Þjóðviljinn - 15.04.1983, Blaðsíða 3
II G-listinn í Reykjavík
G-listinn í Reykjavík III
Guðmundur J. Guðmundsson
2. maður G-listans í Reykjavík:
Öflugur verkalýðs*
flokkur er okkar
sterkasta vörn
Guðrún Helgadóttir
3. maður G-listans í Reykjavík:
Viö erum óhrædd
við að láta
verkin tala
Allir dagar koma og fara. Flestir hverfa og
gleymast í dagsins önn. - Aðrir veröa minnisstæðir.
Sumir dagar verða svo örlagaríkir, að þeir fara ekki,
þótt þeir líði. Einn sá daga, sem ekki hverfur í langa
tíð, þótt hann líði hjá, verður 23. aþril 1983. Þá verður
kosið til Alþingis. Þá verða örlög og framtíðarvonir
manna ráðnar í ótrúlega ríkum mæli. í sjónvarps-
kynningum gæti ekki virst mikið bil milli þólitísku
flokkanna. En þó verður þetta þil ótrúlega mikiö eftir
kosningar.
Annars vegar er Sjálfstæðisflokkurinn, þar sem
meiri hluti valdsmanna í flokknum vill innleiða frjálsa
markaðshyggju, það hagfræðikerfi sem innleitt hefur
miljóna atvinnuleysi eins og kaldar tölur í hagfræöi.
Atvinnuleysi fylgja brostnar vonir og það er eitt ægi-
legasta böl, sem gengur yfir mannlegt lif. Ég held að
hagfræðingar geri sér ekki grein fyrir sérstöðu is-
lands, hér verður hver vinnufær maöur að vinna ef
þjóðin á að geta búið í landinu. Aðstæður eru gjöró-
líkar.
I Bretlandi t.d. eru 70% láglaunafólks leigjendur,
húsnæði er frekar ódýrt, enda mun lélegra en á
íslandi. Á islandi er þetta öfugt, um 70% launafólks
býr í eigin húsnæði, margir með þungar skuldbind-
ingar og afborganir sumar alltof þungar sem þarf aö
breyta. Afborgunarkerfi hér eru ótrúlega almenn,
fólk og þó sér í lagi ungt fólk er reyrt í viðjar afborg-
ana, bæði hjón þurfa að vinna og ekkert má út af
bera.
Ef atvinnuleysi skylli yfir islendinga, þá mundi á
stuttum tíma ótrúlegur fjöldi íbúða verða seldur á
nauðungaruppboði, og ef það varaði um lengri tíma
þá yrði hrun í landinu og eignamissir sem fyrst og
fremst kæmi niður á almennu launafólki. Þessi
kreppa gengi jafnt yfir konur sem karla, hún mundi
ganga yfir almennt verkafólk i landinu. Sterkasta
vörnin til að afstýra þessu er öflugur verkalýðsflokk-
ur. Alþýðubandalagið eitt getur rækt þetta hlutverk,
engir smáflokkar eða tvískinna milliflokkar verða
færir um aö stöðva þessa þróun.
Við skulum ekki breyta íslensku þjóðfélagi í
þjóðfélag atvinnuleysis, eignamissis og aukins mis-
réttis. Þess vegna verður 23. apríl svona örlagaríkur,
ef það hallar á Alþýðubandalagið þá hverfur ekki 23.
apríl þótt hann líði - afleiðingarnar munu segja til sín
svo mánuðum og jafnvel árum skiptir.
Að okkur steðja ýmis vandamál, ekkert þeirra er
svo alvarlegt ennþá að sameiginlega geti launafólk
ekki leyst þau, þótt við marga örðugleika sé að etja -
með samstarfi verkalýðsfélaganna og Alþýöu-
bandalagsins skulum við standa á íslensku stolti og
vera einir fárra þjóða sem ekki búa við atvinnuleysi.
Svona mikilvægur verður 23. apríl.
Hvað höfum við Alþýðubandaiagsmenn gert í
félagsmálum á þessu kjörtímabili, sem kemur
fólki að beinu gagni?
• Sjómenn fá nú lífeyri ef þeir hætta sjómennsku 60
ára.
• Allir eiga sama rétt til atvinnuleysisbóta ón tillits til
tekna maka
• Barnsmeðlög eru nú greidd við fæðingu barns, þó
að faðernismáli sé ólokið.
• Allar konur fá nú 3ja mánaða fæðingarorlof án
þess að taþa við það tekjum.
• Fjölmörg heimili fyrir þroskahefta hafa verið sett á
stofn með tilkomu laga um málefni þroskaheftra og
aukinna framlaga í framkvæmdasjóð öryrkja og
þroskaheftra.
• Aldraðir búa við betri kjör en nokkru sinni áður og
ný lög um málefni aldraöra eiga eftir að bæta hag
þeirra enn.
• Lög um málefni fatlaðra voru samþykkt rétt fyrir
þinglok og eiga tvímælalaust eftir að gjörbreyta hög-
um hinna fötluðu.
• Slysatryggðir fá nú barnalífeyri með öllum börn-
um sínum, einnig þeim sem fæddust eftir að greiðsla
lífeyris hófst.
Næsta verkefni okkar í þessum málaflokki er:
• Afkomutrygging einstæðra foreldra í stað mæðra-
og feðralauna, sem engum koma að gagni.
Aiþýöubandalagið fór ekki með menntamál á
þessu kjörtímabili, en ég flutti tvö frumvörp í
þeim málaflokki sem bæði urðu að lögum:
• Lög um Þýðingasjóð, sem er launasjóður
þýðenda, sem þýða vilja vönduð skáld- og fræðirit úr
erlendum tungum. Það eiga ekki að vera forréttindi
þeirra sem lesa erlendar tungur að njóta slíkra verka.
• Lög um starfsáætlun dagvistarheimila og nú er
verið að vinna að henni. Mun hún tvímælalaust hafa í
för með sér bætt innra starf á dagvistarheimilum.
Alþýðubandalagiö fór með stjórn borgarmála
s.l. kjörtímabil.
• Byggö voru 12 dagvistarheimili fyrir á 7. hundrað
barna. Nú er ekkert dagvistarheimili í byggingu í
Reykjavík.
• Heimili aldraðra við Droþlaugarstíg fyrir 80 manns
var byggt, B-álman viö Borgarspítalann, langlegu-
deild fyrir aldraða var nær fullgerð og sjúkradeildin
tekin í notkun fyrir aldraða i húsi Hvíta bandsins. Nú
er hvergi verið að byggja heimili fyrir aldraða í
Reykjavík.
Fullyrðingin um að allir flokkar séu eins, er
fjarstæða. I okkar samfélagi eiga allir rétt til
mannsæmandi lífs, í samfélagi afturhaldsafl-
anna aðeins sumir. Það er skylda kjósenda að
kynna sér samhengi orða og athafna stjórnmála-
manna. Spyrjið þá hvað þeir hafi gert sem kemur
ykkur að beinu gagni. Við þingmenn Alþýðu-
bandalagsins erum óhrædd við þá athugun.
Ólafur Ragnar Grímsson
4. maður G-listans í Reykjavík:
Stöðvum
afturhalds-
stjórn íhalds
og Framsóknar
Þegar vika er til kjördags blasir við að afturhalds-
öflin í Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum
eru reiðubúin að taka höndum saman að loknum
kosningum.
Gagnkvæm tilboð
Framsóknarforystan hefur sent íhaldinu fjölda
samstarfstilboða: Tveggja ára lögbinding á kaup,
vináttusamningur við Alusuisse, hernaðarfram-
kvæmdir í Helguvík, nýr betlisamningur um banda-
ríska flugstöð, jafnvel strax í maíbyrjun. Fleira mætti
nefna.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið þessum til-
þoðum fagnandi. Frambjóðendur hans eru teknir að
boða nauðsyn „sterku stjórnarinnar", Það er heiti á
samstarfi afturhaldsins sem Ólafur Jóhannesson og
Tómas Árnason fóru fyrstir að nota á lokavikum
þingsins.
Draumastjórn Bandaríkjanna
Ef Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn
fá aukinn þyr í kosningunum verður afturhaldsstjórn-
in komin á laggirnar í byrjun maímánaðar. Slíkar
stjórnir hafa tvisvar áður setið hér að völdum: 1950-
1956 og 1974-1978. Þær hafa reynst launafólki hin-
ar verstu stjórnir og knúið verkalýðshreyfinguna til
hinna grimmdarlegustu verkfallsátaka. Slíkar stjórnir
hafa sýnt Bandaríkjunum hömlulausa undanláts-
semi, enda er vitað að samstarf Framsóknarflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins er óskastjórn Bandaríska
sendiráðsins.
Þá yrði hægt að hefja hernaðarframkvaemdir sem
liggja á áætlunarborðunum í Pentagon. Árlega yrði
miljónum tuga dollara varið til aö auka vígbúnaðar-
aðstöðu Bandaríkjanna á íslandi. Þegar krafan um
afvoþnun hljómar á torgum höfuðborga í öllum nág-
rannalöndurri biður afturhaldið á íslandi um umboð
til að stórauka vígbúnaðinn í landinu.
Styrkur Alþýðubandalagsins
eða afturhaldsstjórn
Valdataka afturhaldsins i Sjálfstæðisflokknum og
Framsóknarflokknum verður staðreynd að loknum
kosningum nema Alþýðubandalagið fái styrk til að
beita stöðvunarvaldi og knýja aðra til samninga um
þá stefnu sem felst í Samstarfsgrundvellinum sem
við höfum kynnt. Alþýðuflokkurinn er í sárum eftir
innri átök og Vilmundur Gylfason ætlar ekki að hafa
nein afskipti af stjórnarmyndun að loknum kosning-
um. Því er það Alþýðubandalagið eitt sem getur
hindrað hina nýju afturhaldsstjórn.
Kjarninn I kosningunum er skýr: Fá Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokkurinn umboö til að
tengja saman verstu afturhaldsöflin í landinu eða
tekst Alþýðubandalaginu að öðlast nægilegan styrk
til að knýja fram stefnumáiin í Samstarfsgrundvelli-
num? Verður hér ríkjandi á næstu árum stefna lög-
þvingunar á launafólk, atvinnuleysis og vígbúnaðar
eða sú stefna kjarajöfnunar, íslenskrar atvinnuþró-
unar, friðar pg afvoþnunar sem Alþýðuþandalagið
hefur kynnt íslendingum?
Eftir viku vitum við svarið.
Grétar þorsteinsson
5. maður G-listans í Reykjavík
Húsnæði og
atvinna
Einn mikilvægasti þátturinn í lífsafkomu fóks er
með hvaða hætti það getur þyggt sér íbúðar-
húsnæði.
Alþýðubandalagið hefur farið með húsnæðismál-
in í þeirri ríkisstjórn sem nú situr.
Höfuð áherslan hefur verið lögð á að gera verka-
mannabústaðakerfið sem öflugast, enda hefur tekist
að gera þá kröfu verkalýðshreyfingarinnar að raun-
veruleika, að um þaö bil þriðjungur íbúða í landinu sé
byggður á félagslegum grundvelli.
Þessi fyrirheit voru gefin verkalýðshreyfingunni i
kjarasamningunum 1974 af ríkisstjórn Ólafs Jó-
hannessonar og Geirs Hallgrimssonar, en ekki við
þau staðið.
Flokkurinn vill halda áfram á þessari braut, en
jafnframt verði stofnaður sérstakur sjóður, sem fjár-
magni að veruiegum hluta hóflegt húsnæði fyrir ungt
fólk, og aðra þá sem eru að tryggja sér húsnæði í
fyrsta skipti.
Með verðtryggingu lána til bygginga eða kaupa á
íbúðarhúsnæði rriá segja að öll aðstaða til að eignast
húsnæöi hafi gjörbreyst. Þannig að þrátt fyrir að lán
frá Byggingasjóði ríkisins hafi hækkað að raungildi
síðustu árin, þá hefur greiðslubyrðin aukist verulega
frá því sem áður var vegna verðtryggingarinnar.
Greiðslubyrði þessa fólks telur Alþýðubandalagið
að verði að létta, m.a. með því að þreyta skammtím-
alánum í lán til 12-15 ára, með svipuðum hætti og
gert var í byrjun árs 1981, i gegn um bankakerfið.
Nátengt húsnæðismálunum er atvinnuöryggi
þeirra um það bil 10 þúsund manna, sem starfa í
byggingariðnaði og við mannvirkjagerð.
Með bættu skipulagi í þessari atvinnugrein er
hægt að tryggja þessu fólki næga atvinnu næstu
árin.
Það byggist að vísu á því að þessu fólki verði með
öllum tiltækum ráðum tryggð betri störf, i staö þess
sem nú virðist stefna í, að yfir okkur flæði svo til
hömlulaust innflutt hús, húsgögn, húshlutar og ann-
ar fullunnínn varningur til byggingaframkvæmda.
Það hefur reynst erfitt að hamla gegn þessari þró-
un og kemur þar ýmislegt til.
Sérstaklega vil ég þó nefna hér aðild okkar íslend-
inga að efnahags- og tollabandalögum, sem höfuð
orsökina og í því samþandi benda á að t.d. ná-
grannar okkar á Norðurlöndum virðast fara mun
frjálslegar með þær leikreglur sem þar gilda heldur
en viðkomandi stjórnvöld hér heima hafa leyft sér.
Alþýðubandalagið vill koma í veg fyrir þessa
óheilla þróun og í því sambandi vil ég nefna að frá
ráðuneytum Alþýðubandalagsins í þessari ríkis-
stjórn, kom innborgunarskyldan á innflutt húsgögn,
12% tollurinn á innflutt einingahús og nú síðast stað-
festing félagsmálaráðuneytisins á reglum, sem kalla
á verulega hert eftirlit með innflutningi einingahúsa.
6. Guðrún Hallgrímsdóttir
f.5.11 '41, deildarstjóri, Fálkagötu 19.
Guörún er matvælaverkf ræöingur aö
mennt og starfar nú í
iðnaðarráðuneytinu. Hún starfaöi áður
sem verkfræöingur hjá búvörudeild SlS.
Guörún vann um tima sem f ulltrúi hjá
lönþróunarslofnun SÞ í V/narborg.
Guörún hefur verið stjórnarformaður
löntæknistofnunar íslands frá árinu
1980. Hún hefur starfaö mikið aö
jafnréttismálum, m.a. i
Rauðsokkahreyfingunni. Hún hefur
veriö varaþingmaður frá 1979.
7. MargrétS. Björnsdóttir
f. 1.7. '48, kennari, Miðstræti 5. Margrét
lauk magisterprófi í þjóðfélagsfræðum I
Þýskalandi 1975. Hún hefurverið
kennari við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti f rá 1976 og er deildarstjóri
félagsgreinadeildar. Hún átti sæti i stjórn
Hins íslenska kennarafélags 1980-
1982.MargrótvarformaðurABR 1980-
1981, og fulltrúi í æskulýðsráði
Reykjavíklur 1978-1982. Margrét er
varamaður I framkvæmdastjórn
Alþýðubandalagsins.
8. Álfheiður higadóttir
f. 1.5.'51, blaðamaður, Tómasarhaga 19.
Álfheiður lauk B.Sc. prófi I líffræði frá
Háskóla íslands 1975 og kenndi líffræði
einn vetur við Menntaskólann I Reykjavik.
Álfheiður hefur verið blaðamaður á
Þjóðviljanum frá 1977. Hún hefur verið
varaborgarfulltrúi í Reykjavík frá 1978.
Álfheiður á sæti í framkvæmdastjóm
Alþýðubandalagsins.
9. Arnór Pétursson
f. 14.11 .'49, fulltrúi hjá T ryggingastofnun
ríkisins, Stífluseli 2. Arnór startaði sem
stýrimaðurfram til ársins 1971 og hjá
T ryggingastofnun frá 1974. Hann hefur
tekið mikinn þátt I starfi Sjálfsbjargar og
verið formaður íþróttafélags fatlaöra frá
stofnun þess 1974. Arnór er margfaldur
íslandsmeistari I lyftingum. Hann er
fulltrúi BSRB í nefnd á vegum
ríkisstjórnarinnarum atvinnumál
fatlaðra.
10. Ragna Ólafsdóttir
f. 7.5. '44, kennari, Tómasarhaga 12.
Ragna lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla íslands 1968 og hefur
síðan kennt við Melaskólann. Hún sat í
stjórn Sambandsgrunnskólakennara
1976-1980 en var kjörin formaður
Kennarafélags Reykjavíkur 1981, þegar
kennarafélögin voru sameinuð IKFR.
Ragna á sæti i samninganefnd
Kennarasambands Islands og er
varamaður i stjórn og samninganefnd
BSRB.
11. HallgrímurG.
Magnússon
f. 19.4.'55, húsgagnasmiður,
Spóahólum 8. Hallgrimur tók virkan þátt í
starfi Iðnnemasambands Islands þar til
hann lauknámi i húsgagnasmiði 1980,
og var formaður INSI1977-1978 og
framkvæmdastjóri Félagsmálaskóla
INSÍ1978-1979. Hallgrímurvarkjörinn
formaður Sveinafélags húsgagnasmiða
1981 og var ráðinn starfsmaður
félagsins í ársbyrjun 1982. Hann átti sæti
í framkvæmdastjórn Sambands
byggingarmanna.
12. Margrét Pála Ólafsdóttir
f. 13.10. '57, fóstra, Hjarðarhaga 36.
Margrétlaukfóstrunámi 1981 oghóf þá
störf á Hagaborg en hefurverið
forstöðumaður í Steinahlíð haustið 1982.
Margrét var kjörin varaformaður
Fóstrufélags Islands í maí 1982, og er
fulltrúi starfsmanna í stjórn
dagvistarheimila í Reykjavík. Margrét á
sæti i fulltrúaráði Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og í ritnefnd Ásgarðs.
Þááhúnsætiinefnd
menntamálaráðuneytisins um gerö
starfsáætlunar fyrir dagvistarheimili.
13. Sigrún Valbergsdóttir 14. Þráinn Bertelsson 15. JónReykdal
f. 21.2/48, leikari, Ránargötu 20. Sigrún í -V f. 30.11 '44, kvikmyndagerðarmaður, f. 14.1/45, myndlistarmaður,
lauk stúdentspróf i frá Sfct ' mwinmw Klapparstíg 42. Þráinn lagöi stúnd á Vesturbergi 60. Jón stundaði
w ■■ Verslunarskólanum 1968 og útskrifaðist heimspeki- og sálfræðinám í Dublin, Hi’'. myndlistarnám í Reykjavík, Amsterdam
f. úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1970. starfaði við blaðamennsku og kenndi við og Stokkhólmi á árunum 1962-1972.
Næstu 8 árin var hún i Þýskalandi við Þelamerkurskóla 3 vetur áöur en hann t ;<|ÍÍÉý Frá því ári hefur hann verið kennari við I. J
nám í leikhúsfræðum i Köln og vann sneri sér að kvikmyndagerð. Hann lærði 31 Myndlista- og handiðaskólann. Jón á :
HS'J * - Tj'/'W einnig viðHáskólann í Aachen. Frá 1978 leikstjórn fyrir sjónvarp og kvikmyndir við ''V- ' :'W sæti í stjórn Norrænu HKMI
mi s>. hefur hún unniö við dagskrárgerð fyrir Dramatiska I nstitutet 1974-1976 og hef- \' } 4 myndlistamiöstövarinnar í Sveaborg í
■ 1 Wk - útvarp, kennt við Leiklistarskóla íslands ur síðan verið dagskrárgeröarmaður hjá Helsinki, og hefur verið fulltrúi HH W/ \ /
i-;. og unnið við leiklist víða um land. Hún mé sjónvarpinu og starfað sjálfstætt við v < 'Mý' $ myndlistarmanna I stjórn Kjarvalsstaða ■ . M
pW’ Jlv ** '^JrSIIÍlÉ var leikhússtjóri Alþýðuleikhússins áSlli iíSSíl kvikmyndagerö. Hann leikstýrði kvik- É«Éj& "í , ,mk \ frá 1978. Hann hefur tekið þátt I fjölda
1980-1982 og er nú nýraðin myndinni „ Jón Oddur og Jón Bjarni" og sýninga, einkum á grafík heima og r - Wk isÉitew. pjlil
framkvæmdastjóri Bandalags íslenskrá . vinnur nú að gerö myndar sem ber heitið v .. erlendis. Jón hélt einkasýningu i
leikfélagá. „Nýtt líf“. Þráinn hefur skrifað 4 skáld- Norræna húsinu árið 1980. \ • HHSEI
m 71 sögurog gert þætti fyrir útvarpið.
16. HuldaS. Ólafsdóttir
f. 20.8.'27, sjúkraliði, Básenda 1. Hulda
útskrifaöist úr Sjúkraliðaskóla Islands
1976 og hefur síðan starfað sem sjúkraliði
á Grensásdeild Borgarspítalans. Hulda
hefur átt sæti i stjórn Sjúkraliðafélags
Islands s.l. þrjú ár og er fulltrúi fSlagsins i
stjórn Sjúkraliðaskóla Islands. Á síöasta
aðalfundi var Hulda kjörin í stjórn
Starfsmannafélags Reykjavíkur.
17. Ragnar A. Þórsson
f. 28.7/58 ÍBerlin, verkamaður,
Starhaga 14. Ragnar hefurstundað
almenna verkamannavinnu undanfarin
ár en hefur nú um tima verið starfsmaður
Alþýðubandalagsins, fyrst Laga- og
skipulagsnef ndar f lokksins og nú
kosningastjórnar. Ragnará sæti í stjórn
Æskulýöfylkingar Alþýðubandalagsins.
18. Esther Jónsdóttir
f. 30.9/30, varaformaður Sóknar,
Grýtubakka4. Esther hefur unnið ýmis
verkakvennastörf fra 14 ára aldri, m.a. í
17 ár á Ellihemilinu Grund. Esther hefur
verið i stjórn og varastjórn
Starf smannafélagsins Sóknar f rá 1967
og varaformaður félagsins frá 1975. Hún
starfar nú á skrifstofu Sóknar.
19. Þorsteinn Blöndal
f. 5.8/46, yfirlæknir, Hávallagötu 13.
Þorsteinn er stúdent f rá M. R. 1966 og
lauk læknaprófi frá Háskóla Islands
1973. Hann stundaði framhaldsnám í
lungnalækningum og lauk doktorsprófi í
þeirri grein frá Háskólanum i Uppsölum
1982. Þorsteinn er yfirlæknir við Lungna-
og berklavarnadeild
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur og
sérfræðingurvið Lyflæknisdeild
Landspítalans frá siðustu áramótum.
20. ÞorleifurEinarson
f. 29.8/31, jarðfræðingur, Langholtsvegi
138. Þorleifur lauk prófi í jaröfræöi frá
háskólanum í Köln 1960 og doktorsprófi'
þaðan sama ár. Hann starfaðr á
Atvinnudeild Háskóla (slands og
Rannsóknastof nun Iðnaðarins 1965-1966
og við Raunvisindastofnun Háskólans
1969-1974, er hann var skipaöur
prófessor I jarðíræði við Háskóla Islands.
Þorleifur hefur skrifað fjölmargar greinar
og bækur um jarðfræðileg efni. Þorleifur
hefurveriö formaður Máls og menningar
frá 1974 og formaður Landverndar frá
1979.
21. Silja Aöalsteinsdóttir
f. 31.10. '43, bókmenntafræðingur,
Hrísateigi 34. Silja lauk BA prófi i
íslensku og ensku frá Háskóla Islands
1968og cand. mag. prófiiíslenskum
bókmenntum áriö 1974. Hún hefur veriö
stundakennari við Háskóla Islands og
þýtt fjölda barnabóka. Árið 1981 kom út
bók hennar um íslenskar
barnabókmenntir. Silja er annar tveggja
ritstjóra Tímarits Máls og menningar.
Traust
afl til
vinstrí
22. Hallgrímur
Guðmundsson
f. 2.7/48, stjórnmálafræöingur, Birkimel
10 A. Hallgrimur lauk BA prófi í
stjórnmálafræðum frá Háskóla Islands
1975 og stundaði f ramhaldsnám í
opinberri stjórnsýslu í Manchester
1975-1979. Hallgrímurvarístjórn
Stúdentafélags Islands 1971 og
varaformaður Æskulýðssambands
(slands 1973-1974. Hann hefur um
nokkurt skeið átt sæti I stjórn T orfusam-
takanna og er nú formaður þeirra.
23. Steinn Halldórsson
f. 3.6. '49, verslunarmaður, Hraunbæ
156. Steinn er gagnfræðingur að mennt
og hefur lengst af stundaö verslunarstörf
í Borgarfelli. Hann hefur starfað mikið
innan knattspyrnuhreyfingarinnar, var
formaður Knattspyrnudeildar Fylkis
1973-1980, átti sæti í stjórn
Knattspyrnusambands Islands um tíma
og hefur átt sæti I stjóm Knattspyrnuráðs
Reykjavíkurfrá 1973.
24. Einar Olgeirsson
f. 14.8.1902, fyrrverandi alþingismaður,
Hrefnugötu 2. Einar lauk stúdentprófi 1921
og las bókmenntir við háskóla I
Kaupmannahöfn og Berlln. Hann var
ritstjóri Þjóðviljans frá 1936-1941,
formaður Sameiningarflokks alþýðu,
Sósíalistaflokksins, 1939-1968 og
alþingismaður 1937-1967. Einar var
ritstjóri Réttar 1926-1940 og stðan óslitið
frá 1946. Hann hefur skrifaö fjölda
tímaritsgreina og bóka.