Þjóðviljinn - 03.12.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.12.1982, Blaðsíða 3
Föstudagur 3. desemher 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 „Tölumar tala sínu máli” segir Pálmi Jónsson sigurvegari prófkjörsins í Norðurlandi vestra Pálmi Jónsson Samtök um kvennaathvarf: Opinn fundur um ofbeldi gegn konum „Eg er mjög ánægður með þessi úrslit í prófkjörinu og ég er þakk- látur stuðningsmönnum mínum fyrir drengilegan stuðning,“ sagði Pálmi Jónsson landbúnaðarráð- herra, sigurvegari í prófkjöri Sjálf- stæðismanna í Norðurlandskjör- dæmi vestra. Endanleg úrslit prófkjörsins urðu þau, að Pálmi hlaut 1138 at- Engln skerðing á elli- lífeyri! Frá því hefur verið gengið í ríkisstjórninni að bráðabirgða- lögin sem tóku gildi 1. desem- ber sl. skerða í engu greiðslur til ellilífeyrisþega með tekjutrygg- ingu. Tekjutryggingin var hækkuð sérstaklega 1. desember um 12.40%, en þá hækkuðu al- menn laun í landinu um aðeins 7.72%. Þá hefur verið ákveðið að tekjutryggingin hækki enn 1. janúar 1983 um 4.38% þannig að skerðingarákvæði bráða- birgðalaganna hafa engin áhrif á kaupmátt ellilífeyris með tekj- utryggingu. kvæði í 1. sæti og alls 1515 atkvæði. Eyjólfur Konráð Jónsson hlaut.807 atkv. i 1.-2. sæti og samtals 1163 atkv. í þriðja sæti varð Páll Dag- bjartsson með 900 atkvæði í þrjú efstu sætin, en í allt 1436 atkv. Ólafur Óskarsson varð fjórði með 1258 atkv. í fjögur efstu sætin og alls 1463 atkv. Jón ísberg varð í 5. sæti með 1273 atkvæði og alls 1372 atkv. Jón Ásbergsson hlaut 1306 atkv. alls og lenti í 6. sæti en hann var í þriðja sæti á lista floksins í kosningunum 1979. Þá hlaut flokk- urinn 1606 atkvæði, en í prófkjör- inu nú greiddu 1850 atkv.. „Við lok kosninga áætlaði ég varlega að ég myndi fá um 1000 atkvæði, en úrslitin urðu mér hag- stæðari“, sagði Pálmi aðspurður hvort úrslitin hefðu komið honum á óvart. Varðandi útkomu Eyjólfs Konr- áðs Jónssonar helsta keppinautar I dag kl. 13 hefst að Hótel Sögu, formanna- og flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins, en slíkir fund- ir eru haldnir annað hvert ár á milli landsfunda. í upphafi fundarins sem haldinn verður fyrir luktum dyrum eins og venja er til að sögn framkvæmda- stjóra Sjálfstæðisflokksins, mun Geir Hallgrímsson formaður Pálma, sem hlaut annað sætið en jafnframt fæst atkvæði fram- bjóðenda sagði Pálmi: „Ég vil ekki um það tala, en tölurnar tala sínu máli.“ Pálmi var spurður hvort líta beri á úrslit prófkjörsins sem stuðning við ríkisstjórnarþátttöku hans. Hann sagði: „Éghlýt að meta þessa útkomu sem dóm um störf mín og stefnu þar á meðal störf mín í þess- ari ríkisstjórn. Útkoman er hag- stæð fyrir okkur Sjálfstæðismenn í ríkisstjórn," sagði Pálmi. flokksins flytja ávarp og yfirlýsingu um ákvarðanir sínar í framhaldi af úrslitum í prófkjöri flokksins á dögunum, þar sem flokksformað- urinn lenti í sjöunda sæti. Um 300 fulltrúar eiga rétt til setu á formanna- og flokksráðsfundin- um sem verður fram haldið á laugardag. - lg- Samtök um kvennaathvarf efna til opins fundar á Hótel Borg sunn- udaginn 5. dcscmber n.k. kl. 14:00. Efni fundarins verður ofbeldi gegn konum. Á fundinum verður starf og markmið samtakanna kynnt og þar munu eftirtaldir aðilar flytja ávörp, en þeir hafa allir haft afskipti af eða kynnst ofbeldi gcgn konum í starfi sínu: Bjarki Elíasson, yfirlögreglu- þjónn, Ragnar Jónsson, læknir, Arnþrúður Karlsdóttir, fréttam- aður, fv. rannsóknarlögreglum. Ásdís Rafnar, lögfræðingur, Anna Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi og séra Jón Bjarman. Á næstunni munu samtök opna athvart fyrir konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi á heimilum sínum eða nauðgun og verður athvarfið opið allan sólarhringinn. Sími athvarfsins verður 21205. Pær konur sem þurfa á aðstoð að halda geta hringt og fengið upplýs- ingar um heimilisfang athvarfsins og leiðbeiningar um hvernig best sé að komast þangað. Athvarfið á að vera dvalarstaður, heimili, um lengri eða skemmri tíma. Pað er ekki meðferðarstofnun - það verð- ur enginn lagður inn og enginn út- skrifaður - heldur er markmiðið að veita þar hjálp til sjálfshjálpar. Konur geta haft börn sín með sér í athvarfið. Algerrar nafnleyndar verður gætt um þær konur sem til athvarfsins leita. Pað er von þeirra sem að fundin- um standa að hann megi verða fyrsta skrefið í þá átt að opna augu almennings fyrir því böli sem of- beldi gegn konum er, vekja um- ræðu og síðast en ekki síst fá stuðning í því markmiði samtak- anna að berjast gegn ofbeldi og veita þeim konum styrk sem of- beldi eru beittar. / Arni Bergmann áritar hjá MM Nú fer sá tími í hönd að höf- undar sitja í bókaverslunum og árita bækur sínar fyrir þá sem vilja. A morgun, laugardag, kl. 14- 16, mun Árni Bergmann rit- stjóri árita skáldsögu sína Geir- fuglarnir í Bókaverslun Máls og menningar, Laugavegi 18. Geir talar fyrir lokuðum dyrum Kynnlngarveitingar í matvörumarkaðnum í dag, föstudag 3. des. kl. 2-20 JL-húsið er opið í dag kl. 9-22 og á morgun, laugardag 4. des. kl. 9-16 JL-portið - nýr inngangur Fjöldi nýrra bílastæða í JL-portinu Stærri matvörumarkaður JL-húsið - 10 ára - afmælisafsláttur Gefum 10% aukaafslátt 26/11 til 4/12 af húsgögnum og rafljósum Notið tækifærið og verslið þar sem úrvalið er mest og kjörin best

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.