Þjóðviljinn - 06.10.1982, Page 11
Miðvikudagur 6. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐÁ 11
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Fjármál KSI í brennidepli:
Megum ekki lengur treysta
einvörðungu á landsleiki
„Fjáröflun fyrir Spánar-
ferðina síðar í þessum mánu ð*
i er í fullum gangi en ekkert
áþreifanlegt er enn komið
fram, nema það að KSÍ gefur
út blað á næstunni sem verð-
ur væntanlega komið á mark-
að í kringum ársþingið í byrj-
un desember. Þetta verður
að hafast, hvað sem öðru líð-
ur, því við yrðum dæmdir í
sektir og útilokaðir frá
keppni í náinni framtíð ef við
yrðum að draga okkur út úr
Evrópukeppni landsliða“,
sagði Friðjón Friðjónsson,
gjaldkeri KSÍ í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Eins og fram hefur komið, er
fjárhagsstaða Knattspyrnusam-
bands fslands gífurlega slæm í
kjölfar dræmrar aðsóknar á lands-
leikina í byrjun síðasta mánaðar.
A-landsliðið og landsliðið undir 21
árs eiga að leika á Spáni þann 26.
október og ferðin þangað verður
afar kostnaðarsöm, ekki síst þar
sem liðin leika á sama tíma, sitt í
hvorum landshlutanum.
En er ekki kominn tími til að
stokka upp í fjáröflunarmálum
KSÍ? Hingað til hefur fjárhagur
sambandsins byggst á tekjum af
landsleikjum hér heima og er gæf-
an oft ansi fallvölt í þeim efnum,
happdrætti hve margir atvinnu-
ntanna okkar geta kornið, slæm
veðrátta og fleiri atriði hafa mikil
áhrif á aðsóknina . Friðjón var
inntur eftir hvort einhverjar nýjar
hugmyndir í fjáröflun hefðu komið
fram og kvað hann svo vera en
sagði allt á könnunarstigi.
Það sýndi sig best í haust að það
gengur ekki lengur að treysta al-
gerlega á landsleikina. Einhverjir
varnaglar verða að vera fyrir
hendi, ef og þegar þeir bregðast.
Friðjón taldi að með slíku áfram-
haldi yrði að skera niður samskipti
við erlendar þjóðir á knattspyrnu-
sviðinu og þá bitnaði það fyrst á
yngri landsliðunum.
Slíkt rpá ekki ske. Það yrði stórt
skref afturábak sem seint yrði bætt
til fulls. Þeir yngri munu jú landið
erfa og sú reynsla sem hlýst af
drengja- og unglingalandsleikjum
verður ekki metin til fjár.
Knattspyrnuforystan verður að
stórauka áhersluna á fjármálin í
náinni framtíð ef ekki á illa að fara.
Pat Jennings
Jennings
aftur í
landslið!
Blakið er
að byrja
Reykjavíkurmótið í blaki hefst í
kvöld í íþróttahúsi Hagaskóla og
eru þrír leikir á dagskrá. Kl. 18.30
leika Þróttur og Breiðablik í
kvennaflokki, kl. 20 Þróttur og
Víkingur í karlaflokki og að lok-
um, kl. 21.30, Fram og ÍSjeinnig í
meistaraflokki karla.
Sigurvegararnir í tvíliðaleikjum: Kristín Magnúsdóttir, Kristín Krist-
jánsdóttir, Sigfús Ægir Árnason og Víðir Bragason.
TBR-fóUdð var slgur-
sælt á Atla-mótinu
Badmintonfélag Akraness hélt um síðustu helgi annað minningamót-
ið um Atla Þór Helgason sem lést af slysförum haustið 1980. Mót þetta
heitir Atla-mótið. Kiwanisklúbburinn Þyrill á Akranesi gaf veglega
farandgripi til að keppa um og á mótið að fara fram á hverju ári.
Broddi Kristjáns,son, TBR, sigraði í einliðaleika karla, Kristín
Magnúsdóttir, TBR, í einliðaleik kvenna, Víðir Bragason, ÍA, og
Sigfús Ægir Árnason, TBR, í tvíliðaleik karla, Kristín Magnúsdóttir
og Kristín Kristjánsdóttir, TBR, t' tvíliðaleik kvenna og þau Kristín M.
og Broddi í tvenndarleik.
Pat Jennings, hinn 36 ára gamli
markvörður hjá Arsenal sent ekki
hefur leikiö deildaleik í tíu mánuði,
hefur á ný verið valinn í landslið
Norður-íra, fyrir landsleik gegn
Austurríkismönnum í Vín eftir
viku í Evrópukeppni landsliða.
Jennings á að baki 95 landsleiki
fyrir Norður-írland og á því enn
ntöguleika á þeim hundraðasta. Þá
var Ian Stewart hjá OPR, sent ekki
er fastamaður í.liði sínu, og hefur
aðeins leikið 13 deildaleiki á ferli
sínum, einnig valinn í lands-
liðshópinn. - VS
Robson vill sjá þá
ungu í landsleik
Bobby Robson, landsliðseinvaldur Englendinga í knattspyrnu, kom enn
á óvart þegar hann valdi landsliðshópinn fyrir vináttuleik gegn Vestur-
Þjóðverjum á Wembley næsta miðvikudag. í honum eru fjórir leikmenn
sem eru á þessu keppnistímabili að leika i fyrsta skipti í 1. deild, þeir John
Barnes og Luther Blissett frá Watford, Mark Chambcrlain frá Stoke og
Gaiw Mabbutt frá Tottenham.
„Eg reikna með að láta einn eða tvo þeirra leika gegn V.Þjóðverjum”,
sagði Robson í gær. „Einn í viðbót gæti orðið nteðal varamanna og kornið
inná. Ég vil sjá hvort þeir hafa hæfileika og „karakter" til að leika nteð
enska landsliðinu og eina leiðin til að komast að því er að láta þá spila. Ég
hef sérstaklega mikla trú á Chamberlain, hann er fljótur og leikinn og
mikið efni. Þetta verður erfiður leikur og niikil barátta en ég hef enga
löngun til að tapa, jafnvel þó hér sé um hið geysisterka lið V.Þjóðverja að
ræða”, sagði Robson.
íslenskir knattspyrnuáhugamenn hafa þegar fengið að sjá alla þessa
leikmenn á skjánum í ensku knattspyrnunni í haust, hinn eldfljóta
Chamberlain síðasta laugardag, og það verður fróðlegt að fylgjast með
gengi þeirra og enska landsliðsins næsta ntiðvikudag.
- VS
HM 1986 í Kanada?
Kanadamenn hafa boðist til að halda heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu árið 1986. Þeir höfðu sótt unt HM 1994 en segjast reiðubúnír að
halda hana.næst éf Kólombíumenn guggnaeins og flest bendir til. Endan-
legt svar frá Kólombíu áað hafa borist innán tveggja mánaða en hingað til
hefur þótt líklegast að Brasilíumenn tækju við keppninni í stað þeirra.
- VS
Tólf þjóðir berjast
um HM-titil í blaki
Það verður að feta inná nýjar
brautir og tryggja að jafn ógnvæn-
leg staða á bankabók KSÍ komi
aldrei upp aftur. Knattspyrnan er
og verður óhemju vinsæl íþrótt og
íslenskir knattspyrnuáhugamenn
myndu seint fyrirgefa þeim for-
ystumönnum sem bæru ábyrgð á
hnignun hennar með slælegri frant-
mistöðu í fjárhagsmálum.
Heimsmeistarakeppnin í blaki stendur nú yfir í Argentínu og er fyrsta
hluta hennar lokið. Tólf þjóðir eru eftir í keppninni, Sovétríkin, Kana og
Pólland, sem þykja sigurstranglegastar, Argentína, Brasilía, Júgóslavía,
Japan, Kúba, Á.Þýskaland, Kanada, Búlgaría og Tékkóslóvakía.
- vs
Skyldi Labbi fara
sjáifur inná næst?
Slakan varnarleik, góða markvörslu, ilmnitíu og þrjú mörk, svipuð að
fjölda og áhorfendurnir, en ekkert fleira markvert buðu neðstu lið 1.
deildar karla í handkattleik, Frain og ÍR, upp á í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. Framarar voru afgerandi betri aðilinn, enda sigruðu þeir með
níu marka mun, 31:22, og fengu þar með sín fyrstu stig í deildinni í vetur.
Jafnt framan af en síðan seig Fram frantúr og var yfir, 15:10, í leikhléi.
nn" Jokst smám saman í síðari hálfleik, var mestur tíu mörk 29:19
og 30:20 og í lokin níu mörk eins og áður sagði.
Markverðirnir, Ragnar Kristinsson hjá Fram og Guðjón Hauksson hjá
IR> Yoru bestu menn liða sinna og vörðu oft mjög vel þrátt fyrir slakar
varnir. Hannes Leifsson sem skoraði 8, mörk og Dagur Jónasson með 7
voru mest áberandi af útispilurum Fram ásamt Hermanni Björnssyni
Guðjón Marteinsson skoraði 8 mörk fyrir ÍR og Þórarinn Tyrfingsson 7 en
sa stðarnefndi sótti sig mjög í síðari háifleik. Aðeins tveir skiptimenn voru
a bekknum hjá IR og enginn varamarkvörður, svo við megum sjálfsagt
buast við því innan tíðar að sjá Gunnlaug „Labba” Hjálmarsson, þjálfara
IR og fyrrum landsliðsmann, skipta sjálfum sér inná.
■ VS
Sigurður Jónsson leikur með
unglingalandsliðinu gegn írum í
dag.
Piltarnir
leika við
✓
Ira í dag
íslcnska unglingalandsliðið í
knattspyrnu, skipað leik-
mönnum 16 - 18 ára, mætir
írskum jafnöldrum sínum í Evr-
ópukeppni unglingalandsliða á
Valbjarnarvelli í Laugardal í
dag og hefst leikurinn kl. 17.
Þetta er fyrri leikur liðanna, en
sá síðari fer fram í Dublin 10.
nóveinber.
Þjálfari piltanna, Haukur
Hafsteinsson, sem gerði lið
Víðis úr Garði að íslandsmeist-
urum í 3. deild á nýloknu
keppnistímabili, valdi eftirtalda
leikmenn fyrir þennan leik:
Markveröir:
Birkir Kristinsson, ÍBV
Friðrik Friðriksson, Fram
Aðrir leikmenn:
Engilbert Johannesson, ÍA
Guðni Bergsson, Val
Halldór Áskelsson, Þór Ak
Hlynur Stefánsson, ÍBV
Ingvar Guðmundsson, Val
Jón Sveinsson, Fram
Magnús Magnússon, Breiðabliki
Ölafur Þórðarson, ÍA
Pétur Arnþórsson, Þrótti R.
Sigurður Jónsson, ÍA
Snævar Hreinsson, Val
Stefán Pétursson KR
Steindór Elísson, Breiðablíki
Steingrimur Birgisson, KA
Örn Valdimarsson, Fylki.
Tveir leikmanna liðsins, Sig-
urður Jónsson og Snævar
Hreinsson, koma beint úr
•drengjalandsliðinu 14 - 16 ára
en þeir eru ennþá 3. flokks-
menn. Sigurður hefur reyndar
verið fastamaður í liði bikar-
meistara ÍA í meistaraflokki
mest allt sumar og er mikið efni
eins og oft hefur komið fram í
fjölmiðlunt. Tíu af sextán leik-
mönnum íra koma frá enskum
liðum og það má því reikna með
sterku liði þaðan. -VS
Sandgerði og
Reykjavík
í 6. leikviku-Getrauna komu
fram 2 seðlar með 12 réttum
leikjum og var vinningur fyrir
hvora röð kr. 100.950.00, en
nreð 11 rétta leiki voru 26 raðir
og vinningur fyrir hverja kr
3.328.00. Báðir seðlarnir með
12 réttum voru einfaldir 10 raða
seðlar og var annar ffá.Sand
gerði en hinn frá Reykjavík.