Þjóðviljinn - 03.12.1982, Blaðsíða 11
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. desember 1982
um hclgina
Föstudagur 3. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SiÐA 11
MUSICA ANTIQUA
tóralist
Passíukórinn á
Akureyri:
„Petite messe
solennelle” frum-
flutt í Aðaldal
leiklist
Stúdentaleikhúsiö
frumsýnir Bent
Stúdentaleikhúsið frumsýnir á
sunnudaginn í Tjarnarbíó leikritið
Bent í leikstjórn Ingu Bjarnason.
Með aðalhlutverkið fara Andrés
Sigurvinsson, Árni Pálsson og
Magnús Ragnarsson. Verkið, sem
er eftir Martin Sherman, hefur
vakið mikla athygli og verið sýnt
víða um heim, en það fjallar um
örlög fólks í fangabúðum nasista.
Sýningin hefst kl. 23.00.
Frönsk
kvikmyndahelgi
á Akureyri
Menningardeild franska sendi-
ráðsins og Borgarbíó standa fyrir
franskri kvikmyndahelgi á Akur-
eyri helgina 3. til 5. desember næst-
komandi. Sýndar verða í Borgarbí-
ói fjórar af þeim sjö myndum sem
sýndar voru á 7. Frönsku kvik-
myndavikunni í Reykjavík. Þær
myndir, sem hér er um að ræða,
eru: Moliere, Stórsöngkonan (Di-
va), Surtur (Anthracite) og Undar-
legt ferðalag (Un étrange voyage).
Dagskrá helgarinnar er svo-
hljóðandi: í kvöld, föstudaginn 3.
desember kl. 9 Moliere (fyrri
hluti); 4. desember kl. 6 Undarlegt
ferðalag, kl. 9 Surtur; 5. desember
kl. 5 Moliere (síðari hluti), kl. 9
Stórsöngkonan.
Þetta er í fyrsta skipti sem Menn-
ingardeildin gerir tilraun til að fara
með út á landsbyggðina einhverja
af þeim menningarviðburðum sem
Reykjavík hefur hingað til verið
ein um að njóta. Ef vel tekst til má
ætla að framhald verði hér á.
Þjoosogur i
Leikbrúðulandi
Á sunnudag kl. 3 verður sýning
fyrir alla fjölskylduna í Leikbrúðu-
landi. Það eru 3 þjóðsögur: Sagan
af Gípu, 18 barna faðir í álfheimum
og sögur af Sæmundi fróða.
Leikbrúðuland er til húsa að Frí-
kirkjuvegi 11. Miðasalan eropnuð
kl. 1 og þá eru líka teknar pantanir í
síma 15937.
ymislegt
Bókmenntakynn-
ing á Akranesi
Bókmenntaklúbburinn á Akra-
nesi gengst fyrir bókmenntakynn-
ingu á sal Fjölbrautaskólans
laugardaginn 4. desember kl.
14.00. Þar munu hjóna Jóna Sig-
urðardóttir og Sigurður Hjartarson
kynna bók sína, Undir Mexíkó-
mána. Þau munu lesa upp úr bók-
inni og einnig sýna litskyggnur frá
Mexíkó, en þar dvöldust þau um
tveggja ára skeið.
Þá mun og Þorsteinn Jónsson
kynna bók sína, Ættarbókina, en
sú bók er rit fyrir alla þá sem áhuga
hafa á ættfræði og skrá vilja ættar-
tölu sína.
Flóamarkaður
og basar
Kvenfélag Karlakórs Reykjavík-
ur heldur flóamarkað og basar í fé
lagsheimili kórsins að Freyjugötu
14 laugardaginn 4. desember kl.
13. Margir eigulegir munir bæði
notaðir og nýir.
Úr írlandskortinu
Leikfélag Reykjavíkur:
Síðasta sýning á írlandskortinu
Á laugardagskvöld verður síð-
asta síýning á írska verðlauna-
leikritinu írlandskortinu eftir Bri-
an Friel, sem Leikfélagið frum-
sýndi í haust. Athygli er vakin á
því, að aðgöngumiðar, sem seldir
voru á sýninguna, sem átti að vera
sunnudaginn 28. þ.m., en féll niður
vegna veðurs, gilda á sýninguna á
laugardagskvöld.
írlandskortið hefur vakið mikla
athygli alls staðar þar sem það hef-
ur verið sýnt. Það gerist í írskri
sveit á síðustu öld og lýsir sam-
skiptum sveitafólks við breska her-
menn, meðal annars ást írskrar
stúlku og bresks hermanns. Karl
Guðmundsson hefur þýtt verkið og
leikur hann jafnframt eitt aðalhlut-
verkið. Steinþór Sigurðsson gerir
leikmynd og búninga og leikstjóri
er Eyvindur Erlendsson. I öðrum
stærstu hlutverkum eru Ása Sva-
varsdóttir og Pálmi Gestsson, sem
bæði þreyta hér frumraun sína,
Steindór Hjörleifsson, Karl Ágúst
Úlfsson, Emil Gunnar Guðmunds-
son, Ragnheiður Steindórsdóttir,
Harald G. Haraldsson, Hanna
María Karlsdóttir og Kjartan
Ragnarsson.
Aðrar sýningar LR um helgina
verða sem hér segir: í kvöld er
Skilnaður, Hassið hennar mömmu
verður sýnt á miðnætursýningu í
Austurbæjarbíói á laugardags-
kvöldið og Jói verður sýndur á
sunnudag.
Þjóðleikhúsið:
Næstsíðasta sýning á Garðveislu
Úr Garðveislu, sem sýnd verður í næst síðasta sinn um helgina.
Dagleiðin langa inn í nótt,
meistaraverk Eugene O’Neill í
þýðingu Thors Vilhjálmssonar,
verður sýnt í 5. skipti í kvöld og
skal enn vakin athygli á því að sýn-
ingar á þessu leikriti hefjast hálf-
tímanum fyrr en venja er í
Þjóðleikhúsinu, eða kl. 19.30.
Leikstjórinn Kent Paul er amerísk-
ur og leikmynd, búningar og lýsing
eru verk Quentins Thomas. Rúrik
Haraldsson og Þóra Friðriksdóttir
leika Tyrone-hjónin, Arnar Jóns-
son og Júlíus Hjörleifsson leika
syni þeirra, en Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir leikur vinnukonuna.
Hjálparkokkarnir, gaman-
leikurinn eftir George Furth, verð-
ur sýndur á laugardagskvöldið.
Garðveisla eftir Guðmund
Steinsson verður á fjölunum á
sunnudagskvöld. Þetta er næst síð-
asta sýning leiksins fyrir jól.
Tvíleikur eftir Tom Kempinski
er á dagskrá á Litla sviðinu á sunn-
udagskvöld kl. 20.30 og er það síð-
asta sýning fyrir jól. í hlutverkum
eru Þórunn Magnea Magnúsdóttir
og Gunnar Eyjólfsson.
Guðmundur Pálsson í Ásmundarsal
myndlist
Guðmundur Pálsson opnar
málverkasýningu í Ásmundarsal á
morgun, laugardaginn 4. des. og
stendurhún til 12. desember. Þetta
er önnur einkasýning hans, en
hann sýnir 20 verk máluð í akrýl á
striga.
Signý Pálsdóttir, höfundur „Sigga”.
Nýtt íslenskt barnaleikrit hjá LA:
Meistarar
barokktímans
Þriðju tónleikar Musica Antiqua
á þessum vetri verða haldnir í
Þjóðminjasafninu laugardaginn 4.
desember kÍ. 17.00. Á efnisskránni
eru verk eftir þrjá meistara barokk
tímabilsins, þá Johann Sebastian
Bach, Georg Philipp Telemann og
Georg Friedrich Hándel. Að
vanda er leikið á eftirlíkingar af
hljóðfærum frá barokktímabilinu-
alt-blokkflautu, barokkfiðlu,
sembai og viola da gamba.
Flytjendur eru Camilla Söder-
berg, Michael Shelton, Helga Ing-
ólfsdóttir óg Ólöf Sesselja Óskars-
dóttir.
Hlustendum er velkomið að
skoða hljóðfærin og bera fram
spurningar að tónleikum loknum.
Norræna húsið:
Finnskar
listakonur flytja
þjóðlög á
sunnudag
Sunnudaginn 5. des. kl. 20.30
halda finnsku listakonurnar Raita
Karpo, söngkona, og Eeva-Leena
Sariola, kanteleleikari, tónleika í
Norræna húsinu. Á efnisskrá eru
finnsk þjóðlög. Listakonurnar eru
til íslands komnar á vegum Nor-
ræna hússins og Suomifélagsins í
tilefni af þjóðhátíðardegi Finna 6.
des. og koma þær einnig fram á
skemmtun Suomifélagsins að
kvöldi 6. des.
Kantele, brettissítar, er ævafomt
alþýðuhljóðfæri, upphaflega 5
strengja, en nútímakantele getur
haft allt að 30 strengi. Eeva-Leena
hefur frá blautu barnsbeini flutt
finnsk þjóðlög. Hún kennir tónlist-
arfræði og þjóðlagatónlist, en hún
hefur lokið kennaraprófi frá Síbelí-
usarakademiunni. Þar stundaði
Raita einnig nám, en sérsvið henn-
ar er finnsk þjóðlög. Hún hefur
sungið í finnsku óperunni, í sjón-
varpi og útvarpi og inn á plötur.
Þær hafa komið fram saman frá því
árið 1978 og fóru m.a. til Banda-
ríkjanna s.I. vor og kynntu hefð-
bundna þjóðlagatónlist frá Finn-
landi.
Háskólakórinn
Háskólakórinn efnir til tvennra
hljómleika á morgun, laugardag-
inn 4. desember, kl. 17.00 og
20.00, í Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut. Flutt verða verk eftir
HjálmarH. Ragnarsson. Flytjend-
ureru Kór Dómkirkjunnar, Marti-
nal Nardeu á flautu, Óskar Ingólfs-
son á klarinett og Snorri Sigfús
Birgisson á píanó, auk Háskóla-
kórsins.
Úr Töfraflautunni
Töfraflautan:
Levine tekin við stjórninni aftur
Sú bréyting verður á sýningum
íslensku óperunnar á Töfra-
flautunni eftir Mozart, að frá og
með föstudeginum 3. desember
mun Gilbert Livine taka við stjórn-
inni af Mark Tardue. Gilbert Le-
vine stjórnaði sem kunnugt er
fyrstu þremur sýningum Töfra-
flautunnar nú fyrr í haust. Gilbert
Levine mun stjórna fram til jóla,
en sýningar fram til jóla verða sem
hér segir: 3., 4., 5. og 11. og 12.
desember en þá er síðasta sýning
fyrir jól.
Kór Langholtskirkju:
Tónleikar í heilan sólarhring
„Hitatónleikar” verða í Lang-
holtskirkju um helgina. Þeir hefj-
ast klukkan 19.00 í kvöld, föstu-
dagskvöld, og standa til jafnlengd-
ar á laugardagskvöld - heilan sólar-
hring!
Það er Kór Langholtskirkju sem
stendur fyrir tónleikurnum en fjöl-
margir tónlistarmenn leggja kórn-
um lið í sjálfboðavinnu. Flytjendur
verða um 250; einsöngvarar, kór-
ar, blásara- og strengjasveitir og
einleikarar. Það verður klassísk
músík, djass og popp. Hljóm-
sveitin Hafrót mun til dæmis leika
aðfararnótt laugardags í um tvo
tíma.
Tilgangurinn með „Hitatón-
leikum” er að safna fé til að koma
hita í nýja kirkjuskipið. Ekkert
kostar inn en frjáls framlög eru vel
þegin.
Hér er ekki aðeins verið að reisa
kirkju. Þetta verður eitt besta tón-
leikahús landsins. Þess vegna vill
allt tónlistarfólk og unnendur tón-
listar yfirleitt fá húsið í gagnið sem
fyrst.
Passíukórinn á Akureyri er nú
að æfa Petite Messe Solennelle eftir
Rossini og mun flytja verkið tvisvar
nú í byrjun desember. Fvrri tón-
leikarnir verða að Ýdölum í Aðal
dal í kvöld föstudaginn 3. des. kl.
21.00 og hinir síðari í Akureyrark-
irkjusunnudaginn5. des. kl. 21.00.
Stjórnandi Passíukórsins er nú sem
fyrr Roar Kvam.
Flytjendur með kórnum að þessu
sin it eru allír utan einn búsettir hér
fynr norðan, en þeir eru: Signý
Sæinundsdóttir, Paula Parker,
Þuríður Baldursdóttir, Úlrik Ola-
son. Viktor Guðlaugsson og Mic-
hael J. Clarke.
Petite Messe Solennelle (stutt,
hátíðleg messa) (1864) er síðasta
stórverk Rossinis og hefur lent í
þeirri einkennilegu aðstöðu að
vera betur þekkt fyrir það sem hún
er ekki, heldur en það sem hún er.
Messan er í raun ekki stutt heldur
lengri í flutningi en flestar messur
og hátíðleikinn er vart nema hæfi-
legur. Rossini taldi að helgitónlist
þyrfti ekki endilega að vera
guðhrædd og iðrandi „ásjóna” er
væri úr tengslum við verald-
leikann. Messan ber keim af óper-
ustíl en gengur þó ekki jafn langt í
því efni og eitt eldri verka hans,
Stabat Mater.
Bergþóra og
Rúnar í Eyjum
Bergþóra Árnadóttir og Rúnar
Þór Pétursson verða í Vestmanna-
eyjum um helgina þar sem þau
munu kynna sína plötuna hvort.
Bergþóra kynnir sitt ágæta Berg-
mál, sem út kom í sumar, og Rúnar
Rimlarokk, f.h. fangahljóm-
sveitarinnar Fjötra á Litla Hrauni.
Báðar plöturnar munu þau hafa
með í farangrinum og hafa til sölu á
kynningarverði.
Bergþóra og Rúnar hafa að
undanförnu kynnt plötur sínar hér
og þar um landið, ýmist saman eða
sitt í hvoru lagi, við mjög góðar
undirtektir.
Abventu- og
jólasöngvar í
Háteigskirkju
Á sunnudagskvöldið 5. des. kl.
20.30 flytur kór Háteigskirkju
undir stjórn dr. Orthulf Prunner
aðventu- og jólasöngva úr „Litlu
orgelbókinni” (Orgelbúchlein)
eftir J.S. Bach. Jafnframt leikur
organistinn sálmaforleikina, sem
Bach samdi við þessa söngva.
Langflestir þessara aðventu- og
jólasálma hafa verið sungnir á ís-
landi áður fyrr og allmargir allt til
þessa dags, þótt nokkrir þeirra séu
nú tengdir öðrum tímum og at-
höfnum. Þetta eru aðrir tónleik-
arnir í Háteigskirkju nú á aðvent-
unni og hugsaðir sem íhugunarefni
fyrir hátíðina sem fer að höndum.
Siggi var úti
Sunnudaginn 5. desember frum-
sýnir Leikfélag Akureyrar barna-
leikritið ,^>iggi var úti“ eftir Signýju
Pálsdóttur leikhússtjóra L.A. sem
er jafnframl leikstjóri. Tónlistin í
leikritinu er eftir Ásgeir Jónsson,
söngvara Baraflokksins og hann
flytur hana ásamt Jóni Arnari
Freyssyni hljómborðsleikara og
Sigfúsi Erni Ottarssyni trommu-
leikara.
Leikritið gerist að mestu í ís-
lensku hrauni, þar sem líffræðing-
urinn Siggi hefur búið um sig í
helli, sem hann notar sem rann-
sóknarstöð til að kanna atferli ís-
lenska refsins. Hjón með 2 börn
tjalda í hrauninu ásamt afa barn-
anna, sem var fræg grenjaskytta.
Þetta fólk lendir í miklum ævintýr-
um og mannraunum í hrauninu, en
drýgstan þátt í því eiga tískudrottn-
ingin Stella, sem ætlar sér að
hagnast á loðfeldasölu og hjálpar-
kokkur hennar Úlfur, sem er
„tveggja þjónn“ - hann þykist líka
vinna fyrir líffræðinginn. Lítil tófa
er á stöðugri ferð um hraunið og á
sinn þátt í því að hlutir hverfa og
birtast aftur á dularfullan hátt.
Sýningin er unnin í mikilli sam-
vinnu fastra starfsmann leikhússins
- innanhússverk. Þráinn Karlsson
hefur hannað og stjórnað smíði og
leikmyndinni, Viðar Garðarsson
annaðist lýsinguna og Freygerður
Magnúsdóttir búningana. Leikarar
eru 9, þar af 3 börn.
Líffræðinginn Sigga leikur
Bjarni Ingvarsson, refaskyttuna
Marinó Þorsteinsson, foreldrana
Ragnheiður Tryggvadóttir og Jón-
steinn Aðalsteinsson, börnin Mel-
korka Óiafsdóttir og Gunnlaugur
Ingivaldur Grétarsson, skinnasal-
ana Sunna Borg og Theodór Júl-
íus og tófuna Jóhann Sara
Kristjánsdóttir.
Frumsýning verður 5. desember
kl. 5 og næstu sýningar helgina á
eftir. Þetta verður jólasýning
Leikfélags Akureyrar en í desem-
ber hefjast æfingar á Bréfberanum
frá Arles eftir Ernst Bruun Olsen í
þýðingu Úlfs Hjörvar og leikstjórn
Hauks Gunnarssonar.
Mótel Loftleiðir
sími 22322
BLÓMASALUR: Opið frá kl.
12-14.30 og kl. 19-23.30 alla
daga.
BLÓMASALUR: Danskt-
íslenskt jólaborð í hádeginu
frá kl. 11-14.30 alla daga.
Tískusýning föstudag kl.
12.30
Aðventukvöld sunnudag,
jólamatseðill, tískusýning
jólastemmning.
VÍNLANDSBAR: Opið alla
daga vikunnar frá kl. 19-23
nema um helgar, en þá er opið
til kl. 00.30. í hádeginu er opið
milli kl. 12 og 14.30 á laugar-
dögum og sunnudöqum.
VEITINGABUÐIN: Opið alla
daga vikunnarfrá kl. 05-20.
LEIFSBÚÐ: Á laugardag og
næstu tvö kvöld verður
kynning á Sharp-örbylgju-
ofnum milli kl. 14 og 16.
Mlúbburinn
sími 35355
Maustið
sími 17759
Opið allan daginn alla daga.
Fjölskylduhátíð á sunnudag.
í baðstofunni eru leiktæki, ví-
deótæki með teiknimyndum,
blöð o.fl. fyrir börnin. Þar fá þau
pylsur, hamborgara, gos o.fl.
og fóstran okkar gætir þeirra á
meðan fullorðna fólkið gæðir
sér á góðmetinu í aðalsalnum.
w
Jzíli
ótel Saga
sími 20221
FÖSTUDAGUR Opið eins
og venjulega. Kynning á fjöl-
breyttum jólaréttum.
LAUGARDAGUR: Laugar-
dagskvöld í Súlnasal. Mímisbar
og Grillið opið.
SUNNUDAGUR: Lokað í
Súlnasal. Mímisbar og Grill-
ið opið.
læsibær
sími 86220
FÖSTUDAGUR: Opið frá kl.
22.30-03. Hljómsveitin Galdra-
karlar leikur.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
:22.30-03. Hljómsveitin Galdra-
ikarlar leikur.
eitingahúsið
Borg
SUNNUDAGUR: Opið frá kl.
18-03. Diskótekið Dísa.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
18-03. Matur framreiddur frá kl.
18. Diskótekið Dísa.
SUNNUDAGUR: Gömlu dans-
:arnir kl. 21-01.
Mótel Esja
Skálafell
sími 82200
FÖSTUDAGUR: Opið frá kl. 19
á Skálafelli, Haukur Morthens
og félagar.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
19 á Skálafelli. Á Esjubergi höf-
um við fjölskyldutilboð föstu-
dag, laugardag og sunnudag.
Þriréttuð máltíð á vægu verði
og börnin borða frítt.
SKÁLAFELL: Módelsam-
tökin halda tískusýningu.
ESJUBERG: Föstudag og
laugardag kennir Ringel-
berg í Rósinni jólaskreyting-
arfrákl. 15-17. Barnagæsla
á staðnum.
FÖSTUDAGUR: Opið frá kl.
22-03. Hljómsveitin Glæsir og
diskótek.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22-03. Hljómsveitin Glæsir og
rli^kófpk
SUNNUDAGUR: Opið frá kl.
21-01. Hljómsveitin Glæsir og
diskótek. Oft nefndur heimsins
djarfasti dansflokkur sýnir öll
kvöldin.
M'
Æ.
rtún
sími 85090
FÖSTUDAGUR: Gömlu dans-
arnir.
LAUGARDAGUR: Einkasam-
kvæmi.
SUNNUDAGUR: Danskeppn-
in heldur áfram og hefst hún á
sama tíma og síðasta sunnu-
dag.
órscafé
sími 23333
FÖSTUDAGUR: Þórskabarett
1
LAUGARDAGUR: Þórskaba-
rett 2
SUNNUDAGUR: Þórskabarett
3
Opnað fyrir matargesti kl. 19.
Dansað til kl. 03. Dansbandið
leikur fyrir dansi á efri hæðinni
en diskótekið í fullum gangi á
neðri hæðinni.