Þjóðviljinn - 29.10.1982, Page 1
DJOÐVIUINN
Iðnaðarráðherra
flutti ýtarlega
greinargerð um
Alusuisse á Alþingi í
gær.
Sjá 7.
29
október 1982
föstudagur
244. tölublað
47. árgangur
/
A sex árum nam dulinn
hagnaður hærri upphæð en
öllum greiðslum álversins
fyrir orkukaup þann tíma
Traust lögfræðiálit
sannar rétt okkar til
skattlagningar aftur í
tímann, segir Hjörleifur
Guttormsson
ALUSUISSE stakk 536
miliónuiii undan skatti
Það eru 536 miljónir króna, sem Alusuisse hefur
stungið hér undan skatti á árunum 1975-1981 sam-
kvæmt lokaniðurstöðum endurskoðunarfyrirtækisins
Coopers & Lybrand í London. Þarna er um að ræða
dulinn hagnað af rekstri álversins hér í Straumsvík,
sem fenginn er með því að falsa verð á aðföngum til
verksmiðjunnar, bæði súráli og rafskautum, og einnig
koma við sögu brot á heimildum er verða afskriftir.
- Þessar upplýsingar komu fram Alþingi í gær, en iðnaðarráðuneyt-
í ræðu Hjörleifs Guttormssonar á ið fékk lokaniðurstöður endur-
skoðendanna í hendur fyrr í þess-
um mánuði.
32,9 miljónir
dollarar
Sá duldi hagnaður, sem Alu-
suisse stakk undan á árunum 1975
til 1980 nam 32,9 miljónum doll-
ara, en á sama árabili greiddi Alu-
suisse fyrir öll sín orkukaup hér-
lendis lægri upphæð, það er 32,2
miljónir dollara.
Lokaskýrsla hins virta endur-
skoðunarfyrirtækis staðfestir í öll-
um höfuðatriðum þær ásakanir á
hendur Alusuisse, sem hér hafa
verið bornar fram um falskt yfir-
verð á súráli og rafskautum, en
málið varð fyrst ljóst fyrir tæplega
tveimur árum, þegar upp komst
um „hækkun í hafi”, það er fölsun á
verði súráls frá Ástralíu, sem hing-
að hefur verið flutt.
Sex ár aftur
í tímann
í rækilegri skýrslu, sem
iðnaðarráðherra flutti á Alþingi i
gær, kom m.a. fram, að samkvæmt
álitsgerð tveggja úr hópi okkar fær-
ustu lögfræðinga, þeirra Benedikts
Sigurjónssonar og Ragnars Aðal-
steinssonar, - þá geta íslensk
stjórnvöld lagt skatt á þann hagn-
að, sem undan var skotið, - sex ár
aftur í tímann. k.
Þjóöar- átak Á morgun, laugardaginn 30. október 1982, gengst Landsráð gegn krabbameini fyrir fjársöfnun um land allt. Sjálfboðaliðar munu heimsækja hvert heimili í landinu og taka við frjálsum framlögum. Við undirrituð viljum hvetja landsmenn til öflugrar liðveislu í þjóðarátaki gegn þessum sjúkdómi. Þeim fjár- munum sem safnast í þjóðar- átakinu á morgun verður var- ið til víðtækari rannsókna og aukins leitar- og varnarstarfs gegn krabbameini á vegum Krabbameinsfélags íslands. Það þjóðarátak, sem hér um ræðir kallar á samstöðu ís- lendinga. Svörum því kalli. Jji<jzd**/JÍÓnn^éhoyri4l(Ai /
Við íslendingar
höfum nú eignast
tvær meiriháttar
hljómsveitir,
Sinfóníuhljómsveit
Islands og Islensku
hljómsveitina.
Orkufyrirtæki hins
opinbcra fara nú
fram á miklar
verðhækkanir
Allharður árekstur varð um
fjögurieytið í gær á gatna-
mótum Kringlumýrarbrautar
og Suðurlandsvegar. Sjúkra-
bifrcið með lækni innanborðs
kom strax á vettvang, en til allr-
ar hamingju urðu engin slys á
fólki, þrátt fyrir að bílarnir séu
stórskemmdir.
Jón Gíslason hjá Slysarann-
sóknardeild lögreglunnar sagði
í samtali í gær, að menn væru
mög ánægðir með þá nýbreytni
að læknar fylgdu nýju sjúkra-
bifreiðinni yfir háannatímann í
umferðinni. Þetta væri til mik-
illa bóta og öryggis fyrir alla
aðila. -Ig./Mynd -eik.
Tillögur um húsnæðismál kynntar:
„Samtengjum
húsnæðlslánakerfið”
„Aðalatriði þessara tillagna eru
að ætlunin er að tengja saman
húsnæðislánakerfíð, bankana og
lífeyrissjóðina, þannig að hús-
byggjendur og þeir sem kaupa
íbúðir, geti á einum stað fcngið
nauðsynlcga þjónustu, þ.e. lán og
aðra pappíra sem þarf í þessu
skyni“, sagði Svavar Gestsson fé-
lagsmálaráðherra í samtali við
Þjóðviljann í gær í tiiefni þess að
fram voru lagðar tillögur starfs-
hóps um húsnæðismál.
„Svona samtengingarkerfi hefur
sagði Svavar
Gestsson
verið við lýði í grannlöndum okkar
um árabil og gefist vel og því tel ég
að unnt eigi að vera að koma því
einnig á hérlendis", sagði Svavar
ennfremur.
Svavar sagði að þessar tillögur
hefðu verið lagðar fyrir ríkissjórn í
gærmorgun og að þær verði lagðar
fram í frumvarpsformi fyrir
Alþingi í vetur.
„Hér er um að ræða fjölþættar
tillögur sem snerta fjölmarga aðila
en eftir viðtöl sem ég hef átt við
bankastjóra Seðlabankans svo og
aðra ráðherra þá er ljóst að þessar
hugmyndir eiga góðum skilningi að
mæta og þess að vænta að þær nái
fram að ganga í meginatriðum",
sagði Svavar Gestsson félagsmála-
ráðherra að lokum. _ v>
~Sjá 20
Kosningarnar á Spáni:
Stórsigur sósíalista
Skömmu fyrir miðnætti í gær
lýsti Sósíalistafíokkurinn á Spáni
yfir stórsigri í þingkosningunum en
þá var útlit fyrir að hann fengi
hreinan meirihluta eða 194 þing-
menn af 350 og um 46% atkvæða.
Hafa þeir þannig unnið um 80 þing-
sæti frá síðustu kosningum. Mikill
mannfjöldi fagnaði fyrir utan
aðsetursstað hins fertuga Felipe
Gonzales, sem verður næsti
forsætisráðherra Spánar.
Segja má að miklar andstæður
verði í spænska þinginu Cortes þvi
að langstærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn verður hið hægri sinn-
aða „Bandalag alþýðunnar" undir
forystu fyrrum Frankóráðherra,
Manuel Fraga. Það mun fá um 97
þingsæti og 25% atkvæða. Aðrir
flokkar þurrkast nær út. Miðflokka
sambandið, sem hefur verið við
stjórnvölinn, fær aðeins um 13
þingsæti, kommúnistar 6 og Mið-
demókratar undir forystu Suarez 2.
- GFr