Þjóðviljinn - 29.10.1982, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 29.10.1982, Qupperneq 1
Fostudagur 29. október 1982 þjóÐVILJINN — SÍÐA 9 Leiklist Myndlist Tónlist Svona leit Anna Frank út í raun og veru. Saga Önnu Frank mjög átakanleg segir 14 ára skólastúlka, sem leikur titilhlutverkið í „Dagbók Önnu Frank” „Það er skrýtið að leika persónu sem maður veit að var til. Eg las bókina „Hetja til hinstu stundar“ þar sem fjallað er um afdrif þessa fólks og það hafði mjög mikil áhrif á mig. Saga Önnu Frank og örlög hennar hafa haft miki) áhrif á mig. Þau eru svo átakanleg“ sagði Guð- rún Ingibjörg Kristmannsdóttir 14 ára nemi í Gagnfræðaskóla Selfoss. Hún er nú að æfa titilhlutverkið í „Dagbók Önnu Frank“, sem frum- sýnt verður hjá Leikfélagi Selfoss á sunnudaginn. Þetta er annað sinn sem Guðrún leikur, en hún tók þátt í sýningu leikfélagsins á „Fjölskyld- unni“ í fyrra. Við spurðum hana hvort hún væri nokkuð að hugsa um að leggja lciklistina fyrir sig. „Það gæti alveg hugsast. Ég held að ég gæti vel hugsað mér það. Mér hefur fundist æðislega gaman að leika Önnu Frank“, sagði hún. „Og hvernig gengur að sam- ræma æfingarnar skólanum?“ „Það er mesta furða. Maður er auðvitað dálítið syfjaður á morgn- ana, en kennararnir sýna mér skilning og stundum slepp ég við leikfimina á morgnana. Það er verst hvað maður er stressaður þegar maður leggst á koddann á kvöldin", sagði Guðrún. Leikið er í Selfossbíói, en leik- stjóri er Stefán Baldursson. Kvikmyndir Skemmtanir Félagslíf o.fl. Dagsbrún gengst fyrir dagskrá til heiðurs Tryggva Emilssyni áttræðum „Þessi dagskrá hefur vcrið vali í dagskrá þá sem flutt lengi í undurbúningi. Það verður til heiðurs Tryggva Emils- reyndist rnjög erfitt að takmarka syni áttræðum í Iðnó á morgun. valið, þegar leitað var að verka- Verkamannafélagið Dagsbrún fólki í íslcnskum bókmenntum. gengst fyrir dagskránni og verður Það var ekki erlitt að finna annars vegar fjallað um Tryggva bækur, þar sem fjallað var um sjálfan og stöðu hans í ísienskum stéttaandstæður og átök, en verra bókmenntum og hins vegar um var að vinna fólk að vinnu. Ég verkafólk í bókmenntum. Þá held að það sé óhætt að segja að flytur Eðvarð Sigurðsson ávarp það efni sem við höfum valið sé trá Dagsbrún og Tyggvi les úr fjölbreytt en dagskráin byggist á verkum sínum. upplcstri, leikatriðum og söng,“ Meðal þeirra höfunda sem les- sagði Silja Aðalsteindóttir, sem ið verður eftir eru Halldór hcfur haft veg og vanda af efnis- Laxness og Dagur Sigurðarson, Tryggvi Emilsson leiklesið verður úr verkum Sig- urðar A. Magnússonar, (Undir Kalstjörnu) og Ólat's liauks Símonarsonar (Galeiðan) og sungið við texta Péturs Pálssonar, Böðvars Guðmundssonar og Halldórs Laxness. Dagskráin hefst kl. 2 og er Dagsbrúnarmönnum og öllum velunnurum Tryggva Emilssonar boðið til þessara dagskrár meðan húsrúm leyfir. Silja verður kynn- ir, en lesarar, söpgvarar og leikarar eru: Guðmundur Ólafs- son, Kristín Ólafsdóttir, Olga Guðrún Árnadóttir og Þorleifur Hauksson, en undirleikari er Guðmundur Hallvarösson. ÞS ,yildum geta málað hér” segja sænsku málararnir Cullberg og Tillberg sem sýna i Norræna húsinu „Við hittumst fyrir löngu síðan. Bakgrunnur okkar er mjög ólíkur og myndir okkar sömuleiðis. Þess vegna er gott fyrir okkur að sýna saman,” sögðu þeir Erland Cull- berg og Peter Tilíberg, sem nú sýna myndir sínar í Norræna húsinu. Og vissulega eru myndir þeirra ólíkar, þótt ekki væri nema vegna þess að annar málar eingöngu í svart/hvítu, (kolteikningar) og hinn í iniklum litum. Þeir eru báðir Svíar og hefur sýning þeirra gert víðreist um Sví- þjóð, en Norðurlandaferðalag hennar hefst hér á íslandi. „Við fengum styrk úr norræna menningarsjóðnum til að koma með sýninguna til íslands. Við erum hér í fyrsta sinn og blóðlangar til að mála hérna, en við stoppum of stutt í þetta sinn”, sagði Peter. Við spurðum þá hvort norrænir málarar ættu eitthvað sameiginlegt sem skildi þá frá t.d. málurum frá öðrum Evrópulöndum. „Já, en það er erfitt að greina hvað það er. Ég held að myndir þeirra búi oft yfir einhverjum sam- eiginlegum trega,” sagði Erland. Sýning þeirra félaganna nefnist einu orði „Snjógöngur” og eru á henni olíumálverk og kolteikning- ar. Hún verður opin til 7. nóvem- ber og fer þá til Noregs. þs Peter Tillberg við eitt verka sinna. Erlan Cullberg við eitt verka sinna. Ljósm. - eik. „Hjálparkokkamir” „Þetta er elskulegt og notalegt leikrit. Vonandi verður það til að gera fólki létt í skapi í skammdeg- inu”, sagði Sveinn Éinarsson Þjóð- leikhússtjóri, um nýjan amerískan gamanleik eftir George Furth, „Hjálparkokkarnir” sem frum- sýndur verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Helgi Skúlason er leikstjóri, en fimm leikendur eru í sýningunni og fara þeir allir með stór hlutverk. Helgi sagði í samtali að í þetta sinn væri ekki verið að bjarga heiminum, en þó væri leikritið alls ekki út í bláinn. „Það er langt síðan við höfum sýnt verk af þessu tagi. Það er vel skrifað og skemmtilegt”, sagði Helgi. Hjálparkokkarnir er hreinn gamanleikur sem gerist í glæsihúsi einu á Malibu-ströndinni í Kali- forníu. Ein persónan, Ellen, hefur alveg óvænt tekið sig til og skrifað bók sem er í þann veginn að koma á markað. Af því tilefni býður hún fjórum vinum sínum heim í glæsi- húsið. Vinirnir mæta en úr þessari heimsókn verður ekkert þægilegt matarboð. Bókin sér fyrir því. Upphafsorð hennar eru þessi: „Mamma sagði mér alltaf að halda mig að þeim sem væru ofan á í líf- inu, en hefði ég gert það hefði ég aldrei hitt þessa fjóra vini mína.” Vinirnir eru ekki fræga fólkið, þeir eru fólkið í skugganum af fræga fólkinu. Mikið er lagt upp úr búningum í sýningunni og var Helga Björnsson tískuhönnuður í París fengin til að sjá um þá hlið mála. Leikmyndin er eftir Baltasar. Gamanleikur frumsýndur í Þjóöleikhúsinu Með hlutverkin í „Hjálparkokk- unurn,, fara þau: Edda Þórarins- dóttir, Helga Guðmundsdóttir og Róbert Arnfinnsson. Höfundurinn George Furth er kunnur leikrita- og söngleikjahöf- undur og hefur átt mörg vinsæl verk á Broadway. „Hjálparkokk- arnir” var frumsýnt þar s.l. vor og naut mikilla vinsælda, og er ísland líklega fyrsti staðurinn þar sem það er sýnt utan Bandaríkjanna. Þýð- andi er Óskar Ingimarsson. -Ig.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.