Þjóðviljinn - 29.10.1982, Blaðsíða 2
10 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Fðstudagur 29. október 1982
um helgina
Föstudagur 29. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Fimm af „Norðan“-mönnum á Kjarvalsstöðum.
„Norðan 7”
á Kjarvalsstöðum
Þaö er ekki.á hverjum degi að
menn norður i landi heiðra okkur
sunnanmenn með stórum mynd-
listarsýningum. Það er því mikill
fengur í sýningu þeirri sem 7 Akur-
eyringar halda um þessar mundir á
Kjarvalsstöðum og kalla „Norðan
7“.
Reyndar er það hvimleitt að ekki
skuli vera meiri hreyfing á sýning-
um landshorna í millum, þegar
enginn tálmi er á samgöngum og
miðlun menningar ætti að ganga
jafnt snuðrulaust og dreifing ann-
arra afurða. Við megum varast að
hólfa landið um of í lokuð menn-
ingarsvæði, því bæði er að íslend-
ingar eru fáir og litlir fjármunir til
skiptanna, þegar listir eru annars
vegar. Hitt verður að forðast að
slíkur sameiginlegur pottur komi
einu héraði til góða á kostnað ann-
arra, eins og reyndin hefur alltaf
verið allt oft lengi.
Þeir Aðalsteinn Vestmann, Ein-
ar Helgason, Guð'mundur Ar-
mann, Helgi Vilberg, Kristinn G.
Jóhannsson, Óli G. Jóhannsson og
Örn Ingi eru ólíkir listamenn og því
vantar ekki breidd í úrtakið. í heild
sýna þeir að norðlensk list er marg-
breytileg, inntak jafnt sem útlit.
Þeir Einar og Aðalsteinn sýna
báðir málverk og vatnslitamyndir.
Málverk Einars eru margslungin
og litsterk og gætir nokkurra áhrifa
frá Erró í þeim. Verk Aðalsteins
eru mun tempraðri og byggir hann
fantasíu-kennd málverk sín á brún-
leitum jarðlitum. Vatnslitamyndir
beggja taka málverkunum fram og
eru þær mjög frábrugðnar olíu- og
akrýlverkunum. Þetta eru
landslags- og stemmningamyndir,
eðlilegar og leikandi unnar.
Helgi Vilberg fæst einnig við
fantasíur í málverkum sínum. Þótt
hann ráði yfir ágætri tækni eru
myndir.hans of veikbyggðar og
auglýsingakenndar í ætt við umslög
utan um dægurlagahljómplötur.
Krítar- og dúkskurðarmyndir
Kristins G. eru persónulegar og
sannar og bera vott um mikla svart-
listarhæfileika. Málverkin eru síðri
en þó er í þeim leit og tilraunir sem
vænlegar eru tifárangurs.
Guðmundur Armann sýnir einn-
ig mikil tilþrif sem teiknari 6. til-
brigði við þjóðsögu „Og hana móð-
ur að finna“, er með því besta á
myndinni.
Oli G. Jóhannsson sýnir yfir 20
akrýlmyndir. Þær eru raunsæjar og
stemmningafullar. Flestar eru
myndirnar frá höfninni, af bátum,
tækjum og tólum sem þar er að
finna. I þeim er mikil rökkur-
stemmning og hefur Óli fundið sér
látlausan en fágaðan stíl, fullan af
innileik og hlýju.
Orn Ingi er greinilega metn-
aðarfyllstur þeirra félaga. Hann
sýnir risastórt verk í fjórum
hlutum, „Martröð staðarvals-
nefndar“, sem of langt mál væri að
fara ofan í sauman á. Annars höfð-
uðu verk á borð við „Tvíeggjun” og
„Speglun” mest til mín í einföldum
en fagmannlegum gerðum sínum.
Hér er reyndar fagmennskan í
fyrirrúmi og er það m.a. styrkur
Arnar.
Annars duga fátækleg orð
skammt til að lýsa sýningu 7-
menninganna, hana þarf fólk að sjá
með eigin augum.
Yfirlitssýning Jóns Þorleifssonar
Skip og fjöll rétt
fyrir afstrakttíð
Fjöll okkar frægust, bryggjur og
bátar og síldarplön - allt túlkað í
þeim anda sem upp kemur á
leiðinni frá eftirlíkingunni, en áður
en afstraktið byrjar. Þetta blasir
við gcsti á stórri sýningu á verkum
Jóns Þorleifssonar sem hefur verið
opnuð í Listasafni íslands.
í sýningarskrá segir Selma Jóns-
dóttir m.a.: „Oft túlkaði hann í
verkum sínum með innilegum
næmleika hlýju landsins og mjúka
liti, þetta fíngerða og hverfula líf
náttúrunnar þegar landið lifnar á
vori. Þá má ekki gleyma verkum
hans, liuterkum og fastbyggðum,
úr þorpum og bæjum - með íbúun-
um ýmist að hvíld eða störfum. Það
er reisn yfir fólkinu, birta og ró...”
Jón Þorleifsson var Hornfirðing-
ur, fæddur 1891 og lést 1961. Hann
lærði í Kaupmannahöfn og París og
Frá Siglufírði (Málverk frá 1950).
var alkominn heim 1927. Hann var
myndlistargagnrýnir Morgun-
blaðsins lengi vel, og atkvæða-
maður var hann í félagsmálum
myndlistarmanna. Meðal annars
var hann aðalhvatamaður að bygg-
ingu Listamannaskálans og for-
stjóri hans um árabil.
-áb.
leiklist
Töfraflautan
í gærkvöldi var frumsýnd í Is-
lensku óperunni hin fræga ópera
Mozarts, „Töfraflautan”. Hljóm-
sveitarstjóri er Gilbert Levine og
leikstjóri Þórhildur Þorleifsdóttir.
Leikmynd og búninga gera þau Jón
Þórisson og Dóra Einarsdóttir.
Sýningar verða nú um helgina, í
kvöld kl. 20.00 og á sama tíma á
sunnudag.
Þá verða tvær sýningar á Litla
sótaranum á laugardag, kl. 14.00
og 17.00. Skólasýningar hafa verið
að undanförnu á þessari vinsælu
barnaóperu í samráði við tón-
menntakennara grunnskólanna.
Leikfélag Reykjavíkur
Fjögur leikrit
um helgina
í kvöld, íöstudag, er leikrit
Kjartans Ragnarssonar JÓI sýnt í
98. skipti hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur og er uppselt á þá sýningu.
Sömuleiðis er uppselt á Skilnað
eftir Kjartan á laugardagskvöldið,
en þetta nýja verk hans hefur vakið
verðskuldaða athygli, ekki síst
vegna nýstárlegrar sviðsetningar.
Á laugardagskvöldið er miðnæt-
ursýning í Austurbæjarbíói á Hass-
inu hennar mömmu eftir Dario Fo
en undanfarnar helgar hefur selst
upp á þá sýningu á svipstundu og
fólki því ráðlagt að draga ekki að fá
sér miða.
Á sunnudagskvöld er 5. sýning á
írlandskortinu, nýjasta verkefni
Leikfélagsins, en það er nýtt írskt
leikrit um samskipti írsks sveita-
fólks og breskra hermanna á síð-
ustu öld.
Aðeins tvær
sýningar eftir
á Gosa
„Hjálparkokkarnir” verða
frumsýndir í Þjóðlcikhúsinu í
kvöld, en önnur sýning á þcssum
gamanleik er á sunnudag.
„Garðveislan” er á laugardags-
kvöldið, en mikil aðsókn hefur ver-
iö að þessari umdeildu sýningu. Þá
er 45. sýning á „Gosa” á sunnudag,
og um kvöldið er „Tvíleikur” í
kjallaranum. Aðeins tvær sýningar
eru eftir á „Gosa”, sem Brynja
Benediktsdóttir skrifaði eftir sögu
Collodis, en Gosa sjálfan leikur
Árni Blandon. „Tvíleikurinn” hef-
ur vakið mikla athygli, og verður
næsta sýning eftir sunnudagssýn-
inguna á þriðjudagskvöldið.
Leikfélag Ákureyrar:
Mikil aðsókn
að „Atóm-
stöðinni”
Aðsókn að sýningu Leikfélags
Akureyrar á Atómstöðinni hefur
verið mjög góð og nú um helgina
verða þrjár sýningar, - í kvöld,
laugardagskvöld og sunnudags-
kvöld.
Gert_er ráð fyrir að farið verði
með þessa sýningu til Reykjavíkur
og hún sýnd þar, en hún hefur
hlotið mikið lof gagnrýnenda og
leikhúsgesta. Leikstjóri og höfund-
ur leikgerðarinnar er Bríet Héðins-
dóttir, en leikmynd gerir Sigurjón
Jóhannesson.
„Prestsfólkið”
„Prestsfólkið” verður sýnt í
Lindarbæ í kvöld kl. 20.30, en það
er Nemendaleikhúsið sem stendur
að þessari sýningu. leikstjórinn og
leikmyndateiknarinn eru finnskir,
Ritva Siikala og Pekka Ojamaa.
Sýningin hefur hlotið mjög góða
dóma gagnrýnenda.
Ingunn Jensdóttir leikur Skáld-Rósu, en hún er reynd leikkona og býr nú á
Tónlistarfélagið:
Píanótónleikar
í dag, laugardag, verða píanó-
tónleikar á vegum Tónlistar-
félagsins í Austurbæjarbíói. Þeir
hefjast kl. 14.30, en einleikari er
Eugene List.
Meðleikendur eru Guðný Guð-
mundsdóttir konsertmeistari og
Strengjasveit Tónlistarskólans.
Stjórnandi er Mark Reedman.
Á efnisskránni eru verk eftir
Brahms og Mendelssohn.
Stúden takjallarinn:
,Upp og ofan’
Hornafirði. Halldór Tjörvi sem Natan.
Leikfélag Homafjarðar
sýnir SKÁLD-RÓSU
Leikfélag Hornafjarðar er um þessar mundir 20 ára og sýnir í tilefni af
afmælinu Skáld-Rósu, eftir Birgi Sigurðsson.
Frumsýningin var í gærkvöldi, en leikstjóri að þessari sýningu er Jón
Sigurbjörnsson. Iiann setti verkið einnig upp í frumuppfærslunni í Iðnó.
Ingunn Jensdóttir leikur Skáld-Rósu, en Haukur Þorvaldsson og Halldór
Tjörvi Einarsson leika þá Ólaf ogNatan. Þess má geta að tveir afkomendur
Rósu leika í verkiiiu, en leikarar eru alls 19 talsins.
UPP OG OFAN, félagsskapur án
markmiðs, heldur hátíð, sem öllum
er frjálst að sækja, í Félagsstofnun
Stúdenta í kvöld og laugardags-
kvöld.
í kvöld koma eftirtaldar hljóm-
sveitirfram: Vébandið, Allsherjar-
frík, Q4U og Tappi Tíkarrass.
Laugardaginn 30. okt, koma
hins vegar eftirtaldar hljómsveitir
og listamenn fram: Magnús í
Hvalnum, Þór Eldon, Þorri,
Trúðurinn, Steinar Express og
Vonbrigði.
Egó í lands-
tónlist
Alþýðuleikhúsið:
Súrmjólk
á sunnudag
Undanfarið hefur Alþýðuleik-
húsið sýnt barnaleikritið Súrmjólk
með sultu í grunnskólum á höfuð-
borgarsvæðinu.
- Leikritið segir frá „venjulegri
fjölskyldu” í eldhúsinu sínu einn
sunnudagsmorgun og sýnir að jafn-
vel í eldhúsinu geta leynst ævintýri,
enda er undirtitill verksins „ævin-
týri í alvöru”. Nú gefst kostur á að
sjá Súrmjólk með sultu í Hafnarbí-
ói á sunnudaginn kl. 15 og verður
það 53. sýning.
f Hafnarbíói eru einnig hafnar
sýningar á unglingaleikritinu Ban-
anar, og næstu sýningar verða á
þriðjudag og miðvikudag kl. 20.30
MÍR-salurinn:
Mál dýranna
Kvikmyndasýning verður að
venju í MÍR-salnum, Lindargötu
48 n.k. sunnudag, 30. október, kl.
16.
Sýnd verður sovéska kvikmynd-
in „Mál dýranna”, þar sem greint
er frá rannsóknum á tjáskiptum
dýra og ýmiss konar merkjamáli
sem þau nota í samskiptum sínum.
Er þetta mjög fróðleg mynd, enda
hlaut hún verðlaun og margvíslega
viðurkenningu þegar hún fyrst var
sýnd fyrir 10-15 árum.
Penelope Roskell
meö píanótónleika
að Kjarvalsstöðum
Píanóleikarinn Penelope Roskeli
heldur tónleika í kvöld á Kjarvals-
stöðum og hefjast þeir kl. 20.30.
Þá heldur hún tónleika í Borg-
arnesi (hótelinu) á sunnudaginn kl.
15:30. Á efnisskránni eru verk eftir
Berg, Beethoven, Mozart og
Stravinsky.
reisu
Hljómsveitin Egó hefur nú lagt
land undir fót til kynningar vænt-
anlegri hljómplötu sinni, en einnig
munu þeir í ferðinni leika lög af
fyrstu plötu sinni, Breyttum tím-
um, og lög af sólóplötum Bubba
Morthens, ísbjarnarblús og Plág-
unni. Auk Bubba eru nú í Egói
Magnús Stefánsson, Rúnar Erl-
ingsson (og eru hér þá saman
komnir 3/5 Utangarðsmanna sá-
lugu) og Bergþór Morthens.
í kvöld leikur Egó á Seyðisfirði,
á morgun (laugardag) á Norðfirði,
á sunnudag á Reyðarfirði, mánu-
daginn 30. okt. á Laugum, 31. okt.
á Húsavík, 1. nóv. á Stóru-
Tjörnum í Ljósavatnsskarði,og 2.
nóv. í Menntaskólanum á Akur-
eyri, 4 nóv. í Dynheimum.
Stúdentakjallarinn:
Djass á sunnu-
dagskvöld
Djass verður í Stúdentakjallar-
anum á sunnudagskvöldið og hefj-
ast tónleikarnir kl. 9. Þeir sem spila
eru Tómas Einarsson, Friðrik
Karlsson, Gunnlaugur Briern og
Sigurður Flosason.
Baroktónlist
í Háteigskirkju
í kvöld verða haldnir tónleikar í
Háteigskirkju. Hubert Scelow kon-
tratenór, Sigurlaug Eðvaldsdóttir
og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar,
Bryndís Gylfadóttir sellóleikari og
Orthulf Prunner organisti Háteigs-
kirkju munu flytja kirkjutónlist frá
barokktímanum.
Á efnisskrá eru orgelverk eftir
Johann Sebastian Bach, kantatan
„O Spiritus Angelici“ eftir Gio-
vanni Battista Brevi og aríur úr ór-
atóríum eftir Georg Friedrich
Hándel. Tónleikar þessir hefjast
klukkan 20.30.
Fyrstu hljómleikarnir
Annað kvöld laugardagskvöld kl. 21.00, heldur íslenska hljómsveitin,
undir stjórn Guðmundar Emilssonar, sína fyrstu tónleika og verða þeir í
Gamla bíói.
Verk þau, sem hljómsveitin flytur að þessu sinni, eru eftir Gluck, Pál S.
Pálsson, Mozart og Beethoven. Einleikari verður Gísli Magnússon,
píanóleikari og flytur hann, ásamt hljómsveitinni, konsert eftir Mozart,
Yfirskrift tónleikanna er: „Austurríki - höfuðból tónlistarinnar“.
ýmislegt
Listmunahúsið:
„Rokk í
Frakklandi”
Menningardeild franska sendir-
áðsins mun standa fyrir sýningu,
dagana 30. okt. til 14.nóv. nk. í
Listmunahúsinu, sem ncfnist
„Rokk í Frakklandi”, þar sem
kynnt verður rokktónlist í Frakk-
landi síðustu 25 árin.
Sýningin samanstendur af 24
myndspjöldum og fylgir þeim texti,
sem hér fylgir með í íslenskri þýð-
ingu.
Þá hefur verið tekin saman 3ja
stunda tónlistardagskrá á segul-
bandi, sérstaklega fyrir þessa sýn-
ingu. Þar heyrist í öllum helstu
stjörnum franskrar rokktónlistar
frá því uppúr 1960.
Einnig mun gefa að líta á sýning-
unni úrval kvikmynda á mynd-
böndum, sem franska sjónvarpið
hefur gert um franska rokksöngv-
ara og hljómsveitir.
Kynning á
Menntaskólanum
við Hamrahlíð
í dag laugardag, þann 30. októ-
ber, gangast nemendur og kennar-
ar Menntaskólans við Hantrahlíð
fyrir almennri kynningu á starfsemi
skólans. Kynnt verður áfangakerfi
skólans og ennfremur verður gest-
um gefinn kostur á að skoða náms-
efni og kynna sér námstilhögun í
hverri grein fyrir sig. Nemendur
munu gangast fyrir kynningu á fjöl-
breyttu félagslífi, og þá mun kór
Menntaskólans við Hamrahlíð
syngja.
Skáksveit skólans, margfaldir
Norðurlandameistarar framhalds-
skóla, býður gestum að taka þátt í
fjöltefli. - Boðið verður upp á kaffi
og bakkelsi, og barnagæsla verður
á staðnum. Dagskráin hefst kl.
14:00.
Kaffi hjá Kvennadeild
Slysavarnarfélagsins
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins býður öllum félagskonum 65
ára og eldri til kaffidrykkju á morg-
un, laugardag, kl. 15:00 í húsi Slys-
avarnafélagsins við Grandagarð.
myndlist
Myndlistarsýning í Heilsuhœlinu
I Heilsuhæli Náttúrulækninga-
félagsins í Hveragerði stendur nú
yfir sýning á verkum Gríms Mar-
inós Steindórssonar. Hann sýnir
bæði málverk og höggmyndir en
opið er alla daga frá 14.00-18.00.
Guðjón og Guðrún opna
sýningu í Nýlistasafninu
Guðjón Kctilsson og Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir opna í dag, löstudag
sýningu í Nýlistasafninu, og verður hún opin frá kl. 16.00-22.00 alla daga
vikunnar til 6. nóvember.
Svava Sigríður í Gallerí Lækjartorg
Svava Sigríður Gestsdóttir opn- ttrt°rg> °g verður hún opin daglega
ar á morgun, laugardag, frá 14.00 — 21.00 til 7. nóvember.
myndlistarsýningu í Gallerí Lækj-
Mótel Loftleiðir
sími 22322
Maustið
sími 17759
Opið allan daginn alla daga.
BLOMASALUR: Opið alla
daga vikunnar frá kl. 12-14.30
og kl. 19-23.30
VINLANDSBAR: Opið alla
daga vikunnar frá kl. 19-23.30
nema um helgar, en þá er opið
til kl. 01. Opið í hádeginu kl. 12-
13.30 á laugardögum og sunn-
udögum.
VEITINGABÚÐIN: Opið alla
daga vikunnar kl. 0&-20.
Mótel Borg
sími11440
FÖSTUDAGUR
Opið frá kl. 22 - 03
Diskótekið Dísa
LAUGARDAGUR
Opið frá kl. 22 - 03
Diskótekið Dísa
SUNNUDAGUR
Opið frá kl. 21 - 01.
Nú dansar fólk gömlu dans-
ana. Hljómsveit Jóns Sig-
urðssonar og félaga leikur af
alkunnu fjöri.
Revlon sýnir nýjustu haust-
tískuna í make-up og Model-
samtökin sýna pelsa frá
Eggert feldskera og Tísku-
versluninni Sér á laugar-
dagseftirmiðdag.
Kaffi og sérbakaðar kökur á
boðstólum.
Fjölskylduhátíð á sunn-
udag.
í baðstofunni eru leiktæki,
vídeótæki með teiknimynd-
um, blöð o.fl. fyrir börnin.
Þar fá þau pylsur, hamborg-
ara, gos o.fl. og fóstran okk-
ar hún Ásta Hallgrímsdóttir
gætir þeirra á meðan full-
orðna fólkiö gæðir sér á
góðmetinu í aðalsalnum.
Borðapantanir í síma 17759.
rtún
sími 85090
FÖSTUDAGUR:
Gömlu dansarnir. Opið frá kl.
21-02 Hljómsveitin Urekar og
söngkonan Maddý Jóhapns
Mótel Saga
sími 20221
Mlúbburinn
sími 35355
FÖSTUDAGUR:
FÖSTUDAGUR
Átthagasalur: Opiö frá kl.
20.30 - 03. Hljómsveit Birgis
Gunnlaugssonar.
LAUGARDAGUR
Súlnasalur: Maturfrá kl. 19.
Hljómsveitin Geimsteinn
leikur fyrir dansi til kl. 03.
SUNNUDAGUR
Einkasamkvæmi.
Grillið
Opið öll kvöld frá kl. 19.
Mótel Esja
Skálafel!
sími 82200
FÖSTUDAGUR
Skálafell: Opið frá kl. 19.
Haukur Mortens og félagar.
Dansað til kl. 01.
LAUGARDAGUR
Skálafell: Opið frá kl. 19.
Dansað til kl. 01.
SUNNUDAGUR
Skálafell: Opið frá kl. 19.
Dansað til kl. 01.
Esjuberg
Allar helgar: Okkar góm-
sætu fjölskyldumáltíðir og
fríir hamborgarar fyrir börn-
in.
Og munið kaffihlaðborðið
alla sunnudaga.
Opið frá kl. 22.30-03 Hljóm-
sveitin Moby Dick og diskótek.
LAUGARDAGUR:
Opið frá kl. 22.30-03 Hljóm-
sveitin Moby Dick og diskótek.
læsibær
sími 86220
FÖSTUDAGUR:
Opið frá kl. 22-03 Hliómsveitin
Mars og diskótek.
LAUGARDAGUR:
Opið frá kl. 22-03 Hljómsveitin
Mars og diskótek.
SUNNUDAGUR:
Opið frá kl. 21-01 Hljómsveitin
Márs.
1»
órscafé
sími 23333
Föstudagur og Laugar-
dagur
Opnað fyrir matargesti kl.
20.00. Dansað til kl. 03.
Skemmtikvöld.
Dansbandið leikur fyrir
dansi á efri hæð en Diskó-
tekið í fullum gangi á neðri
hæðinni.
SUNNUDAGUR
Þórskabarett.