Þjóðviljinn - 11.12.1982, Síða 4

Þjóðviljinn - 11.12.1982, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 11.-12. desember 1982 bókmcnntir Fögnuður og römmust raun Þorsteinn frá Hamri Spjótalög á spegil. Iðunn 1982 Það eru vetrarmyndir úr lífi skálds sem festar eru á blað í þess- ari bók. Leiðir eru fenntar, það vetrar á sumri, þungiyndið hvíta frystir vor sem bjóst til að vakna. Hugurinn, rétt eins og aldarfarið „er að snúast í norðankul". Og verður fátt til gteði í hjartafrostinu - eins þótt veturinn sé á einum stað vitur kallaður og beðinn að gæta draums í kyrrþey (Nótt). Árni Bergmann skrifar í kvöld raular hann fyrir einskis manns eyra út áflóa og kjökrar á morgun við fornan fjörustein að dul-málið skuli hér lastað, það er kærkomin ögrun á þeim tíma þegar hið auðvelda og sjálfsagða er í tísku og veðjað á upptalninguna. Og því skal heldur ekki gleymt, að einmitt í þessum kvæðum í Sturl- ungukvæðum til dæmis minnir Þorsteinn á óskeikula vígfimi sína með stuðla og rím. Engu að síður sæta meiri tíðindum hugarins nátt- úrureisur, festar á blað í örfáum dráttum, íslenskum og kannski um leið kínverskum eða japönskum: Friðsama haustlauf sem felur þig af ótta við storminn en gœlir við goluna veiztu veiztu hvaðan hvessir Fáir eða engir kunna betur en Þorsteinn frá Hamri að kveikja saman náttúrunnar ferli og tíðindi af innlöndum á þann veg að ekki verður framar að skilið. Fuglar sungu skáldinu heimsmynd, snjór er á öllum okkar aðþrengdu stíg- um, þessi „sýngjandi lækur er fjarskinn“: einsog séu þar móðurdyr - sár, einn sjálfur fjarskinn. Eins og fyrr hefur Þorsteinn í kvæðúm sínum viðkomu eftir- minnilega í sögu og sögnum og eru þær tilvísanir reyndar myrkar nokkuð sumar. Ekki svo að skilja, Þannig er kvæði sem heitir Líf II: tilvistarspurning hverfist í hvers- dagslegustu tíðindi af gróðri, vind- um og hausti og rísa þessir fáu þætt- ir upp til nýs lífs, allir sem einn. Eins og fyrr segir er fátt um upp- örvandi staðhæfingar í ljóðum þess- um og þótt því sé haldið fram í kvæðinu Líf I að við „rísum upp í Þorsteinn frá Hamri. regni og sól / endurborin til undra“ þá gengur það ekki fram af kvæðinu hvernig svo megi verða, því miður. Leiti menn huggunar í þessum vetrarkvæðum, þá mundi hana líkast til vera að finna í sjálfri skáldskaparíþróttinni: guð gaf mér orð að segja frá minni raun, segir annað skáld á öðrum tíma. Og Þor- steinn segir: Sótugan sálarlampa set ég á stofuþil og vona að kvœði mín kveiki blekkingu rökkursins burt En einnig sú von um skáld- skapinn er strax í næsta kvæði farin allrar veraldar veg. Kvæðið heitir Dísin og er frábærlega vel gjört, gengur það þegar í stað í flokk með bestu ljóðum um fögnuð ljóðsins og myrkar efasemdir um skáldsins iðju: Flaug ég um fold og víði, fögnuði laust i drúngað skap; stafur minn, steinbúasmíði, stjörnur úr köldum sálum drap og grœddi geðsmunakaunin. Brotinn er sprotinn blái bregðast mér dverganna hamarsgrip líka er sem ég sjái sundruð í naustum þeirra skip - og sú er mér römmust raunin. Svo mikið er víst að sú hin ramma raun sneiðir enn um hríð hjá ljóðavinum íslenskum - ekki síst vegna þess að dverganna hamars- grip hafa ekki brugðist Þorsteini frá Hamri. ÁB. Þar tók Bólu-Hjálmar andvörpin Hannes Pétursson: Misskipt er mannalánið Heimildaþættir 1 Iðunn 1982. Bók þessi geymir fimm æviþætti úr Skagafirði. Hinn fyrsti segir frá „gleymdri konu“, Sigríði Gunn- laugsdóttur, sem lenti í straffi seint á öldinni átjándu fyrir sauðaþjófn- að manns hennar, sem hún seinna ávarpaði svo í ljóðabréfi: /Eruskerrtum illskumanni af aulakyni minum eklamaka og vini monsér Gísla Gíslasyni. - en hún var virkur þátttakandi í Hannes Pétursson hefðbundnum og oft skemmtileg- um kveðskaparillindum þar nyrðra Einn þáttur segir frá Pétri þeim Eyjólfssyni, sem lenti í klóm breskra víkinga og öðru herskip- astússi á tímum Jörundar Hunda- dagakonungs. í þriðja þætti hefur Hannes safnað saman sem mestum fróðleik um móður Bólu- Hjálmars, Marsibil, sem átti sér sérkennilegan feril, og sýnist les- anda að þar séu öll kurl komin til grafar. Þá er nákvæm frásögn af Brekkuhúsum, „síðasta hæli Bólu- Hjálmars“, fólkinu sem þar bjó og aðstæðum þess. Lokaþátturinn er um sérlundað fólk og skemmtilegt sem í Teigakoti bjó í Tungusveit upp úr aldamótum. Efni af þessu tagi hefur orðið ýmsum höfundum tilefni til eins- konar heimildaskáldskapar þar sem farið er nokkuð frjálslega með og gerð tilhlaup til skáldlegra vanga- veltna um persónur, ákvarðanir þeirra og hlutskipti. Hannes Pét- ursson fer mjög spart með skálda- leyfin. Hann er nákvæmismaður í meðferð staðreynda og vill hafa af þeim sem mest not. Textarnir eru svo bornir upp af vönduðum vinnu- brögðum og prýðisgóðu málfari að viðbættum dágóðum skilningi á aldarfari. Stundum veltir Hannes Péturs- son því fyrir sér hvort það sé í raun- inni ómaksins vert að skrifa þætti af þessu tagi. Þegar hann ætlar sér að draga saman á einn stað það fróðleikssmælki sem til er um Brekkuhús segir hann: „Slíkt hefur að vísu lítið almennt gildi og á sér vart aðra réttlætingu en þá, að þar undir þaki tók Hjálmar skáld síð- ustu andvörpin og hóf Brekkuhús um leið til nafnfrægðar“. Þetta er greinargerð fyrir takmörkunum þáttagerðar af þessu tagi sem sjálf- sagt er að fallast á: hafirðu áhuga á tilefni þáttanna og sé samvisku- samlega unnið þá mega allir vel við una. En „almennt gildi“ þeirra getur svo verið í minna lagi. ÁB Hver var Einar Benediktsson? Seld Norðurljós. Björn Th. Björnsson ræðir við fjórtán fornvini Einars Benediktssonar. Mál og menning 1982. Björn Th. Björnsson segir svo frá í formála, að viðtöl þau sem í bókirmi birtast hafi verið tekin í sambandi við útvarpsdagskrá um Einar Benediktsson á aldarafmæli hans 1964. Þá hafi og verið ákveðið að geyma viðtölin og birta þau síð- an í fyllingu tímans meðal annars vegna þess hve opinská þau væru um „bresti og auðnuleysi þessa stórbrotna manns". Björn segir ennfremur, að þegar hann vann að gerð dagskrárinnar hefði hann haft áhuga á að fylla í eyður þær sem hann fann í rituðu efni um ævi skáldsins. Hann hafi haft áhuga á umbrotatímunum miklu í London, Kaupmannahafn- arárunum, auðnuleysi skáldsins rétt fyrir 1930, ævikvöldinu í Her- dísarvík, Títanfélaginu og fleiru. Bókin ber því vitni sem menn ættu vel að muna, að Björn Th. er ágætur til slíkra verka, hann spyr vel og skynsamlega. Sá sem þessar línur skrifar er ekki svo fróður um það sem skrifað hefur verið um Einar Benediktsson, að hann viti í hverjum mæli Birni hefur með samtölunum tekist að fylla í eyður. En það þykir lítt fróðum líklegt, að hafi tekist í vissum greinum: til dæmis að taka skal nefnt viðtal við Ragnar Jónsson um uppgjör foss- afélagsins Títans, sem bendir til þess að spekúlasjónir Einars hafi verið miklu raunsærri en margar þjóðsögur segja. í annan stað er mjög fróðlegt að lesa viðtalið við Sigfús Blöndahl, sem lýsir Einari af mikilli aðdáum en dregur í raun ekki fjöður yfir það að skáldið greip á stundum til afar hæpinna ráða í hinni listrænu sláttumennsku sinni. Þar má til dæmis taka, að Einar vill fá generalkonsúl íslands í Höfn til að gefa út vottorð um að nóg væri af kvarzi í Miðdal og borg- aði sig að hefja þar námuvinnslu. Það er líka mjög fróðlegt að heyra af tengslum Einars Benediktssonar við Christian Science: það var svo sannarlega hreyfing fyrir fortölu- meistara einsog Einar, en þessi am- rískættaði flokkur setur einmitt traust sitt á að einstaklingurinn geti af eigin hugarstyrk heilbrigður orð- ið og læknað aðra. Og er kannski ekki ýkja stórt stökk frá slíkum kraftaverkum til kraftaverka auðsöfnunar mikillar og skjótrar. Segir Sigfús að Einar hafi fengið ótrúlega mikið af fjármálasam- Einar Benediktsson böndum um Christian Science. I bókinni er einnig að finn miklu dauflegri viðtöl. Samferða menn Einars virðast sumir hverji hafa dáleiðst af honum gjörsam lega og rann sú hrifningarvíma ekk af þeim síðan. Svo mikið er víst, ai þeir sýnast ekki kunna neitt sér staklega vel við sig í „opinskáu tali. Þeir eru á bandi goðsagnarinn- ar alfarið. Sá kostur hefur verið valinn að birta viðtölin í heild, og því er óum- flýjanlega um ákveðnar endur- tekningar að ræða í bókinni. En hafi menn á annað borð áhuga á efninu má búast við að þeir fyrir- gefi auðveldlega þann ágalla. Og það mætti haglega bæta við það sem að framan segir alllöngum lista yfir fróðlega hluti sem fram koma í bókinni. Til dæmis að taka lýsingu Oscars Clausen á því hvernig Einar og aðrir áhugamenn um stækkun íslenska heimsveldisins átu Græn- land í líki mikillar tertu tilað efla með sér landvinningaþrótt! Þá er viðtalið við Gunnfríði Jónsdóttur mikil freisting þeim sem hafa gam- an af að lesa milli lína. Heimsókn til frú Hlínar í Herdísarvík er einn- ig mjög eftirminnileg og skaði að hún varð ekki lengri En sá viðmæl- andi sem kemst næst Einari Bene- diktssyni, stórbrotnum manni á forbrekkisgöngu, er Aðalbjörg Sigurðardóttir. Hún er hefur til að bera hreinskilni, skynsamlega kurteisi og góðan hug bæði til skáldsins og frú Hlínar. Myndakostur er í bókinni mikill og góður og er hún hinn virðuleg- asti gripur. ÁB

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.