Þjóðviljinn - 29.10.1982, Side 8

Þjóðviljinn - 29.10.1982, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. október 1982 Grundarfjörður. í baksýn er Kirkjufellið, sem fáir hafa haft jafn oft undir fótum og Bæring. Hleypur eins og geit á Kirkjufellið Rætt við Bæring Cecilsson, kvikmyndatökumann „Maðurnokkurúr Vestmannaeyjum líkti mérvið steingeit", sagði Bæring Cecilsson sem rekur bifreiðarverkstæði í Grundarfirði, en eröllu þekktari meðal landsmannafyrir Ijósmyndir og kvikmyndatöku sínafyrirsjónvarpið. En Bæring var líkt við steingeit af því hann leikur sér að því að hlaupa upp og niður Kirkjufellið sem er 464 metra hátt fjall og horfir tignarlega yfir byggðina í Grundarfirði. — Einhvern tíma fyrir 1950 var ég búinn að fara 200 sinnum upp á Kírkjufelliö en þá hætti ég að telia. Bæring Cecilsson. En þetta er áreiðanlega íslands- metið í Kirkjufellsferðum. Ég átti heima á Búðum við rætur Kirkju- fells og byrjaði verulega snemma að stika nokkuð létt uppá fjallið. Kindurnar sóttu uppá fjallið enda iðjagrænt og safaríkt gras einsog eyjabeit uppá fjallinu. Nú seinni árin hef ég farið með ferðamenn þangað uppeftir og mér til skemmt- unar. Það er verulega fallegt útsýni frá Kirkjufelli. Það veit enginn hversu skemmtilegt það er að fara upp í fjöllin nema þeir sem reynt hafa. — Já ég mynda alltaf eitthvað í hverri viku. Ég byrjaði að ljós- mynda uppúr 1940 og á gott safn af eldri myndum. Svo byrjaði ég að kvikmynda árið 1956 á 8 mm filmu. Árið 1966 byrjaði ég að kvikmynda fyrir sjónvarpið og var fyrsta frétta- myndin mín sýnd fyrstu vikuna sem sjónvarpið sendi út. Fyrstu lit- myndina tók ég 1966 í Vatnsfirði. Ég hef reglulega gaman af því að kvikmynda. Og þar með kvöddum við þenn- an konung myndarinnar á Snæ- fellsnesi. — óg Innrétti V: si ' íl 4 *•, I r ?! 5 í' I 1 ; í % 4, r i f - •: . ■* Betur gert við heildsala en smáiðnrekendur í lánakeriinu Ingi Hans: Smáiðnaður gæti haldið fólki frá því að flytja suður um leið og hann er gjaldeyr- issparandi. - Ljósm. gel. Rætt við Inga Hans Jónsson — IngiHansJónssonrekur trésmíðaverkstæði á Grundarfirði. Fyrirtækið framleiðir innréttingar og bar Ingi Hans sig iila undan samkeppninni við útlendar innréttingar. — Pað er helvíti hart að verða undir í samkeppni við verri vöru. Þannig háttar til, að innréttingar sem koma frá útlöndum eru auglýstar oft á mjög hæpnum verð- forsendum. Til dæmis er getið um ákveðið verð miðað við Reykjavík, en þegar viðkomandi hefur glapist til að kaupa innrétt- ingarnar vestur á Grundarfjörð kemur í ljós að flutningskostnað- ur og uppsetningarkostnaður er það mikili að innlenda fram- leiðslan væri máske ekkert dýr- ari. Þess utan má geta þess, að þessi framleiðsla er oft greidd niður í heimalandinu og stendur þannig mun betur að vígi í sam- keppni hér á landi, þar sem fyrir- greiðsla við smáiðnað er í lág- marki. Ég get ekki fundið annað en að lánstraustið í bönkunum sé aðallega hjá heildsölum. Og við sem stöndum í þessum smáiðnaði eigum ekki kost á nema svo óhag- stæðum lánum, að enginn fyrir- tækisrekstur getur staðið undir afborgunum og vöxtum. Þetta er verulegt umhugsunar- efni einnig í ljósi þess, að smá- iðnaður er bæði gjaldeyrisspar- andi og stofnkostnaður á bakvið hvert atvinnutækifæri er margfalt minni en í stóriðju. Þess vegna er mér einnig óskiljanlegt að ekki skuli meira vera gert til stuðnings þessum smáiðnaði, sem er auk þess nauðsynlegur í litlum bæjar- félögum einsog þessurn. Fjölbreytni í atvinnulífinu er nauðsynleg með smáiðnaði eins- og þessum. Sjávarútvegur og fiskiðnaður eru lífæð og brunnur í bæjarfélaginu hérna einsog í öðr- um sjávarplássum, en það geta ekki allir alltaf stundað sjóinn. Þegar fólk fullorðnast og vill fara að komast í land og minnka við sig vinnuna verður eitthvað ann- að að koma til. Annars fer fólkið einfaldlega suður, þar sem mögu- leikar eru fleiri á hentugri atvinnu. Þetta er ein ástæða þess að ég fór út í þennan atvinnurekstur fyrir þremur árum. En nú er varla annað að gera en hætta urn ára- mótin. því reksturinn er kominn á það stig, að annað hvort verður að stækka þetta og fá nýtt hús- næði eða loka. Ég get ekki vegna lánafyrirgreiðslukerfisins og slæmrar samkeppnisað- stöðu stækkað við fyrirtækið svo það er ekki um annað að ræða en loka. — óg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.