Þjóðviljinn - 29.10.1982, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 29.10.1982, Qupperneq 9
Föstudagur 29. október 1982 ÞJÓÐVILJJNN — SÍÐA 13 mgh ræðir við fjóra meðlimi Islensku hljóm- sveitarinnar „Ljúfur ómur loftió fyllir“ hjá Guómundi Emilssyni stjórnanda íslensku hljómsveitarinnar. Mynd: — gel. Göngum brosandi og vonglöð tU verks” Við íslendingar höfum nú eignasttværmeiri háttar hljómsveitir. Kannski er það heimsmet, miðaðvið höfðatöluna margfrægu. Ef svo er, þá er það heimsmet góðrar ættarog lofsvert, en það er meira en sagt verður um þau sum hver. • Sinfóníuhljómsveit íslands hefur starfað árum saman og kynnt ís- lendingum fjölmörg öndvegisverk tónbókmennta heimsins. Svo mun ennþá verða. fslenska hljómsveitin er hins vegar ný af nálinni. Heyrst hefur á sumurn að stofnun hennaT sé furðu djarft tiltæki. En hvað segja meðlimir hljómsveitarinnar um það og þetta „fyrirtæki" yfir- leitt? Fjórir þeirra litu hér inn á blaðið nú í vikunni og við gátum ekki á okkur setið með að taka þá tali. Og til þess að byrja nú á rétt- um enda skulum við hefja þetta skraf með því að kynna lítillega viðmælendur okkar. Helga Oddrún Guðmundsdóttir er Reykvíkingur. Hún leikur á lág- fiðlu. Byrjaði nám í Barnamúsík- skólanum en er nú við nám í Tón- listarskólanum. Helga sagðist hyggja á framhaldsnám í lágfiðlu- leik er hún hefði útskrifast úr Tón- listarskólanum. Við spurðum Helgu hvernig henni litist á at- vinnuhorfur, er hún hefði lokið námi. Hún sagði, að um þær væri allt í þoku, „ég reyni bara að hugsa ekkert um það, það verður að ráðast." Helga hefur m.a. komið fram á skólatónleikum og með Pólyfónkórnum. Kolbeinn Bjarnason leikur á flautu. Hann stundaði nám í Tón- listarskólanum ög síðan hjá Manú- elu Wiesler í tvö ár. Að því búnu hvarf hann til Basel í Sviss og lærði þar hjá japönskum flautuleikara. „Það er víst ekki hægt að neita því, að flautan er farin að nægja mér nokkurn veginn til framfæris," sagði Kolbeinn. Þorkell Jóelsson er ættaður úr umhverfi Innansveitarkróniku. Hann leikur á horn, nánar tiltekið skógarhorn, eins og hann vildi nefna það, og er fallegt nafn. Eins og þau Helga og Kolbeinn stundaði hann nám við Tónlistarskólann í Reykjavík, en var síðan fjögur ár við nám í London og kom þaðan í haust. Fór þá að leika í Sinfóníu- hljómsveit íslands og leikur nú í báðum hljómsveitunum. Páll Einarsson leikur á knéfiðlu (selló). Páll lærði upphaflega hjá Einari Vigfússyni sellóleikara. Blaðamanni skildist á Páli að hann vildi ekki telja sig neinn atvinnu- mann á tónlistarsviðinu. Ég hef alltaf stundað músik með öðru námi, einnig á meðan ég var í Há- skólanum, sagði hann, en Páll kennir þar nú, þó ekki á knéfiðlu; sú námsgrein hefur enn ekki verið tekin upp við þá ágætu stofnun. Og þar með látum við lokið þess- ari kynningu á viðmælendum okk- ar þótt stutt sé hún og snubbótt. - Hvert á hugmyndin að stofnun þessarar hljómsveitar rætur sínar að rekja? - Segja má, að nokkuð sé síðan þessi hugmynd fór að gerjast, þótt því fari raunar fjarri, að meðgöng- utíminn hafi orðið óeðlilega langur. Sunrir vilja kannski fremur segja að „barnið" hafi fæðst fyrir tímann. En hugmyndin varð að veruleika þegar Guðmundur Emilsson, stjórnandi hljómsveitar- innar, kom til landsins. Hann hóf fljótlega að kanna möguleika á stofnun og rekstri hljómsveitarinn- ar, en að baki honum stóðu nokkrir áhugamenn um tónlist, sem þó eru ekki hljóðfæraleikarar. Fyrsta skrefið var svo að kanna það, hvað hægt væri að fá af hljóðfæraleikur- um og var auglýst eftir þeim. Um- sækjendur gengu síðan undir hæfn- ispróf. - Og framboðið hefur reynst nóg? - í heild, já. En það þarf að sjálf- sögðu að vera samræmi í hljóðfær- askipaninni, þar má hvorki vera of né van. Af leikurum á sum hljóðfæri fékkst rneira en nóg, en skortur var á öðrum. Úr því tókst þó að bæta. Við fengum t.d. 10 meðlimi Sinfóníuhljómsveitar ís- lands til liðs við okkur og leika þeir með báðum hljómsveitunum. Sú liðveisla er mikils virði eins og á stendur. Þeir taka þó ekki neitt frá neinum því þeir hætta að leika með okkur jafnskjótt að aðrir hæfir fást í þeirra stað. - Hvað eru margir hljóðfæraleik- arar í hljómsveitinni? - Við erum 45 og telst þá hljóm- sveitin fullskipuð. Hins vegar er tala hljóðfæraleikaranna hverju sinni breytileg eftir því hverskonar verk er flutt. Þeir geta fariö allt niður í einn, þó að þá sé kannski ekki hægt að tala unr hljómsveit. Yfirleitt eru meðiimir hljóm- sveitarinnar ungt fólk, sumt korn- ungt. Aldurinn er þetta frá 30 og' niður í 15 ár. Og margt af þessu unga fólki er enn við nám í Tónlist- arskólanum. - Hvenær byrjuðið þið æfingar? - Við byrjuðum aö æfa þann 8. okt. s.l. og síðan höfum við æft reglulega einu sinni í viku. Aðstöðu til æfinga höfum við feng- ið í kirkju Óháða safnaðarins. Lok- aæfing fyrir opinbera tónleika verður hins vegar í Ganrla bíó. - Hvenær er ætlunin að halda fyrstu opinberu tónleikana? - Þeir eru fyrirhugaðir í Gamla bíói n.k. laugardagskvöld og síðan er ætlunin að halda opinbera tón- leika síðasta laugardag í hverjunr mánuði í vetur. llafa átta tónleikar þannig verið ákveðnir. Næsta laugardag eftir opinbera tónleika á svo að fara fram upptaka á þeim verkum íslenskum, sem hljóm- sveitin flytur hverju sinni, en á öll- um tónleikunum verða flutt ein- hver íslensk verk. Með því viljunr við hvetja til og efla ísienskar tón- srníðar. Að loktium hverjum tón- leikum er meiningin að líta inn í Arnarhól og er vonast til að þeir, sem á hafa hlýtt, komi og spjalli við tónlistarfólkið um tónleikana og annað það, sem á góma kann að bera. Mætti það leiða til þess að koma á nánara sambandi og auknum kynnum milli tónlistar- flytjenda og áheyrenda, báðum til ávinnings. - Eftir hvaða tónskáld flytjiö þið verk á þessum fyrstu tónleikum? - Þau er eftir Gluck, Pál S. Páls- son, Mozart og Beethoven. Það má kannski segja, að tónleikarnir séu tileinkaðir Austurríki á þeim tíma, sem þar voru höfuðstöðvar tónlist- ar í heiminum. - Og þið seljið áskriftarmiða að tónleikunum? - Já, við seljum áskriftarmiða hvort heldur menn vilja á helming fyrirhugaðra tónleika í vetur eða alla. Auk þess er svo það, sem við getum kallað styrktarmannaá- skriftir. - Nú njótiö þið einskis styrks frá hinu opinbera. Óttist þið ekki að fjárhagserfiðleikar veröi ykkur fjötur úm fót? - Nei, viö höfum ekki hugsað okkur að leita eftir opinberum styrk. Þar fyrir munum viö auðvit- að ekki slá hendinni á móti honum ef hann skyldi bjóðast fyrr eða seinna. En við munum reyna að standa á eigin fótum og þær ágætu undirtektir, sem við höfum fengið, auka bjartsýni okkar á að þaö muni takast. - Þið hafiö ákveðiö að halda 8 opinbera tónleika í Reykjavík í vetur. Eru nokkur áform uppi um að fara víðar? - Við sjáum nú hvað setur með það. Vissulega hefur verið um það rætt, aö fara í tónleikaferðalag út um land og raunar einnig út fyrir pollinn. En þaö er nú ekki beint á dagskrá, svona til að byrja með. - Óttist þið ekki samkeppnina við Sinfóníuhljómsveit Islands? - Nei, þaö gerum við ekki og til þess ber margt. í fyrsla lagi veröum við trúlega á nokkuö öörum leiðum í okkar tónlistarflutningi. Viö munum leitast við að flytja þaö, sem kannski má kalla blandaða tónlist, æðri og alvarlegri verk að sjálfsögðu, en einnig léttari tónlist, tónlist við leiksýningar, leikbrúðusýningar, ballett o.s.frv. Viö munum leitast við að hafa verkefnavalið sem fjölbreyttast þannig að viö náum til áhugasviða sem flestra. Og ef á þarf að halda, er hægt aö slá hljómsveitunum saman í eina. Við eigum mjög mik- ið af áhugasömu og efnilegu ungu tónlistarfólki. Það er þýðingar- mikið fyrir þroska þess og framtíð aö því geíist tækifæri til þess aö taka þátt í tónlistarflutningi og stofnun þessarar hljómsveitar eykur mjög á þá möguleika. Þetta skiptir megin máli. Um fjárhagslegan ávinning af þessu starfi fyrir meðlimi hljóm- sveitarinnar er auðvitað ekki að ræða svo neinu verulegu nemi a.m.k., enda ekki tilgangurinn. Má sjálfsagt kallast gott ef að í hlut hvers og eins kemur svo sem nemur einunr fjórða af árslaunum og þó ekki háum. Ogmargiraðstandcnd- ur þessara samtaka hafa unnið mjög mikið fyrir þau, alveg launa- laust. Stjórnin er t.d. búin að halda yfir 40 fundi og ekki séð eyri fyrir. En við höfum trú á „fyrirtækinu" og göngum brosandi og vongóð til verks. Svo getur blaðamaður þá bætt því við, að er spurt var um það á fundi með stjórn Sinfóníuhljóm- sveitar Islands á dögunum hver væri afstaða hennar til hinnar nýju hljónrsveitar þá var svarið: Allt, sem miðar að eflingu tónlistar og aukinnar kynningar á henni, er af hinu góða. -mhg Helga Oddrún Guömundsdótt ir, lágliðluleikari. Kolbeinn Bjarnason, flautuleikari og sonurhans, Jóhann Bjarni, semþegar er farinn aö fást við flauturnar. Þorkell Jóelsson leikur á skógarhorn. Páll Einarsson, sellóleikari og jaröeölis- fræöingur hljómsveitar- innar. Myndir: -eik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.