt i svigi kvenna á sama staö. Þar bar Erika Hess frá Sviss sigur úr být- um og hefur nú tekið forystuna i stigakeppni kvenna i heimsbikar- keppninni með 246 stig. Irene Eppie frá V-Þýskalandi, sem varð 14. i sviginu i gær, er i öðru sæti með 233 stig. Aörar eru langt að baki þessum tveimur. VS ® Æm Ingemar Stenmark sést hér fagna sinum 63. sigri I heimsbikarkeppn- inni á skiðum fyrir skömmu. Nú eru sigrarnir orðnir 66 og miklar likur á að fleiri bætist við áður en langt um liður. Atrennu- laus stökk Meistaramót Islands i atrennulausum stökkum verður haldið i Armanns-heimilinu sunnudaginn 31. janúar nk. og hefst kl. 10.30 árdegis. Þátttöku- gjöld greiðist á keppnisstað. Væntanlegir keppendur skrái sig hjá Stefáni Jóhannssyni, simi 19171 eða á skrifstofu FRI i siðasta lagi fimmtudaginn 28. janúar. • •• Getrauna- gróöinn 119. viku Getrauna kom fram einn seðill með 12 réttum leikj- um og verður vinningur fyrir hann kr. 100.230,- en með 11 rétta voru 40 raðir og vinningur fyrir hverja röð kr. 1.073.00. Enn einu sinni varð Axel eftir- litsmaður að gripa til tenings- ins, þar sem aðeins 5 leikir af 12 á seðlinum gátu farið fram. Væntanlega fer þessum vetrar- hörkum senn að linna, þar sem ella er hætt við að sum deildar- félögin verði gjaldþrota, ef svona heldur áfram til lang- frama. • •• Amarmót I borðtennls Borðtennisklúbburinn örninn heldur hiö árlega Arnarmót 23. og 24. janúar i Laugardalshöll. Þetta er 11. árið sem keppt er um hinn veglega Arnarbikar. Mótið er punktamót og hefst keppnin laugardaginn 23. janú- ar kl. 14 I 1. flokki kvenna og 2. flokki karla. Sunnudaginn 24. jan. kl. 14 hefst keppni i meistaraflokki karla og kvenna og 1. flokki karla. Yfirdómari verður Aðalsteinn Eiriksson. Þátttaka tilkynnist til Jónasar simi 26806 og Sigurðar simi 81810. Dregiö veröur á töflu föstudagskvöldið 22. jan. kl. 20 Magnús er kominn heim Magnús Jónsson, sem hefur verið einn burðarstólpa 2. deildarliðs Þróttar frá Neskaupstað i knattspyrnu sl. tvö ár, er nú kominn aftur á heimaslóðir hjá KR. Hann tilkynnti félagaskipti yfir i sitt gamla félag fyrir nokkrum dögum. Meðfylgjandi listi sýnir þá leikmenn sem skipt hafa um félög siðustu dagana en þar sem margir eru enn að kanna aðstæður hjá hinum ýmsu félögum eru félagaskiptin ekki komin i gang ennþá. Það má hins vegar búast við mikilli hrotu næstu tvo til þrjá mánuðina. Andrés Hjartarson Ur Breiðabliki i Augnablik Asta Bragadóttir Ur FH i Viking Bárður Tryggvason Ur Reyni H. i IK Helga Bragadóttir Ur FH i Viking Hörður Hilmarsson úr AIK (Sviþjóð) i Grindavik Jón Hauksson úr Leikni F. i IK Magnús Jónsson úr Þrótti N. i KR Ómar Þór Sveinsson úr Vali Breiðablik (3. fl.) Pálmi Einarsson úr UMFK i Viði Stefán ólafsson úr Selfossi — opið Sveinn Ottósson úr 1K i Augnablik TómasL. Vilbergsson úr Þrótti N. — opið (Þóreða KA) Tryggvi Gunnarsson úr Selfossi — opið Viðar Gunnarsson úr ÍK i Augnablik

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.