Þjóðviljinn - 11.12.1982, Qupperneq 9
Helgin 11.-12. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Kvartett. Hina tvo vantar loka-
kaflann. Fyrir vikið uppskar Mozart
aðeins helming fjárins og ákúrur
frá föður sínum. Síðar endurtók
sama sagan sig, þegar tónskáldið
samdi þrjá síðustu strengjakvart-
etta sína fyrir Friðrik Vilhjálm II.
Prússakonung. Þá hafði einnig ver-
ið samið um 6 stykki.
Kvartett í A-dúr KV 298, leit
dagsins ljós næstum 10 árum síðar.
Öðru er oft haldið fram vegna þess
að á handritinu stendur „París
1778“. Þa.ð er þó ekki rithönd tón-
skáldsins. Fróðir menn benda á að
síðasti kaflinn (rondó), sé paródía
eða háð um stef eftir ítalska tón-
skáldið Paisiello. Stefið er úr óperu
Halldór B. }
Runólfsson
Das (jriWf ifWx-Tt'io
WULiam ikmnett.
skrifar
Wolfgang Amadeus Mozart (1756-91);
Flautukvartettar: D-dúr,
KV 285; A-dúr, KV 289;
C-dúr, KV 285b og G-dúr, KV 285a
Flytjendur: Grumiaux-tríóið
Arthur Grumiaux, fiðla
Georges Janzer, víóla
Eva Czako, selló
ásamt: William Bennett, flauta
Útgefandi: Philips 6500 034, 1982
Dreifing: Fálkinn
Mozart samdi fjóra flautukvart-
etta, þar af voru þrír þeirra skrif-
aðir á sama árinu. Þeir voru gerðir
samkvæmt pöntun hollensks efna-
manns, De Jean að nafni. Þessi
tónlistaráhugamaður bauð Mozart
200 gyllinni að launum fyrir 6
flautukvartetta. Þetta var árið 1777
og fyrri velgengni tónskáldsins var
á undanhaldi. Hirðir Evrópu höfðu
ekki lengur áhuga á „undrabarni"
sem komið var á þrítugsaldurinn.
Það reið því á að Mozart tækist að
lj úka við pantanir af þessu tagi, þar
sem drjúgur skildingur var í boði.
En vegna þess hve „illa hann
þoldi flautur" og sjálfan hinn hol-
lenska auðmann, sem hann nefndi
hinutn ýmsu nöfnum, urðu kvart-
ettarnir aldrei fleiri en þrír.
Reyndar er einungis einn þeirra
fullmótaður, hinn gullfallegi D-dúr
og flautuleikarinn, William Benn-
ett vinna einkar vel saman, tónn
Bennetts er breiður og hljómfagur.
Það kemur skýrast fram í hinu
undurfagra Adagio í h-moll
(miðkafla D-dúr Kvartettsins), hve
samhæfðir flytjendurnir eru og
túlkun Bennetts er þýð. Þess má
geta að Albert Einstein áleit þenn-
an kafla einn fegursta einleiks-
kafla, sem saminn hefði verið fyrir
flautu og undirleik.
En það má finna hér fjölmörg
dæmi önnur sem líkjast þessu, þar
sem hárfín túlkun fer saman við
fagra tónsmíð. Upptakan hjálpar
einnig til, hún er tær og í góðu jafn-
vægi. Líkt og margar upptökur sem
Grumiaux-tríóið hefur gert fyrir
Philips, er þessi í hæsta gæðaflokki.
Mozart
sem frumflutt var í Napolí, vorið
1786 og Vínarborg um haustið. Það
er því óhugsandi að Mozart hafi
samið verkið átta árum fyrr.
Þrátt fyrir þetta „gráa garnan"
sem tónskáldið hendir að kollega
sínum, er Kvartettinn fullkomlega
í anda Mozarts, snjall og hrífandi.
Túlkun hins fræga belgíska
fiðlara Arthur Grumiaux og félaga
hans, er hrein og silkimjúk. Tríóið
Eldhússtörfin verða
leikur einn með
KENWOOD
Komið og skoöið
úrval okkar af
KENWOOD
heimilistækjum
Fjarstýrðir
bílar í úrvafí
LAUGAVEGI 170- 172 SIMAR 11687 - 21240
F jórhjóladrifinn Blazer — með háu og lágu drifi,
Verð með f jarstýringu aðeins kr. 2.270.-
Póstsendum
TOrnSTUDDflHUSIÐ HF
Laugauegi lBVReutiauit 5=21901
Eitthvað meira en „bara föt