Þjóðviljinn - 29.10.1982, Page 5
Föstudagur 29. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Þátttaka kvenna í atvinnulífínu utan heimilis hefur sáralítið breytt þátt-
töku karla í sambúð í heimilisstörfum.
Jafnréttiskönnunin
staðfestir:
Tvöfalt
vinnuálag
kvenna
Reykvískir karlar í sambúð
vinna að meðaltali 6,2 stundir á
viku að heimilisstörfum á meðan
konur þeirra í fullu starfí vinna að
meðaltali 23,5 stundir, konur í
hálfu starfí 32,9 stundir og þær sem
eru alfarið heima vinna að meðal-
tali 51,4 stundir. Þetta kemur fram
í Jafnréttiskönnun í Reykjavík
1980-81, sem Kristinn Karlsson
hefur unnið í samvinnu við Þor-
björn Broddason.
Það eru svarendur sjálfir sem
metið hafa vinnutíma sinn og sam-
kvæmt könnuninni skiptist saman-
lagður vinnutími í atvinnulífi og á
heimili á milli kynja sem hér segir:
Samanlagður
vinnutími karlar% konur%
40 klst eða minna 6,1 12,9
41-50 klst. 16,5 11,6
51-60 klst. 24,9 23,7
61 klst eða meira 24,3 30.0
ósvarað 28,2 21 8
í könnuninni kemur einnig fram.
að þátttaka kvenna í atvinnulífinu
utan heimilis virðist sáralítið hafa
breytt þátttöku karla í sambúð í
heimilisstörfum. Meðalvinnutími
karla á heimili þar sem sambýlis-
konan er heimavinnandi er 5,0
klst. á viku, en þar sem hún vinnur
fulla vinnu utan heimilis leggur
karimaðurinn á sig 2,3 klst. til við-
bótar á heimilinu á móti 40 klst.
eða meira sem konan vinnur utan
heimilis.
Þessar hrikalegu niðurstöður
virðast sýna að jafnréttið á niilli
kynjanna eigi mun Iengra í land en
almennt er álitið, a.m.k. meðal
karla. Samkvæmt könnuninni álíta
31% karla að jafnrétti ríki á milli
kynjanna, 6,4% eru á báðum átt-
um en 57,4% telja að jafnrétti ríki
ekki í raun. Samsvarandi tölur fyrir
konur eru að 13,3% telja að jafn-
rétti ríki, 3,6% eru á báðum áttum
en 74,4% telja að jafnrétti ríki ekki
í raun.
-ólg-
í Þjóðviljanum fyrir u.þ.b.
hálfum mánuði skrifar ungur rit-
höfundur og bókmenntafræðing-
ur Kristján Jóh. Jónsson grein,
þar sem hann rekur frá sínu sjón-
arhorni eymd íslenskrar vinstri
hreyfingar og þeirrar kynslóðar
sem stundum er kennd við árið
1968.
Þar sem ég hef hugsað mér að
gera nokkrar athugasemdir við
hans málflutning, tel ég nauðsyn-
legt að taka saman helstu fors-
endur hans og niðurstöður.
Hann lýsir hinum vinstri veru-
leika svo: Rauðsokkahreyfingin
dauð, Fylkingin við slæma heilsu,
Þjóðviljinn hræddur við róttæk
umræðuefni, Alþýðubandalagið
og prestarnir jarða herstöðvabar-
áttuna, vinstri konur „nugga sér
utan í hægri menn“ í „undar-
legum" friðarhópi, - en íhaldið
dafni sem aldrei fyrr.
Orsakaskýringa sýnist mér
hann leita í danskri skáldsögu,
sem lýsir að mati Kristjáns að-
stæðum hliðstæðum okkar. í sög-
unni um Hans danska (sem til-
heyrir áðurnefndri ’68 kynslóð),
breytir efnahagskreppan barátt-
uglaðri og bjartsýnni kynslóð
hans í vonda einangrunarsinna,
sem eyði orku sinni í að „veitast
...hver að öðrum".
Hans danski ákveður gagngert
„endurmat á sögu“ sinni og
„stöðu“, og hið sama telur Krist-
ján að rétt sé að gera hér. íslensk
vinstri hreyfing hafi festst í „þægi-
legu fari“ aðferða, sem réttar hafi
verið á sjöunda áratugnum, en nú
séu breyttir tímar. Þessa niður-
stöðu telur hann nægja „að styðja
með einu dæmi“.
Því dæmi, að nokkrar vinstri
konur (þ.á. m. höfundur þessarar
greinar) hafa leyft sér að stofna til
umræðna um vígbúnaðarkapp-
idaupogstríðsrekstur við konur,
:.em sumar hafa önnur sjónarmið
varðandi eignarhald á fram-
leiðslutækjum en við sósíalistar.
Konur allra flokka
Þetla eru konur úr öllum
stjórnmálaflokkum, verkalýðs-
hreyfingu og almennum kvenna-
félögum, sem hafa tekið sig
saman og reynt að hrinda af stað í
öllum kvenfélögum og -sam-
tökum umræðu um afvopnunar
og friðarmál.
Um innihald og afleiðingar
þessarar umræðu er ekki hægt að
vita fyrirfram. Og að sjálfsögðu
munu vinstrisinnaðar konur í
landinu leggja sitt af mörkum til
hennar. Ég fyrir mitt leyti hef þá
trú á málstað okkar sósíalista í
þessu efni, að ég er þess fullviss,
að ef fólk í landinu fæst til að
ræða þessi mál fordómalaust og
afla sér hlutlægra upplýsinga, þá
muni okkur bætast bandamenn.
Bandamenn í þeirri baráttu sem
snýr að okkur íslendingum, þ.e.
að losa okkur úr vígbúnaðarneti
Nató og Bandríkjanna og lýsa ís-
land og íslenskra fiskveiðilög-
sögu kjarnorkuvopnalaus svæði.
Þjáningar fengnar
að láni
Andstætt því sem hinn ungi rit-
höfundur heldur fram, er þetta
tilraun til að prófa okkar málstað,
okkar hugmyndir meðal venju-
legs fólks. Þarna er reynt að fara
úr því „þægilega fari“ sjöunda
áratugarins, þarsem sjálfumglöð
’68 kynslóðin sat oní kjöllurum
við Laugaveg, talaði við sjálfa
sig, drakk rauðvín og hlustaði á
Bob Dylan, milli þess sem hún
gekk um götur og torg mótmæl-
andi á grundvelli þess sem Wolf
Biermann kallar svo hnyttilega
„Leiden aus zweiter Hand“ (eða
þjáningar fengnar að láni) í stað
þess að taka þátt í pólitískri bar-
áttu eigin samfélags.
’68 kynslóðin kaus sér sjálf
pólitíska einangrun og getur ekki
kennt kreppunni um eins og
Kristján lætur að liggja (enda
hæpið að tala um efnahags-
kreppu hér á íslandi, ekki ennþá
að minnsta kosti).
Mjög fáir (og þ.a.l. áhrifalitlir)
gengu til liðs við félagshreyfingu
íslensks alþýðufólks, verkalýðs-
hreyfingu, Alþýðuflokk eða Al-
þýðubandalag. Það hefði getað
spillt hreinleika hugans. Þeir
voru miklu fleiri sem forðuðust
alla, sem ekki aðhylltust tiltekna
kreddu. Stofnuðu ótal fámenna
áhugamannahópa (eins og þann
sem hinn ungi rithöfundur til-
heyrði til skamms tíma), sem
voru og eru úr öllum tengslum við
þá alþýðu sem þeir þó þykjast
vera að berjast fyrir.
„Endurmat á stöðu íslenskrar vinstri-
hreyfingar“ mun seint skila sér í
þjóðfélagsbreytingum til hagsbótafyrir
alþýðu manna, ef ekki fylgir einarðleg
þátttaka í pólitískri baráttu dagsins.
Raunasaga
róttæks
menntamanns
Jaf nréttiskönnun:______
Reykvískir karlar
þvo ekki fötin sín
Fataþvottur er
enn nær eingöngu
kvennastarf
- Verkaskipting karla og kvenna
á heimili er arfur frá bændasam-
félaginu - sagði Þorbjörn Brodda-
son á blaðamannafundi í gær, þar
sem niðurstöður á Jafn-
réttiskönnun hans og Kristins
Karlssonar voru kynntar.
I könnuninni kemur fram að
verkaskipting eykst með aldri en er
jafnari á milli kynja hjá yngri
kynslóðinni. Ef vægi algengustu
heimilisstarfa er dregið saman í
eina vísitölu kemur í Ijós að verka-
skipting er nokkuð jöfn á 24,5%
heimila á aldrinum 20-34 ára en á
um 12% heimila í eldri
aldursflokknum. Um 40% karla á
aldrinum 50-60 ára tekur nær aldrei
þátt í algengustu heimilisstörfum
samkvæmt könnuninni.
Þorbjörn Broddason vildi í þessu
sambandi benda á að athyglisvert
væri, hversu lítið karlar sinntu
hefðbundnu kvennastarfi eins og
fataþvotti.
- Fataþvottur hefur um aldir ver-
ið hefðbundið starf kvenna og ver-
ið með erfiðari heimilisverkum
hvað líkamlega áreynslu snertir.
Fataþvottur í dag krefst bæði lík-
amlegs erfiðis og tæknilegrar ná-
kvæmni, -sagði Þorbjörn, en báðir
þessir eiginleikar, líkamsburðir og
tækniþekking, hafa frekar verið
eignaðir körlum. Fataþvottur er
það starf, sem ekki er bundið við
ákveðinn tíma sólarhringsins og
ætti því af þeini ástæðum að vera
fært útivinnandi mönnum einnig. í
ljósi þessa er það mjög athyglisvert
að samkvæmt könnuninni eru hús-
mæður einar um fataþvottinn á
78,2% reykvískra heimila og sinna
þessu verki frekar en karlar á
15,2% heimila.
Benti Þorbjörn á að þessi greini-
lega verkaskipting yrði ekki skýrð
með eðlisiægum eða líffræðilegum
rökum, heldur væri hér um sögu-
lega arfleifð að ræða frá bænda-
samfélaginu þar sem hefðin væri
eðlilegri verkaskiptingu yfir-
sterkari.
- ólg.
Við aðra en rétt-
trúaða klíkubræður
Það er því ekki að undra að
hinum hreinhuga rithöfundi of-
bjóði að við skulum reyna að
koma málstað okkar á framfæri
við aðra en rétttrúaða klíku-
bræðurmeðviðeigandi háskóla-
próf. Skului i vera að „nugga"
okkur „utar. í hægri menn“, svo
notað sé smekklegt orðalag hans.
Mér sýnist því að hann, sem í
grein sinni gagnrýnii réttilega
einangrun og innbyrðis baráttu
vinstri sinna, sé um leið sjálfur að
ráðast að þeim sem reyna að rjúfa
þessa einangrun og vinna málstað
okkar fylgi meðal almennings.
Hvað vill
Kristján gera?
Og hvað vill svo Kristján gera?
Eftir lýsingu hans og hinnar
dönsku bókar á raunalegu von-
leysi einangrunarinnar, sem ein-
kenndist m.a. afþrotlausri nafla-
skoðun í sellum og leshringjum,
þá kemur ekki lítið á óvart, að
rithöfundurinn og bókmennta-
fræðingurinn skuli leggja til enn
eina reisuna í gegnum naflann.
Nú eigum við að vera „ágeng við
sjálf okkur“ og spyrja „áleitnari
spurninga en nokkru sinni fyrr“.
Þetta á að gera jaínvel þótt þessir
einangrunarsinnar hafi aldrei
spurt á þann eina hátt, sem er
sósíalistum sæmandi, með því að
láta reyna á hugmyndir okkar í
daglegu starfi meðal venjulegs
fólks, en ekki bara í sjálfum-
glöðum leshringjum eilífðarstúd-
entanna.
Barátta dagsins
„Endurmat á stöðu íslenskrar
vinstrihreyfingar" mun seint skila
sér í þjóðfélagsbreytingum til
hagsbóta fyrir alþýðu manna, ef
ekki fylgir einarðleg þátttaka í
pólitískri baráttu dagsins. í henni
prófum við gildi okkar hugmynda
og komum þeim í verk.
Er það ósk mín til hins róttæka
menntamanns að hann megi ti-
leinka sér þann lærdóm í stað
þess að saka okkur sent þetta
reynum um „uppgjöf og íhalds-
þjónkun“.
Reykjavík 27. okt.
Margrét Björnsdóttir.
Margrét S. Björnsdóttir er kenn-
ari við framhaldsskóla í Reykja-
vík. Hún er þjóðfélagsfræðingur
að mennt frá Vestur-Þýskalandi.
Hún hefur hefur tekið virkan þátt
í pólitísku starfí.