Þjóðviljinn - 24.03.1982, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.03.1982, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Þriöjudagur 23. mars 1982. Niðurstign- ingunni stolið og djöfullinn rekinn Ariö 1807 kom út i Leirárgörö- um ný útgáfa af barnalærdóms- hókinni. Sá Magnús Stephensen etatsráö um útgáfuna en Guö- mundur Schagfjörö prentaöi. Ekki sýndist Geir biskupi Vídalin þessi útgáfa Magnúsar meö öllu annmarkalaus og sá hann ástæöu til þess aö benda á það í bréfi, sem hann skrifaði Bjarna Thorsteinssyni. I þvi segir Vidalín biskup m.a.: „..hvar i þeir góðu menn, etatsráö og Schagfjörö, annaö hvort einn eða báöir, hafa stolið undan niöurstigningu XI (Christi), til helvitis úr annari greininni og rekið djöfulinn úr sjöttu bæninni (i Fræðunum)”. Fyrr mátti nú gagn gera en aö stela niöurstigningunni og trutta burtu sjálfum fjandanum og var ekki nema von að biskupi blöskraöi athæfi þeirra Leir- gerðinga. — mhg Nýtt verð vidtalið Rætt við Hilke Hubert sjúkranuddara: Leirbakstrar eru blessun fyrir stífa vöðva og liði A Hverfisgötu 39 I Heykjavik starfrækir Hilke Hubert sjúkra- nuddkona einu nuddstofuna á islandi þar sem gefnir eru bakstrar meö Parafango-ieir. Viö spuröum Hiike, I hverju þessir bakstrar væru fólgnir og i hvaöa tilgangi þeir væru gefnir. — Þetta eru leirbakstrar, sem settir eru á auma bletti likam- ans, bak, heröar eöa liöi, og þeir eru haföir á i 20—30 minútur. Leirinn sem ég nota er italskur en blandaöur i Sviss, þar sem m.a. er sett i hann parafin. Þessi leir er ekki mjög blautur, hann er likastur vaxi i viðkomu og fellur mjög vel aö formi likamans. Parafiniö gerir þaö hins vegar aö verkum aö hann loöir ekki við likamann. Leirinn er hitaöur upp i 48—50 gráöur áöur en hann er notaður. Leir- bakstrar þessir eru m.a. notaöir gegn vöövabólgu, gigt og stirö- um liöum. — Eru leirbakstrar viöur- kennd lækningaraöferö hér á ts- landi? — Nei, ekki aö öllu leyti. Ýmsir læknar hafa aö visu visaö á okkur, en Sjúkrasamlagiö tekur hins vegar ekki þátt i aö greiöa niöur kostnaö sjúkling- anna. Sjúkranudd er viöur- kennd starfsgrein erlendis og leirbakstrar og böö eru mikiö notuö i Þýskalandi og Sviss og þekkjast einnig t.d. i Finnlandi. Hér á landi eru um 10 manns sem hafa lært þetta, og við höf- um stofnaö meö okkur félag. Nám I sjúkranuddi tekur 2 1/2 ár, þar af 1 ár bóklegt nám. — Hefur þú unniö lengi aö þessum lækningum? — Ég hef starfaö hér á íslandi i 6 ár, m.a. á Heilsuhælinu i Hveragerði, en þaö er eitt og hálft ár siöan ég opnaöi stofuna á Hverfisgötunni. I Hverageröi nota þeir leirböö I islenskum leir, en stofan min er eini staöurinn sem gefur staöbundna bakstra meö parafinleir — Hefur þú læknaö einhverja meö þessum bökstrum? — Þaö er erfitt aö segja, en ég get sagt aö ég hafi séö fólk fá áþreifanlegan bata. Þá er einnig mjög gott aö nota þessa bakstra við endurhæfingu og liökun á stifum liöum. — Er mikil aösókn i þetta? — Já, hún er mjög mikil. Mér er sagt aö þaö sé þriggja mán- aöa biötimi i aö komast i sjúkra- nudd hjá Sjálfsbjörg á Háa- leitisbraut. Þaö sýnir aö þaö er mikil þörf fyrir þessa þjónustu. Þeir sem þurfa á þessu aö halda er oft fólk sem unniö hefur erfiðisvinnu, og mér finnst mikiivægt aö þessi þjónusta fái viðurkenningu hjá Sjúkrasam- laginu þannig aö kostnaðurinn veröi ekki óviöráöanlegur fyrir fólk. — Hvaö kostar aö fá leir- bakstur og nudd? — Þaö kostar 112 kr. og tekur klukkutima. Þaö getur oröiö of dýrt fyrir suma, sem þurfa að koma oft. Og þar meö var blaöamanni boöiö i leirbakstur, sem hann ákvaö að þiggja síöar i betra tómi. á leigu í Munaðar- nesi Sumarleiga 1982 Leigugjald á viku: 21/5-18/6 18/6-20/6 20/8-17/9 Vetrarleigugjald eftir 12. april veröur: Vikuleiga 550 kr. 330 kr. 2-4 nætur 450kr. 250kr. lnótt 350 kr. 210 kr. Páskar 1982 750 kr. 570 kr. Félögin leigja um pásk- ana og yfir sumarið. Skrifstofa BSRB leigir vetrarleiguna. Mér skilst á öllu aö þessi eyja sé tvö lönd — Island og Óla- land...

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.