Þjóðviljinn - 29.09.1982, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. september 1982
Myndin í blaðinu og ó-
brengluð siðferðiskennd
Eftir
✓ •
Arna Bergmann
Mér þótti miður að sjá samsettu
myndina sem tveir íslendingar
vildu hafa með ísraelsgrein sinni í
blaðinu hér í gær.Enþarer annars-
vegar gamalt og frægt plakat af
Hitler frá því um 1930 þar sem
hann tekur við peningum frá stór-
auðvaldinu í kosningasjóð, hins-
vegar af Begin, forsætisráðherra
ísraels, þar sem Amríka leggur í
hans lófa góða fúlgu fjár.
Það er vitanlega rétt sem skýrt er
frá um peningastreymi á hvorri
myndinni um sig. Ensaman lagðar
bera þær vitni um einhvern hinn
versta smekk. Þó ekki væri nema
vegna þess, að Begin má fordæma
nógu hart fyrir innrás í Líbanon og
margt fleira, þótt ekki sé honum
jafnað við þá menn sem myrtu flest
hans fólk.
Vond samanburðarfræði
f annan stað hefur það alltaf ver-
ið hæpin, eða beinlínis hættuleg ár-
átta, að líkja hverjum þeim sem þú
ert á móti í það og það skiptið við
Hitler og ríki hans. í eina tíð (árin
1939-41) þótti kommúnistum það
t.d. sæmileg latína að setja Stóra-
Bretland og Hitlers-Þýskaland í
sama bát: allt var þetta heims-
valdastefna. Þetta var rangt og
hættulegt: þetta ruglaði fólk í rím-
inu, þetta lyfti Hitler í skárra kom-
paní en hann átti skilið - því þótt
breska heimsveldið væri blóðugt úr
mörgum illum nýlenduleik var það
ekki Hitlers-Þýskaland, langt því
frá. Það var ekki heldur fyndið,
þegar sovésk blöð teiknuðu einn af
helstu görpum evrópskrar and-
spyrnuhreyfingar gegn Hitler,Tító
Júgóslavíuforseta, aldrei öðruvísi
árum saman en í gervi Görings með
blóðugaslátraröxi, merkta haka-
krossi. Enn og aftur: undanlegur
greiði við Hitler dauðan. Og af
svipuðum ástæðum. Og þegar
greinarhöfundar frá því í gær eru
að stilla saman Begin og Hitler, þá
1 er það afskaplega lítill greiði Pale-
stínumönnum, sem þeir telja sig
j .tttlcUrKíBL ,
0
Innritun í almenna
námsflokka fer fram
í Miðbæjarskólanum
29. og 30. sept. og 1. okt. kl.
17-21 og 2. okt. kl. 13-17.
Þátttökugjald greiðist við inn-
ritun.
Kennslugreinar:
TUNGUMÁL:
jslenska 1. fl. og 2. fl. og íslenska fyrir lesblinda.
íslenska f. útlendinga byrjenda- og framhaldsfl.
Danska 1., 2., 3. og 4. flokkur.
Norska 1., 2. og 3. flokkur.
Sænska 1. og framhaldsflokkur.
Færeyska f. byrjendur.
Finnska f. byrjendur.
Enska 1., 2., 3., 4., 5. og 6. flokkur.
Þýska 1., 2. og 3. flokkur.
Franska 1., 2., 3., 4., og 5. flokkur.
ítalska byrjenda- og framhaldsflokkur.
Sænska 1., 2., 3. og 4. flokkur.
Kínverska byrjendaflokkur.
Japanska byrjendaflokkur.
Latína byrjendaflokkur.
Rússneska byrjendaflokkur.
ÆTTFRÆÐI
Raungreinar:
Stærðfræöi 1. og 2. flokkur.
Eðlisfræði byrjendaflokkur
Efnafræði byrjendaflokkur
VIÐSKIPTAGREINAR.
Bókfærsla 1. og 2. flokkur.
Vélritun.
Tölvufræði.
VERKLEGAR GREINAR:
Formskrift.
Teikning og akrýlmálun.
Postulínsmálun.
Leirmunagerð (í Fellahelli).
Batik.
myndvefnaður.
Hnýtingar.
Bótasaumur.
Barnafatasaumur.
Sníðar og saumar.
Hressingarleikfimi.
Hjálp í viðlögum.
Sjá nánar um innritun í Breiðholt, Árbæ
og Laugalæk í helgarblöðunum.
Trúið ekki þjóð-
sögunni
.
ÍSRAEL
vera að styðja, en þeim mun hag-
kvæmara þeim sem vilja breiða yfir
glæpi nasismans, láta þá renna
saman við hvað það sem er mönn-
um andstætt hverju sinni.
Peninga-
streymið
Greinin fjallaði annars mestan
part um það mikla fé sem streymt
hefur frá Bandaríkjunum og úr
sjóðum bandarískra gyðinga til ís-
rael. Það er ekki nema rétt að án
Íiess fjár og án þeirra hergagna væri
srael allt annað ríki en það er. Og
sumir menn telja það væri þá miklu
betra - t.d. einn af öldungum síon-
ismans, sem nýlega er látinn, Na-
hum Goldmann. En hann taldi það
höfuðháska gyðingum, hve háðir
þeir sem í fsrael búa eru embættis-
mönnum og stjórnmálamönnum í
Washington - þeir væru jafnvel
enn háðari hugarfari þeirra en
ghettógyðingar fyrri aldar duttl-
ungum Rússakeisara. Það er sem-
sagt rétt, að ísrael hefur fengið í
sinn hlut mjög mikinn hlut af
„þróunaraðstoð" a.m.k. Banda-
ríkjanna. En það sakar kannski
ekki að geta þess í leiðinni, að með-
an Nasser og Sadat voru vinir
Sovétmanna fór lygilega stór hluti
af þróunaraðstoð Sovétmanna við
önnur lönd til eins lands, og næsta
granna ísraels - til Egyptalands.
Undir lokin segir í greininni:
„Þess vegna verða íslenskir sósf-
alistar og yfirleitt allir með óbreng-
laða siðferðiskennd að krefjast
þess af íslensku ríkisstjórninni að
hún slíti tafarlaust stjórnmálasam-
bandi við ísrael og viðurkenni
PLO“.
Það er sjálfsagt mál að taka
undir kröfur um viðurkenningu á
PLO. En það er ekki úr vegi að
athuga nánar staðhæfinguna um
siðferðisvitund óbrenglaða og
kröfu um að slíta stjórnmálasam-
bandi við ísrael.
Ég var spurður að því í Helgar-
póstinum á dögunum hvað mér
fyndist um refsiaðgerðir t.d. gegn
ísrael. Svar mitt brenglaðist: Eg
hafði í því sambandi sem spurt var
aðeins minnt á það, að íslendingar
hafa oftast sneitt hjá þátttöku í
refsiaðgerðum gegn einstökum
ríkjum; hinsvegar var svosem ekk-
ert um það sagt hvort slík hegðun
væri góð eða ill. En það er þá rétt
að taka fram það sjónarmið sem ég
reifaði hér í blaðinu þegar kapp-
ræðan um að refsa Rússum fyrir
Afganistan með því að hundsa ó-
lympíuleikana í Moskvu stóð sem
hæst: Það getur vel verið siðferði-
Iega rétt að mótmæla Rússum með
þeim hætti, en það er rangt ef
menn eru ekki reiðubúnir til að
mótmæla með svipuðum hætti á
íþróttasviði ef aðrir eiga í hlut.
Glötuð tækifæri
íslendingar hafa látið mörg tæki-
færi sér úr greipum ganga til að
sýna „óbrenglað siðferðisþrek"
einmitt með því móti að slíta
stjórnmálasambandi eða við-
skiptumviðríkisemfara með ófriði
og manndrápum. Við reyndum
ekki að refsa Ítalíu Mussolinis fyrir
eiturgashernað gegn Eþíópum, við
vorum svo kurteisir við Hitlers-
Þýskaland, að við vísuðum frá okk-
ur þýskum gyðingum eins og við
gátum. Við sögðum ekkert við
Frakka, sem felldu 700 þúsund
manns í Alsír í nýlendustríði (vitn-
að eftir minni), né heldur létum við
minnstu snurðu hlaupa á þráðinn í
sambúð við Bandaríkin þegar þau
jusu eitri og napalmi yfir sveitir
Víetnams. Ogsvo mætti lengi telja.
Vfð gerðum góða viðskiptasamn-
inga við Rússa einmitt dagana sem
ráðist var inn í Tékkóslóvakíu og
engum hefur víst dottið í hug að
nefna stjórnmálasambandsslit út af
Afganistan. Við höfum slitið
stjórnmálasambandi við Breta,
vegna þess að við áttum sjálfir í
þorskastríði við þá.
Ef við nú
Ef nú íslendingar eftir langa
mæðu tækju við sér og segðu upp
stjórnmálasambandi við ísrael, þá
er ég ansi hræddur um að það yrði
ekki rakið til þess að loksins hefðu
þeir eignast „óbrenglaða siðferðis-
kennd“. Miklu líklegar, að þeir
hefðu smitast af þeim gyðinga-
fjandskap sem leynist í kristinni
menningu og reyndar miklu víðar,
og hefur skotið upp kollinum hér
að undanförnu með endurupp-
vakningu miðaldahugmynda um
sögulega samsekt gyðinga („þeir
krossfestu Krist“), eða þeim sí-
gildu fordómum semeinblínaá það
að margir fjármálamenn eru gyð-
ingar - kom þetta í lesendabréfi hér
í Þjóðviljanum. (Þeir sem einblína
á gyðinglega bankastjóra vilja helst
ekki muna eftir því að gyðingar
hafa líka „komið sér vel fyrir“ eins
og það heitir í vísindum, listum og
flokkum sósíalista og kommún-
ista). Þó er það ekki víst að slík
sérafstaða til ísrael stafi af sí-
gildu gyðingahatri, meðvituðu og
ómeðvituðu. Eins gæti verið um
þann siðferðilega refskap að ræða
og virðingu fyrir valdinu einu, sem
til dæmis lét Sovétríkin slíta stjórn-
málasambandi við ísraela eftir að
þeir höfðu tekið Sínaiskagann af
bandamönnum Sovétmanna þá-
verandi, Egyptum, um svipað leyti
og þess v.ar vandlega gætt að ekki
félli skuggi á sambúð Moskvu við
Bándaríkin, sem voru að sprengja
sundur og saman helstu borgir ann-
ars vinaríkis Sovétmanna, Norður-
Víetnams. ÁB.
Trotskistar reknir úr
Verkamarinaflokkniirn
Um það bil þrír fjórðu fulltrúa á
ársfundi Verkamannaflokksins
breska hafa stutt tillögur Michaels
Foots, formanns flokksins, um að
reka úr flokknum „öfgamenn til
vinstri“, og er þá átt við trotskista
fyrst og fremst.
Tony Benn, helsti formaður
vinstrisinna í flokknum var meðal
þeirra sem börðust hart gegn brott-
rekstraráformunum, sem hann
hefur í umræðum fyrir landsfund-
inn líkt við „galdraofsóknir".
Foot og fleiri oddvitar flokksins
hafa lengi haft áhyggjur af rót-
tækum samtökum sem nefnast
Militant Tendency og eru kennd
við trotskisma. Er róttæklingum
gefið að sök að þeir geri rólegri
mönnum illa vært í flokknum og
leggi íhaldinu góð vopn í hendur,
þegar það vill benda á að Foot sé
óhæfur til þess að stjórna og halda
uppi röð og reglu í eigin flokki -
hvað þá í landinu. Þá halda fjand-
menn trotskista því fram, að Milit-
ant Tendency reki starfsemi sína
með leyndogdyljiþaðfyrir flokks-
forystunni hvað samtökin séu að
gaufa.
Michael Foot sér á eftir ysta vinstr-
inu og stendur sjálfur mjög veikt að
vígi.
Því hafði reyndar verið spáð fvrir
landsfundinn að Foot mundi hafa
sitt fram, því verkalýðssamtökin,
sem eru flest heldur tortryggin í
garð ysta vinstris, fara með flest
þeirra 7,1 miljónar atkvæða sem
greidd eru á landsfundum Verka-
mannaflokksins í Blackpool.
20% fylgi
Ekki er enn vitað hve grátt þetta
stríð leikur Verkamannaflokkin.
Hann hefur þegar séð á eftir hægri-
armi flokksins eins og hann var inn
í nýja Sósíaldemókrataflokkinn,
sem hefur stofnað miðjubandalag
með frjálslyndum. Átökin milli
þeirra miðju- og hægrimanna sem
eftir eru og stuðningsmanna Tony
Benns hafa samt haldið áfram að
gera Verkamannaflokknum erfitt
fyrir. Svo mikið er víst, að Foot
floksformaður hefur mjög hrapað í
áliti og er talað um að 60% stuðn-
ingsmanna Verkamannaflokksins
vilji helst skipta um foringja.
Samkvæmt síðustu skoðanakönn-
unum stendur íhaldsflokurinn nú
allvel að vígi meðal kjósenda,nýt-
ur stuðnings um 44% þeirra.
Verkamannaflokkurinn hefur um
29% atkvæða og Miðjusambandið
26%. Allar breytingar á þessum
hlutföllum geta hinsvegar orðið
mjög afdrifaríkar fyrir stöðuna á
þingi í hinu breska kerfi einmenn-
ingskjördæma. Til að mynda er tal-
ið, að ef Verkamannaflokknum
tekst að lyfta sér úr þeirri lægð sém
hann nú er í, þá gæti hann hugsan-
lega unnið meirihluta á þingi út á
aðeins 37% atkvæða.
áb.