Þjóðviljinn - 29.09.1982, Síða 15
’ l I < 1 1 . - . •,I '■ ■.
Miðvikudagur 29. september 1982 ÞJÓÐVÍLJINN _ stÐA 15
RUV ©
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð:
geir M. Jónsson talar.
9.00 Fréttir.
As-
9.05 Morgunstund barnanna: ævintýri
H.C. Andersens „Penninn og blekbytt-
an”, „Prinsessan á bauninni” og „Flibb-
inn” Þýðandi: Steingrímur Thorsteins-
son. Eyvindur Erlendsson les.
9.20 Tónleikar. Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Sjávarútvegur og siglingar Umsjón:
Guðmundur Hallvarðsson.
10.45 Morguntónleikar Placido Domingo
syngur vinsæl lög með Sinfóníuhljóm-
sveitinni í Lundúnum; Karl-Heinz
Loges og Marcel Peter stj.
11.15 Snerting Páttur um málefni blindra
og sjónskertra í umsjá Arnþórs og Gísla
Helgasona.
11.30 Létt tóniist Björgvin Halldórsson,
Pálmi Gunnarsson, Skafti Ólafsson,
Ellý Vilhjálms og fl. syngja og leika.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Miðvikudagssyrpa - Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir.
15.10 „Kæri herra Guð, þetta er Anna”
eftir Fynn Sverrir Páll Erlendsson les
þýðingu sína (13).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.20 Litli barnatíminn Stjórnandi: Sigrún
Björg Ingþórsdóttir. Olga Guðmunds-
dóttir les sögurnar: „á brúðusjúkrahús-
inu” eftir Vilberg Júlíusson og „Brúðu-
dansinn” eftir Davíð Áskelsson.
Sjónvarp
kl. 20.35:
Ivan grirnim
í meðförurh
Bolsoj-ballettflokkSins
Bolsoj -ballettinn
Frægasti ballettflokkur heims er án efa Bolsojballett-
flokkurinn sovéski, sem starfar við Stóra leikhúsið í Mos-
kvu. Hinir heimsþekktu dansarar ballettflokksins hafa
komið mikið við sögu heimsfréttanna hin síðari ár. Á
dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 20.35 er mynd um ballett-
flokkinn. Þýðandi er Hallveig Thorlacius.
16.40 Tónhornið Stjórnandi: Guðrún
Birna Hannesdóttir.
17.00 íslensk tónlist Mark Reedman, Sig-
urður I. Snorrason og Gísli Magnússon
leika „Áfanga”, tríó fyrir fiðlu, klarin-
ettu og píanó eftir Leif Þórarinsson.
17.15 Djassþáttur Umsjónarmaður: Ger-
ard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómas-
dóttir.
18.00 A kantinum Birna G. Bjarnleifsdótt-
ir stjórnar umferðarþætti.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Á vettvangi
20.00 „Kabardin”, strengjakvartett op. 92
eftir Vladimir Sommer Smetana-
kvartettinn leikur.
20.25 Þankar um Hekluelda 1980 og þjóð-
sönginn María Eiríksdóttir flytur.
20.40 Félagsmál og vinna Umsjónarmað-
ur: Skúli Thoroddsen.
21.00 Frá tónlistarhátíðinni í Schwetzingen
i apríl s.l. Ulrika Anima Mathé og Ger-
ard Wyss leika á fiðlu og píanó. a. „La
Fontaine d’ Arethuse” op. 30. nr. 1 eftir
/Karol Szymanovsky. b. fimm fiðlulög
jop. 35 eftir Sergei Prokofjeff. c. „Tzig-
jane”, konsertrapsódía eftir Maurice
Ravel.
21.30 Útvarpssagan: „Næturglit” eftir
Francis Scott Fitzgerald Atli Magnússon
les þýðingu sína (27).
22.35 Iþróttaþáttur Hermanns Gunnars-
sonar.
23.oo Þriðji heimurinn.
Cathy hin lævísa. Persónuleiki hennar er túlkaður á
snilldarlcgan hátt af Jane Seymor.
Sjónvarp
kl. 21.10
Austan Eden:
Sögulok
í kvöld
Þriðji og síðasti þátturinn í
framhaldsmyndaflokknum
Austan Eden verður á dagskrá
sjónvarpsins I kvöld og hefst
kl. 21.10. Þátturinn er æði
langur og lýkur ekki lokið fyrr
en undir miðnætti eða kl.
23.30.
Það er Nóbelskáldið John
Steinbeck scm samdi söguna
Austan Eden, en þekktasta
bók hans, Þrúgur reiðinnar,
hefur verið þýdd á íslensku,
svo og Babbitt og Ægisgata.
Þegar síðasta þætti lauk
varþarkomið sögu að Adam
hrökklast úr hóruhúsi konu
sinnar Cathy, kalinn á hjarta
og illa beygður. Hann hefur
öðlast þá vitneskju að hann sé
alls ekki faðir þeirra Calebs og
Arons, heldur þvert á móti
bróðir hans sem hin lævísa
Chathy tældi til sín á brúð-
kaupsnóttunni þegar brúð-
guminn steinsvaf.
Síðasti þátturinn hefst
löngu eftir atburðina í hóru-
húsinu, og eru þeir bræður
Caleb og Aron komnir á legg.
Adam hefur brugðið búi og
leggur þess í stað út á hála
braut viðskiptalífsins. Hann
hefur gert ráðstafanir til að
koma fóstursonum sínum til
mennta. Þegar fram líða
stundir fer annan bróðurinn
Caleb að gruna ýmislegt varð-
andi þá sögu að móðir sín sé
látin. Sögusagnir sem berast
honum til eyrna renna stoðum
undir þann grun hans, að hún
sé á lífi, og fer hann á stúfana.
Að sögn Kristmanns Eiðs-
sonar þýðanda þáttanna fjall-
ar síðasti þátturinn að miklu
leyti til um það sem á daga
Calebs drífur.
Útvarp
kl. 16.20
Litli
barna-
tíminn
Litli barnatíminn er á dag-
skrá útvarpsins kl. 16.20 í
dag. Stjórnandi barnatímans
er Sigrún Björg Ingþórsdóttir.
Þátturinn er stuttur, aðeins
um 20 mínútur að lengd, en
rúmar þó all-fjölbreytilegt
efni. Máþar nefnalesturOlgu
Guðmundsdóttur á sögunni,
A brúðusjúkrahúsinu eftir
Vilberg Júlíusson og söguna
Brúðudansinn eftir Davíð
Áskelsson, en Olga les þá
sögu einnig. Litli barnatíminn
er alltaf á dagskrá útvarpsins á
miðvikudögum.
frá lesendum
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Bolsojballettinn Sovésk mynd um
hinnheimsfræga listdansflokk við Stóra
leikhúsið í Moskvu. Þýðandi Hallveig
Thorlacius.
21.10 Austan Eden Þriðji hluti. Sögulok.
Leikstjóri Harvey Hart. Aðalhlutverk:
Timothy Bottoms, Jane Seymour, Kar-
en Allen, Sam Bottoms og Hart Bochn-
er. í öðrum hluta sagði frá því að Adam
og Kata reistu bú í Salínasdal í Kaliforn-
íu. Kata ól tvíbura en hljópst síðan að
heiman og leitaði athvarfs í gleðihúsi í
bænum Monterey. Eftir sat Adam með
sárt ennað og synina, Caleb og Aron, en
í þriðja hluta er saga þeirra rakin. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
23.30 Dagskrárlok.
Fjöldamorðin í Beirút:
Bera ekki
NATO-ríkin
ábyrgðina?
Ásmundur Guðmundsson
hringdi:
„í sambandi við afstöðu ís-
lenskra stjórnmálamanna til
fjöldamorðanna í Beirút
langar mig að spyrja hvort
NATO
Nató-ríkin öll eins og þau
leggja sig beri ekki fulla og
óskorðaða ábyrgð á ódæð-
unum? Það virðist í þessu
hörmungarmáli eins og oft
áður, að sagan endurtekur sig
í sífellu: þeir sannkristnu
ljúga, drepa og svíkja - allt í
nafni Drottins! Og hvar eru
Sameinuðu þjóðirnar núna?
Hvers vegna var ekki hægt að
koma í veg fyrir slátrunina á
saklausu fólíci? Eða höfðu
sannkristnu lýðræðisríkin ef
til vill engan áhuga á að koma
í veg fyrir ódæðin?
Mig hefði langað að vita
hvert þessir piltar lenda sem á
þessu bera ábyrgð. Verður
ekki erfitt fyrir þá að múta
Pétri þegar þar að kemur?"
Eldjárn eða Eldjárns
Gömul kona á Húsavík
hringdi:
„Ekki get ég orða bundist
vegna þess sem ég kalla illa
meðferð á nafni okkar ástsæla
fyrrverandi forseta, Kristjáns
Eldjárn. Ég hlustaði á ræð-
urnar við útför hans og þar var
margsinnis staglast á beygingu
orðsins Eldjárn og haft í
eignarfalli: Eldjárns Þetta
finnst mér ósmekklegt, eða
væri hægt að segja á þessa
leið: Þjóðin öðlaðist góðar
gjafir frá Kristjáni Eldjárni!?
Eg heldekki, enefvið beygj-
um orðið í einu falli, eins og
1 gert var við útförina, þá er
eins gott að gera það í öll-
uui föllum.
Ég tek það fram, að ég er
enginn málfræðingur: hér eru
einungis á ferðinni þankar
gamallar konu. En að beygja
orðið Eldjárn í föllum finnst
mér ósmekklegt málsmeð-
ferð. Hvort ég hef rétt fyrir
mér í því verða aðrir að segja
til um.‘‘