Þjóðviljinn - 11.03.1983, Side 1
Föstudagur 11. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Leiklist
Myndlist
Tónlist
Kvikmyndir
Skemmtanir
Felagslíf o.fl.
f
Kristján Guömundsson og Olafur Lárusson
opna sýningu í Listasafni ASÍ
„Eyjólfr hét maðr”
og ævintýraprinsar
„Eyjólfr hét maðr“ nefnist þetta
verk og er nafnið og hugmyndin
að því sótt í upphaf 139. kafla
Brennu-Njálssögu sem hefst á
þessumorðum. Þaðer Kristján
Guðmundsson
myndlistarmaðursem hefur
orðið, en á morgun kl. 14 opnar
hann sýningu ásamt Ólafi
Lárussyni myndlistarmanni í
Listasafni Alþýðu við Grensás-
veg.
Kristján sýnir 10 verk, skúlp-
túra, teikningar, bækur og drög,
og eru það hlutir sem hafa orðið til
á tímabilinu frá árinu 1972 og fram
til dagsins í dag.
Ólafur sýnir hins vegar um 40
verk, málverk, ljósmyndir, skúlp-
túr og teikningar, allt unnið á síð-
ustu þremur árum. „Stór hluti
þessara verkj eru uppákomur.
Viðfangsefnið er ævintýrið og sof-
andi prinsar", sagði Ólafur. Hann
á að baki fjölda einkasýninga hér-
lendis og víðsvegar um Evrópu,
auk fjölmargra samsýninga, en nú
eru verk eftir hann t.d. á norrænu
farandsýningunni Scandinavia to-
day um Bandaríkin.
Kristján Guðmundsson er
þekktur úr gamla SÚM, auk þess
sem hann hefur sýnt víðsvegar er-
lendis, m.a. á opnunarhátíð
Pompidou-safnsins í París, og nú
síðast var hann annar tveggja full-
trúa íslendinga á Biennalnum í
Feneyjum sl. sumar.
Hann var um árabil búsettur í
Amsterdam, en er fyrir nokkrum
árum fluttur aftur til Islands.
Sýning þeirra Kristjáns og Ólafs
er opin daglega frá 14-22, nema
mánudaga. Hún stendur til 4. apríl.
n.k.
-•g-
Bessi Bjarnason fer með stórt hlutverk í óperettunni Míkadó. Mynd - gel.
íslenska óperan frumsýnir verk
eftir Gilbert og Sullivan
Míkadó
Þegar Míkadóinn var fyrst
frumsýndurí
Savoyleikhúsinu þann 14.
mars árið 1885, hlaut verkið
strax það góðar viðtökur, að
segja má að það hafi
hreinlega slegiö í gegn og
Míkadó-æði hafi gripið um
sig, en alls urðu sýningarnar
672.
Enn í dag er Míkadó sýndur
reglulega í Lundúnum, og annað
kvöld verður þessi vinsæla ópera
frumflutt á íslandi á vegurn ís-
lensku óperunnar.
f þessari óperettu félaganna Gil-
berts og Sullivans er fjallað á gam-
ansaman hátt um elskendur sem
ekki eiga að fá að eignast, hvernig
málin taka síðan óvænta stefnu, og
með hæfilegum skammti af mis-
skilningi, bragðvísi og óvæntum
uppákomum leysast vandamálin,
allt fellur í ljúfa löð og allir lifa í sátt
og samlyndi eins og vera ber.
Leiksviðið er japanskur bær.
Titipú, sem hvergi er til, enda
beindi Gilbert aldrei spjótum sín-
um að Japönum, heldur voru það
samlandar hans sem hann dró
sundur og saman á háði og þá fyrst
og fremst þá sem hann fyrirleit
mest, en Sullivan dáði, stjórnmála
ntennina.
Míkadóinn er fluttur hérlendis í
þýðingu Ragnheiðar H. Vigfús-
dóttur, en leikstjóri er Francesca
Zambello sem hingað er komin frá |
óperunni í Denver í Colorado í
Bandaríkjunum. Leiktjaldahönn-
uður og ljósameistari er Michael
Deegan sem einnig kemur vestan
um haf.
Alls koma 9 söngvarar fram í
sýningunni, auk kórs, sem í eru:
Elísabet F. Eiríksdóttir, Hrönn
Hafliðadóttir, Katrín Sigurðar-
dóttir, Soffía Bjarnleifsdóttir,
Bessi Bjarnason, Hjálmar Kjart-
ansson, Júlíus Vífill Ingvarsson,
Kristinn Hallsson og Steinþór Þrá-
insson. Sýningarstjóri er Guðný
Helgadóttir.
-lg-
Ný íslensk kvikmynd frumsýnd um helgina
,, Húsið- trúnaðarmál ”
Nýjastaframlag íslendingatil
kvikmyndagerðarverður
frumsýnt á laugardaginn í
Háskólabíói en það er myndin
„Húsið - trúnaðarmál".
Myndin er unnin eftir handriti
þeirra Egils Eðvarðssonar,
Snorra Þórissonar og Björns
Björnssonarsem allireru fyrrver-
andi starfsfélagar á sjónvarpinu.
Egill sér um leikstjórnina, Snorri
um kvikmyndunina, og Björn um
leikmyndina, en framkvæmda-
stjóri framtaksins er Jón Þór
Hannesson.
Með aðalhlutverk í myndinni
fara þau Lilja Þórisdóttir og Jó-
hann Sigurðsson, en auk þeirra
korna fjölmargir þekktir leikarar
fram í myndinni, m.a. Helgi
Skúlason, Þóra Borg, Róbert
Arnfinnsson, Bríet Héðinsdóttir,
Baldvin Halldórsson, Margrét
Ólafsdóttir, Kristín Bjarnadóttir
og fl.
Kvikmyndagerðin hefur tekið
rúmt ár og er heildar kostnaður
við hana rúmar 4 miljónir kr.
Telja forráðamenn að um 60
þús áhorfendur eða fjórði hver
Islendingur þurfi að sjá myndina,
svo endar nái saman.
Lítið hefur verið gefið upp um
efni myndarinnar, en hún hefst
þar sem ung hjón flytja inn í
gamla íbúð. Ýmsir óvæntir at-
burðir fara að gerast og reynir
ekki síst á unga parið í þeim efn-
um. Mikii vinna var lögð í undir-
búning myndarinnar og m.a.
byggð heilmikil leikmynd
en sá hluti var allur tekinn i stúdí-
ói.
Auk þess fóru upptökur fram í
Keflavík, á Húsavík og einnig í
Vínarborg, þar sem hluti mynd-
arinnár gerist.
Veisla í „Húsinu“. Sviðsmynd úr Húsinu - Trúnaðarmál sem verður
frumsýnd á laugardag. Mynd - eik.