Þjóðviljinn - 15.10.1982, Síða 1
Föstudagur 15. október 1982 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 9
Leiklist
Myndlist
Tónlist
Kvikmyndir
Skemmtanir
Félagslif o.fl.
Leikfélag
Reykjavíkur:
Þrjár
sýningar á
Skilnaði
Guðrún Ásmundsdóttir í hlutverki
hinnar fráskildu í „Skilnaði“.
í kvöld (föstudagskvöld), annað
kvöld og á sunnudagskvöldið verð-
ur hið nýja leikrit Kjartans Ragn-
arssonar SKILNAÐUR sýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Uppselt
hefur verið á allar helgarsýningarn-
ar. Verkið hefur vakið athygli fyrir
nýstárleika í sviðsetningu og vegna
efnisins, sem allir kannast við í ein-
hverri mynd. Pað eru Guðrún Ás-
mundsdóttir og Jón Hjartarson
sem leika hjónin sem skilja í verk-
inu. Kjartan leikstýrir sjálfur en
leikmynd er eftir Steinþór Sigurðs-
son.
Annað kvöld (laugardagskvöld)
verður þriðja sýningin í Austurbæ-
jarbíói á HASSINU HENNAR
MÖMMU eftir Dario Fo, sem sýnt
hefur verið þar tvívegis fyrir troð-
fullu húsi við fádæma góðar undir-
tektir.
Úr sýningu LA á Atómstöðinni.
Atómstöðin i kvöld
Atómstöðin verður sýnd í kvöld
hjá Leikfélagi Akureyrar og síðan
á sunnudagskvöld. Báðar sýning-
arnar hefjast kl. 8.30. Hér er um að
ræða nýja leikgerð á Atómstöð-
inni, sem Bríet Héðinsdóttir hefur
gert og er hún jafnframt leikstjóri.
Leikmynd gerir Sigurjón Jóhanns-
son. Aðalhlutverkið, Uglu, leikur
Guðbjörg Thoroddsen. Akur-
eyringar og nærsveitamenn ættu að
drífa sig strax í leikhúsið, þar sem
ekki er víst að sýningin verði lengi á
fjölum Samkomuhússins sökum
annarra anna starfsfólksins.
MÍR sýnir„Rauða torgið”
„Rauða torgið“ nefnist sovésk
kvikmynd sem sýnd verður í MÍR
salnum á sunnudaginn kl. 16.00.
Leikstjóri er Vassilí Ordinskí, en
myndin er í tveimur hlutum.
Söguþráðurinn er sóttur í at-
burði borgarastríðsins eftir bylting-
una 1917. í kvikmyndinni er brugð-
ið upp svipmyndum af mönnum
sem voru mjög ólíkir að eðlisfari,
en áttu það sameiginlegt að vera
þátttakendur í stofnun og mótun
hins nýja ríkis. Enskir skýringar-
textar eru með myndinni, og er að-
gangur öllum heimill.
„Hinir lostafullu’ í Fjalakettinum
í Fjalakettinum verður um helg-
ina sýnd myndin „Hinir losta-
fullu“, en mynd þessi er gerð árið
1952 í Bandaríkjunum. Leikstjóri
er Nicolas Ray, en hann er ný-
látinn. Aðalhlutverk leika Robert
Mitchum og Susan Hayword.
Myndin er sýnd kl. 3, 5 og 7 á
laugardagíTjarnarbíói og á sunnu-
dag kl. 5, 7 og 9.
Garðaleikhúsið
safnar fyrir skuldum
„Hugmyndin er að reyna að
safna peningum til að losna við
skuldabaggann frá því í fyrra.
Síðan getum við byrjað aftur að
starfa“, sagði Þórir Steingríms-
son hjá Garðaleikhúsinu, sem í
kvöld heldur miðnæturskemmt-
un í Háskólabíói.
Garðaleikhúsið hefur ekki
fengið neina fjárveitingu í ár frá
ríkinu, en er með miklar skuldir
sem þarf að greiða upp til að hægt
sé að halda starfseminni áfram.
Á þessari skemmtun, sem kall-
ast „Miðnæturhátíð í léttum dúr"
og hefst kl. 23.30 koma fram
margir af þekktustu skemmti-
kröftum og listamönnum þjóðar-
Þórir Steingrímsson, leikari.
innar. Má þar nefna óperusöngv-
arann Kristján Jóhannsson, þau
Randver Þorláksson, Eddu
Björgvinsdóttur, Sigurð Sigur-
jónsson, „Nýja kompaníið“, Erl-
ing Gíslason og Brynju Bene-
Þjóðleikhúsið:
Garðaleikarar leggja á ráðin um vetrarstarfsemina.
„Miðnæturhátíð í léttum dúr”
Amadeus
í 35. skipti
í kvöld
Verðlaunaleikritið Amadeus
verður sýnt í 35. skipti í Þjóð-
leikhúsinu í kvöld. Þetta leikrit
hefur farið sigurför um allan heim
og hefur þessi sýning Þjóðleikhúss-
ins hlotiÓ mjög góða dóma. Leik-
stjóri er Helgi Skúlason, en leikrit-
ið er sem kunnugt er eftir Bretann
Peter Shaffer.
Garðveislan er svo á laugardags-
og sunnudagskvöld, en þegar hafa
yfir 3.000 manns séð þessa um-
deildu sýningu. Leikritið er eftir
Guðmund Steinsson, en leikstjóri
er María Kristjánsdóttir.
Fyrir börnin er svo Gosi á sunnu-
daginn kl. 14 og um kvöldið verður
Tvfleikur eftir Tom Kempinski í
kjallaranum. Leikendur eru aðeins
tveir, þau Þórunn Magnea Magn-
úsdóttir og Gunnar Eyjólfsson, en
leikstjóri er Jill Brooke Árnason. Sigurður Sigurjónsson f hlutverki Mozarts í Amadeusi.
diktsdóttur, Sigrúnu Eðvalds-
dóttur fiðluleikara úr Garðabæ,
Pál Heiðar Jónsson, „Stúdíó Sól-
ey“, og auk þess koma fram
nokkrir meðlimir Garðaleikhúss-
ins.
- En hvað ætla Garðaleikarar
að sýna í vetur, ef þeim tekst að
borga skuldirnar?
Þórir svarar: „Við höfum mik-
inn áhuga á að endurvekja reví-
una. Við höfum verið að skoða
húsnæði að undanförnu og verð-
um líklega annað hvort í Hafnar-
bíói eða í Gamla bíói. Revían er
mjög skemmtilegt leikhúsform,
sem á sér langa og merka sögu.
Það er löngu tímabært að koma
upp á nýju revíuleikhúsi í
Reykjavík."
MiÓasala að Miðnæturhátíð-
inni er í Háskólabíói.