Þjóðviljinn - 29.09.1982, Qupperneq 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. september 1982
Lyktir millisvæöamótsins
í Moskvu:
Kasparov
og Beljavskí
komust áfram
l" u o o r a
H.
Kasparov
Beljavskí
Engin óvænt úrslit urðu á milli-
svæðamótinu í Moskvu. Það sést
þegar lokaniðurstaðan er skoðuð
á töflu. Tveir stigahæstu skák-
mennirnir Kasparov og Beljavskí
urðu efstir og komust áfram, og
þeir tveir sem næstir komu á Elo-
listanum skiptu með sér 3. sæt-
inu. Svona geta stigin verið dutt-
lungafull. A fyrsta millisvæða-
mótinu í Las Palmas var Ungverj-
inn Ribli efstur, en það vakti at-
hygli að neðsti maður mótsins
Walter Browne var til muna
hærri en hann á stigum fyrir
mótið.
Frábær endasprettur Kaspar-
ovs skóp eftirminnilegan sigur.
Hann tefldi eins og hann á að sér í
síðustu umferðum og fjórir uiðu-
sigrarnir í röð. Kasparov stað-
festi það álit sem hann hefur
skapað sér undanfarið, og nú
þegar eru menn farnir að spá
honum sigri í Askorendakeppn-
inni.
2. sætið koni verðskuldað í hlut
Alexanders Beljavskí. Hann
barðist eins og Ijón allt mótið út í
gegn og athyglisverður er árang-
ur hans gegn efstu mönnum.
Hann tapaði þrem skákum sem
flestum þætti helsti mikið í svo
stuttri keppni, en jafntefli urðu fá
og sigrarnir sjö.
Tal og Anderson komust ekki
áfram þrátt fyrir prýðilega
frammistöðu. Tal byrjaði vel og
virtist á tímabili eiga aíla mögu-
leikaáað komast áfram. Tapið
fyrir Beljavskí virtist hafa slæm
áhrif á hann, og fimm síöustu
skákum hans lauk með jafntefli.
Anderson tefldi af öryggi, en
skorti sennilega metnað í þessa
hörðu baráttu.
Um önnur úrslit vísast til með-
fylgjandi töflu. Sigurskákir Kasp-
arovs fljúga um heiminn við mikl-
ar vinsæidir. Hér birtast tvær
þeirra tefldar í 11. og 12. umferð
mótsins:
Hvítt: Van der Wiel
Svart: Harry Kasparov
Drottningarpeðsleikur
1. d4 Rfó
2. Bg5
(Þessi leikur hlýtur að gleðja Be-
nóný Benediktsson sem beitt hef-
ur honum með góðum árangri.
Kannist menn ekki við neinar
heimildir þess efnis skal bent á
skákina Benóný - Friðrik,
Reykjavíkurskákmót 1970)
2. ... Re4
(Skarpasti leikurinn. Aðrir
möguleikar eru 2. - d5 og 2. - c5.
Karpov hefur leikið 2. - e6.)
3. Bf4
(Benóný lék jafnan 3. Be3, en fór
svo yfirleitt með biskupinn til f4
seinna, svo þessi leikur hlýtur að
vera nákvæmari)
3. .. c5
4. d5 Db6
5. Bcl!?
(Gagnmerkur leikur. Mun eðli-
legra var 5. Dcl, en e.t.v. hefur
Van der Wiel óttast framhaldið 5.
- g5!? 6. Bg3 Bg7 7. c3 Dh6!)
5. ... e6
6. O Dxa5+!
(•Byrjunarleikirnir eru harla
sjaldséðir. Hugmyndin með
textaleiknum mun vera sú að
hindra för c-peðsins til c4. Með
því gefst svörtum gott tóm til að
ráðast að miðborði svarts)
Helgi Ólafsson
skrifar um
skák
7. c3 Rf6
8. e4 d6
(En ekki 8. - exd5 9. e5! o.s.frv.)
9. Ra3 exd5 11. Rc4 Dd8
10. exd5 Be7 12. Re3 0-0
(Svartur má svo sannarlega vel
við una. Eftir aðeins 12 leiki hef-
ur hann náð frumkvæðinu. En að
skákin taki aðeins 10 leiki til við-
bótar eiga menn bágt með að
trúa)
13. Re2 llc8 14. g4?
(Hroðalegur leikur. Hvítur hygg-
ur á landvinninga á kóngsvæng,
en leikurinn hefur þveröfug á-
hrif. E.t.v. var betra að leika 14.
Kf2 ásamt, - g3 og - Bg2.)
14. ... Rfd7!
(Rýmir fyrir biskupnum á e7).
15. Rg3 Bg5 17. Bb5
16. Kf2 Rc5
(Ekki er þetta glæsileg endurbót
á taflmennsku hvíts. Leikurinn
verður til þess að svartur kemur
enn einum manninum í spilið og
nær þess utan að tengja saman
hrókana)
17. ... Bd7 19. Ref5 c4!
18. Bxd7 Rbxd7
(Ljótt er það. Svartur ryðst nú
inn eftir d3 - reitnum. Svarta
staðan er þegar unnin.)
20. Rh5
(Betra var 20. Kg2, þó ekki sé
staðan gæfuleg eftir 20. - Bxcl 21.
Hxcl Rc5 o.s.frv.)
20. ... R3+ 22. Hxcl g6!
21. Kg2 Bxcl
- Hvítur gafst upp eftir þenna
einfalda leik. Honum gast ekki
að stöðunni sem kemur upp eftir
23. Rh6+ Kf8 24. Rg3 Dg5!
o.s.frv.
Rúmeninn Florin Gheorghiu
hlýtur að vera afar óhress með
frammistöðu sína í þessu móti.
Hann hlaut aðeins 5 vinninga af
13 mögulegum og varð ekki einu
sinni jafntefliskóngur sem var til-
gangur hans og markmið með
þátttöku í mótinu. Gheorghiu er
einn höfunda reglunnar um það
að þrjú jafntefli séu betri en tveir
sigrar og eitt tap. í næstsíðustu
umferð fékk hann skelfilega út-
reið Kasparov. Það má benda á
að Kasparov vann skákina í upp-
áhaldsafbrigði Gheorghiu á hvítt.
Hvítt: Harry Kasparov
Svart: Florin Gheorghiu
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6 3. RD b6
2. c4 e6 4. a3
(Petrosjan-afbrigðið sem hrein-
lega tröllríður byrjanafræðinni.
Kasparov hefur unnið eitthvað í
kringum 20 skákir á þessu af-
brigði á síðustu þrem árum).
4. ... Bb7 6. cxd5 Rxd5
5. Rc3 d5 7. Dc2 -
(Kasparov hefur ávallt leikið 7.
e3, en það segja mér greindir
menn að þessi leikur sé ekki síðri.
Hann er uppfinning sænska skák-
mannsins Harry Schússlers).
7- • •• c5 9. bxc3 Be7
8. e4 Rxc3
(9. - Rc6 er e.t.v. nákvæmara. A
þessu stigi gat Gheorghiu ekki
séð fyrir hversvegna. E.t.v. hefur
hann enn verið í öngum sínum
yfir 7. leik Kasparovs. Hann er
nefninlega einn þeirra sem hrein-
lega fer á taugum, leiki andstæð-
ingurinn óvæntan leik).
10. Bb5+! Bc6
(10. - Rc6 er nú afleitur leikur.
Eftir 11. Da4! Hc8 12. Dxa7! tap-
ar svartur minnst peði).
11. Bd3 Rd7 12. 0-0 h6?
(Upphafið af erfiðleikum svarts.
Hann varð að leika 12. - 0-0, því
13. d5 gefur hvítum ekkert í aðra
hönd eftir 13. - exd5 14. exd5
Bxd5 15. Bxh7+ Kh8 o.s.frv.)
13. Hdl! Dc7
(Nú strandar 13. - 0-0 á 14. d5!)
14. d5!
(Á’ann!)
14. ... exd5 16. Bb5 a6
15. exd5 Bxd5
( L6. - Bc6 var annar möguleiki,
en ekki er staðan fögur eftir 17.
Bf4! Db7 18. Bxc6 Dxc6 19. Hel
o.s.frv. Samt var þetta skárra en
16. - a6.)
17. Bf4
(Auðvitað ekki 17. Bxd7 - Dxd7
18. Be4! o.s.frv.)
17. ... Dxí4
(Þvingað)
18. Bxd7+ Kxd7 23. Hxf7+ Kb8
19. Hxd5+ Kc7 24. Hc6 Hd8
20. Hel Bd6 25. c4 Dc6
21. Hf5 Dc4 26. Re5 Dc8
22. He4 Db5 27. Dbl!
- og hér var Gheorghiu búinn
að fá nóg, stöðvaði klukkuna og
gafst upp. Lokastaðan verð-
skuldar stöðumynd.
Alyktun Umferðarráðs
vegna akstursíþróttanna
Vegna aukins umfangs aksturs-
íþrótta hér á landi, hefur Umfcrð-
arráð sent frá sér ályktun varðandi
íþróttir þessar. Ályktun þessi átti
að birtast með opnugrein í föstu-
dagsblaðinu síðasta, en varð að
falla niður vegna plássleysis. Birtist
hún hér með:
„Umferðarráð telur nauðsynlegt
að um akstursíþróttir, þ.á.m. rall-
keppni, gildi strangar reglur, er
framfylgt sé vel og vandlega af
hálfu allra hlutaðeigandi, þátttak-
enda, þeirra, sem fyrir keppni
standa, og yfirvalda. Við fram-
kvæmd alla skuli þess jafnan gætt
að öryggi þátttakenda, áhorfenda
og annarra sé eigi stefnt í hættu.
Umferðarráð telur að fyllsta
aðgát skuli höfð við veitingu heim-
ilda til aksturskeppni á vegum. Tel-
ur Umferðarráð að eigi skuli veita
undanþágu frá reglum um hám-
arkshraða, nema viðeigandi örygg-
isráðstafanir séu jafnframt gerðar,
þ.á.m. um lokun vega fyrir annarri
umferð, enda sé þess þá gætt að slík
lokun valdi eigi öðrum vegfarend-
um verulegum óþægindum.
Umferðarráð telur það megin-
hlutverk sitt að vinna að góðum
akstursháttum, virðingu fyrir um-
ferðarreglum og auknu umferðarr-
öryggi. Umferðarráð leggur því
ríka áherslu á, að þessi sjónarmið
séu jafnan höfð að leiðarljósi við
framkvæmd akstursíþrótta og alla
umfjöllun um þær."
Nýr samlags-
stjóri
hjá
Mjókursam-
lagi
KEA
Vernharður Sveinsson, sem um
margra ára skeið hefur gegnt stöðu
samlagsstjóra við Mjólkursamlag
KEA á Akureyri, mun láta af störf-
um 1. okt. n.k. Staðan var auglýst
laus til umsóknar í síðasta mánuði,
og bárust nokkrar umsóknir.
Á fundi stjórnar Kaupfélags
Eyfirðinga þann 15. sept. sl. var
samþykkt að ráða Þórarin E.
Sveinsson framleiðslustjóra í stöðu
samlagsstjóra við Mjólkursam-
lagið frá 1. okt. að telja. Er sú
ráðning í samræmi við tillögu
Mjólkursamlagsráðs frá 14. sept.
Þórarinn E. Sveinsson lauk
kandidatsprófi í mjólkurverkfræði
frá Landbúnaðarháskólanum í Ási
í Noregi 1977. Hann var síðan að
störfum í Noregi þar til hann tók
við starfi framleiðslustjóra hjá
Mjókursamlagi KEA í byrjun árs
1979. Var því ekki leitað langt yfir
skammt. - Þórarinn er þrítugur að
aldri, fæddur í Reykjavík. Kvæntur
er hann Ingunni Einarsdóttur og
eiga þau tvo syni.
- mhg.
Hlynur
blað
samvinnu-
starfsmanna
Þriðja tbl. Hlyns, blaðs sam-
vinnustarfsmanna, hcfur borist
okkur í hendur. Er þá fyrst frá því
að segja, að nýr ritstjóri, Guð-
mundur R. Jóhannsson, hefur
tekið við ritstjórn blaðsins. Víkjum
þá að cfninu og er stiklað á stóru:
Þröstur Karlsson ritar um „af-
mælisárið og umhverfið". Ritstjór-
inn rabbar við Guðbjart Vilhelms-
son verslunarstjóra í Miðvangi,
(Kf. Hafnfirðinga). Rebekka Þrá-
insdóttir ritar um samvinnu-
hreyfinguna og konur og lýkur
grein sinni með þessum orðum:
„Kvenréttindadaginn, 19. júní,
fóru fram kosningar á aðalfundi
Sambandsins. Kosnir voru þrír í
stjórn og þrír í varastjórn, allt karl-
ar. Kosið varítryggingaráð'Sam-
vinnutrygginga, 17 manns, allt
karlarog Menningarsjóð, 5 karlar.
Framkvæmdastjórar Sambandsins
eru 14, allt karlar. Hvað skyldi
þurfa margar tröppur niður til að
finna konu?"
Sagt er frá ferð Samvinnuskóla-
nema til Hawaii. Greint er, í máli
og myndum, frá stigagöngum í
nokkrum byggingum samvinnu-
manna í Reykjavík. með hliðsjón
af möguleikum fatlaðra til aðkom-
ast þar um. Þá er kvæðiskorn um
uxa eftir Þorgrím Starra, en það
var flutt á 100 ára afmælishátíð
K.Þ. 20. febr. sl. „Eflum íslenskt",
þáttur um iðnað, þar sem hvatt er
til þess að styðja innlenda framle-
iðslu. Sagt er frá slitum Samvinnu-
skólans í Bifröst. „Öldungadeild á
döfinni" nefnist viðtal við Svavar
Lárusson yfirkennara, en þar er
rætt um að „koma á áfanganámi
með öldrunarsniði við framhalds-
deild Samvinnuskólans í Reykja-
vík". Minnst er þess að Hörður
Helgason hefur nú kennt við Sam-
vinnuskólann í aldarfjórðung.
„Allir eru þeir starfsmenn" nefnist
viðtal við Pétur Kristjónsson,
formann KPA. Þá eru í ritinu
ýmsar fréttir af starfsemi sam-
vinnumanna og myndir í tugatali.
- mhg.