Þjóðviljinn - 12.01.1983, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 12.01.1983, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 12. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 RUV <9 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morg- unorð. Gréta Bachmann talar. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Líf“ eftir Else Chappel Gunnvör Braga les þýð- ingu sína (5). 9.20 Leikfimi. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Sjávarútvegur og siglingar Umsjón- armaður: Guðmundur Hallvarðsson. 10.45 íslenskt mál. Endurtekinn þáttur Margrétar Jónsdóttur frá laugard. 11.05 Lag og ljóð Þáttur um vísnatónlist í umsjá Inga Gunnars Jóhannssonar og Eyjólfs Kristjánssonar. 11.45 Úr byggðum Umsjónarmaður: Rafn Jónsson. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Dagstund í dúr og moll - Knútur R. Magnússon. 14.30 „Leyndarmálið í Engidal” eftir Hug- rúnu Höfundur les (12). 15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist eftir Jór- unni Viðar Jórunn Viðar leikur á píanó „Hugleiðingar urn fimm gamlar stemm- ur“ / Sinfóníuhljómsveit íslands leikur „Ólaf Liljurós", balletttónlist; Páll P. Pálsson stj. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn- ir. 16.20 Útvarpssaga barnanna: „Aladdín og töfralampinn” Ævintýri úr „Þúsund og einni nótt“ í þýðingu Steingríms Thor- steinssonar. Björg Árnadóttir les (1). 16.40 Litli barnatíminn 17.00 Bræðingur Umsjón: Jóhanna Harðardóttir. 17.55 Snerting Þáttur um málefni blindra og sjónskertra í urnsjá Gísla og Arnþórs Helgasona. 18.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Tilkynningar. Daglegt mál. Árni Böðvarsson flytur þáttinn. Tónleikar. 20.00 Afangar Umsjónarmen: Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 20.40 Kvöldtónleikar 21.40 Utvarpssagan: „Sonur himins og jarðar“ eftir Káre Holt Sigurður Gunn- arsson les þýðingu sína.(4). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 íþróttaþáttur Hermanns Gunnars- sonar. 23.00 Kammertónlist Leifur Þórarinsson kynnir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. RUV 18.00 Söguhornið Umsjónarmaður Guðbjörg Þórisdóttir. 18.10 Stikilsberja-Finnur og vinir hans Finnur hittir Jim Framhaldsflokkur gerður eftir sögum Marks Twains. Þýð- andi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.35 Furðufiskar Bresk náttúrulífsmynd um vatnafiska á suðurhveli sem klekja út hrognum sínum í kjaftinum. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 19.00 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Garbiel García Márques Sænski sjónvarpsmaðurinn Lars Helander ræð- ir við kóiumbíska rithöfundinn García Márques sem hlaut bókmenntaverð- laun Nóbels árið 1982. Þýðandi Sonja Diego. (Nordvision - Sænska sjón- varpið) 21.15 Dallas Bandarískur framhaldsflokk- ur um Ewingfjölskylduna í Texas. Þýð- andi Kristmann Eiðsson. 22.00 Á hraðbergi Viðræðuþáttur í umsjón Halldórs Halldórssonar og Ingva Hrafns Jónssonar. 22.55 Dagskrárlok. frá lesendum Rfldsstjómin, sem eykur skuldimar, magnar verðbólguna, orsakar aflatregðuna, veldur efnahagskreppunni austan hafs sem vestan o.s.lrv.. Óábyrg stjórnarandstaða eða... 12 á báti skrifa: Eða hvað? Eða að hún gerir sér enga grein fyrir hvað er að gerast í heiminum í kringum okkur. Vita þeir ekki, að það er alvarleg efnahagskreppa vest- an hafs sem austan? Ekki er það ríkisstjórninni að kenna. En það hlýtur eigi að síður að bitna á okkur. Vita þeir ekki, að fiski- flotinn hefur skilað miklu minni afla á árinu sem leið en hinu fyrra? Ekki er það ríkis- stjórninni að kenna. En það bitnar á okkur eigi að síður. Svona má halda áfram að telja það, sem ekki er ríkisstjórn- inni að kenna, en búnar samt á okkur. En svo talar stjómar- andstaðan, Sjálfstæðismen og kratar, eins og ailt þetta sé stjórninni að kenna og reyna að telja almenningi trú um það. Þeir, sem skilja ekki ein- faldar, alvarlegar staðreyndir betur en þetta, eru síst líklegir til að ráða bót á þeim. Þessir menn, sem hamast gegn stjórninni eins og allt sé henni að kenna, sátu 12 ár samfleytt í ríkisstjórn, í blómstrandi viðskiptaheimi. Vill ekki Þjóðviljinn rifja upp nokkur atriði, sem sýna stjórnvisku þeirra á árum engrar kreppu? Þeir saka ríkisstjórnina um verðbólgu og vaxandi er- lendar skuldir. Þó vita þeir að skuldirnar eru m.a. vegna þess að miklu rneira er flutt inn en út. Og það eru Sjálf- stæðismenn, sem mest flytja inn. í stjórnmálaályktun Sjálf- stæðisflokksins fyrir nokkru stendur: „Treysta verður atvinnu landsmanna með því að leysa atvinnulífið á ný úr viðjum ríkisafskipta". En samkvæmt því færu allir út- gerðarmenn á hausinn ef rétt er að allir séu að tapa. Og fari þeir á hausinn þá stöðvast út- gerðin. Og stöðvist hún verð- ur atvinnuleysi til lands og sjávar. Hvernig ætla Sjálf- stæðismenn að leysa þennan hnút án ríkisafskipta? Fyrst fara útgerðarmenn í opinbera sjóði og fá meginhluta kaupverðs skipanna. Borga sáralítið sjálfir. Þegar þeir svo komast í þrot með reksturinn þá hafa þessir sömu menn í hótunum við ríkisvaldið, fái þeir ekki meira fé. Hve margir þeSsara manna eru Sjálfstæð- ismenn? Og hvern þátt eiga Sjálfstæðismenn í þessu kerfi, sent þeir vilja nú leysa „úr viðjum ríkisafskipta?". Svona innantómar mark- leysur og blekkingar er að finna í „stjórnmálaályktun flokksráðs- og formannafund- ar sjáifstæðismanna", þeirri síðustu. En svo sannarlega á að leyfa öllum illa reknum fyrir- tækjum að fara á hausinn í stað þess að halda þeim uppi með almannafé. Hinu sama gegnir með frystihúsin. Hve mörg frystihús eru t.d. hér á Suðurnesjum? Væri eitt full- komið ekki nóg og hagkvæm- ara hverjum stað? Sjálfstæðismenn hafa setið oft og og lengi í ríkisstjórn. Hversvegna liafa þeir ekki losað þetta allt „úr viðjum rík- isvaldsins“? Nú ætla þeir að „ná efna- hagslegu jafnvægi með lækk- un verðbólgu". Hver var reynslan er þeir fóru með stjórn? Vill Þjóðviljinn ekki rifja það upp? Og vill hann ekki fara yfir þá 17 liði, sem birtir voru í Mbl. 7. fyrra mán- aðar? Sjálfstæðismenn og kratar hóta að fella bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar, þótt þeim sé ljóst, að það myndi stór- auka verðbólgu, sem þeir ætla samt að lækka. Og þessar mótsagnir ætla þeir að fram- kvæma undir slagorðunum: „Ábyrgð í stað upplausnar". En með því að fella bráða- birgðalögin eru þeir einmitt á fullkomlega ábyrgðarlausan hátt að skapa upplausn. Og þá eru þeir búnir að snúa þessurn áferðarfallegu slagorðum sín- um í andstæðu sína. Og svo eru þessir menn að biðla til kjósenda og lofa að leysa, - líklega kreppuástandið í Bandaríkjunum og Evrópu og afleiðingar þess, sem engin ís- lensk ríkisstjórn getur leyst. Sjálfstæðismenn og kratar, sem heita glundroða hafi þeir bolmagn til, eru manna ólík- legastir til að leysa alvarlegan vanda. Samkvæmt hótunum sínunt og glamurályktunum ættu þeir að breyta slagorðum sínum í: „Ábyrgðarlaus upp- lausn“. Það er í fullu samræmi við ábyrgðarlausar hótanir þeirra, sem á engan hátt er unnt að verja og vitna um vilja til að skapa öngþveiti í von um að eiga þá auðveldari leið í ráðherrastólana. Þeir hafa áður setið þá stóla án þess að leysa rninni vanda en nú er við að glíma af orsök- um, sem rangt væri að kenna neinni ríkisstjórn um. Jafn blindri, hatursfullri og ábyrgðarlausri stjórnarand- ‘stöðu á þjóðin ekki að fá neina stjórntauma í hendur. Forði hamingjan henni frá því. Menn, sem afneita staðreyndum, eiga ekki að fara með stjórn. Stjórnin hef- ur átt við meiri vanda að glíma en nokkur stjórn um áratugi og tekist svo vel, þrátt fyrir óábyrga andstöðu, að ástæða er til að styðja hana. En leiðinlegt er, að Framsókn skuli reynast óheil er á reynir. Og á smánarlegan hátt. - Vöndum val þingmanna við næstu kosningar. rnahorn Barnahornið fær alltof fáar myndir sendar frá krökkum sent búa úti á landi. Hér eru þó tvær myndir sem við eigum í fórum okkar. Það er heijarmikili leikvöllur fyrir utan húsið sem hann Eiríkur Ingi frá Laugarvatni teiknaði. Bæði róla og sandkassi þar sem einhver unir sér hið besta. Það sigla engar skútur á Möðruvöllum sem er sveitarbýli á Norðurlandi. Jón Helgi, sem býr á Möðruvöllum, teiknaði þessa fallegu mynd af skútu sem ber einkennisstafinn 1, en nafnið á skútunni höfum við ekki. í dag ætlum við að teikna annan skrýtinn karl. Hann er aldeilis mj ór þessi. Ef þið vitið hvernig tölustafurinn 1 lítur út sent þið vitið auðvitað öll söntul, þá ér ekki ntikill vandi að teikna þenna skrýtna karl, eins og þið sjáið á inyndinni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.