Þjóðviljinn - 11.02.1983, Page 7
Föstudagur 11. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Gips-skúlptúr eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur.
Þessi skúlptúr sem fenginn er úr afgöngum og hvers kyns drasli frá
Hampiðjunni hangir frá efstu hæð hússins til hinnar neðstu.
Þessar myndir eru eftir Tuma Magnússon. „Gott dæmi um nýja málverk-
ið“, sagði Daði. Fyrir miðju sjást að leik James Joyce og Guðmundur
rammaskalli.
Dagskráin
Nú eru aðeins tveir dagar eftir á
dagskrá Gullstrandarinnar. í gær
var ýmislegt sér til gamans gert.
Ljóðskáldin Þorri Jóhannsson og
Didda lásu úr verkum sínum,
Sigríður Guðjónsdóttir var með
performance og sýnd var
athyglisverð kvikmynd. Asa og
Búi fluttu spuna og ungt
leiklistarfólk v.ar með það sem .
kallað er ,rspuna“. Þá komu fram
leynigestir.
í kvöld munu a.m.k. fjórir
myndlistarmenn flytja hver sinn
performance, Finnbogi Pétursson,
Helgi Friðjónsson, Gerla og
Kristinn Harðarson. Þá mun
Kristrún Gunnars lesa ljóð, auk
þess sem Jóhann Sigurðsson og
Arnaldur Arnarson gítarleikari
flytja „Platero og ég“.
Hljómsveitin Grjótagaul sem
leikur með steinaspil að afrískum
hætti kemur fram, Bubbi Morthens
tekur lagið og Haraldur
Arngrímsson leikur á klassískan
gítar.
Þess má geta að tvö rit sem gefin
hafa verið út í tilefni
listahátíðarinnar „Gullströndin
andar“, myndlistarblaðið
Brunninn og ljóðahefti skáldanna,
verða á boðstólum fyrir gesti
hátíðarinnar. Það skal áréttað að
hátíðin fer fram að Hringbraut 119.
-hól.
MYNDBÖND OG OFBELDI
Myndbandaleiga kvikmyndahusanna við hliðina á Regnboganum í Reykjavík hefur mikið úrval myndbanda
í boði. Þar á meðal eru ofbeldismyndir. - (Ljósm. AH).
Mikill f jöldi
ofbeldismyiida
er í umferð
Barnaverndarnefnd
Reykjavíkur samþykkti
nýlegaaö skoraá
Alþingismenn aö samþykkja
hiö fyrsta frumvarp þaö til
laga, sem ríkisstjórnin hefur
lagt fram um bann viö
ofbeldiskvikmyndum.
Frumvarp þettavarsamiö í
kjölfar þeirrar umræöu um
myndböndin, sem verið
hefur í gangi hér á landi
undanfarið 11/2 ár eöa svo.
Eins og lesendum Þjóðvilj-
ans mun kunnugt lagði Þjóð-
viljinn fram kæru á hendur
myndbandaleigu í Kópavogi
fyrir það að leigja út riryndina
„Cannibal Holocaust", en að
því er kunnugir segja er hún
samsafn alls hins viðbjóðsleg-
asta, sem mönnum er boðið upp
á í kvikmyndum. Ríkissaksókn-
ari hefur haft málið undir hönd-
um og svarar ætíð þegar hann er
inntur eftir gangi málsins, að
það hafi bara engan forgang.
En meðan við bíðum eftir
niðurstöðu ríkissaksóknara er
ekki úr vegi að athuea markað-
inn aðeins nánar. I stjórnar-
frumvarpinu er dálítill listi yfir
kvikmyndir, sem bannaðar eru
í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.
Við gerðum smá könnun í
nokkrum myndbandaleigum í
borginni, og fer afraksturinn
hér á eftir. Það skal tekið fram,
að framboðið virðist miklu
meira en nokkurn skyldi óra
fyrir. Yfirvöld halda að sér
höndum í nafni þess að lög vanti
til framkvæmda! - og munu
gera þar til ríkissaksóknari hef-
ur „athugað" prófmálið að lyst
sinni. Á meðan gefst Reykvík-
ingum færi á að ná sér m.a. í
þessar myndir, sem bannaðar
hafa verið á a.m.k. einu Norð-
urlandanna:
Nafn kvikmyndar Bann Vídeóleiga
The Warriors Finnland My ndbandal. Kvh.
Halloween II Noregur.Finnl. Myndbandal. Kvh.
The Octagon Finnl. Svíþj. V ídeómar kaðurinn
Friday the 13th Finnland V ídeómarkaðurinn Vídeóval
The Unseen Finnland Vídeóval
Penitentiary Finnland V ídeómar kaður inn Vídeóval
Enter the Ninja Noregur Svíþjóð Finnland Vídeómarkaðurinn
Day of the Noregur Vídeóval
Assassins Finnland
Breaker-Breaker Noregur V ídeómarkaðurinn Vídeóval
Happy Birthday to me Svíþjóð Vídeóval
The Unseen Noregur Finniand Vídeóval
The Extermi- Noregur Vídeóval
nator Svíþjóð Finnland
Love Camp Finnland V ídeómar kaður inn
Incubus Svíþjóð Vídeóval
Licensed to love and kiil Finnland Vídeómarkaðurinn
Scanners Noregur V ídeómar kaður inn Vídeóval
Cruising Svíþjóð V ídeómar kaður inn
Finniand Vídeóval
Það skal tekið fram, að þessari yfirferð Þjóðviljans voru aðeins þessar þrjár leigur athugaðar, en þær
eru allar nokkuð stórar. Myndirnar geta því verið annars staðar, þótt ekki sé frá því greint hér.
ast, Arnar Hartmannsson og
Ólafur Kristinsson