Þjóðviljinn - 03.12.1982, Blaðsíða 19
Föstudagur 3. desembér lí>82 ÞJÓÐVILJINN — s'íÐA 19
RUV ö
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi. Morgunorð: Ingi-
björg Magnúsdóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Kommóð-
an hennar langömmu“ eftir Birgit Berg-
kvist Helga Harðardóttir les þýðingu
sína (9).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli sér um
þáttinn. --
11.00 íslensk kór- og einsöngslög.
11.30 Frá Norðurlöndunum Umsjónar-
maður: Borgþór Kjærnested.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
Á frívaktinni Margrét Guðmundsdóttir
klynnir óskalög sjómanna.
15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist eftir
Franz Schubert Theo Adams syngur
fimm Ijóðalög; Rudolf Dunckel leikur á
píanó / Jean-Rudolphe Kars leikur á pí-
anó Fantasíu í C-dúr op. 15.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.20 Útvarpssaga barnanna: „Leifur
heppni“ eftir Ármann Kr. Einarsson
Höfundur lýkur lestrinum (12).
16.40 Litli barnatíminn Stjórnandi: Dóm-
hildur Sigurðardóttir (RÚVAK).
17.00 Erindi um Adam Smith Haraldur Jó-
hannsson tekur saman og flytur.
17.15 Nýtt undir nálinni Kristín Björg
Þorsteinsdóttir kynnir nýútkomnar
hljómplötur.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Lög unga fólksins. Hildur Eiríksdótt-
ir kynnir.
20.40 Frá tónlistarhátíðinni í Vínarborg
s.l. sumar. Flytjendur: Das Ensemble
Kontrapunkte; stj. Peter Keuschnig,
Anna Gjevang mezzosópran, Rainer
Keuschnig píanóleikari og Georg
Sumpig fiðluleikari: a. Duo concertant
fyrir fiðlu og píanó b. Pribaoutki - söng-
lög með hljóðfæraundirleik.
21.15 Horace Parlan-tríóið frá Bandaríkj-
unum leikur í útvarpssal Kynnir: Vern-
harður Linnet.
21.45 Þáttur um skáldið Eggert Ólafsson.
Umsjón: Dr. Finnbogi Guðmundsson.
22.35 „Skáldið á Þröm“ eftir Gunnar M.
Magnúss Baldvin Halldórsson les (18).
23.00 „Kvöldgestir“ þáttur Jónasar Jón-
assonar.
01.10 Á næturvaktinni Sigmar B. Hauks-
son - Ása Jóhannesdóttir.
03.00 Dagskrárlok.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
21.00 Skonrokk Dægurlagaþáttur í umsjá
Eddu Andrésdóttur.
21.50 Kastljós Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn Bogi Ágústs-
son og Helgi E. Helgason.
23.00 Upp komast svik um síðir (The Glass
Key )Bandarísk bíómynd frá 1942 byggð
á sakamálasögu eftir Dashiell Ham-
mett. Leikstjóri Stuart Heisler. Aðal-
hlutverk Brian Donlevy, Alan Ladd og
Veronica Lake. Umdeildur stjórnmála-
maður, sem á í höggi við glæpahring, er
sakaður um morð mitt í tvísýnni kosn-
ingabaráttu. Þýðandi Jón O. Edwald.
00.25 Dagskrárlok.
Sjónvarp
kl. 21.50
Andropov
hinn nýi
leiðtogi
í Sovét
meðal efnis í
Kastljósi í kvöld
Kastljós er á sínum stað í
dagskrá sjónvarpsins og hefst
þátturinn kl. 21.50 og stendur
í röska klukkustund. Umsjón-
armenn þáttarins eru frétta-
mennirnir Bogi Ágústsson og
Helgi E. Helgason. Um sinn
hlut í Kastljósi hafði Bogi
þetta að segja:
„Mín umfjöllun er auðvitað
háð þeim fyrirvara að eitthvað
stórkostlegt gerist ekki eins og
t.a.m. þegar Breznev
Sjónvarp
kl. 21.00
íslensk
hljómsveit
í Skonrokki
í kvöld!
í kvöld verður sá merkisat-
burður í Skonrokki, að fram
kemur íslensk hljómsveit.
Lengi hefur staðið í stappi
mili íslenskra rokkhljóm-
sveita, FÍH og sjónvarpsins
um mál þetta vegna lagahnúta
og mun Jónas R. Jónsson,
upptökumaður og söngvari
(fyrrum?), vera sá sem helst
má þakka að hnútur þessi var
leystur.
Bogi Ágústsson
andaðist snemma í nóvember
mér auðvitað alveg að óvör-
um. Nú Sovétríkin og leið-
togaskiptin verða til umræðu
hjá mér enda má segja að mál
þar eystra hafi snert hvern
mann á Vesturlöndum. Eftir
andlát Breznevs hafa verið
miklar umræður í gangi um
arftakann Andropov, hvers-
konar maður hann í rauninni
sé og hvers megi af honum
vænta. Það eru ýmsar blikur á
lofti en væntanlega skýrist
Fyrsta íslenska hljóm-
sveitin sem kemur fram, og
það löglega, í Skonrokki er
Sonus futurae, en þeir gáfu
fyrir skömmu út sína fyrstu
Helgi Helgason
stefna og persónan Andropov
betur eftir því sem tíminn
líður.
Hitt málið er svo Egypta-
land. Nú er rúmt ár síðan Sa-
dat forseti var ráðinn af dög-
um við hersýninguna rétt fyrir
utan Kaíró. Ég mun gera mér
far um að gefa áhorfendum
innsýn í þá atburði sem
gerðust í kjölfar þeirra at-
burða og kastljósinu verður
einkum beint að hinum nýja
forseta Mubarak.
plötu, Þeir sletta skyrinu...
sem eiga það. Við bíðum
spennt eftir því og öðrum
„hræringi" sem Edda Andrés-
dóttir kynnir í kvöld.
íJtvarp kl. 11.30
Spilling
og mútur í
Finnlandi
I
Borgþór Kjærnested sér um
þáttinn Frá Norðurlöndunum
sem verður á dagskrá útvarps
kl. 11.30 og stendur þáttur
hans í hálfa klst.
„Ég verð með efni tengt
Finnlandi í þessum þætti og
kemur það til af þjóðhátíðar-
degi Finna sem er 6. desem-
ber næstkomandi. Máli mál-
anna í Finnlandi um þessar
mundir verða ferð nokkur
skil. Þar er um að ræða hina
miklu spillingu sem ríkir í
valdkerfinu. Fjöldi embættis-
manna og forstjóra hafa verið
handteknir fyrir mútþægni.
Þar má t.a.m. nefna þrjá for-
stjóra Siemens sem báru fé í
embættismenn í því skyni að
þeir keyptu tæki hjá fyrirtæk-
inu“, sagði Borgþór í spjaili
við Þjóðviljann.
Borgþór Kjærnested
Borgþór kvaðst einnig
mundu ræða um sænskumæl-
andi Finna, en þeir eru um 350
þúsund eða um 6% íbúa Finn-
lands. Þá verður einnig rætt
um Finna búsetta í Svíþjóð
sem að höfðatölu nálgast það
að vera jafnmargir og sænsku-
mælandi Finnar. Vandamál
þessa fólks eru margháttuð
með tilliti til menningarþarfa,
tungu og ýmislegs fleira.
Sonus futurae - „Framtíðarsándið“ - sem við munum heyra og
sjá í Skonrokki í kvöld.
frá lesendum
Hafnfirðingar hafa sína reynslu af erlendum atvinnurekstri í gegnum tíðina:
Eitthvaö
,varð að gera’
Ef Bæjarútgerðarinnar hefði ekki notið við, væri engin útgerð í
Hafnarfirði, segir gamall Hafnfirðingur m.a. í bréfi sínu.
Hafnarfirði 28. nóvember
1982
í blaðagrein í Morgunblað-
inu 27. nóv. sl. eftir Geir Ha-
arde, kemst hann að þeirri
bjargföstu skoðun (ekki trú),
að erlend stórfyrirtæki eigi að
eiga og reka að mér skilst
helstu stór atvinnufyrirtæki,
svo sem álverksmiðjur og
annan slíkan rekstur hér á
landi. Markaðsöflin eiga að
ráða ferðinni og hirða af-
raksturinn þegar vel gengur,
en loka öllu þegar á móti
blæs. Þessa menn varðar ekk-
ert um þó starfsmennirnir
verði atvinnulausir.
í fjölmiðlum hefur verið
skýrt frá því, að búið sé að
loka svo og svo mörgum ál-
verksmiðjum allt í kringum
okkur. Hvers vegna ekki hér á
landi líka? Er það ekki bara
vegna þess að hér borgar hver
rafmagnsneytandi að mestu
leyti rafmagnsverðið niður
fyrir Álverksmiðjuna og
skattgreiðandinn svo og svo
mikið fyrir Járnblendið: Ég sé
ekki mikinn mun á þvf.
Aðalatriðið er að vinna
haldist, ekkert er verra en
atvinnuleysi.
Hafnfirðingar hafa alveg
sérstaklega mikla reynslu af
erlendum atvinnurekstri hér í
bæ. Fyrst var það Bookless
Bros Aberdeen í Englandi.
Kom 1910 með fjóra togara
sem stunduðu veiðar frá
Hafnarfirði. Eigendur þessa
félags voru bræðurnar Harry
og Douglas Bookles og þeirra
Ragnar Halldórsson var
Ólafur V. Davíðsson. Hjá
þessu fyrirtæki störfuðu menn
svo hundruðum skipti (sbr.
Saga Hafnarfjarðar). Þetta
fyrirtæki varð gjaldþrota 1922
og var það mikið reiðarslag
fyrir Hafnarfjörð. Sem var þó
ekki eins algjört vegna þess að
þá voru íslenskir útgerðar-
menn og félög orðin til og
drógu mikið úr erlenda
högginu.
Næst kemur Hellyer Bros
Ltd. Hull með sex togara. Það
var 1925 og þá hljóp ofvöxtur í
bæinn og stóð til 1929. Þá
lækkaði fiskverðið og þá var
erlenda félagið ekki lengi að
loka og fara og vandinn sem
það skyldi eftir sig jaðraði við
neyðarástand, sem þá varðaði
auðvitað ekkert um sam-
kvæmt reglunni. „Hellyer
varð þess valdandi að Bæjar-
útgerðin var stofnuð", sagði
kunnur sjálfstæðismaður við
mig fyrir löngu síðan.
„Eitthvað varð að gera þegar
það erlenda brást“.
Ég get ekkert séð hættu-
legra í atvinnulífi íslendinga,
en erlenda eign, ráð, og stjórn
á aðalatvinnuvegum okkar.
Er það ekki það sama og ný-
'lenduþjóðirnar hafa allar
reynt að losna undan, en af
einhverjum ástæðum vildu
þeir erlendu eignamenn sem í
hlut áttu ekki sleppa tökum
sínum.
Þess vegna finnst mér að
skoðun Haarde líkjast meira
trú en skoðun og mér er alveg
sama hvort er og hef aldrei
vitað að þetta tvennt sé alltaf
rétt á hverju sem gengur.
Árið 1931 var Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar stofnuð til að
bæta úr þeirri nauð sem
myndaðist þegar Hellyer
fór, en vegna hans voru allt of
margir fluttir í bæinn. Síðan
hefur Bæjarútgerðin alltaf
gengið og bæjarbúar ráðið því
sjálfir hvort hún gengur eða
ekki. Mörg árin hefur hún
fengið fjármuni úr bæjarsjóði
og öfugt og aðalatriðið er að
hún gangi enda held ég að ef
hennar hefði ekki notið við
væri engin útgerð í Hafnar-
• firði, því Bæjarútgerðin hefur
verið kjölfestan í atvinnulífi
og útgerð bæjarins en ekki
neitt lotterí.
Gamall HafnFirðingur