Þjóðviljinn - 19.10.1982, Page 6

Þjóðviljinn - 19.10.1982, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. október 1982 Ó>vegir svokalladir a síöustu árum; j mikiÖ til umræöu ng ökumannsíns og Þrándur í Götu lum stööum. Ó«vegirnir í öjúpi, Ólafsfjaröarmúfi IV Vestanmenn kunna erií Oshlíöar ^OIafsvík þetur yið að Sigvaldi Fjeldsted verksyóri við hinn nýja Ennisveg er frá Asbrún í Kolbeinsstaðarhreppi. Hann hefur áður unnið við miklar vegafram- kvæmdir svo sem við vegauppfyll- ingu í Borgarfirði, á Holtavörðu- heiði og við hinn umdeilda Garða- bæjarveg. Við tókum Sigvalda tali og spurðum hann um framkvæmd- irnar við Ennisveg. — Við byrjuðum hér um miðjan ágústmánuð með opnun grjót- náms. Þar er bergið sprengt og stórgrýtið flutt á stórum vörubílum niður á fyllinguna í nýja veginum. Þetta grjót er mjög gott og er úr sama grjótnámi og það sem fór í hafnargarðana á Rifi og í Ólafsvík. Stórgrýtið er notað í grjótvörn sem á að liggja utan á nýja vegakaflan- um og ná tvo metra upp fyrir sjálf- an veginn. Frá gamla veginum er 500 metra skering sem við köllum svo, niður á nýju fyllinguna sem nú er í sjónum. Skeringin úr hlíðinni á að verða uppfyllingarefni í nýja vegakafl- ann. pfyllingarefni í nýja vegakaflann. — Nýi vegurinn verður 1.9 km með landtöku báðum megin. Sker- ingin er 40 metrar þar sem hún byrjar og er svo tekin 500 metra sneið úr hlíðinni niður á nýja veg- inn. Þannig næst uppfyllingaefni með tiltölulega lítilli fyrirhöfn, а. m.k. ef miðað er við að það yrði sótt langar Vegalengdir. Nú þegar höfum við tekið það mikið úr skeringunni að við vitum að þetta er hægt, en í sneiðinni eru mörg hörð berglög. Úr þessari sneið hafa komið 47 þúsund rúm- metrar af uppfyllingarefni nú þeg- ar. Það höfum við ekki getað notað allt saman ennþá en nú erum við að ljúka við tilraunakaflann, sem er 80 metra langur. Utan á þessa 80 metra kemur svo nokkuð lengri bráðabirgðagrjótvörn. í vetur sjáum við svo hvort vegurinn stendur af sér ágang sjávar og veðurs. Þegar við höfum lokið við vegar- kaflann fyrir veturinn verður fjár- veitingin í veginn fyrir þetta ár á- reiðanlega uppurin. Áætlaðar voru б. 9 miljónir fyrir þennan veg í ár. Ýmiss kostnaður er fólginn í byrjunarvinnu, svo sem hönnun- arvinnu, 700 þúsund fóru í bundið slitlag á veginn frá grjótnámi í fyllingu og ýmislegt fleira mætti tína til. En það er að sjálfsögðu fjármagnið sem ræður því hvenær lokið verður við þessar bráðnauð- synlegu vegaframkvæmdir. — Til að byrja með voru aðstæð- ur nokkuð erfiðar við vegakaflann. Hér hafa verið um tuttugu manns við vinnu. Stórvirkar vinnuvélar eru notaðar við verkið. Það á með- al er stærsta jarðýta sem notuð hef- Stærstu jarðýtu, sem unnið hefur við vegaframkvæmdir á íslandl, er stjórnað af Ágúst Þorbjarnarsyni. Hann er ættaður úr Fljótshlíðinni, en jarðýtan er í eigu Suðurverks á Hvolsvelli. „Eg fer nú bara heim þegar þetta er búið, err ég veit ékki hvort einhver g verkefhi eru til fyrir ýtuna f vetur“, sagðl Ágúst þegar við spurðum hann hvað tæki við að aflokinni vegavertíð undir Enni. glíma við erfið veikefni ur verið við vegaframkvæmdir á ís- landi, 60 tonna jarðýta frá Suður- verki. Önnur stór jarðýta var einn- ig við að ýta hér, tvær hjólaskóflur, grjótgrafa við röðun á stórgrýtinu í fyllingunni, braut í grjótnáminu og fimm stórir vörubílar við að flytja frá grjótnáminu. Nú erum við hættir að vinna við skeringuna og erum að ganga frá vegakaflanum fyrir veturinn. Rétt er að geta þess að hér hefur farið fram nokkur undirbúningsvinna við dýptarmælingar, straummæl- ingar og þvíumlíkt. Vegurinn verður 10 metra breiður og veghæðin 4 metrar mið- að við meðal stórstraumsflóð en munur flóðs og fjöru er fjórir metr- ar, þannig að grjótvörnin verður 8 metrar plús tveggja metra garður sjávarmegin. Þessi vegur er því engin smásmíði. Reiknað er með að 170 þúsund rúmmetrar fari í uppfyllingarefni og um 160 þúsund rúmmetrar í grjótvörnina. — Reiknað er með að slitlag verði lagt á nýja veginn sem tengist slitlaginu beggja vegna Ólafsvíkur- og Hellisandsmegin. — Gamli Ennisvegurinn hefur alltaf verið hættulegur, menn eiga alltaf von á grjóti úr honum, einsog sést á veginum, auk þess sem aurskriður og snjóflóð eru algeng. Það virðist heldur hafa ágerst með tímanum, en því miður verða veg- farendur að þola veginn í einn vet- ur enn. Ég ætla rétt að vona að veruleg fjárveiting fari í veginn núna, þannig að stefnt verði að því að ljúka þessum framkvæmdum á næsta ári, ég er ekki frá því að það verði hægt. Trúlega verð ég einnig í þessu næsta sumar. Jú mér finnst alltaf gaman að glíma við erfið verkefni. — óg Gaman að Texti: ÓG Myndir: Gel. Nýi vegurinn undir Enni á aó vera þar sem nú er sjár meófram Enninu. Þarf því mikla grjótvörn til að hann standist ágang sjávar. Þessi mynd er tekin nióri á uppfyllingu þarsem skeringin endar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.