Þjóðviljinn - 29.10.1982, Síða 11
Föstudagur 29. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
karla 1 handknattleik:
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Nú er lokið átta umferðum af fjórtán f
fyrri hluta 1. deildar karla í
handknattleik. Eftirmikla
leikjaskorpu undanfarið verður
mánaðarhlé en þráðurinn tekinn
upp að nýju í lok nóvember.
Línurnar eru nokkuð farnar að
skýrast og við skulum líta á stöðuna
eins og hún verður næsta
mánuðinn:
FH.........8
KR.........8
Víkingur...8
Stjarnan...8
Þróttur....8
Valur......8
Fram.......8
ÍR.........8
217-173 12
195-151 12
159-153 11
163-160 10
159-159
154-160
175-191
8 136-211
8
6
5
0
Tólf leikmenn hafa skorað 30 mörk
eða fleiri í 1. deildinni til þessa. Þeir
eru:
Eyjólfur Bragason, Stj.
Kristján Arason, FH
Anders Dahl, KR
Alfreð Gíslason, KR.....
Páll Ólafsson, Þrótti
Þorgils Ó. Mathiesen, FH
HansGuðmundss., FH .
Björn Björnsson, ÍR..
Egill Jóhanness., Fram
Konráð Jónsson, Þrótti
Þorbergur Aðalst., Vík
Theodór Guðf innss., Val..
Þrjú lið, FH, KR, og Víkingur.
eru áberandi bestu lið deildarinn-
ar, þó svo þau hafi ekki sýnt neina
afgerandi yfirburði. Sérstaklega
hafa meistarar Víkings valdið von-
brigðum með misjöfnum leikjum
en með þá miklu breidd sem þeir
ráða yfir verða þeir erfiðir viður-
eignar í 4-liða úrslitunum síðar í
vetur. FH og KR hafa verið jafn-
betri en Víkingarnir það sem af er
og gera má ráð fyrir að þessi þrjú
komist í úrslitakeppnina án telj-
andi erfiðleika.
Það borgar sig þó ekki að full-
yrða neítt í þeim efnum. Þróttur og
nýliðar Stjörnunnar hafa sýnt að
þau geta sigrað hvaða lið sem er á
góðurn degi, Þróttarar með
tveimur sigrum á FH og Stjarnan
með hinurn glæsilega vinningi sín-
um á Víkingi fyrr í vikunni. Líklegt
er að þessi tvö félög berjist um
fjórða sætið og annað þeirra verði
að sætta sig við að fara í fallbarátt-
una að fjórtán umferðum loknum.
Valur er það lið sem mest hefur
dalað. Eftir að hafa sigrað í þremur
fyrstu leikjunum hafa fimm töp
fylgt í kjölfarið og eins og það
leikur í dag fer það ekki í 4-liða
úrslitin. Margt getur þó átt eftir að
breytast en eins og er grúfir fall-
hætta yfir liðinu og þar gætu Fram-
arar reynst erfiðir andstæðingar.
Þeir hafa farið vaxandi í síðustu
leikjunt eftir slaka byrjun, hafa
ágætan mannskap og þar með
burði til að halda sæti sínu í 1.
deild.
Þá er ótalið lið IR. Fá orð um
það; eftir hinn gífurlega manna-
missi sent nýliðarnir urðu fyrir í
sumar kemur ekkert annað en fal! í
2. deild til greina og dvölin neðan
1. deildar gæti orðið löng í þetta
skiptið. - VS
Línur farnar að skýrast — en samt...
og Is
sigruðu
Þróttur Reykjavík varð sigurveg
ari í afmælismóti Blaksambands
íslands sem fram fór um síðustu
helgi. í úrslitaleik sigraði Þróttur
ÍS 3-2 (15-13, 11-15, 15-6, 10-15,
15-10). 2. deildarlið Fram kom á
óvart og sigraði Víking í úrslitaleik
um þriðja sætið.
ÍS vann Þrótt 3-2 í úrslitaleik í
kvennaflokki. Þar enduðu hrinurn-
ar 3-15, 16-14, 15-0, 7-15 og 15-5.
Þróttur sigraði síðan í þriðja flokki
karla.
Blakað
um
helgina
íslandsmótið í blaki hefst um
helgina og verður leikið á fullu í
Hagaskólanum bæði laugardag og
sunnudag. Á laugardag leika ÍS og
Breiðablik í 1. deild kvenna kl. 14,
ÍS og UMSE í 1. deild karla kl.
15.15 ogHKog Breiðablik í 2. deild
karla kl. 16.30.
Þrír leikir vcrða á sunnudag,
Þróttur og Víkingur í 1. deild
kvenna kl. 13.30, Þróttur og UMSE
í 1. deild karla kl. 14.45 og Fram og
Samhygð í 2. deild karla kl. 16.
Ársþing
hjá BSI
Ársþing Badmintonsambands ís-
lands verður haldið í Snorrabæ við
Snorrabraut laugardaginn 30.
október og hefst kl. 10 f.h. Á dag-
skrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Liam Brady
Liam Brady og Trevor Francis
eru tveir bestu erlendu leikmenn-
irnir í ítölsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu að mati þarlends dagblaðs
sem birtir reglulega einkunnargjöf
fyrir frammistöðu í leikjum. Þeir
voru jafnir og efstir fyrir skömmu
og þá leit taflan þannig út en
heimamenn eru ekki hafðir inni í
dæminu.
1-2. Brady, Sampdoria.........7:18
1-2. Francis, Sampdoria.......7:18
í gærkvöldi léku ÍR-ingar við
Njarðvíkinga í Njarðvík og töpuðu
í nokkuð fjörugum leik. Leikurinn
endaði 106-84.
Hreinn Þorkelsson skoraði
fyrstu körfu leiksins og ÍR-ingar
náðu þriggja stiga forystu -6-9 og
síðan 8-11 en þá skildu leiðir.
Njarðvíkingar, drifnir áfram af
stórleik Ingimars Jónssonar,
breyttu stöðunni í 23-13. ÍR-ingar
minnkuðu muninn í 5 stig en nær
komust þeir ekki. Staðan í hálfleik
var 51-41.
í síðari hálfleik héldu Njarð-
Brady
og
Francis
bestir
3-6. Edinho, Udinese...............7:00
3-6. Hernandez.Torino..............7:00
3-6. Muller, InterMilano...........7:00
3-6. Pasarella, Fiorentina.........7:00
7-8. Bertoni.Fiorentina............6:75
7-8. Platini, Juventus.............6:75
9-11. Diaz, Napoli.................6:62
9-11. Krol, Napoli.................6:62
9-11. VanDeKorput, Torino..........6:62
12. Peters, Genoa.............6:50
13. Barbadillo, Avellino......6:37
14. Prohaska, AS Roma.........6:31
15. Berggreen, Pisa...........6:25
16. Boniek, Juventus..........6:12
17. Dirceu, Verona............6:06
víkingar því forskoti sem þeir
höfðu náð. Minnstur var munurinn
8 stig, 64-56 eftir 6 mínútur, en
mestur 27 stig 103-76 rétt fyrir
leikslok. ÍR-ingar lentu í nokkrum
villuvandræðum og misstu Jón Jör.
út af þegar 14 mínútur voru eftir og
Hjört þegar 9 mínútur voru eftir.
Leikurinn var oft á tíðum nokk-
uð skemmtilegur en ekki sérlega
vel leikinn. Það var helst að heima-
menn sýndu af sér skemmtileg til-
þrif og var það ángjulegast að sjá til
þeirra sem lítið hafa fengið að
spreyta sig til þessa. Lið Njarðvík-
Trevor Francis
Alls leika 25 erlendir leikmenn í
1. deildinni og það vekur athygli að
leikmenn eins og Boniek og Platini
skuli ekki vera ofar en raun ber
vitni. Annars getur það átt eftir að
breytast þegar þeir hafa aðlagast
ítalskri knattspyrnu. Einsogsjá má
er rnikið af heimsfrægum köppunt
nteö ítölsku liðunum enda er að-
sókn áð knattspyrnuleikjum óvíða
meiri.
- VS
ÍR
inga var nokkuð jafnt og Valur 1.
stigahæstur að vanda með 31 stig.
Ingimar skoraði 19 stig, öll í fyrri
hálfleik. Alex Gilbert 15 stig, öll
skoruð undir lok leiksins, þá
skoraði Árni 10, Albert 8 og Eyj-
ólfur 5. Hjá ÍR var Hreinn rnjög
sterkur í byrjun en virtist skorta
úthald, en það hafði Kristinn Jör.
og skoraði hann 32 stig, Hreinn 23,
Hjörtur 8 og Kolbeinn 7.
Dómararnir, Gunnar og Sigurð-
ur Valgeirssynir voru hvorki sann-
færandi né samkvæmir sjálfum sér í
dómum. gsm
Norðmenn
sterkir
Norðmenn hafa sýnt og sannað
að sigrar þeirra á Júgóslövum og
Hollendinguni voru engin tilviljun.
í fyrrakvöld mættu þeir Búlgörum ■
Sofia í Evrópukeppni landsliða í
knattspyrnu og gerðu þar jafntefli,
2-2. Hallvar Thoresen og Arne-
Larsen Öklund skoruðu mörk
Norðmanna.
Hverjir
tapa í
kvöld?
Iþróttahúsið í Kcflavík verður
væntanlega troðfullt í kvöld þegar
ÍBK og Valur leika þar í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. Þessi fé-
lög eru jöfn og efst í deildinni, hafa
hvort um sig 6 stig úr þrcmur
leikjum, og nú er komið að því að
annað þcirra tapi sínum fyrsta leik.
Ekki er hægt að búast við jafn-
mörguni áhorfendum í Ilagaskól-
anum á sunnudagskvöldið en þar
leika neðstu liðin, ÍR og Frani, kl.
19. Hvorugt hcfur hlotið stig til
þessa í deildinni.
Tvö lönd
með HM?
Sú hugmynd hefur komið frá for-
manni kanadíska knattspyrnusam-
bandsins að Kanada og Bandaríkin
haldi heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu sameiginlega árið
1986. Kólombía mun hafa endan-
lega ákveðið að hætta við að sjá um
keppnina en á eftir að tilkynna það
til alþjóða knattspyrnusambands-
ins. Fjórar þjóðir koma til greina
með að taka við, Brasilía, Kanada,
Mexíkó og Bandaríkin.
Úrvalsdeildin í körfubolta:
Enn eitt tap hjá
— Stórleikur Ingimars Jónssonar