Þjóðviljinn - 11.02.1983, Page 4

Þjóðviljinn - 11.02.1983, Page 4
4 StÐA' L’ ÞJóÐVILjÍnn Fös'túdágiir li.' febrúar Í983’ DJOmiUINN Málgagn sósíalisma, yerkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Utgefandi: Otgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. ■Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigrlður H. Sigurbjörnsdðtlir! Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvik Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmunds- son, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Útiit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar AugTýsingarT Áslaug Jóhannesdóttir,' Ólafur Þ. Jónsson Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bíistjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Frentun: Blaðaprent h.f. Hvenœr og um hvað geta risarnir samið? • Það liggur nærri að þriðja hver grein sem um þessar mundir er skrifuð um alþjóðamál í blöð fjalli um eld- flaugar stórveldanna og leiðir til að koma í veg fyrir að þeim fjölgi. Margar þessara greina eru mjög gagnrýnar á Sovétríkin og Bandaríkin fyrir þær sakir, að ráða- menn þessara stórvelda hafi klúðrað mjög afvopnun- armálum - þó svo sitt sýnist hverjum um það hvernig skipta megi með þeim ábyrgð á því, að kjarnorkuvíg- búnaðarkapphlaupið heldur áfram. • Eins og fyrri daginn er Morgunblaðið sjaldan í vafa um það hvernig afgreiða á þessi mál. Hafi forseti Bandaríkjanna eða varamenn hansopnað munninn er því slegið upp með fögnuði á forsíðu að Bandaríkja- menn séu „reiðubúnir til samninga hvenær sem er“. Ef að Sovétmenn hafa látið eitthvað frá sér skal ekki bregðast að uppslátturinn verður „Áróðurskeimur af tillögum Rússa“ eða eitthvað í þá veru. • Þetta er sannast sagna nokkuð spaugileg meðferð á fréttum. Vitanlega er áróðurskeimur af öllum yfirlýs- ingum oddvita stórveldanna um eldflaugamálin - um þau stendur hatrammt áróðursstríð, eins og flestum ætti að vera ljóst. En þótt „áróðurskeim“ megi víða finna, þá þýðir það ekki sjálfkrafa, að það sé einskis virði og ekki að marka sem yfirstjórar kjarnorkuvopna- birgða segja. Á hinn bóginn er það svo alls engin frétt, að þeir segjast vera reiðubúnir til samninga. Við skulum gera ráð fyrir því, að það séu þeir reyndar alltaf. Hitt skiptir svo máli: um hvað eru menn reiðubúnir að i semja? j • Um alllangt árabil var gengið út frá því sem gefnu, að, það væri forsenda fyrir árangursríkum viðræðum um eftirlit með og niðurskurð á kjarnorkuvígbúnaði ef stórveldin bæði teldu sig standa nokkurnveginn jafnt að vígi. Því, eins og Gerard C. Smith, sem var formaður bandarísku viðræðunefndarinnar sem fjallaði um SALT-I, segir í Newsweek nýlega - ef annar aðilinn er greinilega sterkari, þá er vafasamt að hann semji sig í lakari (þ.e. jafnari) stöðu. • Sovétmenn, margir óháðir hernaðarsérfræðingar og jaJ&ivel bandaríska hermálaráðvmeytið telja reyndar, að þrátt fyrir ýmsa erfiðleika á að bera saman vopnakerfi, þá ríki um þessar mundir nokkuð jafnræði með risun- um tveim í kjarnorkuvopnabúnaði. í skýrslu banda- rísku varnarmálanefndarinnar fyrir árið 1982 segir: „tími bandarískra yfirburða er löngu liðinn, en í staðinn hefur komið jafnræði - en ekki veikari staða Bandaríkj- anna“. Hitt er svo meiriháttar áhyggjuefni fjölmargra manna, að stjórn Reagans leggur mikið kapp á að sýna fram á að þetta sé ekki rétt, að Bandaríkjamenn séu ekki eins sterkir og Sovétmenn, að Bandaríkin séu „annars flokks“ kjarnorkuveldi. En það er einmitt á slíkum forsendum sem viðleitni Reagans og manna hans til að koma upp nýju kerfi langdrægra eldflauga heimafyrir, og nýjum kerfum meðaldrægra eldflauga í Evrópu byggist. Það er á slíkum forsendum, að nýskip- aður yfirmaður afvopnunarstofnunar Bandaríkjanna, Kenneth Adelman, hefur ítrekað heimtað „nýrri og betri atómsóknarvopn“ - til að gera „hættujafnvægið“ svonefnda raunverulegt, eins og það heitir. • Það er af þessum ástæðum, að vaxandi ágreiningur er á milli Bandaríkjanna og sessunauta þeirra í Nató frá Evrópu, sem eiga erfitt með að kyngja þeirri kenningu að það sé vænleg leið til árangurs í afvopnun að byrja á að bæta við nýjum vopnum. Og það er af þessum sök- um, sem sósíaldemókrataforingjar eins og núna síðast Gro Harlem Brundtland fyrrum forsætisráðherra Nor- egs efast opinskátt um samningsvilja Reagans og hans manna. klippt „Öflugt og viti borið mið- stjórnarvald“ Svanur Kristjánsson prófessor skrifar í síðasta tímarit Sögu, grein um þrjú rit um Sjálfstæðis- flokkinn (Valdatafl í Valhöll, Ólafur Thors. Ævi og störf og Gunnar Thoroddsen). Ýmislegt athyglisvert kemur fram í þessari grein Svans um Sjálfstæðisflokk- inn. Þar bendir hann t.d. á að fyrrverandi forystumenn Sálf- stæðisflokksins séu ekki taldir vera frjálshyggjumenn, hvorki af Sjálfstæðismönnum eða öðrum sem um þá hafa skrifað. Eftir Matthíasi Johannesen hefur Svanur um Ólaf Thors: „En jafnframt því sem Ólafur Thors taldi útþenslu ríkisvalds- ins, báknsins eða kerfisins, mikið böl, var hann óhræddur um að nýta alla kosti öflugs og viti bor- uns miðstjórnarvalds, ef svo mætti segja, án þess að ríkisvald- ið mylji allt undir sig og drepi athafnaþrá fólksins í dróma með bönnum, höftum og skattpín- ingu. En það hefur ekki verið tal- ið einfalt mál á íslandi að minnka ríkisumsvifin frá því velferðar- stefnan varð pólitískt leiðarljós fyrir og um miðja þessa öld. (II. bindi, bls 418).“ Frjálshyggjan fráhvarf Þá segir Svanur Kristjánsson: „Gunnar Thoroddsen fullyrðir raunar að „frjálshyggjan" sé frá- hvarf frá grundvallarsteefnu Sjálfstæðisflokksins, „að áhrifa- menn í flokknum hafi viljað víkja frá þessari stefnu yfir í kalda markaðshyggju, þar sem lögmál hinnar óheftu samkeppni - lögmál frumskógarins, eins og það er stundumkallað - réði ríkj- um.Sumir hafa talið, að til þess að hafa jafnvægi í efnahagslífi, yrði að stefna til „hæfilegs" atvinnuleysis. Þeir eru jafnvel til, er líta sem fyrirmynd þá efna- hagsstefnu, sem nú er fylgt í Bret- Iandi með þungbærum afleiðing- um“ (bls. 256-257).“ Einnig er haft eftir Gunnari Thoroddsen: „Þeir, sem íhaldsamastir voru í flokknum, töldu mig of frjáls- lyndan, - of langt til vinstri, sem kallað var. Þeir töldu baráttu mína frá upphafi fyrir margvís- legum umbótum jaðra við sósíal- isma og kommúnisma" (bls. 134).“ Afstaða til leiftursóknar Svanur Kristjánsson bendir á, að leiftursóknarstefnan hafi verið mjög umdeild innan Sjáifstæðis- flokksins en mál hafi einfaldlega ekki þróast þannig að afstaða manna til hennar hafi ráðið hvort Sjálfstæðismenn styddu núver- andi ríkisstjórn eða ekki. Vitnað er til ummæla Guðmundar H. Garðarssonar, sem skeleggur prédikaði gegn leiftursókn - en gerðist ekki stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar að heldur: „Flokkur Bjarna Benedikts- sonar, Jóhannes Hafstein og Ólafs Thors, sannanlega frjálslyndur flokkur allra stétta, er ekki lengur til. Sjálfstæðis- flokkurinn í núverandi mynd er ekta evrópskur íhaldsflokkur. Áhrifavaldar flokksins í dag eru íhaldsmenn, sem trúa á ótak- markaða markaðshyggju og próf- kjör, sem leiða af sér annarlega valdabaráttu.... Það er rangt að reyna að fela það, að hin nýja stefna Sjálfstæðisflokksins er íhaldsstefna, sem féll ekki í góðan jarðveg hjá þjóðinni. Þetta er meginástæða kosninga- ósigursins miðað við spár og von- ir flokkanna. (Morgunblaðið 15. des. 1979.)“ Flokkadrœttir og klíkustarfsemi Þá segir Svanur: „Frásögnin af innra starfi Sjálfstæðisflokksins í Valdatafli vekur óneitanlega nokkurn ugg hjá lesandanum. Tilboð foringja flokksins um að nota kennaraembætti við Há- skólann eða fjölga dómurum í Hæstarétti (bls. 99-100) er t.d. ekki fagur vitnisburður um stjórnmálaflokk, a.m.k. ekki um flokk, sem í orði aðhyllist aka- demiskt frelsi og sjálfstæða dómstóla. Lýsingar á ýmsum flokksmönnum eru einnig heldur dapurlegur le stur svo ekki sé meira sagt: valdabrölt, frama- girni og græðgi virðast skipa „öndvegi“ í Sjálfstæðisflokknum, ef marka má þessa bók“. Prófessors- embœttið Svanur segir frá því að Gunnar Thoroddsen staðfesti raunar sumt af því sem sagt er í Valda- tafli um stöðuveitingar og átökin í Sjálfstæðisflokknum: „Já, sú hugmynd að sækja um bankastjórastarfið hafði ekki ein- ungis komið upp hjá mér, heldur höfðu vinir mínir heima hvatt mig til að sækja. Ég skrifaði Bjarna Benediktssyni, sem þá var fors- ætisráðherra, og tjáði honum, að ég hefði áhuga á þessu starfi. Hvernig var þessu tekið? Niðurstaðan varð neikvæð. Voru þér boðin einhvr önnur störf? Já, það var boðið að stofna prófessorsembætti við lagadeild Háskólans mér til handa. Því hafnaði ég“ (bls. 152).“ -óg og skorið Óhugnanleg fréttamynd Síðdegisblaðið DV glennir á forsíðu í fyrradag mynd af lög- reglumönnum sem eru að hand- taka barn á Laugaveginum degin- um áður. Þetta blað sem lýtur einungis lögmálum markaðarins telur sig þurfa að troða á fólki til að ná markmiðum meiri sölu. Og það þarf ekki meira en algeng- ustu bernskubrek til að þessi fjölmiðill velti sér uppúr þeim. Bara ef þau seljasst. Hitt virðist skipta blaðið minna máli, hvaða „refsing“ er fólgin í svona fréttamennsku fyrir barnið sem verður fórnarlamb blaðsins og aðstandendur þess. Slíkur uppsláttur er því miður ekki eins- dæmi í þessu blaði, heldur er hér um „aðferð" í blaðamennsku að ræða, aðferð sem er talin skila árangri á markaðstorginu. Lítilsvirðing við börn Á hátíðis og tyllidögum þegar blaðið nennir ekki að prédika fækkun bænda, ber við að fjallað sé um mannréttindi, einstaklings- frelsi og þvíumlík hugtök í leiðu- rum síðdegisblaðsins. En er „fréttamynd" af því tagi sem hér er gerð að umtalsefni ekki einmitt dæmi um brenglaða siðgæðisvitund, um átroðslu á mannréttindum og upphafningu alls hins lágkúrulegasta í frétta- mennsku? Börn og unglingar eiga ekki mörg málgögn til að verja sig árásum af þessu tagi. Það er líka hægt að benda á þá hliðstæðu, að annars vegar verð- ur barni það á að ætla hugsanlega að hagnast á því að fremja strák- apör. Hins vegar er fullorðið fólk að reyna að græða á bernsku- brekum sama barns. -óg -áb.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.