Þjóðviljinn - 26.11.1982, Qupperneq 1
Fftstudagur 19. nóvember 1982Íi^odviljinn — StÐA 9
Leiklist
Myndlist
Tónlist
Kvikmyndir
Skemmtanir
Félagslíf o.fl.
m
„Meira
gaman
að mála
en
smíða ”
segir
Páll ísaksson
trésmiður og
málari
Páll með eitt verka sinna. Ljósm. - eik.
„Það væri óneitanlega gaman að
læra meira. En það er dýrt fyrir
fjölskyldumann að hætta að vinna
og gerast námsmaður, auk þess
sem það er býsna ótryggt starf að
vera listmálari. En ég get ekki neit-
að ég vildi heldur fást eingöngu við
að mála en að vera trésmiður,“
segir Páll ísaksson trésmiður og á-
hugamálari frá Selfossi, sem opnar
sýningu á 34 verkum í Gallerí
Lækjartorg á morgun.
Páll vinnur við húsasmíðar, en
notar allan sinn frítíma í að mála.
Hann er formaður Myndlistarfé-
lags Árnessýslu, en í því eru 40
manns. Hann var einn vetur í
kvöldskóla hjá Handíða- og mynd-
listarskólanum í Reykjavík, en er
að öðru leyti sjálfmenntaður í
myndlistinni. Hann hefur áður
haldið einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum. Sýningu hans lýkur
5. des.
Norræna húsið:
Dagblaða-
teikningar
og
vegg-
spjöld
Á morgun, laugardaginn 27.
nóv. kl. 14.00. verður opnuð
sýning í Norræna húsinu á
blaðateikningum og vegg-
spjöldum eftir fínnska lista-
manninn Per-Olof Nyström.
PQNyström
Fumlandi .
Dagbladalcikningar <>g
vcggspjöld
Xorru'in/ l/iísii) í lliykjtn'ik
27111-9112 $2
Listamaðurinn verður viðstadd-
ur opnunina, en hann kemur hing-
að til landsins í boði Norræna húss-
ins og Myndlista- og handíðaskóla
fslands.
Per-Olof Nyström er fæddur í
Helsingfors 1925. Auglýsinga-
teiknari þar frá 1948 hjá Taucher
auglýsingastofunni, þar sem hann
starfar frá árinu 1961 sem listrænn
ráðunautur.
Sem listamaður á sviði vegg-
spjaldagerðar hefur hann tekið
þátt í mörgum alþjóðlegum vegg-
spjaldasýningum og á verk m.a. á
Museum of Modern Art í New
York. Hefur haldið sjálfstæðar list-
sýningar 1961 og 1978 ásamt mörg-
um sjálfstæðum sýningum á teikn-
ingum.
Dagblaðateiknari við Hufvud-
stadsbladet frá árinu 1964 (frílans).
Hefur verið formaður fyrir auglýs-
ingateiknarafélagið (Reklamgraf-
ikerförbundet) í Finnlandi og vara-
form. NT (Félag teiknara á Norð-
urlöndum). Hann hefur kennt við
Auglýsingaskólann og List-
iðnaðarskólann í Finnlandi.
Félagsfundur
Sjálfsbjargar
í Kópavogi
Þetta er í fyrsta sinn að félags-
fundur Sjálfsbjargar er haldinn í
Kópavogi. Fundurinn er haldinn á
morgun, laugardag, í Félagsheim-
ilinu (sami inngangur og á bæjar-
skrifstofurnar) en nýlega hefur ver-
ið steypt skábraut að þessum inn-
gangi og ný hjólastólaiyfta hefur
verið tekin í notkun á sama stað.
Vegna þessarar framkvæmdar er
nú öllu hreyfilömuðu fólki og öld-
ruðu kleift að komast inn á bæjar-
skrifstofurnar og í félags-
miðstöðvar. Þetta nýja aðgengi
léttir einnig fólki með barnavagna
að komast að þjónustu bæjarins.
Félagar Sjálfsbjargar í Reykja-
vík, Kópavogi, Seltjarnarnesi,
Hafnarfirði og Mosfellssveit eru
hvattir til að koma á félagsfundinn
og styrktarfélagar hafa rétt til fund-
arsetu með málfrelsi og tillögu-
rétti.
Líf
og land:
Vísinda-
þing
um
helgina
Samtökin LÍF OG LAND standa
fyrir borgaraþingi undir heitinu
MAÐUR OG VISINDI að Kjar-
valsstöðum nú um helgina.
Á vísindaþingi 82 mun 21 þekktur
fræði- og vísindamaður flytja stutt
erindi um sögu og stöðu vísinda á
íslandi. Jafnframt verða umræður
báða dagana um gildi vísinda og
áhrif þeirra á velmegun.
Jafnhliða vísindaþingi 82 munu
nokkur stór fyrirtæki, Flugleiðir,
Eimskipafélag íslands og IBM
sýna nokkra hluti er lýsa þeirri þró-
un sem orðið hefur í flugtækni,
skipastóli og tölvuvæðingu.
Samkvæmt venju verða erindi
vísindaþings 82 gefin út í bókar-
formi og höfð til sölu báða þingdag-
ana. Vísindaþing 82 er áttunda
þing samtakanna frá stofnun þeirra
fyrir fjórum árum.
Þingið og sýningin er öllum opin
og þátttaka er ókeypis.
Umræður eftir Garðveisluna
í kvöld, föstudaginn 26. nó-
vember verður 20. sýningin á
Garðveislu eftir Guðmund
Stcinsson í Þjóðleikhúsinu og er
þá ráðgert að bjóða upp á um-
ræður eftir sýningu. - Miklar
umræður og jafnvel deilur urðu
manna á mcðal og í fjölmiðlum
áður en verkið komst á fjalirnar
og í kringum frumsýninguna, en
nú þegar búið er að sýna verkið í
allt haust við ágæta aðsókn og
nokkuð langt er liðið frá því að
frumsýnt var, hyggst
Þjóðleikhúsið bjóða leikhúsgcst-
um fágætt færiá að ræða verkið
og uppfærsluna við aðstandcnd-
Stundar-
friður
i Ameríku
ur, höfundinn, leikstjórann og
leikmyndateiknara.
Annars er það nýjast að frétta
af Guðmundi Steinssyni að hann
er nýkominn heim frá Bandaríkj-
unum þar sem hann var m.a.
viðstaddur leiklestur á Stundarf-
riði í því fræga leikhúsi Intiman
Theater í Seattle í Washington-
fylki í tengslum við Scandinavia
Today.
Intiman Theater valdi fimm
norræn leikrit til þess að kynna
með leiklestri og bauð öllum höf-
undunum að vera viðstaddir. Það
var leikhússtjórinn Margaret Bo-
oker sem valdi verkin úr 200 norr-
ænum leikritum og voru þar á
meðal 15 íslensk leikrit. Önnur
leikrit sem þannig voru kynnt í
Seattle voru Ástarsaga aldarinn-
ar, eftir Márta Tikkanen, verk
sem Þjóðleikhúsið sýndi á Litla
sviðinu í fyrra, Ballerina, eftir
norska leikskáldið Arne Skouen,
en það verk fengum við að sjá hér
í sjónvarpi í norskri uppfærslu í
fyrra,tÚr lífi regnormanna, eftir
sænska leikskáldið Per Olov
Enquist, verk sem sýnt verður
hjá Leikfélagi Reykjavíkur í vet-
ur, og danska útvarpsleikritið Og
fuglarnir syngja aftur, eftir Ulla
Ryum. ,
Hvert verk var flutt tvisvar og
var nokkuð borið í leiklesturinn,
þannig var ráðinn leikstjóri fyrir
hvert þeirra og verkin að nokkru
sviðsett og í flutningmnum á
Stundarfriði voru jafnframt not-
uð ómissandi leikhljóð, síminn,
sjónvarpið, dyrabjallan o.s.frv.
Nú þegar hafa nokkur leikhús
vestan hafs sýnt áhuga á að taka
Stundarfrið til sýninga, en svo
sem kunnugt er þá verður Stund-
arfriður leikinn á Dramaten í
Stokkhólmi, á Konunglega
leikhúsinu í Kaupmannahöfn og
á Borgarleikhúsinu í Braunsweig
í Vestur-Þýskalandi nú í vetur. Þá
mun einnig fyrirhugað að Stund-
arfriður verði jólaleikrit Sjón-
varpsins íslenska í ár.