Þjóðviljinn - 12.01.1983, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 12. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Engin lög um
ofbeldismyndir
„Mál tengd vídeóvæðingunni hafa
ekki komið inn á borð hjá okkur,
önnur en hið svokallaða Vídeósón-
mál, þar sem starfsemi þess fyrir-
tækis þótti brjóta í bága við út-
varpslögin. Engar rannsóknir á því
sem vídeómarkaðurinn hefur uppá
að bjóða hafa farið fram af okkar
hálfu, né heldur höfum við fengið
kærur vegna ólöglegra spólna inná
borð. Ef við fáum kærur vegna
dreifingar á klámi, þá ber okkur að
rannsaka það. Um það eru skýr
ákvæði í 210. grein hegningarlag-
anna. Hinsvegar eru engin lög sem
ná yfir ofbeldismyndir,“ sagði Arn-
ar Guðmundsson deildarstjóri hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins í sam-
tali við Þjóðviljann.
Arnar kvaðst ekki hafa fengið
neinar kvartanir vegna þeirrar til-
teknu spólu sem sagt er frá hér í
blaðinu. Hann kvaðst hinsvegar
hafa fylgst með umfjöllun um spól-
ur af þessu tagi í sjónvarpi og
blöðum. -hól.
Leiðrétting:
Þrátt fyrir en ekki vegna...
í samtali við Ragnar Arnalds fjármálaráðherra í Þjóðviljanum í gær,
varð blaðamanni á meinleg villa. Haft var eftir Ragnari að meginskýringin
á hinni hagstæðu greiðslustöðu ríkissjóðs um sl. áramót væri sú að sjóður-
inn hefði greitt meira niður af lánum en sem nam lántökum á sl. ári.
Það er alveg rétt að ríkissjóður greiddi mun meira niður af lánum á sl.
ári en sem nemur nýjum lántökum, en síðan eru höfð endaskipti á hlut-
unum. Fjármálaráðherra tók auðvitað fram að þrátt fyrir hinar miklu
greiðslur lána væri greiðslustaðan viðunandi um áramótin, en alls ekki
vegna þeirrar staðreyndar.
Blaðamaður biðst afsökunar.
-v.
Leiðrétting áættfræði
í ættfræðiþætti í Sunnudagsblaði var sagt að Páll Jónsson, sonur Jó-
hönnu Pálsdóttur, væri giftur Ingibjörgu Eyþórsdóttur. Þau er hins vegar
skilin fyrir þremur árum. Heimildin sem farið var eftir, Frændgarður, var
röng að þessu leyti.
Á morgun, fimmtudaginn 13. janúar, verður Hannibal Valdimarsson, fyrrum forseti
Alþýðusambands íslands, áttræður. í tilefni þess hefur Alþýðusamband Islands haft
forgöngu um útgáfu bókar með efni eftir Hannibal sem hann hefur valið sjálfur og
búið til prentunar. Ólafur Björnsson prófessor ritar inngang og Ásmundur Stefáns-
son forseti ASI formála.
ÁSKRIFTARKJÖR
Bókin mun aðeins fást i áskrift og verður verð hennar með söluskatti kr. 494,00.
Meðfylgjandi er áskriftarmiöi sem væntanlegir kaupendur eru beðnir að fylla út og
senda til Alþýðusambands Islands fyrir 15. marz nk. í pósthólf 5076 Reykjavík.
TABULA GRATULATORIA
(HEILLAÓSKASKRÁ)
Nöfn áskrifenda verða skráð fremst í bókina í sérstaka heillaóskaskrá, TABULA
GRATULATORIA, og því er nauðsynlegt að þeir sem vilja gerast áskrifendur og fá
nöfn sín skráð geri það sem allra fyrst.
|
I
j
I
I
ASKRIFTARMIÐI
Ég undirrit.... óska hér með eftir að fá senda í póstkröfu samkvæmt tilboði
Alþýðusambands Islands bók þá er það hefur haft forgöngu um að gefin verði út
i tilefni áttræðisafmælis Hannibals Valdimarssonar:
(NAFN)
(HEIMILISFANG OG PÓSTNÚMER)
EINTAK/EINTÖK
Ef þér óskið eftir fleiru en einu eintaki, þá vinsamlegast setjið viðeigandi tölu
ofan viö orðin EINTAK/ EINTÖK.
f.h. Alþýðusambands Islands
Ásmundur Stefánsson, forseti
Blaðamaður Þjóðviljans horfði á
kvikmyndina Cannibal Holocaust:
/
Ohugnaður
Kvikmyndin Cannibal Holocaust er ekki beint mann-
bætandi. Losti, óhugnaður og höfðun til lægstu hvata
mannanna er það sem eftir stendur, þó að hún sé færð í
búning einhvers konar leiðangurs inn í frumskóga
Suður-Ameríku. Blaðamanni Þjóðviljans gafst kostur á
að sjá þessa mynd í gær en hún hefur verið gerð upptækr
í Noregi og Svíþjóð, en grunur leikur á að raunverulegt
morð sé framið í henni.
Leiðangur hvítra manna fer inn í frumskóga Suður-
Ameríku og kemst þar í tæri við indjána sem nota
eiturörvar og éta mannakjöt. Er óspart sýnt manndráp
með tilheyrandi kynfýsnum og mannakjötsáti á eftir.
Inn í þetta er fléttað nauðgunum, öðrum samfarasen-
um, dýrablóti, snákum, krókudílum og risaköngulóm.
Til þess að réttlæta gerð myndarinnar er hún færð í
þann búning að opinber nefnd sé að skoða kvikmyndir
af frumskógaleiðangrinum og er uinræðum blandað inn
í. Eru allir í nefndinni að sjálfsögðu ákaflega
hneykslaðir á því sem þeir sjá.
Eins og fleiri myndir af þessari gerð er hún tilbreyt-
ingalítil og kostar þolinmæði að horfa á hana til enda.
Ekki er þó að efa að hún festi börnin við skerminn.
Senan þar sem fullyrt hefur verið að indjánakonan sé
í raun og veru myrt er þannig að indjáni kemur að landi
og dregur konu upp úr fljótsleðjuna. Hún er bundin á
fótum og í leðjunni nauðgar hann henni. Síðan treður
hann leir upp í kynfæri hennar og lemur síðan stein
hvað eftir annað í höfuð hennar þar til hún hreyfir sig
ekki lengur. Að þessu búnu setur hann líkið um borð í
bátinn á ný og ýtir honum frá landi.
Svona hroðamyndir eru að sjálfsögðu mannskemm-
andi og ættu yfirvöld a.m.k. að vernda börn gegn þeim.
þeim.
-GFr
Hinn frjálsi vídeómarkaður:
Hér er myndrammi úr filmunni „Cannibal Holocaust", sem sýnir aðdrag-
anann að morðinu sem fullyrt er að sé raunverulegt. Myndin var tekin er
blm. skoðaði óhugnaðinn í gær. Ljósm. aa.
hHHI
BOÐSBRÉF