Þjóðviljinn - 12.01.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 12.01.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 12. janúar 1983 ALÞÝÐU BAN D ALAGIÐ Alþýðubandalagið á Vesturlandi Fyrri umferð forvals vegna röðunar á lista flokksins í komandi alþingis- kosningum skal lokið eigi síðar en 16. janúar næstkomandi. Kjörgögn hafa verið send formönnum flokksfélaganna í kjördæminu. Stjórn kjördæmisráðs Alþýðubandalagið Hafnarfirði Opinn fundur um húsnæðismál Alþýðubandalagið í Hafnarfirði boðar til opins fundar um húsnæðismál fimmtudag- inn 20. ianúar að Strandgötu 41, kl. 20.30. Framsaga: Ólafur Jónsson stjórnarfor- maður Húsnæðismálastofnunar. Almennar umræður á eftir. Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið Akranesi Fyrri umferð forvals fer fram laugardag og sunnudag 15. og 16. janúar næstkomandi. Allir félagsmenn AB á Akranesi eiga rétt á þátttöku í forvalinu. Nánari upplýsingar varðandi forvalið verða sendar félags- mönnum föstudaginn 14. janúar. Upplýsingar um félagatal gefa þeir Arsæll Valdimarsson s. 1384 og Guðjón Ölafsson s. 1894 á laugardag, en á sunnudag eru upplýsingar gefnar í Rein s. 1630. Kaffiveitingar verða í Rein á sunnudag kl. 15. Félagar! Takið virkan þátt í forvalinu. Drekkið síðdegiskaffi í Rein. Stjórnin Alþýðubandalagið Borgarnesi - nærsveitum Félagsfundur. Forval. Almennur félagsfundur fimmtudaginn 13. janúar næstkomandi í Hótel Borgarnes kl. 20.30. Fundarefni: 1) Tilnefning í fyrri hluta forvals. 2) Röðull. 3) Héraðsmálefni. Skorað er á félagsmenn að fjölmenna og taka þátt í forvalinu. Stjórnin. Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi eystra - Fyrri hluti forvals Fyrri hluti forvals Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra fer fram í þessari viku. Framkvæmd þess er í höndum uppstillingarnefndar- manna á hverjum stað með aðstoðarmönnum sem félögin tilnefna. Forvalið fer fram sem hér segir: Ólafsfjörður: Að Aðalgötu 1, fimmtudag 13. jan. kl. 20-23. Dalvík: Að Bergþórshvoli, laugardag 15. jan. kl. 13-17. Akureyri: í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, föstudag 14. jan. kl. 17-19 og laugardag 15. jan. kl. 14-18. S-Þingeyjarsýsla: Þar verður kjörgögnum dreift um eða upp úr helginni 9. jan. og þeim safnað saman fyrir 14. janúar. Húsavík: í Snælandi, laugardag 15. jan. kl. 10-12 og 13-16. Raufarhöfn: í Hnitbjörgum, sunnudaginn 9. jan. kl. 16-19. Þórshöfn og nágrenni: Að Vesturvegi 5, þriðjudag 11. og miðvikudag 12. janúar kl. 13-16. Reykjavík Á skrifstofu Alþýðubandalagsins, Grettisgötu 3, mánudag 10. og fimmtudag 13. jan. kl. 9-17. Forvalsreglur Atkvæðisbærir eru fullgildir félagsmenn í Alþýðubandaiaginu, sem eru skuldlaúsir á forvalsdegi. Hægt er að öðlast þátttökurétt með því að ganga í flokkinn í síðasta lagi á forvalsdag. Á kjörseðil fyrri áfanga skal rita nöfn fjögurra manna, og fylgi heimilis- fang eða sveitarfélag hverju nafni. Nöfnin eru óröðuð en rita skal nöfn úi fleiri en einni flokksdeild. Kjörseðill er því aðeins gildur að þessum reglum sé fylgt. Atkvæði úr fyrri umferð verða talin á Akureyri 16. janúar hafi þau þá borist alls staðar að. Fyrirhugað er að síðari umferð fari fram fyrstu dagana í febrúar. U ppstillingarnefnd Uppstillingarnefnd skipa Sigríður Stefánsdóttir, Akureyri, Páll Hlöðversson, Akureyri, Svanfríður Jónasdóttir, Dalvík, Björn Þór. Ólafsson, Olafsfirði, Sigurður R. Ragnarsson, Mývatnssveit, Örn Jó- hannsson, Húsavík, Þorsteinn Hallsson, Raufarhöfn, Ragnar Sigfússon, Þistilfirði. Alþýðubandalagið í Reykjavík - Greiðum félagsgjöldin fyrir forval Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur félagsmenn sem enn skulda gjaldfallin félagsgjöld til þess að greiða þau fyrir forvalið 14.-16. janúar. - Stjórn ABR. Alþýðubandalagið í Kópavogi - Bæjarmálaráðsfundur Bæjarmálaráð Alþýðubandalagsins í Kópavogi heldur fund miðvikudag- inn 12. janúarkl. 20.30 íÞinghóli. Fundarefni: Starfsmannamál, skólamál og önnur mál. Utankjörfundarkosningin Unnt verður að kjósa utan kjörfundar á hverjum stað og ber þeim sem þess óska að hafa samband við uppstillingarnefndarmann. Þá er einnig hægt að kjósa hjá því félagi í kjördæminu, þar sem viðkomandi kann að verða staddur á forvalsdegi þess, auk kosningarinnar í Reykjavík sem getið er hér að ofan. Frá Félagi rækjuvinnslustöðva:_ Villandi samanburð ur á rækjuverðinu Þjóðviljanum hefur borist eftir- farandi greinargerð frá Félagi rækjuvinnslustöðva, sem svar við fréttum frá Noregi um verð á rækju þar og hér. Þjóðviljinn harmar ódrengilegar aðdróttanir að Matt- híasi Garðarssyni, heimildarmanni Þjóðviljans um málið, þær koma því alls ekkert við í Þjóðviljanum sl. föstudag 7. janúar er birtu verðsamanburður á rækju í Noregi og hér á landi, hafður eftir Matthíasi Garðarssyni, titluðum sjávarútvegshagfræðingi, sem sagður er starfa á vegum norska sjávarútvegsráðuneytisins í Bodö í Noregi. Þar sem samanburður Matthías- ar gefur mjög villandi og ranga mynd af rækjuverði í Noregi og hér á landi, telur Félag rækjuvinnslu- stöðva nauðsynlegt að fram komi leiðréttingar og viðbótarúpplýsing- ar, sem skýrlega sýna, hversu samanburður Matthíasar er út í hött: Matthías virðist annars vegar bera saman norska rækju, sem soðin er og flokkuð um borð í veiði- skipi og hins vegar íslenska rækju, sem landað er til pillunar. Hann virðist ekki vita, að í þessu tilviki er norska rækjan nánast fullunnin vara, og rækja til pillunar í Noregi er afgreidd á allt öðru og lægra verði, enda bæði þyngri ósoðin og smærri. Reyndar kemur fram, að vikuafli hins norska báts er aðeins 'h tonn, þannig að augljóst er af þeirri staðreynd, að nánast er um að ræða fullunna markaðsvöru. Rækja, sem landað er I Noregi til pillunar, er verulega stærri, heldur en íslensk vetrarrækja. Þannig er skelflett norsk rækja oftast af stærðinni 200-300 eða 250-350 pr. lb., en íslensk vetrarrækja er að meirihluta til af stærðinni 450-600 pr. lb. Verðmunur á markaði er oft 15-20% á milli tilgreindra stærða. Norsk rækja til pillunar er langt- um hagstæðara hráefni til vinnslu, heldur en smáa íslenska vetrar- rækjan. Bæði kemur hér til stærð- armunurinn, en þó einkum hve norska rækjan er skelþynnri og gef- ur þar af leiðandi meiri fisknýt- ingu. Algeng nýting í Noregi er 27- 30%, þegar nýting hér á landi er aðeins 18-21%. Þessi nýting hefur sl. 2-3 ár verið margsinnis staðfest með athugunum Rannsóknastofu fiskiðnaðarins, sem farið hafa fram| undir stjórn Verðlagsráðs sjávarút- vegsins. Flutningskostnaður frá íslandi til Bretlands og meginlands Evr- ópu, sem er helsta markaðssvæðið er töluvert hærri frá íslandi en frá Noregi. Einnig má það koma fram hér, að fragttaxtar frá íslandi eru um 50% hærri fyrir blokkfrysta rækju, heldur en fyrir blokkfrystan fisk með sama rúmmáli og 22% hærri fyrir lausfrysta rækju heldur en lausfrystan fisk. Útflutningsgjöld eru greidd hér á landi af frystri rækju. Að undan- förnu 5,5% af útflutningsverði og áætlanir uppi um hækkun í 9,5%. I Noregi eru engin slík gjöld greidd. Hins vegar greiðir norska ríkið stórkostlega styrki til rækjuvinnsl- unnar eins og raunar meira og minna til allrar sjávarafurða- vinnslu í Noregi. Hráefnisverð á rækju var ekki kr. 6,50ásl. ári. Meðalverð sumar- rækjunnar var um kr. 10,50 á kg. (Tveir aðalstærðarflokkarnir voru á kr. 11,01 og kr. 9,60). Nóvemb- erverðið var kr. 7,55 hjá tveimur verksmiðjum við Húnaflóa, einni við Arnarfjörð og fjórum við ísa- fjarðardjúp (meðalverð allra 7 verksmiðjanna). Síðan var allt fisk- verð og rækjuverð hækkað 1. des- ember sl. um 7,72%. Gengisþróun sl. 2 ára hefur verið óhagstæð fyrir rækjuveiðar og vinnslu. Rækjan er svo til eingöngu seld til Evrópulanda og hefur því ekki náð dollarahækkun eins og flestar aðrar tegundir sjávarafla. A árinu 1981 var gripið til þess að greiða úr rækjudeild verðjöfnunar- sjóðs til að halda uppi hráefnis- verðinu. Var sá sjóður tæmdur í mars 1982 og því ekki lengur hægt að halda uppi óraunhæfu hráefnis- verði með þeim fjármunum. Þetta er aðalorsök þess, að rækjuverð hefur á sl. ári ekki alveg náð að halda í við fiskverð, sem grundvall- ast á sölu afurðanna í dollurum. Afkoma rækjusjómanna hefur eigi að síður verið sæmileg. Al- gengur hásetahlutur í nóvember sl. var kr. 35.000,00-45.000,00 og oft róið 2-4 daga í viku. Síðan kom hækkunin 1/12 um 7,72% og sjálf- sagt verður einhver hækkun til við- bótar frá 1. janúar 1983, og líklega meiri en þau 2%, sem almenn launahækkun í landinu nemur. Það þjónar ekki hagsmunum rækjusjómanna, útgerðarmanna né vinnslunnar að blása upp rang- færslur á opinberum vettvangi. Rækjusjómenn hafa sem betur fer haft góða afkomu um mörg undan- farin ár og ber að samfagna þeim heils hugar með laun sín. Hins veg- ar er það öllum til hags að hófs sé gætt, þannig að atvinnunni á sjó og í landi verði ekki stefnt í ótímabæra hættu. Félag rækjuvinnslustöðva hefur ekkert að athuga við samanburð á vinnslu og verðum í Noregi og hér á landi. Sá samanburður verður aðeins að taka alla þætti málsins með í reikninginn á hlutlausan hátt. Til þess verks er bróðir for- manns rækjuútgerðarmannafé- lagsins á Bíldudal lítt heppilegur, en sá er einmitt áðurgreindur Matt- hías Garðarsson. 10. janúar 1983, Félag rækjuvinnslustöðva. FORVAL ALÞÝÐU- BANDALAGSINS í REYKJAVÍK JANÚAR 1983 Fyrri umferö forvals Alþýöubandalagsins í Reykjavík fer fram 14.-16. janúar. Kosning fer fram aö Grettisgötu 3 og verður kjörfundur opinn sem hér segir: Föstudaginn 14. janúar kl. 16 - 21 Laugardaginn 15. janúar kl. 10 19 Sunnudaginn 16. janúar kl. 10 - 14 Síðari umferð forvalsins fer fram 28. - 30. janúar. Fréttabréf ásamt forvalsreglum hefur verið sent til félagsmanna. Hafi einhver ekki fengiö sendar forvals- reglurnar er hann beðinn aö hafa samband viö skrif- stofu félagsins. Rétt til þátttöku: Rétt til þátttöku í forvalinu hafa allir félagsmenn Al- þýöubandalagsins í Reykjavík sem ekki skulda meira en eitt gjaldfalliö árgjald og þeir nýir félagar, sem ganga í félagið í síöasta lagi á kjördag, enda greiöi þeir a.m.k. 'Á árgjald til félagsins viö inngöngu. ATH. Fréttabréf og forvalsreglur liggja frammi á skrifstofu ABR. Kjörnefnd ABR.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.