Þjóðviljinn - 06.10.1982, Side 7
Miðvikudagur 6. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Leikfélag Reykjavíkur:
SKILNAÐUR
eftir Kjartan Ragnarsson
Lýsing: Daníel Williamsson
Tónlist: Áskell Másson
Leikmynd og búningar:
Steinþór Sigurðsson
Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson.
Sambúð vel stæðra hjóna á
miðjum aldri Kristínar og Áma
virðist takk bærileg. Líklega betri
en gengur og gerist. En hann til-
kynnir allt í einu að hann sé far-
inn til annarrar og vilji skilnað.
Sú yfirlýsing er í ætt við skiln-
aðarfrétt í næsta húsi:enginn hef-
ur iykil að öllum forsendum
hennar og samúðin (ef nokkur
er) snýst á sveif með þeim sem er
yfirgefinn. Hér er það konan.
Samúðin er líka vís þeim sem
menn þekkja betur. Og hér er
það líka konan.
Nálœgðin
Sem fyrr er það styrkur Kjart-
ans Ragnarssonar að hann hefur
næm eyru og augu á hversdags
leikanum og kann að smíða trú-
verðugar persónur sem negla
þekkjanlegan vanda niður mjög
nálægt áhorfandanum. Nálægðin
er reyndar leiðarljós leikstjórnar-
stefnu Kjartans sjálfs í þessari
sýningu og ræður umbúnaði
hennar. Eins og margoft er tekið
fram í fréttum er leikið á miðju
gólfi í Iðnó og áhorfendur allt um
kring. Og þessi aðferð verður
hreint ekki tilgerðarleg eða hlað-
in óþarfa áreynslu. Hún þj ónar í
raun og veru þessu markmiði: að
gefa áhorfandanum engin grið.
Leikmynd og búningar Stein-
þórs Sigurðssonar í útsmognum
og lithreinum einfaldleik sínum
stuðla líka vel og rækilega að því,
að áhorfandinn gefst fljótlega
upp við að hugsa sér þetta verk
uppi á sviði. Ein allsherjarmubla
í miðjum sal:l borð og rúm og
vinnustaður og skemmtistaður.
Hin sýnilega umgjörð í lágmarki
-en meir treyst á hina heyranlegu
og hreyfanlegu, á tónlist Áskels
Mássonar og hljóðblöndun
þeirra Sigurðar Rúnars, á hvíslið
sem dregur saman undirtektir
samfélagsins við tíðindin á svið
inu. Petta er allt saman vel gert
og fagmannlega. Þó eru grímurn-
ar sem allir leikarar nema Guð-
rún Ásmundsdóttir (Kristín) eru
látnir setja upp, sumpart til að
fara með slúður og almannaróm,
stundum til að lýsa sálarkreppu'
aðalpbrsónunnar, ekki ótvíræð
blessun. Kannski það hefði mátt
koma því til skila sem í þessum
atriðum felst með „hljóðblönd-
un” einni saman?
Arni Bergmann
skrifar um
teildiús
Hjón
Trúverðugar persónur var
áðan sagt, nálægur vandi, sem
áhorfandinn mun kannast við.
Áminningin um nálægan veru-
leika er sterkust í persónu Krist
ínar. Mörgu er vel til skila hald-
ið um undrun hennar og örviln-
an, ráðleysi og reiði - og mætti
svo áfram telja upp viðbrögð
þess, sem skyndilega hefur misst
fast land undan fótum og þarf á
því að halda að koma sér upp
nýju sjálfstrausti, innra sjálf-
stæði. Guðrún Ásmundsdóttir
ræður yfir ríkidómi blæbrigða
sem gerir sögu Kristínar eftir-
minnilega. Ekki tekst henni vel
að koma því til skila, að í ástlitl-
um smáheimi þessa leiks er það
Kristín sem helst átti einhvern
hlýjuforða, sem hefði mátt koma
að haldi listinni að elska, þeirri
vanræktu list.
Höfundurinn er rniklu naumari
við eiginmanninn Árna, sem Jón
Hjartarson leikur. I þeirri per-
sónu er hann lfka farinn að stefna
sjálfum sennileikanum í voða -
og vísast þar um til þess, að sá
fráskildi hælist nokkuð um við
Kristínu af nýja sambandinu. Ef
áhorfandinn á að trúa þessu, þá
verður Árni að vera heimskari
eða grimmari en hann annars er.
Svo mikið er víst, að þeir þættir
eru ekki áberandi í túlkun Jóns
Hjartarsonar - þar er Árni einna
Það
er
kalt
helst nokkuð góður strákur, það
er hans vandræðaskapur sem
kemst best til skila og við trúum
því vel, sem hann segir, að hann
sé ekki maður til að standa í tvö-
földu lífi., Kannski ekki „ein-
földu” heldur.
Pað er svo sérkennileg missmíð
á þessu leikriti, að í raun og veru
er mjög lítið unnið úr sambandi
þeirra hjóna. Við höfum þegar í
fyrstu senunum langflestar upp-
lýsingar sem um þau er að hafa.
Við sjáum og skiljum, sem fyrr
segir, viðbrögð Kristínar við
brottför Árna og svo ýmsum ótíð-
indum er á hana sækja síðan.
En við vitum ekki meir um það,
Önnur hjón
Ég er farinn (Jón Hjartarson og
Guðrún Ásmundsdóttir).
hvers vegna hann fer eða hvers
vegna hann vill koma aftur undir
lokin en hóflega forvitnir kunn-
ingjar þeirra út í bæ gætu varla
vitað það. Þess í stað færist mikill
þungi yfir á önnur hjón - Baddý,
sem gerir hreint hjá Kristínu, og
mann hennar Odd, sem mis-
þyrmir konu sinni þegar hann er
fullur.
Valgerður Dan leikur Baddý
og miðlar vel óttanum sem er
orðinn annað eðli þessarar konu
(og betur en reiði hennar). Aðal-
steinn Bergdal var vissulega sá
fantur serri trúandi er til hinna
verstu verka, hann var líka sá
ruddi sem á stutt í allar kúnstir
sjálfstæðisréttlætingar alkólist-
ans (maður er svo svakalega
stressaður í mikilli vinnú osfrv.).
Og vitanlega getur sagan af þessu
hjónabandi, sem getur ekki einu
sinni endað í skilnaði, vegna þess
að Baddý á sér hvergi athvarf -
vitanlega á sú saga rétt á sér í
leiknum. En um samband þess-
ara tveggja persóna verður sagt
það sama og um Kristínu og
Árna: það er svotil allt komið til
áhorfandans strax sama dag og
Baddý kemur fyrst á heimili
Kristínar.
Síðan er ekki annað en bíða
eftir að ósköpin dynji yfir. Og
þegar það gerist, með nauðgun-
artilraun og hnífsstungu, þá verð-
ur það atriði svo fyrirferðar-
mikið að áhorfandinn fer að hall
ast að því að Oddur fanturinn sé
orðinn tákn og ímynd um stöðu
kvenna í þjóðfélaginu og þarmeð
skepnuskap karla. Innbrot hans
á heimili Kristínar og herfilegt
framhald þess er afleiðing af því,
að hún hafði leyft sér að sýna
Baddý, systur í nauð, góðvild og
samstöðu. En það má ekki held-
ur. Kristínu er refsað fyrir þetta.
Öll sund lokuð. Og í heldur
snubbóttu uppgjöri við Árna,
sem nú er aftur einn og vill koma
heim er það Oddur þessi - sem
fýrir hálfgerða tilviljun flæktist
inn í líf hennar - sem ræður mestu
um þau kaldranalegu svör, að
best sé að vera einn og varla ann-
að fyrir karla gerandi en mæta í
jarðarförina þeirra.
^Nú er það alls ekki víst, að
þetta sé ætlunin. En hlutur Odds,
áherslan á ofbeldið grímulausa,
er svo sterk, að óneitanlega fara
svona túlkunarhneigðir af stað.
Að minnsta kosti eru þessir þætt-
ir svo sterkir, að nú hefur
gleymst, að skilnaður þeirra
Kristínar og Árna var annars eð-
lis en nauðungarsambúð Baddýar
og Odds.
Allt ótryggt
En það eru fleiri persónur í
leiknum, rétt er það. Sólborg,
vinnufélagi Kristínar, hefur leyst
sín karlamál (hún er fráskilin)
með því að taka saman við konu.
Soffíu Jakobsdóttur tekst mæta-
vel að koma því áleiðis, að það
öryggi sem þessi reynda kona
hefur smíðað sér stendur ekki
traustum fótum. Sigrún Edda
Björnsdóttir leikur svo Sif, dóttur
Kristínar og Árna - sannari
reyndar í umkomuleysi stúlkunn
ar og bón um liðveislu en í full
háværri heift hennar. Þessar per-
sónur og hlutskipti þeirra eru til-
brigði við sama þema. Ástkona
Sólborgar yfirgefur hana,
sambúð dótturinnar við einhvern
Bjössa úti í bæ fer út um þúfur
Allir standa einir eftir. Og þótt
Kristín segi sem svo að það sé
kannski best og að minnsta kosti
sé maður þá sjálfstæður, þá veit
hver maður sem heyrir Guðrúnu
Ásmundsdóttur fara með þau
orð, að ekki er mikil huggun í því
sjálfstæði sem hefur vísað öllum
frá sér vegna þess að allt er ó-
tryggt. Það gæti vel hugsast, að
Kjartan Ragnarsson vilji með
afdrifum sexmenninganna allra
láta menn gruna að öll séu það
með einhverjum hætti sek. Eða
að minnsta kosti hafi þau misst
sjónir af því sem gæti gefið von
um að menn slampist gegnum
lífið án þess að slökkva á sálartýr-
unum hver hjá öðrum. Má vera
Það getur líka verið, að það þurfi
oftúlkunaráráttu til að lesa slíkt
út úr leikritinu, hver veit?
ÁB.
Könnun á
fjárhags-
stöðu
bænda
Það er ljóst, að fjárhagur ýmissa
bænda, einkum hinna yngri, er
mjög erfiður um þessar mundir og
kemur þar margt til. Allar stéttir
þurfa endurnýjunar við og illa
horfir þá fyrir landbúnaðinum ef
þeir ungu menn, ýmsir hverjir, sem
byrjað hafa búskap hin síðustu ár,
sligast undan skuldabagganum og
verða að gefast upp.
Þessi mál komu að sjálfsögðu til
umræðu á aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda, sem samþykkti tvær
ályktanir, sem að þeim lúta:
Fundurinn..„lýsir áhyggjum
vegna erfiðrar fjárhagsstöðu
margra bænda, einkum hinna
yngri.
Orsakir þessarar þróunar eru
einkum vafasöm ákvæði skatta-
laga, háir vextir, verðtrygging
lána, tekjurýrnun vegna söluerfið-
leika og rýrnun á tekjum bænda
vegna verðbólgu og veðurfars.
Varar fundurinn við afleiðingum
þess ef vaxtarbroddur stéttarinnar
neyðist til að gefast upp af þessum
sökum.
Fundurinn beinir því til landbún-
aðarráðherra að hann skipi þriggja
manna nefnd nú þegar, sem hafi
það verkefni, að kanna fjárhags-
stöðu þeirra bænda, sem eru í sér-
stökum greiðsluörðugleikum og
leiti leiða og leggi fram tillögur til
lausnar í þeim efnum.
Nefndin kanni m.a. hvaðþurfi til
að lengja lánstíma verðtryggðra
lána verulega frá því, sem nú er og
hvort til greina komi eftirgjöf á
hluta skulda þeirra bænda, sem
verst eru settir".
Ennfremur:
Fundurinn.. „vill enn á ný vekja
athygli á því, að núgildandi skatta-
lög eru mjög í óhag þeim bændum,
sem nýlega hafa byrjað búskap og
staðið í framkvæmdum og þar af
leiðandi stofnað til mikilla skulda.
Fundurinn felur stjórn Stéttar-
sambandsins að vinna að því að fá
skattalögunum breytt á þann veg,
að niður verði felldar þær greinar
slaganna, sem leiða nú til óréttlátr-
ar skattálagningar svo sem á tekju-
færslu vegna skulda.”
- mhg
Yfirburða
sfgurMH
Skákkeppni fram-
haldsskóla á
Norðurlöndum
Skáksveit Menntaskólans við
Hamrahlíð vann glæsilegan sigur í
skákkeppni framhaldsskóla á
Norðurlöndum sem frám fór um
helgina í Holsterbro á Jótiandi.
Sveit MH hlaut I6V2 vinning af 20
mögulegum og varð 5 vinningum
fyrir ofan næstu sveit.
Skáksveit Dana hlaut 11'/2 vinn-
ing, Svíar urðu í 3. sæti með 11
vinninga. Finnar í 4. sæti með 8
vinninga, Norðmenn voru með
7'/2VÍnning en B-sveit Ðana 'rak
lestina, hlaut SV2 vinning.
Skáksveit MH var með „lands-
liðsmenn“ á fyrstu tveim borðun-
um. Jóhann Hjartarson hlaut 4'h
vinning af 5 mögulegum á 1. borði,
'Róbert Harðarson hlaut 3 vinninga
af 5 mögulegum á 2. borði, Hrafn
Loftsson hlaut 3V2 vinning af 4 á 3.
borði, Lárus Jóhannsson hlaut 4
vinninga af 4 mögulegum á 4. borði
og varamaður sveitarinnar kom
tvívegis irmá og hlaut P/T Vinning.
- hól.