Þjóðviljinn - 29.09.1982, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 29. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Söngsveitin
Fílharmonía:
Þrennir
tónleikar
i vetur
Söngsveitin Filharmonía er nú að
hefja 23. starfsár sitt. Verður
fyrsta æfingin ! Melaskólanum í.
dag, 29. sept.
Söngsveitin var á sínum tíma til
þess stofnuð að flytja kórverk með
Sinfóníuhljómsveitinni. Það hefur
hún og jafnan gert og svo mun enn
verða. Þó verður sú breyting á, að
fyrsta verkefnið í vetur verða
aðventutónleikar með íslensku
hljómsveitinni, sem nú er verið að
stofna. Viðfangsefni kórsins á .
þeim tónleikum verður hátíðar-
mótettan „In ecclessis“, fyrir tvö-
faldan kór og málmblásara, eftir
Giovanni Gabríeli og verður það
frumflutningur á því verki hérlend-
is. Ennfremur kantatan „Vakna,
Síonsverðir kalla“, eftir J.S. Bach.
Þessir tónleikar verða að því leyti
sérkennilegir, að blandað er saman
verkefnum fyrir stóra hópa og allt
niður í einn flytjanda, t.d. verður
einleikur á lútu.
Síðar í vetur mun Söngsveitin
Fílharmónía koma fram á tvennum
tónleikum með Sinfóníuhljóm-
sveitinni. Á hinum fyrri verður
flutt óperan „Tosca“ eftir Giacomo
Puccini og verða þeir í byrjun mars
undir stjórn Jean Pierre Jacquillat,
aðalstjóranda Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar. Á síðari tónleikun-
um, sem verða 14. apríl, verður
flutt „Requiem" (Sálumessa) eftir
Gabríel Fauré. Stjórnandi á þeim
tónleikum, sem og tónleikunum
með íslensku hljómsveitinni, verð-
ur Guðmundur Emilsson, sem nú
hefur verið ráðinn stjórnandi
Söngsveitarinnar Fílharmóníu.
Guðmundur Emilsson er ný-
kominn heim frá Bandaríkjunum,
en þar hefur hann verið við tónlist-
arnám og -störf undanfarin ár og
lagt stund á kór-og hljómsveitar-
stjórn. Áður var hann við tónlistar-
nám í Tónlistarskólanum í Reykja-
vík. Meðal kennara hans þar var
dr. Róbert A. Ottósson, sem
stjórnaði Söngsveitinni Fílharmón-
íu frá upphafi og þar til hann lést
1974, langt um aldur fram. Guð-
mundur hefur fullan hug á að efla
starfsemi Söngsveitarinnar og
fjölga söngfólki, sem nú er um 100
manns en mætti gjarna verða 140-
150. Er mikill áhugi á að fá ungt
fólk með, allt niðuríunglinga. Nýir
félagar geta komið á æfinguna í
Melaskólanum í dag eða gefið sig
fram við einhvern úr stjórn kórs-
ins. Tónlistarkunnátta er ekki skil-
yrði fyrir þátttöku, en námskeið
verða haldin í nótnalestri og radd-
beitingu. Undirleikari kórsins á æf-
ingum verður Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari. Er hún
Fjáröflun
fyrir
orgelsjóð
í kvöld, miðvikudaginn 29. sept-
ember, sem er Mikjálsmessa, fer
fram í Hallgrímskirkju í Reykjavík
fjáröflunarsamkoma fyrir orgel-
sjóð kirkjunnar. Hefst hún kl.
20.30.
Dr. Jakob Jónsson frumflytur
ljóðaflokkinn „Síðu-Hallur“, fimm
ljóð um „Haustblót á Hofi“, mess-
una á Þvottá og átök á Þingvöllum.
Ljóðalesturinn verður fléttaður
orgelleik og leikur organisti kirkj-
unnar, Hörður Áskelsson, af fingr-
um fram yfir forn stef. Á undan
ljóðalestrinum flytur Jónína Jóns-
dóttir leikkona frásögn byggða á
fornsögunum og biblí-
unni.
Aðgangur að samkomunni er
ókeypis, en efnt verður til sam-
skota að samkomu lokinni.
Forsvarsmenn Fílharmóníu, frá v.: Örn Ingvarsson, Elín Möller, Guðmundur Emilsson, Ragnar Árnason,
Jóhanna Ögmundsdóttir, Anna María Þórisdóttir og Gunnar Böðvarsson. - Mynd: - eik.
nýkomin frá framhaldsnámi er- 74135 og 39119. óssonar og halda þannig á loft starfi
lendis. Nánariupplýsingarumkór- - Það er mér mikill heiður að hans, sagði Guðmundur Emilsson.
starfið eru veittar í símum 79820, taka nú við kór dr. Róberts A. Ott- - mhg.
✓
Asu W right-fyrirlestur
I Þjóðminjasafni
Verslun á
víkingaöld
f kvöld, miðvikudag 29. sept-
ember kl. 20.30, heldur Charlotte
Blindheim, fornleifafræðingur frá
Osló, fyrirlestur í Þjóðminjasafni
íslands á vegum minningarsjóðs
Ásu Guðmundsdóttur Wright.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
norsku og nefnist: Handelsprob-
lemer í Norge í Vikingetiden, bytt-
ehandel eller organiserte transak-
sjoner og byggir á rannsóknum
fyrirlesara í Kaupangi í Noregi,
hinum forna Skíringasal.
Fyrirlesturinn verður í and-
dyri Þjóðminjasafns, og er öllum
heimill ókeypis aðgangur.
SPARISJÓÐUR
REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
• •
SAMKEPPNIVMIÐNHONNUN
1 tilefni af 50 ára afmæli Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hefursparisjóðurinn ákveðið að
efna til almennrar samkeppni um iðnhönnun og vöruþróun.
Samkeppninni er ætlað að ná til hvers konar iðnaðarvara, semfullnægja
eftirtöldum skilyrðum:
A. Varanþarfað veraframleiðsluhœfogframleiðslustaður á starfssvæði
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis.
B. Varan á aðfela í sér nýjung íframleiðslu.
C. Varan þarfað uppfylla kröfur umfagurfræðilegt útlit og notagildi.
Sérstök dómnefnd munfjalla um þœr tillögur sem berast en hana skipa:
Hjalti Geir Kristjánsson, fulltrúi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, Þráinn Þorvaldsson,
fulltrúi Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins, og danski hönnuðurinn Jakob Jensen, sem er
kunnur fyrir hönnun sína hjá Bang & Olufsen hljómflutningsfyrirtækinu í Danmörku og hjá
fleiri verksmiðjum sem hafa náð langt á alþjóðamörkuðum, ekki hvað sístfyrir sakir góðrar
hönnunar.
Að skilafresti liðnum mun dómnefndin verðlauna þrjár tillögur sem skarafram
úr hvað varðar góða hönnun og þróun iðnaðarvöru.
1. verðlaunkr. 50.000.-
2. verðlaunkr. 25.000.-
3. verðlaunkr. 10.000.-
Þeim aðilum, sem standa að verðlaunatillögunum verður ennfremur, að mati
stjómar sparisjóðsins, gefinn kostur á fjárhagslegri aðstoð íformi lána eða styrkja tilfrekari
undirbúnings framleiðslu þeirra vara sem tillögur voru gerðar um, enda sé þá komin á sam-
vinna milli viðkomandi hönnuðar ogframleiðanda um þáframleiðslu.
Dómnefnd er heimilt að veita fleiri athyglisverðum tillögum viðurkenningu en
verðlaun hljóta.
Höfundar skili tillögum íformi teikninga eða módels, til sparisjóðsins fyrir
15. október 1982, kl. 17:00, merktum einkennisstöfum sínum en lokað umslagfylgi með upp-
lýsingum um hver eigi viðkomandi einkennisstafi.
Nánari upplýsingar um samkeppni þessa veitir Sigurður Þorsteinsson, viðskipta-
fræðingur hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis, Skólavörðustíg 11, Reykjavík.
------------------ SPARISJÓÐUR ------------------
REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS