Þjóðviljinn - 07.12.1982, Síða 1
ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Meðaiefnis:
Evrópukeppni í
handknattleik,
Johan Cruyff.
Kostu-
legt
mark
Johan Cruyff, maðurinn á bak-
við velgengni Hollendinga á
knattspyrnusviðinu á áttunda árat-
ugnum, var í sviðsljósinu með liði
sínu, Ajax, í hollcnsku I. dcildinni
á sunnudag. Ajax lék við nýliða
Helmond Sports og hafði talsverða
yfirburði. Liðið fékk vítaspyrnu
sem Cruyff var falið að taka. Hann
stillit kncttinum upp en í stað þess
að skjóta, ætlaði hann að láta sem
hann hitti ekki knöttinn til að setja
markvörðinn úr jafnvægi. Fótur
Cruyff straukst við knöttinn sem
valt af stað og hjálpsamur mark-
vörðurinn kom hlaupandi og stillti
honum á sinn stað á ný. Cruyff
þakkaði fyrir þcssi barnalegu mis-
tök markvarðarins með því að
senda knöttinn rakleiðis í autt
markið. Cruyff skoraði tvö og Wim
Kieft tvö í 5-0 sigri. Ajax er efst en
I’SV Eindhoven er stigi á eftir.
vs.
Bailey
rekinn
Mike Bailey, fyrrum leikmaður
með Wolves, var rekinn sem fram-
kvæmdastjóri l.deildarliðs Brig-
hton í ensku knattspyrnunni í gær.
Bailey tók við liðinu í júní 1981 og í
fyrra náði það sínum besta árangri
l'rá upphati, 13. sæti í l.deild. Nú
gengur hins vegar allt á afturfótun-
um, fjórir tapleikir í röð í 1 .deild og
fallbarátta og þá er gripið til gamla
góða ráðsins, stjórinn látinn fjúka.
4.deildarlið Tranmere Rovers
verður ekki lýst gjaldþrota og leyst
upp eins og til stóðað gera í þessum
mánuði. Félagið hefur fengið lán
frá borgarráði Birkenhead, heima-
borgarinnar, og loforð fyrir vinátt-
uleikjum ' gegn nágrönnunum
stóru, Liverpool, Everton og
Manchester United, til að fá krón-
ur í kassann. -VS
Wat-
erschei
skoraði
7 úti
Waterschei, lið Lárusar
Guðmundssonar í belgísku knatt-
spyrnunni, hefur gengið mjög vel
það sem af er kcppnistímabilinu og
á sunnudag vann það glæsilegan
útisigur, 7-0, á nýliðum Seraing.
Standard Liege heldur þó efsta sæt-
inu, hefur betri markatölu en jafn-
mörg stig og Waterschei.
í Frakklandi komst Bordeaux
upp að hlið Nantes á toppnum með
26 stig eftir 3-2 sigur á botnliði Ro-
uen. Nantesgerðiámeðanjafntefli
gegn Nancy á útivelli, 2-2. Lens,
lið Teits Pórðarsonar, er áfram í
þriðja sæti. -VS
....— Umsión: ViðirSigurðsson
Víkingur-Dukla Prag
Atta marka tap
í slagsmálaleik
„Þetta var ægilegur slagsmálaleikur. Tékkarnir sá'u strax
hve fáliðaðir við vorum og lögðu greinilega allt upp ýr því að
berja sem mest á okkur. Dómararnir voru ungverskir og
höfðu engin tök á leiknum. Það grátlega við þetta tap er að allt
þar til 10 minútur voru til leiksloka munaði aðeins tveimur til
þremur mörkum, Dukla Prag t hag. Á venjulegum degi eigum
við að geta sigrað þetta lið“, sagði Guðjón Guðmundsson,
liðsstjóri íslandsmeistara Víkings í handknattleik, í samtali
við Þjóðviljann í gær, rétt eftir leik Dukla Prag og Víkings í
Evrópukeppni meistaraliða sem fram fór í gær. Dukla sigraði
23-15.
Víkingar urðu fyrir miklu áfalli
strax á 5. mínútu þegar Þorbergur
Aðalsteinsson, sem þá hafði
skoraö tvö mörk, varð að yfirgefa
völlinn tognaður á fingri og kom
ekki meira inná í leiknum. Munur-
inn var lítill á liðunum í fyrri hálf-
leik en Tékkar leiddu 10-8 i
leikhléi eftir að ungversku dómar-
arnir höfðu dæmt ógilt mark sem
Víkingur skoraði á síðustu sekúnd-
unni, ranglega að siign Guöjóns.
lVÍunurinn hélst tvi) til þrjú mörk
lengi vel en undir lokiö fóru Vík-
ingártiir að keyra upp hraöa sem
þeir réöu ekki við. Leikurinn
levstist upp í slagsmál og Steinar
Birgisson var útilokaður þegar 7
mínútur voru eftir.
Viggó Sigurðsson var marka-
hæstur í íslenska liðinu meö 4
mörk. Hörður Harðarson skoraði
3,Steinar3, I>orbergur2, Árni lnd-
riðason, Guðmundur Guðmunds-
son og llilmar Sigurgíslason eitt
Itver. Skemmtilegur hornamaður,
Toma, skoraði 8 marka Dukla Prag
og Salivar 6. Síðari leikur liðanna
verður í Laugardalshöll næsta
sunnudag og Víkingar gera sér
vonir um að tefla þar fram sínu
sterkasta liði en i gær vantaði þá
Sigurð Gunnarsson og Pál Björ-
gvinsson í lið íslandsmeislaranna.
-VS
Síðari leikur KR og
Zeljeznicar Nis:
„Þurfum
2500
manns“
„Við þurfum um 2500 manns á
lcikinn í kvöld til að standa sléttir
Ijárhagslega. Eftir þennan stórleik
hjá KR-liðinu er ég nánast öruggur
um að slíkur fjöldi mætir", sagði
Gunnar Hjaltalín formaður hand-
knaltleiksdeildar KK í samtali við
Þjóðviljann.
Tæplega tvö þúsund manns
borguðu sig inn í Laugardalshöl-
lina á fyrri leik KRxog /æljeznicar
NLs í Evrópukeppni bikarhafa í fyrra-
kvöld og urðu vitni að frábærri
frammistöðu KR-inga sem eiga alla
möguleika á að slá júgóslavncska
liðið út úr keppninni. Sjá nánar á
bls. 10 og II.
Spennan eykst
Þróttarar, liðið sem fyrr á þessu
ári komst í undanúrslit Evrópu-
keppni bikarhafa í handknattleik,
er komið í hullandi fallhættu í 1.
deild karla. I gærkvöldi lék liðið
við Fram í Laugardalshöll og mátti
þola tap, 23-20, í spennandi en ekki
að sama skapi vel leiknum leik.
Þessi úrslit færa gífurlega spennu í
fallbaráttu deildarinnar en eins og
kunnugt er taka liðin fjögur, sem í
mars berjast við fallið, stigin úr
forkeppninni með sér í þá baráttu.
Leikurinn var hnífjafn lengst af
en með því að skora fimm síðustu
mörk fyrri hálfleiks náðu Þróttarar
tveggja marka forystu fyrir lcikhlé,
12-10. Fram jafnaði strax í síðari
hálfleiknum og síðan var jafnt á
flestum tölum þar til Fram komst
tveimur mörkum yfir, 21-19. Páll
Ólafsson svaraði, 21-20, en Hann-
es Leifsson jók forystu Fram á ný,
22-20. I>á upphófst einn mesti darr-
aðardans og taugaspennu-faraldur
sem um getur og næstu mínútuna
héldu liðin knettinum í að meðal-
Staðan:
Staðan í 1. deild karla í hand-
knattleik er þá þessi:
KR...............10 7 0 3 246-190 14
FH.............. 10 7 0 3 262-218 14
Víkingur.........10 6 2 2 205-194 14
Stjarnan........ 10 6 0 4 210-205 12
Valur............11 5 1 5 227-208 11
Þróttur..........11 5 0 6 225-233 10
Fram............ 11 4 1 6 239-251 9
ÍR.............. 11 0 0 11 194-309 0
Fram vann
Fram vann góðan sigur, 16-11, á
IR í l.deild kvenna í handknattlcik
í gærkvöldi. Um helgina sigraði
I ram Víking 15-7, Valur og FH
skildu jöfn, 13-13, og ÍR sigraði
KR 17-15.
tali 5 sekúndur í senn. Sú vitleysa
tók örlagaríka stefnu 20 sekúnduni
fyrir leikslok þegar Hermann
Björnsson skoraði fyrir Fram, 23-
20, og sigurinn var tryggður.
Egill Jóhannesson og Ragnar
markvörður Kristinsson voru best-
ir í liði Fram. Egill skoraöi 7 mörk,
Hermann 4, Hinrik Ólafsson 4,
Hannes 3, Sigurður Svavarsson 3,
Erlendur Davíðsson og Björn
Eiríksson eitt hvor.
Páll Ólafsson bar af í slöku liði
Þróttar og þá varði Ólafur Bene-
diktsson ágætlega. Páll skoraði 6
mörk, Gísli Óskarsson 5, Jens
Jénsson 2, Magnús Margeirsson 2,
Ólafur H. Jónsson 2, Einar Sveins-
son, L-árus Karl Ingason og Lárus
Lárusson eitt hver. Með slíku á-
framhaldi bfður Þróttara ekkert
annað en fall í 2. deild.
Jón Hermannsson og Ólafur
Steingrímsson dæmdu þokkalega.
- VS.
körfuknattleikur, enska
knattspyrnan, o.fl.
Glenn Hoddle er kominn í enska
landsliðshópinn á ný en þessi snjalli
miðvallarspilari hefur verið afar
óheppinn með mciðsli að undan-
lörnu og misst af síðustu lands-
leikjum Englcndinga.
Hoddle
aftur í
lands-
liðiö
Glenn Hoddle, Tottenham, er
kominn í enska landsliðshópinn í
knattspyrnu á ný eftir langvarandi
mciðsli í haust og vetur. England
mætir Luxemburg á Wembley
þann 15. desentber og nái Iloddle
að leika verður það hans fyrsti'
leikur undir stjórn Bobby Robson
sem tók við landsliðinu í sumar.
Robson hefur oft látið hafa eftir sér
að hann myndi byggja enska lands-
liðið í kringum lloddle og því er
sennilegt að hann fari beint í
byrjunarliðið.
Ungu leikmennirnir Mark
Chamberlain, Stoke, og Tommy
Caton, Manchester City, eru einu
leikmennirnir í hópnuni sem ekki
eiga landsleik að baki. Sammy
Lee, Liverpool, heldur sæti sínu
eftir góða frammistöðu í Grikk-
landi á dögunum og fjórir leik-
menn, aðrir en Hoddle, sem hafa
átt viö meiðsli að stríða eru í hópn-
um; þeir Graharn Rix, Arsenal,
Alan Devonshere, West Ham, Ste-
ve Coppell, Manchester United,,
ogTerry Butcher, Ipswich. Athygli
vekur að Coppell skuli vera valinn
en hann hefur ekkert getað æft
með United að undanförnu, aðeins
leikið á laugardögum.
Enginn leikmaður frá Aston
Villa er í hópnum vegna leiks Villa
og Penarol í Tokyo þann 12. des-
ember urn heimsmeistaratitil
félagsliða.
Walesbúar eiga í miklum vand-
ræðum en þeir mæta Júgóslövum
sania dag, einnig í Evrópukeppni
landsliða. Alan Curtis, Neville So-
uthall og Gordon Davies eru allir
meiddir en Mike England,
landsliðseinvaldur, vonast til að
markaskorarinn Davis verði tilbú-
inn í slaginn. Einn nýliði er í lands-
liðshópi Wales, Nigel Vaughan frá
3. deildarliði Newport, en hann
hefur leikið mjög vel í vetur, sem
og lið hans sem er í hópi efstu liða
deildarinnar. - VS