Þjóðviljinn - 11.02.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 11.02.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA ÞJÓÐVÍLJINN Föstudaguí-11:. feíwfdar 1983 Musica Nova: Tón- verka- pöntun MUSICA NOVA ráðgerir að gangast fyrir pöntun á fjórum nýjum tónverkum, en félagið er að hefja undirbúning vetrar- starfsins 1983-84. Ætlunin er að verkin verði frumflutt á tón- leikum MUSICA NOVA næsta vetur. Hljóðfæraleikarar og söngvar- ar, einstaklingar sem hópar, eiga þess kost að panta verk hjá á- kveðnu tónskáldi og mun dóm- nefnd velja úr þeim pöntunum sem berast. Mjög æskilegt er að haft sé samráð við viðkomandi tónskáld, áður en umsókn er send inn. Umsóknareyðublöð fást í ístóni, Freyjugötu 1, Reykjavík. Skilafrestur er til 1. mars 1983. Gætum tungunnar Sagt var: Lengi var barist, og kenndu hvorir hinum um upp- tökin. Rétt væri: ....og kenndu hvorir öðrum (um) upptökin. Skák Karpov a& tafli — 95 Sigur Karpov yfir Uhlmann kom honum á skriö. Hann hlaut 2'lz vinning úr þrem síöustu skákum sínum og þaö dugöi til sig- urs. I 13. umferð vann hann fróðlegan sigur á Spánverjanum Calvo. abcdefgh Calvo - Karpov 32. .. f3! 33. Dh2 Rh8! 34. Hc1 Hh6! 35. Rc4 Dc7 - Hvítur gafst upp. Stórkostleg hryggðar- mynd er staöa hans og þess utan á hann ekkert svart viö hótuninni 36. - Bxg5. [ 14. umferð mótsins gerði hann jafntefli meö hvítu viö Portisch eftir að hafa haft yfirburðastöðu um tíma. í síöustu umferð sigraöi hann svo Júgóslavann Planio. Röð efstu manna varð þessi: 1. Karpov 11 v. 2. Tukmakov 10'/2 v. 3. Furman 10 v. 4.-5. Uhlmann og Hort 9'/z v. hvor. 6.-7. Portisch og Anderson 9 v. hvor. 8.-9. Lju- bojevic og Browne 8'/2 v. hvor. 10. Planic 6V2 v. Keppendur voru 16. Næsta verkefni Karpov var einvígi hans við Polugajevskí í Askorendakeppninni. Það hófst í Moskvu mánuði eftir Madrid- mótið og var mótið liður í undirbúningi hans undir einvígið. Þar sem flutningur Latínu- skólans frá Bessastöðum til Reykjavíkur hafði nú verið á- kveðinn lá fyrir að koma upp húsnæði fyrir skólann á hentug- um stað í bænum. Var við það miðað, að bæði Latínu- og Prestaskólinn væntanlegi yrðu undir sama þaki. Uppdráttur af byggingunni kom frá stjórninni 1842 og var hann gerður af Jörgen Hansen Koch ríkishúsameistara. Jafn- framt tilkynnti stjórnin að hún mundi, á sumri komanda leita út- boða á tilhöggnu timburhúsi í Noregi, samkvæmt teikningu Kochs og þyrfti nú að hafa hraðar hendur með að velja skólanum stað. Um staðarvalið sýndist sitt hverjum, en loks varð ofan á að leggja til að húsið yrði reist neðarlega í Þingholtunum, beint suður af húsum Stefáns landfó- geta og stiptamtmanns og Bern- höftsbakaríi, austan lækjarins. Var þessi ákvörðun tilkynnt yfir- mönnum skólamála í Kaup- mannahöfn og lögðu þeir blessun sína yfir. Gerðist svo ekkert frek- ar í skólabyggingarmálum á því herrans ári 1842. Aftur á móti reis nú fyrsta hús- ið á holti því suður undir Skerja- firði, sem upp frá því nefndist Grímsstaðaholt, eftir þessu fyrsta býli, Grímsstöðum, sem byggt var af Grími Egilssyni. Mun nafn hans trúlega vel varðveitt, því trauðla gleymist Grímsstaðaholt- ið þótt lítið fari nú lengur fyrir svip þeim er það bar á dögum Gríms Egilssonar. -mhg KARATE- MEISTARI Mette Jensen heitir þessi þriflega stúlka og er 16 ára gömul. Hún er dönsk og vann það afrek nýlega að brjóta með annarri hendinni múr steinaröð, 71'/2 sentímeters þykka. Slíkt afrek hefur ekki verið áður unnið af konu. Hvað skrifa landsmála- blöðin „Eg er persónulega alveg á- kveðinn í að veita þeim mönnum, sem tóku ákvörðun um að við- hafa svona ólýðræðisleg vinnu- brögð, eins alvarlega áminningu og ég get“, hefur vestfirska fréttablaðið eftir Ólafi Kristjáns- syni sjálfstæðismanni í tilefni þess að íhaldið býður nú fram klofið í Vestfj arðakj ördæmi. Síðan fylgja bollaleggingar blaðsins og viðtöl við menn sem bendlaðir hafa verið við klofn- ingsframboðið. Sigurlaug Bjarnadóttir sem að öllum líkind- um kemur til með að sitja í fyrsta sæti á listanum staðhæfir að li- stinn verði ekki merktur neinum armi innan flokksins. Flugvöllur á Arnarnesi Ekki Arnarnesi Garðbæinga, heldur fyrir Vestfirðinga. Umræður um nýjan flugvöll hafa farið fram í bæjarstjórn ísa- fjarðar og hafa komið fram hug- myndir um að færa flugvöllinn út Skutulsfjörð, þar sem hægt væri að gera flugvöll með tveim flug- brautum. Vestfirska fréttablaðið reifar þessa hugmynd á forsíðu þann 3. febrúar, en hugmyndin mun hafa komið í kjölfar þess, að 1980 skipaði samgöngumálaráð- herra nefnd sem skyldi gera til- lögur um samgöngur á Vest- fjörðum. Ein þessara hugmynda varðar nýjan flugvöll fyrir Vest- • firðinga.... Bandalag um ekki neitt ....„Næsta kostuleg flokks- stofnun hefur nýlega átt sér stað“, skrifar dálkahöfundur Norðurlands, Klói, í blað sitt sem kom út 2. febrúar síðastliðinn. „Vilmundur Gylfason sjálfur, ásamt nokkrum tugum karla og kvenna hafa komið sér saman um að setjast saman í miðstjórn fyrir fyrirbæri sem kallar sig Bandalag jafnaðarmanna... Vilmundur Gylfason lýsir samtökum sínum sem einni heljarstórri regnhlíf, sem væntanlega á að geta hlíft hinum ólíklegustu aðilum sem undir henni vilja norpa við slagviðrum norðursins. Sjálfur heldur hann svo á regnhlífinni og rýnir út í hina pólitísku rigningu og lýsir því yfir að hann hafi stofn- að samtök um að koma á fram- tíðarþj óðfélaginu, þar sem þjóðin getur lifað í pólitísku góðviðri, fullkomlega laus við kerfiskalla og möppudýr nútím- ans.“ ia Ah QoK. | mm Woiír o* veir BKKl MfK * . V /O /V /v / r*

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.