Þjóðviljinn - 25.02.1983, Qupperneq 2
• 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. febrúar 1983
Birgir og Inger í hlutverkum sínum.
Leikdeild
UMF Stafholtstungna
Gestaleikur
í Þjóðleikhúsinu
Bread
and
Puppet
Theater
í næstu viku er von á góðum gest-
um í Þjóðleikhúsið en þá koma
hingað vestan um haf hinn
heimsfrægi bandaríski leikflokkur
Bread and Puppet Theater og mun
sýna tvisvar á stóra sviðinu.
Leikhópur þessi var stofnaður í
New York árið 1962 og er eini
frjálsi leikhópurinn frá þerm
gróskumikla áratug sem tekist hef-
ur að lifa áfram og þróast.
Hingað kemur hópurinn á leið
heim frá Evrópu með sýningu sem
nefnist „Þrumuveður yngsta barns-
ins“ en þessi leiksýning hefur
hlotið mjög lofsamlega dóma á
Síðasta sýning á „Tvileik”
Úr uppfærsiu leikflokksins ó „Þrumuveðri yngsta barnsins“ sem sýni
verður f Þjóðlcikhúsmu.
meginlandinu.
Sýningar Bread and Puppet The-
ater verða í Þjóðleikhúsinu
fimmtudagog föstudagnæstú viku.
Forsala mtða hefst í Þjóðleikhús-
inu í dag kl. 13.15 og er rétt fyrir
leikhúsunnendur að tryggja sér
miða sem fyrst.
Á sunnudagskvöidið verður 35.
og jafnframt síðasta sýning á
breska verSIaunaleikritinu „Tví-
leikur“ eftir Tom Kempinski á Litla
sviði Þjóðleikhússins. Verk þetta
hefur hlotið mikla athygli hérlendis
sem og erlendis.
Leikendur í sýningunni eru
aðeins tveir, þau Þórunn Magnea
Magnúsdóttir og Ciunnar Eyjólfs-
son. Leikstjóri er Jill Brooke
Árnason.
Tvíleikur er nærgöngult verk og
fjailar um alvarleg mál, en er samt
sem áður mergjað og fyndið í lýs-
ingu sinni á ungri konu sem er að
því komin að gefast upp í barátt-
unni við bæklunarsjúkdóminn MS.
Leikfélag
Reykjavíkur
50. sýning
á Sölku Völku
Leikendur í „Getraunagróða“. F.v.: Þórir Steingrímsson, Olga Ólafsdótt-
ir, Ingeburg Wolers, Jón Gröndal, Guðbjörg Ásgeirsdóttir, Sigurður
Guðmundsson og Guðmundur Jónsson.
Leikfélag Grindavíkur sýnir:
um helgina
Leikbrúðuland
Annað kvöld er 50. sýning á
Sölku Völku eftir Halldór Laxness í
leikgerð Þorsteins Gunnarssonar
óg Stefáns Baldurssonar sem jafn-
framt er leikstjóri.
Sýningum fer nú að fækka á
þéssu vinsæla verki.
Hassið hennar mömmu eftir
Dario Fo er alltaf jafn vinsælt og
verður sýnt á miðnætursýriingu í
Austurbæjarbíó á laugardags-
kvöld. Yfir 20 þúsund áhorfendur
hafa séð „Hassið".
Á sunnudagskvöldið sýnir
Leikfélagið í Iðnó, franska gaman-
leikinn Forsctaheimsóknina í þýð-
ingu Þórarins Eldjárns.
Þjóð-
sögurnar
þrjár
Leikbrúðuland sýnir á sunnudag þjóðsögurnar þrjár, Gípa, Umskipt-
ingurinn og Púkablístran kl. 15.00 að Fríkirkjuvegi 11.
Þetta er næst síðasta sýning, þar sem Leikbrúðulandi er boðið með
sýninguna á brúðuleikhúshátíð í Osló í mars.
Miðar eru seldir frá kl. 13 á sunnudag og pantanir teknar í síma 15937.
Hvað er í blýhólknum?
Getraunagróða
Félagar úr Lcikdcild Ungmenna-
félags Stafholtstungna munu á
laugardag hefja sýningar á leikriti
Svövu Jakobsdóttur, Hvað er í blý-
hólknum?, og verða þær í félags-
hcimilinu að Varmalandi í Borgar-
firði. Frumsýningin hel'st kl. 21.00.
í sýningunni taka þátt 15
leikendur og 20 aðstoðarmenn.
Aðalhlutverk er í höndum Inger
Traustadóttur og Birgis Hauks-
sonar. Leikstjóri er Sigurbjörg
Árnadóttir, sem einnig gerir leik-
mynd.
I næstu viku eru þrjár sýningar
fyrirhugaðar, 1., 3. og 5. mars, kl.
21.00 öll kvöldin. Þetta er fjórða
verkefni leikdeildarinnar á 7 árum
fyrir utan smærri verk. Leikdeildin
var stofnuð 3. febrúar 1977.
Karlinn í
kassanum
Kevíulcikhúsið sýnir gaman-
lcikinn „Karlinn í kassanum“ á
miðnætursýningu í Hafnarbíói í
kvöld.
Sýningin hefst kl. 23.30 og
miðasalan er opin frá kl. 16.
Næsta sýning Revíuleikhússins
er á þriðjudagskvöld kl. 20:30
Leikfélag Grindavíkur tekur til
sýningar næsta laugardag þ.e. 26.
febrúar ærslaleikinn „Getrauna-
gróði" eftir Philip King. Frumsýn-
ingin hefst í Kvenfélagshúsinu kl.
21.
Þýðingu leiksins gerði Haukur
Sigurðsson, en leikstjóri er Þórir
Steingrímsson og fer hann jafn-
framt með eitt aðalhlutverkið í sýn-
ingunni. Önnur hlutverk eru í
höndum Qlgu Ólafsdóttur,
Guðbjargar Ásgeirsdóttur, Guð-
mundar Jónssonar, Ingeburg Wol-
ers, Jóns Gröndal og Sigurðar
Guðmundssonar.
Næsta sýning verður á sunnu-
dagskvöld og hefst einnig kl. 21.
„Sjúk æska”
Sýningar Nemendaleikhússins á
„Sjúkri æsku“ lágu niðri alla síð-
ustu viku, en í kvöld taka nemend-
ur upp þráðinn þar sem frá var
horfið.
Sýningin í Lindarbæ hefst kl.
20.30 og einnig verður sýning á
Sjúkri æsku á sunnudagskvöld á
sama tíma.
Uppfærsla Nemendaleikhússins
á þessu verki hefur hlotið einróma
lof gagnrýnenda.
Deleríum
búbónis
Nýstofnaður leikhópur Ung-
mennafélagsins Mána í Nesjuin,
Hornafirði, frumsýndi í gærkvöldi,
Deleríum búbónis eftir þá bræður
Jónas og Jón Múla Árnasyni.
Deleriuin bubonis er fyrsta verk-
efni Mána og jafnframt tilraun til
að endurvekja leiklistarstarf í
Nesjum sem hefur legið niðri um
langt skeið.
Leikstjórn annast Ingunn Jens-
dóttir og undirleik Sigurjón
Bjarnason og Einar Sigurjónsson.
Með hlutverk í leiknum fara þau:
Hreinn Eiríksson, Eiríkur Sigurðs-
son, Arnbjörg Sveinsdóttir, Ragn-
heiður Halldórsdóttir, Halldór
Tjörvi Einarsson, Ásmundur
Gíslason, Jón Valdimarsson, Þor-
leifur Hjaltason og Guðlaug Guð-
mundsdóttir.